Morgunblaðið - 12.04.1967, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1967.
23
Vélaverzlun G.J. Foss-
berg orðin fjörtíu ára
VELAVERZLUN G. J. Fossberg
átti 40 ára afmæli fyrir skömmu
síðan. Gunnlaugur J. Fossberg
lærði vélfræði í Kaupmanna-
höfn og hafði verið vélstjóri á
fyrstu skipum Eimskipafélags
íslands og eimskipum Willemoes
og Borg, sem ríkissjóður átti —
þegar hann setti upp verzlun
sína í Hafnar^træti 18, þann 27.
marz 1927.
Á þeim árum var mikil gróska
í sjáyarútveginum. Togarar voru
þá afkastamestu veiðiskipin og
línuveiðararnir hvað flestir.
Mótorbátum fjölgaði stöðugt og
iðnaður ýmiskonar var farinn
að skjóta upp kollinum þótt í
smáum stíl væri. Gunnlaugur
Fossberg sá að grunvöllur toafði
skapazt fyrir rekstri vélaverzl-
unar, sem hafði á boðstólum
ýmsar vörur og varahluti, sem
nauðsynlegir eru til viðhalds og
viðgerða á vélum og tækjum
slíks skipaflota. Einnig til hag-
ræðis fyrir vélsmiðjur, sem tekn
ar voru til starfa eða að rísa upp
á flestum stærstu útgerðarstöð-
unum, til þess að annast þá við-
gerðarþjónustu, sem þessi véla-
kostur þarfnaðist. Efnisvörur
voru á þeim árum einkum keypt
ar frá hinum Norðurlöndunum
og þá aðallega í Danmörku.
Fæst verkstæðin höfðu fjártoags-
legt bolmagn til að eiga miklar
og fjölbreyttar birgðir, heldur
urðu að láta sér nægja takmark-
að magn af því allra nauðsynleg-
asta. Það var tafsamt og óhag-
kvæmt að sækja varahluti eftir
hendinni til annarra landa, ekki
sízt ef viðgerð bar brátt að hönd-
um, og nauðsynlegir varatolutir
voru ekki til á verkstæðunum.
Samgöngur þá voru ekkert svip-
aðar því sem þær eru nú á dög-
um, og leið því oft langur timi
þar til varatolutir bárust. Yéla-
verzlun í Reykjavík bætti mjög
úr þessum vandræðum. Verzlun-
in var til húsa í Hafnarstræti
fram að árinu 1935 að hún var
flutt að Vesturgötu 3 í kjallar-
ann, en skrifstofurnar á hæðina
fyrir ofan Það var þó skamm-
góður vermir, því að brátt var
mjög þröngt um starfsemina þar
og aðstæður erfiðar. Vöru-
geymslur voru á fleiri stöðum i
bænum, og skortur á bílastæð-
um olli viðskiptavinum oft
miklum erfiðleikum. Árið 1962
var svo hafizt handa við bygg-
ingu verzlunartoúss við Skúla-
götu 63 og í það var svo flutt
1965. Enn er þó rekið útibú að
Vesturgötu 3, sem aðallega er
til þjónustu við viðskiptavini
verzlunarinnar við höfnina.
Fyrirtækinu var breytt i hluta-
félag árið 1963 og er fjölskyldu-
fyrirtæki. Formaður félags-
stjórnar er frú Jóhanna Foss-
berg en framkvæmdastjóri
Bjarni R. Jónsson. Hjá fyrirtæk-
inu vinna nú fjórtán manns.
ÞAKJÁRN
ÞAKPAPPI
VÍRNET
SAUMUR
J.
& IVorðmann hf.
Skúlagötu 30.
Sjálfvirkt 44 steina
100% vatns- og rykþétt úr með
dagatali Verksmiöjuábyrgð
Merkið tryggir gæðin!
Ursmiður
MAGNÚSGUÐLAUGSSON
Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 46., 47. og 48. tbl. Lögbirtiriga-
blaðsins 1966 á hluta í Hjallavegi 15, hér í borg,
þingl. eign Sæmundar Guðlaugssonar fer fram eft-
ir kröfu Jóns Finnssonar hrl., Axel Einarssonar
hrL, Vilhjálms Árnasonar hrl., Búnaðarbanka ís-
lands og Gjaldheimtunnar í Reykjavík, á eigninni
sjálfri, mánudaginn 17. apríl 1967, kl. 3 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Fundarboð
til allra St.-Georgs gildisfélaga í Reykjavík.
Fundur verður miðvikudaginn 12. þ.m. í æsku-
lýðshöllinni við Lækjargötu kl. 8.30 e.h. Hörður
Sophaníasson félagsforingi í Hafnarfirði flytur er-
indi.
ÖUum fylkisforingjum skátafélaganna í Reykja-
vík er sérstaklega boðið á fundinn.
Sýndar verða litskuggamyndir.
Kaffi.
GildisineistarL
ILMURINN ERINDÆLL
OG BRAGÐIÐ
EFTIR
Mfl
VeggOísoi
Brezkar
CARTER-PILKINGTONS
POSTULÍNSFLÍSAR.
Fjöldi lita og blæbrigða.
J. Þáilákssson
& Itlorðmann hf.
Bankastr. 11 - Skúlagötu 50.
Fastur
starísmaður óskast
til dyravörzlu og fleiri starfa.
Uppl. í síma 15457.
ifKzaaiaa
100% vatnsþétt.
Verksmíðjuábyrgð.
Gœðin
eru óvéfengjanleg.
Ura- og skartgripaverzlun
MAGNÚS ÁSMUNDSSON
Ingólfsstræti.
Matsveinn - framreiðslustúlka
Ung hjón óska eftir atvinnu við hótel eða mötu-
neyti úti á landi. Upplýsingar í síma 82851 eftir
kl. 5 á daginn.
FIRMIHGAROJAFIR
SPEGLAR -
Hver getur verið án spegils?
Lítið á úrvalið hjá okkur áður en þér ákveð-
Speglabuðin.
ið fermingargjöfina handa fermingarstúikunni. sími 1-9635.