Morgunblaðið - 12.04.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.04.1967, Blaðsíða 32
Lækjargötu 2. MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1967 Helmingi útbreiddara en nokkurt annað ísíenzkt blað Drukknaði í höfninni FIMMTfU og átta ára gamall sjómaður frá Eyrarbakka, Magn- ús Guðlaugsson, fannst drukkn- aður í Reykjavíkurhöfn laust fyrir klukkan þrjú í fyrrinótt. Magnús var skipverji á mb. Hafn arberg, RE-04. Þegar báturinn ætlaði að leggja úr höfn um tvö- leytið um nóttina, kom í ljós að Magnús vantaði og var hans beðið. Hann hafði verið hjá kunningja sinum þá fyrr um kvöldið en farið þaðan milli tíu og ellefu og þá ætlað niður í bát. Maður, sem var á gangi við höfnina sá svo Iíkið á floti og tilkynnt það lögreglunni. Líkið var krufið og dánarorsökin úr- skurðuð drukknun. Lo&nuvei&um a& mestu loki& Heildaraflinn lélegri en i fyrra Loðnuvertíðinni mun nú að mestu vera lokið, og eru allflest- ir loðnubátanna búnir að skipta yfir og farnir á þorskanót. Hjálmar Vilhjálmsson, fiski- fræðingur, tjáði Mbl. í gær, að hann væri nýkominn úr stutt- um rannsóknarleiðangri með suðurströndinni. Hefði verið lóð að víða með ströndinni og vart orðið við loðnu grunnt með land inu. Hér væri þó um að ræða miklu minna magn en áður, og taldi hann að loðnan væri að Lóan er komin ÞAÐ fer vart á milli mála, að vorið heldur innreið sina um þessar mundir, því að í gær sáust fyrstu vorboðarn- ir. Voru það fjórar lóur, sem spókuðu sig makindalega á Laugarnestúninu við Klepps veg. Það var einn af heima- mönnum í Laugarnesbúinu, sem varð var við lóurnar. mestu leyti gengin hjá, þótt ein- staka bátar gætu e.t.v. enn feng- ið góð köst. Samkvæmt upplýsingum Fiski félags íslands var heildaraflinn á loðnuvertíðinni orðinn 95.841 tonn, en var á sama tíma í fyrra 124.933 tonn. Þess ber þó að gæta í þessu sambandi að mun færri bátar gerðu út á loðnu- veiðar núna, eða um 50 talsins, en voru um 70 í fyrra. Hæstu löndunarstöðvarnar nú eru: Vest mannaeyjar með 30.100 tonn, Reykjavik með 20.880 og Kefla- vík með 14.387. Myndin er tekin fyrir nokrum mánuðum í Moskvu, en þar ræðir Ishkov ("annar frá vinstri) við þá Emil Jónsson, utanrík isráðherra, Davíð Ólafsson, fiskimálastjóra og Kristin Guð- mundsson, sendiherra. Ishkov, fiskimálaráð- herra Rússa í heimsókn RÚSSNESKI fiskimálaráðherr- i ast í vikutíma í boði Eggerts G. ann, A. A. Ishkov var væntan- Þorsteinssonar sjávarútvegsmála- legur til landsins seint í gær- herra. kveldi, en hér mun hann dvelj- | Meðan Ishkov dvelst hér mun hann skoða m. a. Reykjavíkur- borg og fara til Vestmannaeyja og Akureyrar í kynnisferð, svo og um Suðurnes. Mun hann skoða hið markverðasta á hverj- um stað, og heimsækja fisk- vmnslustöðvar. Hann mun einnig ræða við helztu framámenn hér á sviði þjóðmála og útvegsmála, svo sem fulltrúa útvegsmanna, frysti húsaeigenda og verkalýðs- og sjómannasamtakanna. í fylgd með Ishkov eru þeir N. T. Nosov, ráðuneytisstjóri og A. I. Filitov, forstjóri. ENDANLEGT UPPGJOR KOMMUNISTA — við Hanníbal Valdemarsson og fylgismenn hans — Framboðslistinn hreinn flokkslisti kommúnista — Hvað gerir Hanníbal? EINS og skýrt var frá í Mbl. í gær biðu Hanníbal Valde- marsson og fylgismenn hans hina háðulegustu útreið á aðalfundi Alþýðubandalags- félagsins í Reykjavík, sem haldinn var sl. mánudags- kvöld, er tillaga þeirra um framboðslista Alþbl. í Reykja vík var kolfelld og hlaut 81 Halldór á Maí hefur veitt fyrir 15 millj. á 4'/2 mán. — liom með 500 tonn í gær HI N N frábæri aflamaður Halldór Halldórsson, sannaði enn hæfni sína þegar togar- inn Maí kom til hafnar í gær með fimm hundruð tonn al karfa og þorski. Lestarnar voru fleytifullar og tuttugu tonn á dekki Aflinn fer til frystingar í mörg hús þann- ig að það eru fleiri en áhöfn togarans og útgerðin, sem njóta góðs aí, fjöldi manns fær v.nnu við að verka afl- ann og búa nann til útflutn- ings. Halldór á Maí hefur undan farna fjóra og hálfan mánuð fiskað fyrir minnsta kosti fimmtán milljónir króna, svo að ekk er furða þótt sagt sé. að hann sé að endurvekja traust á togurunum. Frétta- maðu-. Morgunblaðsins hitti Halldór að máli þegar skipið lagðist að bryggju. — Já þetta eru ein 500 Halldór Halldórsson tonn. Af því eru líklega 35 af þorski, hitt er karfi, ágæt- ur karfi. Við vorum sautján daga > öllum túrnum og þar af fórc níu dagar í stím fram og til baka, þannig að við fyllturr. skipið á átta dögum. Við vorum á Ritubanka, við Nýfundnalana og á svipuð- um sióðum mestallan tímann, fengum mest allt á sama stað. Við vorum einskipa lengst framar af og þegar við fórum var kominn is yfir svæðið. Júpítei kom rétt áður en við héldurr heim á ieið. Hann fór aðeins sunna- og fékk ágæt- an afla þar. sérstaklega í dag. Við fengum mest 35—40 tonn í hali. Þetta »ekk mjög greið lega, við gerum ráð fyrir að aflaverðmætir, núna séu 2 milljónir króna — Já þette er eins og í gamla daga á Nýfundnalands míðum Ég veit þó ekki hvort þau eru ð vinna sig upp aft- Framhald á bls. 31. atkv. en listi kommúnista fékk 254 atkv. Hanníbal Valde marsson lýsti því yfir á fund- inum að hann óttaðist að nú væri búið að ganga af Al- þýðubandalaginu dauðu. Með aðgerðum þessum hefur Sósíalistaflokkurinn framkvæmt endanlegt upp- gjör við samstarfsaðila sína í Alþýðubandalaginu, Hanní- bal Valdemarsson og stuðn- ingsmenn hans með þeim áhrifaríka hætti að hinir síð arnefndu hafa beðið algjöran og endanlegan ósigur og eru nú algjörlega upp á náð kommúnista komnir. Sú kalda og óhagganlega stað reynd blasir við Hanníbal Valdemarssyni og stuðnings- mönnum hans, að kommúnistar hafa valið stund og stað til upp- gjörsins og látið kné fylgja kviði. Enn einu sinni liggja í valnum menn, sem hafa látið glepj- ast til samstarfs viðkommúnista í þeirri barnslegu trú, að þeir gætu náð undirtökunum í slíku samstarfi Alþýðubandalagsfundurinn, sem ákvað framboðið mun vafa laust einsdæmi í stjórnmálasögu síðustu ára vegr.a þess að slíkt níð og -svívirðingar, sem þar féllu um samstarfsaðila komm- únista mun varla þekkjast í sam skiptum manna nú á dögum. Kommúmstar höfðu undirbúið þennan fund vel Þeir settu 1 upphafi fram úrslitakosti, sem þeir hvikuðu aldrei frá. Þeir biðn þess að framboð Alþbl. í öðrum kiördæmum hefðu verið tilkynnt sérstaklega í Vestfjarða kjördæm' og Norðurlandi eystra. Þegar þau voru komin fram Framhald á bls 19. Kjósarsýsla Sjálfstæðisfélagið Þorsteinn Ingólfsson Kjósarsýslu heldur félagsfund mánudaginn 17. apríl n.k. að Fólkvangi, KjalarnesL Kosnir verða fulltrúar á lands- fund Sjálfstæðisflokksins. Ingólfur Jónsson, landbúnaðar- ráðherra og þingmenn kjördæm- isins mæta. V-fsIendingar gefa Kanada veglega gjöf — i tilefni 100 ára afmælis Kanada HINN 14. apríl verður afhent í Ottawa stór tafla frá Vestur- íslendingum, sem þeir færa Kanadastjórn að gjöf í tilefni af 100 ára afmæli ríkisins. Eru á töflunni áletranir á íslenzku, ensku og frönsku úr frásögn- um af fundi Vínlands, og er yfirskriftin á töflunni: „Chapt- er In Canadian History.“ Verð- ur töflunni síðan væntanlega komið fyrir í nýju bókasafnl i Kanadaþingi. Af þessu tilefni verður mik- il viðhöfn í Ottawa, og er 1 deiglunni að Pearson, forsætis- ráðherra, veiti gjöfinni mót- töku. Pétur Thorsteinsson, sendiherra verður viðstaddur athöfnina og ýmsir vestur-ít- lenzkir framámenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.