Morgunblaðið - 12.04.1967, Síða 8

Morgunblaðið - 12.04.1967, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1967. Siglufiröi. MliCiUm snjó kyngdi niður her 1 nænum I marzmánuði síðastliðnum eins og kunnugt er. Hafði fólk ekki undan að moka £rá dyrum húsa sin^a. Þess voru dæmi að fólk gerði göng frá dyrum sínum gegn- um snjóinn. Þessi mynd er tekin af snjóskafli þeim er dró í fyrir aðaldyr Tunnu- verksmiðjunnar, en hann náði allt upp í aðra hæð húss'ns. Voru grafin göng gegnum snjóskaflinn og voru þau 5 m. löng. Myndin sýnir starfs mann verksmiðjunnar vera að fara inn í göngin Tvö heSmspekirit eftir Gunnar Dal í FLOKKI heimspekirita eftir Gunnar Dal eru komnar út tvær nýjar bækur. Sú fyrri fjallar um Plató, sem af mörgum er talinn mesti heimspekingur allra alda. Hin er um lærisvein hans, Aristóteles. Er þetta tíunda og ellefta heimspekirit Gunnars, í þessum flokki, en áður hafa bomið út eftirtalin rit: I. „Leitin að Adíti“, sem fjall- ar um elztu ljóðabók heims: „Rígvedu", og „Úpanishada". f „Rígvedu" er að finna elzta vísi að heimspeki og menningu hins aríska kynstofns — og minna ljóðin á „Völuspá" og fl. Eddu- kvæði. „Úpanishadar" fjalla um elztu heimspeki Indverja. II. „Tveir heimar", er tekur til meðferðar Karmaheimspeki og Mayaheimspeki Indverja. m. „Líf og dauði", er fjallar um kenninguna um framhaldslíf og fortilveru. IV. „Hinn hvíti Lotus“, sem gerir grein fyrir kenningum Búddismans og „Bagavat Gíta“, sem mörgum er kunn. V. „Yóga“, er fjallar um „Yógasútru Patanjalís“, en það rit er grundvöllur allra hinna fjölmörgu og stóru bóka, sem skráðar hafa verið um Yóga í tvö þúsund ár. VI. „Sex indversk heimspeki kerfi“. VII. „Grískir heimspeking- ar“, en þar eru settar fram nýj- ar kenningar um uppruna grískr ar heimspeki. VIII. ,Öld Sókratesar". IX. „Varnarræða Sókrates- ar“, í nýrri þýðingu Gunnars, ásamt formála. Tíunda og ellefta bók er, eins og fyrr segir, um Flató og Aris- tóteles, tvo rismestu heimspek- inga Vesturlanda. Gunnar Dal er nú þegar orð- inn einn mikilvirkasti rithöfund- ur okkar um heimspekileg efni. Mun mörgum vafalaust vera for- vitni á að kynnast þessum bók- um, sem byggja brú á milli lið- inna kynslóða og framtíðarinn- ar. Hvað verður um Paulo Stangl? Rio de Jeneiro 5. apríl AP. AUSTURRÍKISSTJÓRN hefur nú opinberlega farið fram á það við stjórnina í Brasilia að hún framselji Paulo Stangl, nazistaforingjann, sem var yf irmaður striðsfangabúða naz- ista í Póllandi í heimsstyrjöld inni síðari. Er Sangl sakaður nm að hafa myrt eða átt þátt í að myrða 700 þúsund gyð- inga, sem fluttir voru til Tre- blinka í Póllandi allstaðar að úr Evrópu. Stang var handtekinn af brasilískum öryggislögreglu- mönnum 1. marz sl. er hann var á leið heim frá vinnu sinni 1 Volkswagenverksmiðjunum í Sao Paulo. Lögreglumennirn ir sögðu að handtakan hefði ekki komið Stangl á óvart, hann hefði sagzt hafa vitað að það hefði aðeins verið tíma spursmál hvenær hann yrði handtekinn. Hann sagði við lögreglumennina, að hann hefði engan Gyðing myrt, en aðeins fært nöfn þeirra í bæk ur fangabúðanna. Stangl var handtekinn í styrjaldarlok af bandamönnum og afhentur austurrískum yfirvöldum, en þar var hann fæddur. Skömmu eftir handtökuna tókst honum að flýja úr haldi og fór fyrst til Sýrlands, en síðan til Brasilíu árið 1950, þar sem hann hefur dvalizt síðan. Stangl er númer þrjú á lista Gyðingaisamtakanna í Vínar- borg yfir stríðsglæpamenn, sem enn eru taldir á lífi. Efst ur á lista er Martin Bormann og nr. tvö er Heinrich Miill- Paulo StangL er, síðasti yfirmaður Gesta- po. Fregnir af þessum tveim- ur berast alltaf öðruhvoru og þá yfirleitt í einhverju S- Ameríkulandanna. Það var þannig í Argentínu árið 1961 að útsendarar Gyðinga náðu Adolf Eichmann, nazistafor- ingjanum, sem sakaður var um að hafa átt sök á dauða 6 milljón Gyðinga, Hann var futtur með leynd til ísrael, þar sem réttur var settur yfir honum og hann síðan hengd- ur. Hæstiréttur Brasiiíu fjallar nú um framsalsbeiðni Aust- urrikisstjórnarinnar, en ekk- ert er vitað um úrskurð hans. Heimildir frá Brasilíu herma að lagalega séð, sé ekki úti- lokað að Stangl verði látinn laus. Nelson Hungaria, fyrr- verandi forseti hæstaréttar sagði nýlega, að þar sem af- brot Stangls væru orðin 20 ára gömul sé ekki hægt að framselja hann skv. brasilísk- um lögum. Annar lögfræðing ur heldur því ennfremur fram að engin heimild sé fyrir hendi í lögum landsins um framsal sakborninga í útrým- ingarmorðum, sem þessum Hvað sem þessu líður leggja nú talsmenn framsals Stangls mjög hart að hæstaréttardóm urum að verða við ósk Aust- urríkis. Fregnir herma að Gyð ingasamtök um allan heim hafi sent yfirvöldum í Brasi- líu bænarbréf um að Stangl verði framseldur. Á hinn bóginn hefur fjöldi lögfræðinga tekið sig saman og skrifað undir beiðni til hæstaréttar um að Stangl verði látinn laus og fengin lög regluvernd. Ef svo færi að Brasilíustjórn framseldi Stangl er enginn hætta á að hann verði tek- inn af lífi, þar sem dauða- refsing gildir ekki í Austur- ríki og ennfremur banna lög Brasilíu framsal sakamanna sem eiga dauðarefsingu yfir höfði sér. Verði Stangl látinn laus er hætta á að lífi hans verði sífellt í hættu. Fregnir herma að öryggislögreglan í Brasilíu kanni nú fjárreiður Stangls, en hann er sagður hafa borizt meira á, en eð®- legt gæti talizt af verkamanni og leikur grunur á, að hann hafi fengið fjárhagsaðstoð frá öðrum nazistaforingjum. Deilt um Svetlönu á indverska þinginu Nýju Delfí, 7. apríl, NTB. INDVERSKA ríkisstjórnin vísaði i dag á bug þeirri kröfu kommúnista á þingi, að stjórnin beitti sér fyrir ítar- legri rannsókn á orsdkum þess, að Svetlana Alilujeva dóttir Stalíns flýði Sovétríkin. Flokksleiðtogi kommúnista, Bhupesh Gupta, krafðist rann sóknarinnar og gaf jafnframt í skyn, að bandaríska leyni- þjónustan, CIA, stæði bak við landflótta hennar. Verzlunarmálaráðherrann, Din esh Singh, mælti af hálfu ríkis- stjórnarinar og vitnaði í bréf Svetlönu til flokksforingja sósil- ista, Ram Mandhar Lohia, sem barst honum í hendur á mánu- dag, þar sem hún kvaðst ein bera ábyrgðina á flóttanum. Dinesh er dóttursonur Brijesh Singh, en Svetlana færði jarð- neskar leifar hans til Indlands frá Moskvu. Náið samband var með Svetlönu og Singh, en þau voru ekki gift, að sögn Dinesh. Dinesh fór þess á leit við stjórnarandstöðuna, að hún gerði landflótta Svetlönu ekki að póli- tísku máli. Spurði hann stjórnar andstöðuna hversvegna hún hefði ekki tekið upp mál Svetlönu, þegar hún var stödd á Indlandi og vitað var, að hún æskti þess að setjast þar að. Stjórnarandstaðan dró í efa þau ummæli Dinesh, að Svetlana hefði staðið í vináttusambandi við móðurbróður hans, en þau hefðu ekki verið gift. Vitnaði andstaðan í fyrrnefnt bréf Svet- lönu, þar sem hún ræddi um Brijesh sem eiginmann sinn. Fasteignasalan Hátúni 4 A, Nóatúnshú.sið Sími 2-18-70 Ibúðir óskast Höfum sérstaklega verið beðn ir að auglýsa eftir eftir- töldum fasteignum: Húsi í Mosfellssveit, helzt I smíðum. 2ja—6 herb. íbúðum og ein- býlishúsum á hvers konar byggingarstigi í Reykjavík, Kópavogi, Seltjarnarnesi og Garðahreppi. 2ja herb. íbúð í háhýsi, góð útborgun. 3ja herb. góðri íbúð, um stað- greiðslu gæti verið að ræða. 4ra herb. hæð, helzt að bíl- skúr fylgi. Útborgun um ein milljón. 5 herb. sérhæðum í borginni. Mjög góðar útborganir. Höfum kaupanda að góðu einbýlishúsi í Reykjavík, staðgreiðsla. HilmaT Valdimarsson fasteignaviðskiptL Jón Bjarnason hæstaréttarlögmaður. íbúð óskast Höfum kaupanda að 6—7 herbergja íbúð með bílskúr, helzt í borginni. Mikil útb. Til rgeina getur komið að skipta á nær fullgerðri 6 herb. íbúð. Fasteignir og fiskiskip Hafnarstræti 19. Fasteignaviðskipti, Björgvin Jónsson. Sími 22822 - 19775. Pottamold Blómaáburður Fasteignir til sölu Einbýlishús við Hjal'labrekku o. v. Fokheldar 5 herb. hæðir við Alfhólsveg. Allt sér, bíl- skúrar. Hæð og ris við Efstasund. Bilskúr. 2ja og 3ja herb. íbúðir við Bergþórugötu o. v. Fallegt 3ja herb. rishæð við iÞnghólsbraut. Fagurt út- sýni. 5 herb. hæðir við Gnoðavog, Efstasund, Ásgarð, Difranes- veg o. v. 3ja herb. hæð við Hagatnel. 2ja herb. íbúð við Lauganes- veg. 2ja herb. íbúð við Baldurs- götu. Verð 450 þús. Útb. 120 þúsund. Ný einbýlishús í Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Hveragerði. Gudm. Þorsteinsson IðgglHur (ariulgnaiail Austurstræti 20 . Sfrni 19545 Til sölu 2ja herb. íbúffir, 70 fm. og um 50 ferm. í sambýlishúsi við Ásbraut. Vandaðar íbúðir. Sameign frágengin. 2ja og 3ja herb. íbúðir við Ljósheima, Hátún, Sólheima Stórholt og víðsvegar í borginni og Kópavogi. 4ra herb. nýlegar íbúðir við Álftamýri, Háaleitisbraut, Miðbraut og víðar. 5 herb. efri hæð við Kópa- vogsbraut. Þvottahús á hæð- inni, sérinngangur, nýteppa- lögð. Laus til. íbúðar. Lóð frágengin, bílskúrsréttur. Raðhús um 160 ferm., gólffl., 4 svefnherbergi, fullgert, sunnanvert í Kópavogi. Raðhús (Sigvaldahús) og rað- hús í smíðurn í Reykjavik og Kópavogi. Einbýlishús 1 smíðum við Fagrabæ og á Flötunum Garðahreppi. Einbýlishús 140 ferm., full- gert. Skipti á góðri 4ra herb. íbúð koma til greina. FASTEIGNASAl AN HÚS&EIGNIR BANKASTRÆTI é Símar 16637. 40863 og 4039«

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.