Morgunblaðið - 28.04.1967, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRIL 1967.
25
- MINNING
Framh. af bls. 23
dómslegum hans. Söknuðurinn
er því að vonum sár og ást-
vinirnir sitja hljóðrr hérna meg-
in við tjald óvissunnar og bíða
þess að senn komi röðin að þeim
að stíga yfir þröskuld ókunn-
Ieikans. En meðan á biðinni
stendur, er það vissan um ör-
ugga endurfundi, sem er lækn-
irinn mikli allra harma, sem
græðir sárin og bætir meinin.
Persónulega á ég Halldóri,
móður- og fósturbróður mínum,
miklar þakkir að færa fyrir vin-
áttu og ættrækni við mig, allt
£rá bernsku og uppvaxtarárum
mínum. En þótt ég eigi hér á
bak að sjá einlægum vini og
frænda, skal ekki um sakazt þótt
hérvist hans yrði styttri en ég
hafði vonazt eftir. Og okkur er
vissulega kennt, að við megum
vænta endurfunda að hérvistar-
dögum loknum. Ég get að lok-
um fullvissað vin minn um það,
eð í dag og í framtíðinni er
eiginkona hans vafin styrkum
og ástríkum örmum barna sinna
og vina.
Og nú er komið að skilnaðin-
um um stund, kæri móðurbróðir.
En þegar ég svo að lokum ræ
veikbyggða fleyinu mínu upp að
fyrirheitna landinu, þá vænti ég,
eð þú verðir þar kominn ásamt
öðrum ættingjum og vinum til
eð taka á móti mér. Og þá heíi
ég hugsað mér ef ég fæ ein-
einhverju um það ráðið að
merkja fleytuna mína með ein-
kennisstöfunum E. 105. Það
kynni að minna þig á þægileg-
en hátt á manndómsárin þín á
Akranesi. Vertu svo blessaður
og sæll elskulegi frændi minn,
og lifðu heill í faðmi frelsara
þíns.
Kristján Þórsteinsson.
Hjartkæri afi, horfinn ertu
sýnum,
hvað það er margt, sem þakka
ber og kanna,
því allt það, sem bezt ég á í huga
mínum
er umvafið kærleikans geislum
minninganna.
þú varst mér ljós á lífs míns
æskuvegi,
ljós, sem ég vona að aldrei
daprast megi.
v Sigríður Guðjónsdóttir.
Kveðja frá eiginkonu, börnum
og barnabörnum.
Er dauðinn hjá oss dyra kveður,
hve dapurt verður hjörtum í,
og ástvinanna banabeður
þá breytir ljósi í harmaský.
Er blessuð sumarsólin skín,
hve sárt er þá ef lífið dvín.
Við gengum saman langa lengi
á lífsins, stundum grýttu braut,
þótt misjafnt yrði gæfugengi,
við glöddumst jafnt í sæld og
þraut.
Þú reyndist stoð og styrkur
minn,
mér stuðning veitti armur þinn.
Og bezti faðir börnum varstu,
er breiddu faðma móti þér,
þau ætíð fyrir brjósti barstu,
sem blessun hverjum föður er.
Þau áttu hjá þér Öruggt skjól,
sem inndæl blóm við skin frá
sól.
Svo eru líka barnabörnin
sem blessa látinn afa sinn.
Þú hjálp þeim jafnan varst og
vörnin
með von og hjartans kærleik
þinn.
Á afa knjám þau undu vel,
er öllum sýndi hlýju þel.
Þú áttir heima’ á æskuvori
á ysta tanga Snæfellsness,
og gæddur varstu vilja og þori
og vannst þín störfin sæll og
hress.
Þig seyddi ungan sævarhljóð
er sazt þú út við báruflóð.
Þú reyndir snemma kröppu
kjörin,
en kjark og dugnað sýndir æ,
þvi brimasöm var bátavörin
og brotagjarnt á köldum sæ.
Þig leiddi drottins líknarhönd
þótt leiðin stundum yrði vönd.
Þú lifðir síðast langan vetur
og leiðst oft þínu meini af,
en þoldir öðrum þrautir betur
því þrek og styrk þér drottinn
gaf.
Á honum var þitt traust og trú,
sem trygg er æ til himins brú.
Við kveðjum þig með klökkum
hjörtum
og kærar þakkir færum þér,
í sælulandsins ljóma björtum,
þér lífið nýja, fegurð ber.
Nú gefst þér dýrðar-sólarsýn
og sumar það er aldrei dvín.
Br. J.
Skuldabréf
Fasteignatryggð skuldabréf, sem hafa stuttan
gildistíma óskast keypt. Trúnaðarmál. Tilboð
merkt: „Sk — 1967 — 2417“ sendist á afgr. Mbl.
fyrir föstudagskvöld.
Árshálíð
Tafl- og bridgeklúbbsins verður haldin í Domus
Medica, laugardaginn 29. apríl og hefst kl. 8.30.
Fjölbreytt skemmtiatriði. Félagar fjölmennið.
Ferðaritvélar
Vandaðar, sterkbyggðar og
léttar Olympia ferðaritvélar,
ómissandi förunautur. —
Útsölustaðir:
ÓLAFUR GÍSLASON & co hf
Ingólfsstræti 1 A. Sími 18370.
ADDO VERKSTÆÐIÐ
Hafnarstr. 5, Rvík. Sími 13730.
1070/11»
PEGLERS — ENSKIR
Rennilokur 14”—4”
úr kopar.
Gufukranar 14”—3”.
Keiluhanar 14”—3”.
Öryggislokar t4”—2”.
Kontraventlar %—3”.
Tollahanar V2”—33”.
Rennilokur úr Járni
2”—8”.
VALD. POULSEN'
KLAPPARSTlO 29 - SlMARi 13024-1523S
SUÐURLANDSBRAUT 10 — 138520-31142
Randari.sk
lög mannsf jöl skylda
í Washington D.C. óskar eftir
stúlku ekki eldri en 25 áira
til heimilisaðstoðar í eitt ár.
Einnig til að annast 3 börn.
’Skrifið
Mrs L. Cohen
1408 Sarah Dr.
Silver Spring
Maryland
U.S.A.
BILAR
Trahant station 1966.
Saab 1963.
Scout 1966.
Saab 1965.
Taunus 12 M 1964.
Chevrolet vörubíll 1955.
GUÐMUNDAR
Bergþéruxötu 3. Slmar XM3Z, 20070
HÓTEL BORG
Fjölbreyttur matseðill allan daginn alla daga.
Hljómsveit Cuðjóns Pálssonar
Söngkona: Guðrún Fredriksen.
— Dansað til kl. 1 —
Reykingamenn
allt fyrir ykkur.
gaskveikjarar.
nonisoni
Reykjarpípur
Stórkostlegt úrval af
MASTA, nýjar gerðir.
TðBAKSVðRUR
ÁVEXTIR
nýir og niðursoðnir o. m. fl,
HJARTARBUÐ
Sími 81529.
Suðurlandsbraut 10.
SMúit
Wf
uMSk f
- - . í
:
Dansað í kvöld frá kl. 9—2.
HLJÓMAR leika fyrir dansi.
LOFTSKÉYTASKÓLINN.
BÚÐIN - DÁTAR - BÚÐIN
STAKZLAUST FJÖR
Dansað frá kl. 8.30 —11.30
Allir i Búðina í kvöld