Morgunblaðið - 12.04.1967, Side 30

Morgunblaðið - 12.04.1967, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1SK37. Völsungur á Húsa- vík 40 ára í dag ÍÞRÓTTAFÉI. AGlf) Völsungur á Húsavík verður 40 ára í dag, 12. appríl. Það var stofnað af 28 drengjum á aldrinum 11—14 ára 12. apríl 1927. Fyrsti for- maður þess var Jakob Hafstein, en Jóhann Hafstein tók við af honum og var formaður í all- mörg ár. í sýslumannshúsinu, heimili þeirra Hafsteins-bræðra, var fé- lagið stofnað og þar stóð vagga þess undir öruggri vernd sýslu- mannshjónanna. Drengirnir voru ungir en áhugafullir, og var þá gott fyrir hina ungu félaga að njóta leiðsagnar barnavinarins Júlíusar Havsteens. Fyrstu stjórn skipuðu auk Jakobs þeir Jón Bjarklind, Jó- hann Hafstein, Helgi Kristjáns- Jakob Hafstein. son, Ásbjörn Benediktsson og Benedikt Bjarklind. Nú eru í félaginu á þriðja hundrað manns og starfandi félagar rúmlega 200. Völsungur hefur íþróttasal skolanna á Húsavík til frjálsra afnota á kvöldin, en félagið hóf starfsemi sína þar seinni hluta vetrar 1959. Alla vetrarmánuð- ina frá því um miðjan okt. til apprilloka hafa síðan æft þar á vegurrv félagsins á annað hundr- að manns vetur hvern ýmsar innanhússíþróttagreinar. f vet- ur eru þátttakendur 196 og þjálf arar P. Áhugi á skíðaíþróttinni hefur farið mjög vaxandi hin síðari ár og félagið á nú efnilegt ungt skiðafólk, sem getið hefur sér gott orð á landsmótum. Á sumr- um er mest stundað knattspyrna í hinum ýmsu aldursflokkum og handknattleikur. Lokið var byggingu útisund- laugar á Húsavík 1961. Síðan hefur verið æft sund á Húsavík á vetrum sem sumrum, og nokkr ir efnilegir sundmenn komið fram. Völsungur hefur átt félaga, sem orðið hafa landskunnir íþróttamenn svo sem Ásmund. Bjarnason Ingvar Þorvaldsson og Stefán Sörenson. Starfsemi félagsins hefur farið sífellt vax- andi hin síðari ár. fþróttaáhugi og íþróttastarfsemi hefur aldrei verið jafnmikil á Húsavík og nú. Félagið mun minnast afmælis síns með ýmsum hætti. f kvöld, á afmælisdaginn, verður hátíða- fundur í samkomuhúsi Húsavík- ur og annað kvöld, miðvikudag, sýning í íþróttasalnum. Ýmis íþróttamót sem félagið mun halda síðar á árinu verða til- einkuð afmælinu og skíðamóti Norðurlanda, sem háð verður lð. og 16. appríl helgað því. Stjórn Völsunga skipa nú: Þormóður Jónsson formaður, og með stjórnendur eru Halldór Ingólfsson, Vilhjálmur Pálsson, Freyr Bjarnason og Stefán Bene diktsson. — FréttaritarL 21.46 og 65.15 m RANDY Matsson, heimsmet- bafi í kúluvarpi vann frá- bær afrek á íþróttamóti á þriðjudaginn. Hann varpaði kúlunni 21.46 m. sem er að- eins 4 cm. frá heimsmeti hans o g kringlunni kastaði hann 65.15 m. og er þar einn ig höggvið nærrl heimsmet- inu. Er þetta bezta seria (í kúlu og kringlu) sem nokkur maður hefur náð. l Körfuknotf- leikur í kvöld í KVÖLD verður 1. deildar móti körfuknattleiksmanna . haldið áfram í íþróttahöllinni og verða leiknir tveir leikir. Fyrst leika ÍR og Stúdentar og síðan KFR og ÍKF. Langt er nú liðið á mot ið og eru ÍR-ingar eina liðið án taps, en úrslitin koma til með að standa milli ÍR og KR og þarf aukaleik vinni KR þann leik. Hl\l-lið Englands nær Óbreytt gegn Skotum SKOZKA landsliðið í knatt- spyrnu sem leikur gegn heims- meisturum Englendinga n.k. laugardag er skipað þessum mönnum: (talið frá markverði til v. útherja) Simpson, Celtic; Gemmell, Celtic, McCreadie, Chelsea; Greig, R/angers, Mc- Kinnon, Rangers, Baxter, Sund- erland, Johnston, Celtic, Bremn- er, Leeds, McCalliog, Sheffield Wednesday, Law, Manchester Utd, og Lennox, Celtic. Enska liðið er heldur ekki á- rennilegt, en það er heimsmeist- araliðið með einni breytingu, Greaves 1 stað Hunt. Enska lands liðið gegn Skotum er skipað þessum mönnum: Banks, Leicest er; Cohen Fulham, Wilson, Ever ton; Stiles, Manchester Utd. Jack Charlton, Leeds, Moore, West Ham (fyrirliði); Ball, Everton, Greaves, Tottenham, Bobby Charlton Manchester Utd., Hurst, West Ham og Peters, West Ham. Mikil spenna ríkir um þenn- an leik eins og reyndar alltaf, en þó meiri fyrir þá sök að Skotar verða að sigra til að kom ast „áfram“ í Evrópukeppni landsliða, en nægir ekki jafn- tefli, þar eð Englendingar hafa 4 stig en Skotar 3 í landskeppni Bretlandseyja. frar hafa hlotið eitt stig og Wales ekkert, en landsleikur milli þessara þjóða fer fram n.k. miðvikudag. ' I / 'M Dave Patrick kemur í mark í 880 yarda hlaupi. Jim Ryun er að baki hans (í beygjunni) Þegar sá „ósigrandi" tap aði fyrir ungum stúdent — komust menn oð Jbví oð methafar eru mannlegir JIM Ryun hinn ungi bandariski heimsmethafi í miluhlaupi hefur átt óslitna sigurbraut síðan í ágúst 1965. Á bandaríska stú- dentamótinu í sl. mánuði varð hann að láta í minni pokann og segir Þorsteinn Þorsteinsson sem skrifað hefur mér skemmtileg bréf frá bandarískum mótum frá þessu hlaupi — og hinni „mar- tröð Ryuns“. Þorsteinn segir að kannske sé hlaup þeirra það áhrifaríkasta sem farið hafi fram í Bandaríkj- unum sl. kennslutímabil. í fyrra hafi verið sagt að enginn myndi sigra Jim Ryun. Nú sé talað um „Patrick og Ryun‘“ svo viðhorf- in séu breytt. Sumir bendi þó á að þjálfari Ryun hafi viljandi látið Ryun vera í slakari æfingu til þess að geta byrjað í vor að byggja þjálfun hans upp fyrir OL 1968. En dýrkeypt var það, þvi nú veit að minnsta kosti Patrick að Ryun er ekki ósigr- andi. Og hér hefst orðrétt frá- sögn Þorsteins. Eftir að Dave Patrick náði 3,59,3 í New York í febrúar varð auðséð að aðalgreinin á NCAA mótinu yrði persónuleg barátta milli þeirra Patricks og Ryuns, en Patrick gat nokkuð vel valið í hvaða grein hann vildi hlaupa á móti methafanum. Hann valdi 880 yarda hlaupið (804,5 m.) og Sundmeistara- mót Selfoss SUNDMEISTARAMÓT Selfoss, verður háð í Sundhöll Selfoss, laugardaginn 22. apríl kl. 15.00. Greinar: 100 m baksund karla, 100 m baksund kvenna, 100 m skriðsund karla, 10 m skriðsund kvenna, 20 m bringusund karla, 200 m bringusund kvenna, 50 m flugsund karla, 50 m flugsund kvenna, 4x50 m fjs karla, 4x50 m fjs kvenna, 50 m bringusund sv. 14 ára og yngri, 50 m bringu- sund telpna, 50 m skriðsund sv., 50 m skriðsund telpna. Þátttaka skilist til Hrafnhild- ar Guðmundsdóttur í síma 1501 Selfossi fyrir 17. þ.m. Svíarnir hrifust af gosi SÆNSKU handknattleiksmenn- irnir taka nú lífinu með ró eftir tvo erfiða leiki við íslendinga. í gær fóru þeir m.a. til Hvera- gerðis og fengu mjög gott gos úr Grýtu. Voru þeir hinir ánægð- ustu með förina. Síðdegis í gær voru þeir gestir sænska sendiherrans Gunnars Granberg ásamt forystumönnum handknattleiks hér og gestum. í Crýtu í dag fara fararstjórar til Laugarvatns í boði fþróttafull- trúa en leikmenn eiga frídag. — Svíarnir halda heim á fimmtu- dag. Meðfylgjandi mynd er frá leikjum við Svíana og sýna að leikmenn fara ekki mjúkum höndum hverir um aðra í æsing leiksins. Dave Patrick fór ekkert í míluna. Á föstudag- inn þurftu báðir að hlaupa und- anrásir í 880 yards síðari hluta dagsins en Ryun þurfti að hlaupa í undanrásunum í mílunni (1609 m.) tveim tímum áður en úrslit- in í 880 yds. voru. Það er Mk- legt að sú míla (4:08) hafi þreytt hann eitthvað. Um leið og keppni þeirra byrj- aði tók Patrick forustuna. Hann vissi að hann gæti ekki treyst á að vinna Ryun á endasprett- inum, svo að hann yrði að þreyta hann frá byrjun. Ryun elti hann ekki og Patrick hafi náð 30 metra forskoti eftir 400 metra. Millitíminn' var 52,4 sek. Svo hélt Patrick ferðinni svo til alLa leið í mark og sigraði með 15 m. mun á 1:48,9 mín. sem er nýtt met á innanhústrébraut. Næstá dag kom vafalaust ein- hver huggun í því fyrir Jim Ryun að geta hefnt sín á klukk- unni með því að hlaupa 3:58.6 í mílunni, en met Tom O’Hara var aldrei í hættu. Patrick hljóp í tveim boðhlaupssveitum og skil aði 4:00,6 í mílunni 1 fyrra skipt- ið en eftir hálftíma hvíld gerði bann ekki betur heldur en 2:05 í 880 yds. og þá var hann líka alveg uppgefinn. Eftir á sagði Ryun að þetta kæmi endanlega til að vera gott fyrir sig: „Þá sér fólk að ég er mannlegur". En fyrir Patrick var þetta bara byrjunin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.