Morgunblaðið - 28.04.1967, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 28.04.1967, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRIL 1967. 13 Olafur Jónsson fró Sandgerði ÞEGAR maður er kominn yfir •extugt — eins og ég — finnst manni liðin tíð vera aðeins ör- stutt stund — og að 60 ára mað ur sé eiginlega á bezta aldri — ef til vill er þetta blekking — en það er þá þaegileg blekking. Satt að segja finnst mér Ólaf- ur Jónsson frá Sandgerði vera ennþá svipaður því og þegar við hittumst fyrst í Sandgerði í „gamla daga“ — en í dag er Ólafur einmitt 60 ára. Ólafur er fæddur á Akranesi, sonur hjónanna Guðlaugar Gunnlaugsdóttur og Jóns Gunn laugssonar, útvegsbónda í Bræðraparti. Eiguðust þau 5 börn og var Ólafur annað í röð inni. Frá byrjun urðu störf Ól- afs hvers konar störf við sjó- inn, bæði á heimilinu og utan þess eftir því hvar vinnu var að fá. Eftir að Ólafur lauk Verzl- unarskólanámi varð hann fast ur starfsmaður hjá Haraldi Böðvarssyni á Akranesi, fyrst lem skrifstofumaður og eíðar fulltrúi og framkvæmda- atjóri við eignir Haraldar í Sandgerði. Kom Ólafur til Sand- gerðis árið 1931. Nokkru síðar, eða árið 1938, gerðist Ól- afur, ásamt Sveini Jónssyni, *em þá starfaði hjá Lofti Lofts «yni, meðeigandi Haraldar að fyrirtæki hans í Sandgerði, og ráku þeir það þrír saman þar til árið 1941 að Ólafur og Sveinn kaupa hluta Haraldar í eignun- um. Stofna þeir þá hlutafélag- ið Miðnes sem yfirtekur þess- ar eignir. Ráku þeir félagar sið an þetta fyrirtæki saman þar til Sveinn Jónsson lézt sl. haust. Hefur þetta fyrirtæki þeirra alltaf verið rekið af miklum myndarbrag, stórhug og for- •jálnL Það má segja að Olafur sé vaxinn upp í útgerð og hvers konar vinnslu sjávarafurða — það hefur verið honum mikill akóli — og hann hefur verið góður nemandi. Ég þekki engan, aem er jafn vel heima á öllum aviðum þessa atvinnuvegs og öl- afur er því það er alveg sama hvort viðkemur útgerð báta, vinnslu aflans í hvaða verkunar- •ðferð sem er, eða nýtingu eða kostnað á hverju stigi — að hann veit það allt, er eiginlega eins konar alfræðibók í þess- um efnum. Ekki leið á löngu, að menn veittu Ólafi athygli, og það kom svona bara aí sjálfu sér að hann lenti í fylkingarbrjósti, þegar þurfti að berjast fyrir ýmsum hagsmunamálum útgerðarstétt- arinnar. Hvert það mál, sem hann hefur beitt sér fyrir, hef- ur hann sótt og varið af krafti — en þó aðeins beitt sanngjörn um röikum. Þegar þurft hefur að gera samninga erlendis um sölu ís- lenzkra sjávarafurða, hefur hann hvað eftir annað verið til kvaddur til að taka þau störf að sér — og ætíð skilað sínu starfi mjög vel — og oft náð mikið betri árangri en hægt var að gera ráð fyrir. Ég vil segja, að íslenzka þjóðin á honum mikið að þakxa fyrir þá gjaldeyris- öflun sem hann hefur aflað með því að fá hækkað verð á íslenzk- um útflutningsvörum. Árið 1931 giftist Ólafur Láru Guðmundsdóttur frá Akranesi. Eignuðust þau 6 börn, og eru 5 þeirra á lífi, elzta barnið, dreng, misstu þau þegar hann var 3ja ára. Konu sína missti Ólafur 1962. Lára var sérstæður per- sónuleiki sem maður laðaðist að, hrein og bein í allri um- gengni og þroskuð kona í hugs un. Það var mikið áfall fyrir Ólaf og böniin að missa Láru svona fljótt, — eiginlega á bezta aldri. Ég hef hér að framan rætt um Ólaf og íslenzkan sjávarút- veg og smávegis drepið á þátt hans á þeim vettvangi — en það er sama hvar knúið er dyra hjá Ólafi — hann er fjölfróður og skemmtilegur í viðræðum — og þar að auki mjög snjall hag yrðingur, sem lætur stundum í vinahóp fjúka í kviðlingum — og þá kveða ekki aðrir betur. Hann er sterkur persónuleiki sem gott er að kynnast, góður vinur og tryggur vinur vina sinna. Beztu afmælisóskir! Huxley Ólafsson. Ólafur dvelur nú erlendis og er heimilisfang hans: Ólafur Jónsson Kuranstalten Gl. Skovridergaard Silkeborg — Tel 514 Danmark. Verkstæðis- og verzlunarpláss 150—200 fermetrar á jarðhæð óskast á leigu. Til- boð sendist Mbl. merkt: „1440 — 2265“ fyrir 10. maí. Baðskápar Meðalaskápar nýkomnir. ÍLZ á REYKJAVÍK Hafnarstræti 21 — Sími 1-33-36. Suðurlandsbraut 32 — Sími 3-87-75. FERMINGARGJAFIR Speglar Hver getur verið án spegils? Lítið á úrvalið hjá okkur áður þér ákveðið fermingargjöfina. r w LUDV STOI IG 1 *R J jí Speglabúðin. Sími 1-9635. Mjög skeimntileg íbúðarhæð til sölu 120 ferm neðarlega við Miklu- braut. Tilboð leggist á afgreiðslu Morgunblaðs- ins fyrir 5. maí merkt: „Góður staður 2480.“ Vélritun og símvarzla óskum að ráða sem fyrst stúlku eða eldri konu til ofangreindra starfa. Umsækjandi þarf að geta vél- ritað ensk verzlunarbréf eftir dictaphone. Nánari upplýsingar í síma 24140. ýeoMtx DREG1ÐÍ1FL0KKIÁ UM 300 STÓRVINNINGA 7 BIFREIÐAR 292 VINNINGAR HÚSBÚNAÐUR 5-50 ÞIJS. KR. HAPPDRÆTTI DAS 1967 8 1 MtOAR ERKUNNA AÐ LOSNA VEROASELDIR tHÁDEGI NÚ MÁ ENGINN GLEYMA AD ENDURNÝJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.