Morgunblaðið - 28.04.1967, Page 24

Morgunblaðið - 28.04.1967, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1967. Minning tveggja Blönduósmanna TVEIR mikilsmetnir og vinsælir Ibúar Blönduósskauptúns, Björn Einarsson, trésmíðameistari, og Hjalti Þorvarðarson, verzlunar- maður, urðu fyrir skömmu bráð- kvaddir með tveggja sólarhringa millibili og fór jarðarför þeirra fram sameiginlega þ. 15. apríl síðastliðinn. Vil' ég minnast þeirra með fáum orðum. Björn Ágúst Einarsson var fæddur að Læk á Skagaströnd 8. ágúst 1886. Foreldrar hans voru hjónin Einar smiður (d. 1936) Guðmundsson í Þverárdal, Einarssonar — af Skeggsstaðaætt — og Sigurlaug Þorbjörg, dótrtir Marka-Björns Helgasonar frá Gröf — af ætt Sigurðar sterka í Holti, og er gerð nánari grein fyrir þessum ættum báðum í Föðurtúnum. Bjuggu þau lengi síðar á Síðu í Refasveit og voru jafnan kennd við þann bæ. Ein- ar hafði numið trésmíði í Kaup- mannahöfn á yngri árum og stundaði þá iðn jafnan, en Sigur- laugar (d. 1932) heyrði ég getið í ungdæmi mínu sem mikillar búkonu. Björn fluttist misseris- gamall til ömmu sinnar í móður- ætt, Elísabetar Erlendsdóttur, og síðara manns hennar, Björns Sölvasonar, og ólst upp með þeim í Valdarási, þar til þau fluttu til foreldra hans að Síðu árið 1897. Dvaldist Björn þar til fullorðinsára og nam trésmíði af föður sínum, en siðar í tvo vetur í Reykjavík hjá Stefáni Eiríks- syni hinum oddhaga og lauk hjá honum prófi í iðn sinni. Þann 10. jan. 1910 kvæntist Björn Hallberu Jónsdóttur frá Fróðholtshjóleigu í Rangárþingi og bjuggu þau fyrst eitt ár á Svangrund í Refasveit, síðan í fimm ár í Neðri-Lækjardal, en fluttust svo aftur að Svangrund og bjuggu þar til 1930, er þau brugðu búi og fluttust til Blöndu óss. Keypti Björn nokkrum ár- um síðar svonefnt Hillebrandts- hús, sem var áður verzlunarhús Iflokks al prentun hliða lýs — leitið UDD inc ta * 1 leitíð J$j5 tilboða MYNDPRENT skipholti 35 simi 31170 Hvert viljið þér fara? Nefnið staðinn. Við Jlytjum yður, fljótast og þœgilegast. og elzt húsa þar á staðnum, inn- réttaði það sem íbúð og verk- stæði, fékk sér trésmíðavélar og stundaði iðn sína eingöngu upp frá því. M.a. smíðaði hann í tvo áratugi utan um svo að segja alla Austur-Húnvetninga, sem létust heima í héraðL Hallbera kona Björns var ljós- móðir í Engihlíðarhreppi, meðan þau bjuggu þar í sveit, en síðar í Blönduóss- og Torfalækjar- hreppum, meðan heilsa hennar entist, en hún var öryrki all- mörg hin síðari ár. Rækti hún ljósmóðurstörf sín af mklum dugnaði, sem ekki veitti af, með- an Laxárdalur var fullsetinn, en hann er harðbýlastur sveita þar um slóðir og varð hún oft að fara fótgangandi í ófærð, stund- um vanfær sjálf, því að þau Björn eigr.uðust átta börn. Mun hagur þeirra hafa verið næsta þröngur á þessum árum, því ð Svangrund var rýrðarkot, enda nú komið í eyði, Björn um of bundinn við bú og börn til að geta stundað smíðar að ráði, en ljósmóðurstarfið mjög illa laun- að, er föst laun Ijósmæðra voru framan af öldinni einar 50 krón- ur, en ekki fast eftir gjaldi geng- ið hjá fátæklingum. Hafa og fáir unnið fórnfúsara mannúðarstarf en margar ljósmæður. Sýslu- nefnd Austur-Húnavatnssýslu veitti líka Hallberu nokkur eftir- laun, er hún lét af störfum, f viðurkenningarskyni fyrir vel unnin verk. Björn hafði jafnan ærið að starfa við iðn sína, eftir að hann fluttist til Blönduóss, og vænk- aðist þá hagur hans, svo að hann gat t.d. látið það eftir sér að eignast allmikið af bókum. Eftir að kona hans missti heilsu stóð Jónina, yngsta dóttirin, fyrir heimilinu og annaðist hún föður sinn, eftir að hann varð ekkju- maður, en Hall'bera andaðist 14. apríl 1962. Björn Einarsson var dökkur á brún og brá, fríður sýnum, grannholda og hvikur á fæti, léttur í lund og smákíminn. Hann var lengst af heilsuhraust- ur, en hafði síðast legið um tíma á Héraðshælinu. Hann hafði aft- ur náð fótavist, er hann varð bráðkvaddur að kvöldi þess 9. magabelti nýkomin. Austurstiæti 7 (Silla & Valda húsinu) apríl. Af átta börnum Björns og Hall'beru lifa sjö: Sigurlaug Margrét, gift Konráð Gíslasyni í Kópavogi, Einar Halldór í Rvík, kvæntur Valgerði Tómas- dóttur, Hallbera Sigurrós, gift Hermanni Búasyni í Borgarnesi, María Björg, gift Aðalsteini Guð jónssyni í Reykjavík, Birna Elísa bet, gift Johan Sterling óðals- bónda á Sjálandi, Magdalena Elísaebt, matselja á Héraðshæl- inu, og Jónína Þorbjörg, báðar ógiftar á Blönduósi. —O— Hjalti Þorvarðarson var fædd- ur á Strjúgsstöðum í Langadal 22. des. 1916. Foreldrar hans eru Þorvarður, nú á elliheimilinu í Hveragerði, Árnason, Jónssonar á Steiná, sem mikil ætt er af, Jónssonar, og Magnea Björnsdótt ir frá Strjúgsstöðum, ættuð úr Skagafirði og Eyjafirði. Hann ólst upp með móður sinni, en fór ungur að vist að Hofi í Vatnsdal. Innan þrítugs veiktist hann af lungnaberklum, var á Vífilsstaðahæli 1946—1950 og var þá gerður á honum rifja- skurður. Fékk hann við það nokkra heilsubót, var þó vist- maður að Reykjalundi næstu fjóra vetur, en fyrir norðan á sumrin. Eftir það átti hann heima á BlönduósL Hjalti heitinn gekk lengst af ekki heill til skógar. Fyrstu kynni okkar voru þau, að ég skar hann upp við bráðri botn- langábólgu og 2—3 árum síðar við garnengju í sambandi við svokallaða Meokels-totu og var hann þá mjög þungt haldinn. Hann varð að nokkru leyti KUNNUR Reykvíkingur af eldri kynslóðinni, Gestur Árnason prentari, Miðstræti 5, á 85 ára afmæli í dag. Fæddur er hann á Fossi í Staðarsveit, en hefur alið mestallan aldur sinn hér í borginni. Hann byrjaði að læra prentverk árið 1897 í Dagskrár- prentsmiðju, en skömmu eftir að prentsmiðjan Gutenberg tók til starfa, árið 1905, réðst Gestur þangað, og hafði ekki vistaskipti eftir það, unz hann var að hætta prentstörfum, er hann varð sjö- tugur. Gestur var þá enn og lengi síðan við beztu heilsu and- lega og líkamlega, og hefur feng- izt við ýmiss konar störf þau 15 ár, sem síðan eru liðin, þar til nú fyrir fáum vikum, að hann heimagangur á spítalanum, því að móðir hans annaðisí þvott- ana þar alla mína læknistíð og var einnig oft til aðstoðar á skurðarstofu, eins og ég gat um, er ég skrifaði afmæJisgrein um hana áttræða fyrir tveimur ár- um. Þau sumur sem hann dvald- ist heima, eftir að hann fór á Reykjalund, þoldi hann ekki erfiða vinnu, og tók ég hann þá sem hjálparmann við afgreiðslu- störf í lyfjabúðinni, að fyrstu hálfan daginn. Því starfi gegndi hann svo til dauðadags af mik- illi trúmennsku og við vinsæld- ir héraðsbúa, því að hann var hið mesta prúðmenni og snyrti- menni í allri framgöngu. Má segja að hann væri hvers manns hugljúfi. Mjög kært var með Hjalta og móður hans og í þakklætisskyni við hana fyrir langan og vel ræktan starfsferil lét spítala- nefndin hann fá herbergi í starfsmannaíbúð Héraðshælisins, er það tók til starfa, svo að þau gætu átt saman heimili. Síðustu kenndi lasleika og hefur verið rúmfastur. Gestur Árnason kvæntist árið 1909 Ragnheiði Egilsdóttur, ágætri konu. Þau áttu þrjú börn. Margrét dóttir þeirra er látin fyrir nokkrum árum, en synirn- ir, Árni stórkaupmaður og Egill, eru kunnir og atSiafnasamir borg arar hvor á sínu starfssviðL Gestur Árnason er vinsæll maður af starfsfélögum sínum og öðrum, sem kynni hafa af hon- um haft, og á sjálfsagt engan óvin. Hann er greindur vel, minnugur og fróður, manna létt- astur í lund og hefur jafnan gamanyrði á vörum, er kunn- ingjarnir hitta hann á förnum vegi. Samferðamennirnir munu Þing sambands ísl. bankamanna Gestur Árnason prentari - 85 ára DAGANA 7., 8. og 10. apríl hélt Samband ísl. bankamanna þing sitt hér í Reykjavík. Þingið sóttu 59 fulltrúar frá níu starfsmannafélögum banka og sparisjóða. Forsetar þingsins voru kjörnir þeir Svavar Jó- hannsson, Búnaðarbanka og Vilhelm Steinsen, Landsbanka. Ritarar voru kjörnir Sigurborg Hjaltadóttir, Búnaðarbanka, Guðjón Halldórsson, Útvegs- banka og Símon Þór Ragnars- son, Samvinnubanka. Formaður sambandsins, Sig- urður Órn Einarsson, flutti skýrslu stjórnar yfir síðasta kjör timabil, sem er tvö ár. Þingið stóð í þrjá daga eins og að framan greinir og voru rædd ýmis mál, er stéttina varða og gerðar ályktanir um nokkur þeirra. Ber einkum að nefna kjaramál og í því sambandi lok un bankanna á laugardögum um sumarmánuðina. Ályktun var gerð um skóla- og fræðslumál stéttarinnar. Lýisti þingið ánægju sinni yfir þeim áfanga, sem bankamannaskólinn hefur náð og hvatti til aukinnar starfsenii skólans. Þingið fagnaði því einn- ig að norræna bankamanna- sambandið hefur tekið fræðslu- mál stéttarinnar upp á sina arma og skipað samnorræna nefnd til athugunar og samræmingar á þeim málum. Þá var gerð álykt- un um samræmingu á kjörum þeirra eítirlaunasjóða er starfs- menn banka og sparis’óða eru aðilar að, og talið mjög áríðandi að allir bankamenn búi við sem jöfnust eftirlaunakjör. Gestir fundarins voru: Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóri, sem flutti erindi er hann nefndi Efnahagsmálin og bank- arnir. Kom hann víða við og tal- aði meðal annars um það mál, sem nú er mjög á dagskrá hjá bankamönnum, þ.e. menntun bankamanna og bankamanna- skólann. C. A. Weisser-Svendsen, vara- formaður norska sambandsins, árin gekk hann með leiðslu- truflanir í hjarta, sem komu 1 köstum (tachycardia paroxys- malis) og var hann einkum þjáð ur af þeim framan af síðasta vetri. Virtist hann þó hafa náð sér nokkuð, er vora tók, og gekk til herbergis síns glaður og reif- ur að kvöldi þess 11. apríl, en fannst örendur við rúmstokkinn næsta morgun. —O— Útför þeirra Björns Einarsson- ar og Hjalta var gerð sameigin- lega frá Blönduóskirkju þ. 15. apríl, en áður hafði farið fram kveðjuathöfn við kistu Hjalta 1 samkomusal Héraðshælisins. Svo fjöknennt var við jarðar- förina, að margir komust ekki í kirkjunna og var því atihöfn- inni þar útvarpað bæði á Hótel Blönduósi og gegnum útvarps- kerfi Héraðshælisins. Bar það fjölmenni ljósan vott um vin- sældir þessara látnu heiðurs- manna. P. V. G. Kolka. allir senda honum og konu hans hlýjar kveðjur á þessum af- mælisdlegi með ósk um það, að hann megi fá aftur bót á heilsu sinni og njóta enn um sinn góðra stunda á ævikvöldinu. M. Á. sem flutti erindi um menntun bankamanna. Weisser-Svendsen er formaður nefndar, sem athug- ar samræmingu á menntun bankamanna á Norðurlönd im. Gunnar Svendborg, ío.*m. sænska sambandsins, sem flutti skýrslur norræna bankamanna- sambandsins í fjarveru G. P. Bergström, framkvæmda.-stjóra þess. Kristján Thorlacius, sem flutti kveðjur BSRB. Gunnar Kjær, varform. dmska sambandsiens, sem flutti k /.-3j- uc danskra bankamanna. Bankamenn héldu nú þia;ið í eigin húsnæði í fyrsta si.m, að Laugaveg 103, efstu hæð. Stærð þessa húsnæðis er um 200 fermetrar og er það sé-rfak- lega innréttað með þarfir sam- bandsins fyrir augurru Þarna er salur, sem rúmar milli 60 og 70 manns 1 sæti, auk tveggja skrif- stofuherbergjcL, snyrti'herbergja og lítils eldhúss. Svalir eru með allri suður- hliðinnþ eða meðfram endilöng- um salnium, stórar og rúmgóðar. Þetta húsnæði er jafnframt notað til skólaihalds og skiptir hreyfanlegur skilveggur salnum í tvaar rúmgóðar og bjartar Framh. á bls. 31 /

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.