Morgunblaðið - 28.04.1967, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1967.
Stjórnarfrumvarp um
nýja vörumerkjalöggjöf
Merkar breytingar
A SÍÐASTA Alþingi lagði ríkis-
Btjórnin fram frumvarp til nýrra
laga um vörumerki. Er frumvarp
-* þetta samið af stjórnskipaðri
Tiefnd, en í nefndinni áttu sæti
þeir Sigurgeir Sigurjónsson,
hæstaréttarlögmaður, Páll Pálma
son fyrrv. ráðuneytisstjóri og
Theódór B. Líndal, prófessor.
t tilefni þessa hefur Morgun-
hlaðið snúið sér til Sigurgeirs
Sigurjónssonar, hæstaréttarlög-
manns, sem var formaður nefnd
arinnar og hefur hann gefið blað
inu eftirfarandi upplýsingar varð
andi hið nýja frumvarp:
Núgildandi lö^gjöf um vöru-
merki er frá árinu 1903 og var
hún þegar fyrir löngu orðin al-
gerlega úrelt og óviðunandi, ekki
aðeins fyrir íslenzka verzlunar-
stétt og atvinnurekstur, heldur
og þá erlendu aðilja, sem við-
-. skipti hafa við ísland og ís-
lendinga. Frá því að hin gömlu
lög okkar um vörumerki voru
sett hafa öll viðskipti og við-
skiptahættir, ekki sízt á alþjóða-
'sviði tekið miklum breytingum.
Af þessum sökum var það orðin
hrýn nauðsyn að samræma lög-
gjöf okkar á þessu sviði við lög-
gjöf annarra viðskiptaþjóða okk-
ar, en löggjöf um vörumerki er
einmitt ein sú grein réttarins
sem einna víðtækust samvinna
hefur náðst um á alþjóða vett-
vangi í því skyni, að auðvelda
og tryggja alþjóða viðskipti. Er
þessi grein réttarins því svipaðs
eðlis og t.d. víxil- og tékkrétt-
ur, sjóréttur, loftferðaréttur,
einkaleyfaréttur o.s. frv. Er það
eins og áður segir alkunnugt, að
! íslenzkum samkeppr
þróun á sviði alþjóðaviðskipta,
vélvæðingar og tækni, hefur ver-
ið mjög ör og því hæfir 60—70
ára gömul löggjöf engan veginn
þeim kröfum, sem nú verður að
gera á þessu sviði. Þess má og
geta í þessu sambandi, að á ár-
inu 1961 gerðist ísland aðili að
hinni svokölluðu „Parísarsam-
þykkt“ um vernd eignarréttinda
'á sviði iðnaðar frá 20. marz 1883.
er síðast var endurskoðuð í Lon
don 2. júní 1934. Einnig af þess-
ari ástæðu var nauðsynlegt að
koma íslenzkri vörumerkjalög-
gjöf í nútímahorf.
í þessu sambandi má og geta
þess, að verðmæti þau, sem f
húfi eru I sambandi við vöru-
merki geta oft náð geysilega há-
um upphæðum. Þannig eru
nokkur þekktustu vörumerki
heims, eins og t.d. vörumerkin
„Coca-Cola" og „Sunkist" metin
’á mörg hundruð milljón króna.
Hvað snertir hinsvegar frum-
varp það, sem nú hefur verið
lagt fram á Alþingi skal þess
getið, að það er að langmestu
mestu leyti sniðin eftir núgild-
andi dönskum lögum um vöru-
merki frá árinu 1960, en þau
lög eru aftur byggð á umfangs-
miklu samstarfi sérfræðinga frá
Danmörku, Finnlandi Noregi og
Svíþjóð. Eins og kunnugt er höf-
um við íslendingar löngum verið
samferðamenn Dana á sviði lög-
gjafar og leiðir af því, að ýmis-
legt af því, sem munur er á í
hinum norrænu vörumerkjalög-
unum er tekið upp úr dönskum
lögum.
Að því er snertir sjálft efni
Sigurgeir Sigurjónsson.
þessa frumvarps má segja, að
einn aðaltigangur þess sé, að
koma á jafnvægi milli hagsmuna
atvinnurekenda til einkaréttar á
verzlunareinkennum sínum ann-
arsvegar og hagsmuna þjóðfélags
ins í því skyni, að styðja að heil-
’brigðum verzlunarháttum, hins-
vegar. Þannig hefur verndin fyr-
ir vörumerki og verzlunarein-
kenni verið víkkuð frá því, sem
áður var, þar sem samkvæmt
einu nýju frumvarpi þá nær
þessi vernd ekki einungis til
skráðra merkja, heldur og til ó-
skráðra merkja, ef merkið hef-
ur náð markaðsfestu, þ.e.a.s. ef
merkið i reynd hefur orðið þekkt
sem einkenni á vöru.
Annað nýmæli í þessari lög-
gjöf, er snýr að atvinnurekend-
•um er, að nú verður hægt að
öðlast með skráningu vernd fyr-
6 norðurheimskautsferðir til Japan
Japan Air Lines getur nú boðið norðurheimskauts-
ferðir frá Evrópu til Japan 6 sinnum í viku.
Hnattflug
Hinar nýju flugleiðir Japan Air Lines frá London ýfir Atlandshafið um U.S. A.
ttl Japan, gefa yður ennþá leið til Japan, sem hægt er að sameina með »Sílkileiðinni«
um Indland, með frekari möguleikum að fljúga kringum jörðina.
Japan Air Lines flýgur frá Evrópu til Japan
•6 sinnum í viku yfir Norðurpólin
*3 sinnum i viku »SilkiIeiðina« um Indland
•2 sinnum i viku yfir Atlandshafið um U.S.A.
* 1 tengslum viö Aic France, Alitalia og Lufthansa.
Q
U/VPAN AiR LiNES
KMpaunnahöfn: Imperial-Huaet, V. Simi 113300 • Telex 2494
Hin stöðuga aukntng fjðlda samgðngulelða milli
Evrópu og Japan sýnir að fleiri og fleiri fljúga
með Japan Air Lines til að njóta hinnar sérstöku
JAL-þjónustu i hinum nýtízku DC-8 þotum.
Auk þess fljúga Japan Air Lines flugvélar stytztu
leið til Japan, Moskvu-Tokyo yfir Síberíu með
TU-114. Brottför frá Moskvu hvern mánudag.
Segið Japan Air Lines
við ferðaskrifstofu yðae.
ír merki, er notuð eru í sam-
bandi við hverskonar verk eða
þjónustu, eða svokölluð „þjón-
iustumerki“. Til þessa flokks vöru
tnerkja heyra t.d. merki, er not-
uð eru í sambandi við auglýs-
ingastarfsemi, tryggingar- og
fjárm.starfsemi, byggingarstarf-
semi, póst- og síma> og hvers-
konar aðra þjónustustarfsemi, en
hingað til hefur ekki verið unnt
að öðlast lagavernd hér á landi
fyrir merki, er notuð hafa verið
á þennan hátt. Þá nær verndin
og samkvæmt hinu nýja frum-
varpi til svokallaðra „vígorða"
(slogans), sem nú eru mjög not-
aið af atvinnurekendum. bæði hér
á landi og erlendis sbr. ýmiss
kunn verzlunarvígorð, svo sem:
„Látið blómin tala“, „Guinness
is good for you“ og hin kunnu
íslenzku verzlunarvígorð: „Allt
á sama stað“. „Opið allan sólar-
hringinn", Allt með Eimskip”.
Loks má nefna það nýmæli frum
varnsins. að nú Peta vörumerki
ekki aðeins verið myndir, orð
eða orðasambönd. heldur einnig
búnaður vöru eða umbúðir henn-
ar. Eru allar þessar breytingar
í hinu nýja frumvarpi mjög til
hófta fvrir atvinnurekendur og
alla þá. sem á vörumerkjum
þurfa að halda i atvinnurekstri
sínum.
Á hinn bóeinn innibeldur frum
varpið einnig ýmis ný ákvæði,
er miða að þvi að vernda almenn
ing gegn því að vörumerki séu
notuð á villandi eða sviksamleg-
an hátt. Sé merkið þvi til þess
fallið að villa fyrir mönnum er
óheimilt að skrá það. Er og hverj
um þeim, er hefur lögmætra hags
muna að gæta, rétt að höfða mál
gegn eiganda merkisins í því
skyni að slik merki verði af-
máð, eða að mótmæla fyrirfram
skráningu slíkra merkja. í þessu
sambandi má geta þeirra ný-
mæla, að samkvæmt fumvarp-
inu er tekin upp sú regla að
toirta skuli opinberlega í Stjórn-
artíðindum, eða sérstöku blaði,
sem ríkisstjórnin gefur út hverja
nýja umsókn um skráningu vöru-
merkis. Er mönnum svo gefinn
tveggja mánaða frestur til skrif
legra andmæla gegn skráning-
unni í því tilfelli að þeir telji,
að væntanleg skráning merkis-
ins brjóti í bága við vörumerkja-
rétt sinn. Er þetta ákvæði mjög
til bóta, þar sem hingað til gat
almenningur ekki fylgst með um
sóknum um skráningu vöru-
wierkja fyrr en eftir að búið er
að skrá þau og birta. Eftir það
var hinsvegar engin önnur leið
fær til að fá þau afmáð en að
höfða mál fyrir dómstólum i þvl
skyni, en töluverður kostnaðúr.
er ætíð samfara slíkum mála-
ferlum.
Af öðrum nýmælum þessa
frumvarps má svo að lokum
nefna, að vörumerki skulu nú
skráð í ákveðnum flokki eða
flokkum vara. Greiningu í vöru-
flokka ákveður svo ráðherra og
auglýsir. Um þessa skráningu I
flokka má almennt segja, að til
■gangur hennar er að skipa svip-
uðum vörútegundum í sama flokk
þannig að flokkunin verður þá
það, sem miða ber við þegar
deilur kunna að rísa út af vöru-
merkjum um líkindi milli vöru-
tegunda. Þá stuðlar þessi flokk-
un og að því, að vörumerki
verði ekki skráð fyrir fleiri vöru
tegundir en bráðnauðsynlegt er.
Ýmiss önnur nauðsynleg ný-
mæli eru og í frumvarpi þessu,
sem ekki er ástæða til að fara
nánár út í hér. Hinsvegar er
ekki nokkur vafi á því, að með
hinu nýja frumvarpi er bætt
mjög úr brýnni þörf á sviði ís-
lenzks samkeppnisréttar, en hann
hefur að því, er vörumerkjalög-
gjöf snertir orðið mjög útundan
í langan tíma. Sama má segja
um þörfina á fullkominni lög-
■gjöf fyrir vernd á sviði iðnað-
ar, svo sem svokallaðri „mynst-
ur"-vernd. Hafa íslenzkir iðnað-
armenn mjög eindregið óskað
eftir íslenzkri löggjöf á þessu
sviði. Þykir mér í því sambandi
rétt að geta þess að Iðnaðar-
málaráðuneytið hefur falið sömu
nefnd og undirbjó framangreint
frumvarp um vörumerki að und-
irbúa og semja frumvarp um
„mynstur“-vernd og mun væntan
lega mega búast við því, að frum
varp um það efni verði lagt fram
á næsta Alþingi, sagði Sigurgeir
Sigurjónsson að lokum.
Einbýlishús —
Hafnarfjörður
Höfum til sölu einbýlishús á góðum stað í Hafn-
arfirði. 3 svefnherbergi og bað á efri hæð, sam-
liggjandi stofur, eldhús, rúmgóður skáli og snyrti-
herbergi á neðri hæð, 2 herbergi, þvottahús, geymsl
ur og 2 herbergi á jarðhæð. Ræktuð og girt lóð.
Bílskúrsréttur.
Skip og fasfeignir
Austurstræti 18 — Sími 21735.
Eftirlokun 36329.
SALAMANDER
Nýkomnir
Herraskór
nýjasta tízka
Skór hinna vandlátu.
Skóverzlun
Péturs Andréssonar
Laugavegi 17 — Framnesvegi 2.