Morgunblaðið - 12.04.1967, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 12. APRlL 1967.
Björn Jónsson
prentari - Kveðja
ENN Á ný hefur verið höggv-
Ið skarð í raðir prentarastéttar-
innar. Hinn 3. apríl bárust þau
•orgartíðindi í prentsmiðjurnar,
að hinn vinsæli og dáði stéttar-
bróðir Bjðrn Jónsson prentari,
hefði þann dag andazt i Lands-
•pítalanum. — Á aðalfundi Hins
t
Móðir okkar,
Ragnhildur Hansdóttir,
Drápuhlíð 41,
andaðist í Landsspítalanum
taugarinn 8. þ.m.
Rannveig Þorsteinsdóttir,
Rósa Þorsteinsdóttir,
Ólafur Þorsteinsson.
t
Móðir okkar,
Kristín M. Pétursdóttir,
Þórsgötu 16 A,
andaðist á Landakotsspítalan-
um laugardaginn 8. apríl.
Signrdrífa Jóhannsdóttir,
Margrét Gísladóttir,
Ágúst Gíslason,
Guðmundur Gíslason.
t
Litli drengurinn okkar,
Guðmundur,
er andaðist í Borgarspítalan-
um 7. apríl, verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 13. april kL 1.30
s.d.
Þorsteinn Guðbjörnsson,
Þórunn Jónsdóttir
og systkini hins látna.
t
Hjartkær eiginmaður minn,
faðir, sonur og bróðir,
Björn Sigurðsson,
húsgagnasmiður,
Fjólugötu 20, Akureyri,
sem lézt í Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri fimmtudag
inn 6. apríl, verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju föstu
daginn 14. april kL 1.30 e.h.
Bergþóra Jónsdóttir
og synir,
Þorbjörg Björnsdóttir,
Ingibjörg Sigurðardóttir
og aðrir ástvinir.
t
Maðurinn minn, faðir okkar
og afi,
Björn Jónsson,
prentari,
Hlíðarvegi 147, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju í dag kL 1.30.
Blóm vinsamlega afþökkuð.
Anna Einarsdóttir Long,
Guðbjörg Bjömsdóttir,
Gunnar Björnsson,
Anna Biraa Watts.
íslenzka prentarafélags daginn
áður (2. apríl) var einróma sam-
þykkt að gera Björn að heiðurs-
félaga í Prentarafélaginu. Eng-
an óraði fyrir því þá, að ævi-
dagar hans væru þegar taldir.
Enda þótt Björn hefði verið
heilsuveill árum saman, töldu fé
lagar hans víst, að enn mættu
þeir njóta félagsskapar hans um
skeið.
Björn fæddist á fögrum haust-
degi, 21. sept. 1895, að Kleifs-
haga í öxarfirði í Norður-Þing-
eyjarsýslu. Foreldrar hans voru
Sigríður Tómasdóttir frá Hróars
stöðum í öxarfirði og Jón Snorri
Jónsson, 'koparsmiður. söðlasmið-
ur og hreppstjóri í Arnarbæli og
víðar, ættaður úr Dalasýslu.
Tólf ára gamall fluttist Björn
með foreldrum sínum til ísa-
fjarðar. Tveim árum síðar, eða 1.
okt. 1900 hóf hann prentnám í
prentsmiðju Vestra hjá Krist-
jáni A. Jónssyni prentara og rit-
stjóra. Ekki stundaði Björn ó-
slitið prentnámið. því daginn eft
ir fermingu réði hann sig sem
matsvein á skútuna „Den lille".
Skipstjóri á henni var Björn
Gíslason, bróðir Þorsteins rit-
stjóra Lögréttu. Ekki undi Björn
t
Móðir okkar,
Valgerður
Guðmundsdóttir,
Túngötu 12, Grindavik,
verður jarðsett fimmtudaginn
13. apríl. Athöfnin hefst með
húskveðju að heimili hinnar
látnu kl. 1.30 síðdegis.
Börnin.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við fráfall og jarðarför
Kristínar Gísladóttur,
Freyjugötu 34.
Vandamenn.
t
Þökkum auðsýnda samúð
við fráfall og jarðarför
Kolbeins Guðmundssonar.
Börn og tengdaböra.
t
Hjartans þakkir til sveit-
unga og vina nær og fjær, fyr-
ir samúð og vinarhug við and-
lát og jarðarför bróður okkar,
Guðmundar Jónssonar,
bónda,
Brjánsstöðum, Skeiðum.
Einnig þökkum við læknum,
hjúkrunarkonum og starfsliði
sjúkrahússins á Selfossi fyrir
frábæra hjúkrun og umönnun
í banalegu hans.
Guð blessi ykkur ölL
Systkin hins látna.
til lengdar á sjónum, sneri því
brátt aftur að svartlistarstörfun-
um og lauk námi með prýði.
Ekki hélzt Björn lengi við á Isa-
firði eftir að hann hafði lokið
námi. Leitaði hann þá til Reykja-
víkur, svo sem margir aðrir
höfðu gert á undan honum. Tók
hann fyrst til starfa í Félags-
prentsmiðjunni, en litlu siðar
fluttist hann í ísafoldarprent-
smiðju. Þar kynntist ég Birni
fyrst. Líkaði mér því betur að
vinna með honum, sem við unn-
um lengur saraan. í Actaprent-
smiðju hóf Björn vinnu 17. júli
1924 og starfaði þar óslitið þar
til hann stofnaði Víkingsprent
seint á árinu 1935. Þá prent-
smiðju starfrækti Björn í 4 ár, en
seldi hana þá samnefndu hluta-
félagi, en prentsmiðjustjóri þeirr-
ar prentsmiðju var hann um
margra ára skeið. f maímánuði
1952 keypti hann þriðja hluta í
prentsmiðjunni Rún og gerðist
forstöðumaður þeirrar prent-
smiðju. Hélt hann þeim starfa í
nokkur ár. en hætti síðan öllum
prentsmiðjurekstri. Síðustu árin
hefur hann starfað í ríkisprent-
smiðjunni Gutenberg.
Björn gekk f Prentarafélagið
29. október 1913, en formaður
félagsins var hann kosinn 24.
júlí 1926 og gegndi þeim starfa
um 8 ára skeið. Hafði þá enginn
gegnt þeim störfum jafnlengi í
einu sem Björn, Þau ár sem
Björn var formaður félagsins,
voru að ýmsu leyti erfið bæði
fyrir prentara og prentsmiðju-
eigendur. Þá var kreppan skoll-
in á með öllum sínum þunga, en
framkvæmdir allar drógust sam
an smátt og smátt. Aðdáunarvert
var hve Birni tókst vel að stýra
félaginu framhjá boðaföilum
kreppu-holskeflunnar, en ná þó
jafnframt hagsbóta félagsmönn-
um til handa. Hjálpaði þar mikið
hve Björn var samningalipur og
sanngíarn um flesta hluti. Engu
að síður hélt Björn bó jafnan
fast á málefnum félagsins og
bokaði þeim með lagni í rétta
átt. Oft kom það fyrir að samn-
ingar virtust alveg vera að fara
' strand. Þá var gripið til bess
ráðs, að samningsliorustu menn-
irnir frá báðum aðilum — einn
frá hvorum — voru valdir til að
gera út um ágreiningsatriðin.
Skyldi það samþykkt hjá báðum
aðilum er þeir komu sér saman
um. Til þessara lokaátaka völd-
ust þeir að iafnaði Biörn Jóns-
son og Guðb’örn Guðmundsson.
enda höfðu þeir báðir þá kosti
til að bera að vera sanngjarnir.
t
Innilegar þakkir flytjum við
öllum sem sýndu okkur samúð
og styrktu í orði og verki við
fráfall og jarðarför elskulegs
eiginmanns mins, föður okkar,
tengdaföður og afa,
Benedikts Jakobssonar,
íþróttakennara.
Sérstaklega þökkum við Knatt
spyrnufélagi Reykjavíkur er
heiðraði minningú hans. með
því að sjá um útförina og enn-
fremur séra Braga Friðriks-
syni og þeim listamönnum
sem léku og sungu við athöfn-
ina.
Gyða Erlendsdóttfr,
böra, tengdabörn
9g barnabörn.
en halda þó öðrum þræði fast
á málstað sínum.
Björn var fulltrúi prentara í
sendinefnd þeirri frá verkalýðs-
félögunum er fór til Rússlands
vorið 1933. í þeirri för kynntist
hann kjörum rússneskra prent-
ara, einkum í Moskvu, og hefur
hann ritað fróðlega grein um
það efni í Prentarann (XIII. ár.
2.-3. tbl.).
Björn kvæntist 17. desember
1922 Önnu Einarsdóttur Long.
Ekki var þeim barna auðið en
þrjú kjörbörn hafa þau eignazt.
Fyrst tóku þau systkini, dreng
og stúlku. Drengurinn dó 17 ára
gamall, en stúlkan giftist til
Ameríku. Dóttir hennar, ung, var
um 8 ára skeið hjá þeim Önnu
og Birni. Þá hélt hún vestur um
haf til móður sinnar, en heim
kom hún aftur síðar og þá með
4 mánaða dóttur með sér. Sú
litla hnáta var augasteinn þeirra
önnu og Björns. Sem dæmi þess
hve vel Birni líkaði við þá litlu,
má geta þess, að hann hafði það
eitt sinn á orðL að hann hefði
ekki hlegið jafnmikið í 10 ár,
sem hann hefði gert, eftir að sú
litla bættist í heimilið. Þriðja
kjörbarn þeirra var drengur sem
nú er 24 ára gamall. Því miður
hefur hann verið heilsutæpur nú
um eins árs skeið.
Ég vil senda þessar línur með
því að þakka Birni prýðilegt sam-
starf bæði í ísafold og Acta. Ég
og kona mín vottum eftirlifandi
ekkju hans og öðrum aðstand-
endum innilegrar samúðar.
Jón Þórðarson.
KVEÐJUR
KVEÐJA
til Jóns Lúðviks Guðmundssonar
sem fórst með Freyju 1. marz
1967. Frá unnustu.
Ég geymi þig, sem ungum
heitt ég unnL
þín elska var mér tryggðarík
og kær.
Við lögðum saman braut að
lifsins brunnL
því breytti fljótL af stormi
vakinn sær.
Ekkert hylur okkar fögru
kynnL
þó yfir dyndi sorgarstundin
myrk.
Þú gafst mér allt, ég geymi
pað i mmni,
til Guðs ég bið um sálarró
og styrk.
L.S.
KVEÐJA
frá móður og systkinum.
Mín sál er sár og döpur,
því sær mér rkaða vann,
ég syrg? soninn prúða,
é^ sá par traustan mann:
ég sá nann vaxa og verða
hinn vmnuglaða svein
hver stund um soninn sæ a,
er sífeilt björt og hrein.
Þá móðurhyggjan mætir.
v:ð minninganna lund,
bá finnast margar fórnir
sem fundu glaða stund.
Ég legg f bæn að barmi
minn Durt kailaða son,
ég legg i herrans henditr,
minn harm og brotnu v <a.
L.S.
Sohag, Egyptalandi, 5. apríl
AP.
• Þrettán ungmenni drukkn-
uðu í dag, er bát þeirra hvolfdi
á Níl. Unglingarnir voru að fara
til lauktínslu á akri á árbakkan-
um. Meðalaldur þeirra var 12
ár og með þeim voru aðeins þrír
fullorðnir, sem allir komust
lífs af.
Edinborg, Skotlandi, 6. apríl
AP.
• Bandaríski björninn YOGI,
sem gefinn var skozkum börn-
um að gjöf fyrir u.þ.b. tveimur
árum, beið bana fyrir skömmu í
viðureign við stóran, pólskan
björn. Gerðist þetta í dýragarð-
inum i Edinborg, Yogi, sem var
aðeins þriggja ára, var að leika
sér í búri sínu, er pólski björn-
inn komst þar inn og réðst á
hann.
K V E Ð J A
til Birgis Benjamínssonar sklp-
stjóra, sem fórst með Freyjv
1. marz 1967. Frá eiginkonu og
böraum.
Mitt traust þú varst og vörnin,
á vegleið minni hér,
og blessuð litlu börnin
þú barst f höndum þér.
Við söknum þín og syrgjum,
mörg sæluvonin dvín,
en harir, í brjósti byrgjum
þín bjarta mmning skín.
Við þökkum bína gleðL
við þökkum ailt, sem var,
hið góða er lff þitt léðL
það ljúran ávöxt bar.
Við einatt munum minnast,
þín meðan hjartað slær,
við fögnum því að finnast,
þar fögur eilífð grær.
L.S.
Innilega þakka ég öllum
nær og fjær, sem glöddu mig
á áttræðisafmæli mínu 5.
apríl með gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur ölL
Hildur Bryniólfsdóttir
frá HamarsselL
öllum þeim er sýndu mér
hlýhug á 80 ára afmæli mínu,
með heimsóknum, gjöfum og
skeytum, sendi ég mínar inni-
legustu þakkir fyrir ógleym-
anlega kvöldstund. Sömuleið-
is þakka ég börnum minum og
tengdadætrum fyrir aðstoð
mér veitta við móttöku gesta
minna á afmælisdaginn.
Ég bið ykkur öllum guðs-
blessunar.
Guðbrandur Guðmundason,
frá LækjarskógL