Morgunblaðið - 28.04.1967, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. APRIL 1967.
31
Fokker-flugvél
ferst á Filipseyjum
Manila, 27. april — (AP) —
FOKKER skrúfuþota fórst í
lendingu á Malaybalay flugvelli
á Filippseyjum í dag og með
henni 16 menn. Flugvélin var
eign olíufélags ríkisins í Indó-
nesíu, og var verið að kynna
fulltrúum flugfélags Filippseyja,
P.A.L., kosti vélarinnar þegar
Blysið varð. AIls voru 18 manns
með vélinni, en tveir komust lífs
af. Meðal þeirra sem fórust voru
þrír fulltrúar Fokker flugvéla-
smiðjanna.
Flugvélin er svipuð Friendship
vélunum frá Fokker, en búin
öflugri hreyflum. Var hún að
koma inn til lendingar á Malay-
balay flugvellinum í Mindanao-
eyju er hún missti skyndilega
hseð og steyptist niður á völl-
iinn. Kviknaði í vélinni er hún
skall niður á völlinn, og varð
brakið eitt eldhaf á svipstundu.
Minningarsjóður
um ungan lækni
Á AÐALFUNDI Geðverndarfé-
lags íslands sl. þriðjudagskvöld
var tilkynnt um sjóðstofnun til
minningar um Kjartan B. Kjart-
anson lækni, er lézt um aldur
fram, ungur læknir og vel lát-
inn, en hann hafði helgað sig
sérsviði geð- og taugasjúkdóma.
Þau hjónin frú Jóna Ingvars-
dóttir og Kjartan J. Jóhannsson
héraðslæknir stofna sjó þennan
með kr. 25.000.00 stofnframlagi,
en sjóðurinn er í vörzlu Geð-
verndarfélags íslands, og er öll-
um heimilt að efla hann með
framlögum.
Stofnskrá sjóðsins bíður nú
staðfestingar, en hér er enn á
ný að því stefnt að efla starf í
þágu hins afskipta öryrkjahóps
geð- og taugasjúklinga.
Þjóðin öll sýnir nú málefni
þessu mikinn skilning. þar sem
sjálfsbjörg þessa fjölmennasta ör
yrkjahóps brestur, hjájpast nú
aðrir að til að skapa öllu þessu
fólki viðunandi endurhæfingar-
og lífsbjargaraðstöðu.
Er því öllu jákvæðu átaki
mjög fagnað.
Guðbrandsstofa
í Hallgrímskirkju
— Aðalfundur Hins íslenzka Biblíufélags
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
fyrir 151. starfsár Hins íslenzka
Biblíufélags verður haldinn, með
tilheyrandi guðsþjónustu í Hall-
grímskirkju í Reykjavik, nú á
sunnudaginn 30. apríl kl. 2 sið-
degis. Forseti félagsins, herra
biskupinn, prédikar.
Á fundinum verður endanlega
gengið frá allverulegum breyt-
ingum á skipulagi og starfsað-
stæðum okkar gamla félags, sem
lengi hefur verið aðkallandi að
gerðar yrðu.
Félagið hefur ráðið fram-
kvæmdastjóra, að vísu sjálfboða-
liða, Hermann Þorsteinsson,
gjaldkera Hallgrímskirkju.
Verið er að standsetja bæki-
stöð fyrir bókabirgðir, af-
greiðslu og bókhald félagsins, í
stofu á grunnhæð hins veglega
turns kirkjunnar. Hæðin er að
öðru leyti fyrirhuguð marg-
þættu safnaðarstarfi.
Þannig hafa skapazt möguleik-
ar til sjálfstæðrar og ábyrgrar
starfsemi á vegum kristins safn-
aðar í landinu, eins og lög fé-
lagsins gera ráð fyrir og af því
er vænzt, sem aðila Sameinuðu
Biblíufélaganna.
Forseti félags okkar lagði á
það ríka áherzlu í aðalfundar-
skýrslu fyrir tveim árum, —
„hvílíkt nauðsynjamál það er að
félagið eignist miðstöð í Reykja-
vík, skipulagi verði breytt og
unnið að því að félagið nái til
almennings. Biblíufélög eru alls
sfcaðar fjöldafélög, svo þyrfti að
vera hér. Félagið þarf á auknum
skilningi kristins fólks í landinu
að halda“.
Þannig fórust biskupi orð.
Nú er á þá kallað, er vilja veg
Guðs heilaga orðs meiri með
okkar þjóð, og sameina hug og
hönd að eflingu Biblíufélagsins.
Við höfum fengið nauðsynlega
miðstöð. Forlagið er í okkar
höndum. Við verðum fyrst og
fremst að sjá til þess, að ekki
vanti hjá því neinar af bókum
félagsins. Okkur er nú séð fyrir
forustu að sameiginlegu verki.
Um það segir í 2. grein laga
Hins íslenzka Biblíufélags: „Til-
gangur félagsins er að vinna að
útgáfu, útbreiðslu og notkun
Heilagrar Ritningar meðal lands-
manna“. Verði það lagaákvæði
til greina tekið, sem skylt er,
þarf að sjá til þess að allar
helztu bókaverzlanir landsins,
forstöðumenn safnaða og kristi-
legra félaga, er láta sér annt um
útbreiðslu og lestur Biblíunnar
og Nýja testamentisins, hafi þær
bækur jafnan á boðstólum.
Okkur, sem höfum í hjáverk-
um hlaupið í að standsetja bæki-
stöð fyrir Biblíufélagið, hina
fyrstu, er farið að þykja vænt
um hana. Hún er okkur helgur
staður þótt ófullgerð sé. Það út
af fyrir sig að hún er I Hall-
grímskirkju talar sínu máli. Það
sæmir vel félaginu. Og ekki
verður minningu Hallgríms Pét-
urssonar misboðið með því.
Hann ólst upp á Hólum í
Hjaltadal, lærði þar að lesa og
skrifa. Óefað hefur bókakostur
ekki verið meiri annars staðar á
landinu en þar. Og þar var Guð-
brands Biblía. Ungur hefur
hann farið að hnýsast i hana.
Annarri Biblíu kynntist hann
ekki fyrstu 30 ár ævinnar. Ekki
er ólíklegt að Biblíu-tilvitnanir
í Hallgrímssálmum séu margar
teknar orðréttar úr henni.
Guðbrands Biblía er í senn
undirstaða og kóróna allra síðari
þýðinga íslenzku Biblíunnar. A
150 ára afmæli félags okkar
færði kirkjumálaráðhera, Jó-
hann Hafstein, því að gjöf Guð-
brands Biblíu ljósprentaða. Því
verður ekki gleymt. í bókasafni
félagsins er nú allar elztu út-
gáfur Biblíunnar íslenzku nema
Steins og Hendersons.
í öllum þeim bókum, sem hér
verða væntanlega í stofunni, mun
Guðbrands Biblía bera sem gull
af eiri, — svo segja mætti að nú
fáum við GUÐBRANDSSTOFU 1
HALLGRÍMSKIRKJU.
Verið velkomin til guðsþjón-
ustu aðalfundar Hins íslenzka
Biblíufélags í Hallgrímskirkju,
sunnudaginn 30. apríl kl. 2 síð-
degis!
Fyrir hönd félagsstjórnar,
Ólafur Ólafsson.
„Rétfarhöld"
Russells
— hefjast í Stokkhólmi á laugardag
Stokkhólmi, 27. apríl (AP).|
,,Stríðsglæparéttarhöld“ þau,
sem brezki heimspekingurinn
Bertrand Russell hefur beitt sér :
hvað mest fyrir, eiga að hef jast |
í Stokkhólmi á laugardag. Hófst.
undirbúningur að réttarhöldun-
um þar í borg í dag þrátt fyrir |
áskoranir sænskra yfirvalda til
aðstandenda réttarhaldanna um
að halda þau annarsstðar. Hins-
vegar telur sænska stjórnin sér
ekki fæ-t að banna réttarhöldin
í Svíþ' |>.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum að Johnson Banda-
ríkjaforseti hafi tilkynnt sænsku
stjórninni að verði „réttarhöld-
in“ haidin í Svíþjóð geti þau
varpað skugga á sambúð ríkj-
anna.
„Dóminn” skipa um 20 menn,
og voru aðeins fáir þeirra komn-
ir til Stokkhólms í daig þegar
undirbúningsstörfin hófust. Fara
þessi undirbúningsstörf fram
fyrir luktum dyrum, svo lítið
hefur af þeim frétzt. Vitað er
hinsvegar að „réttarhöldin" eiga
að fjalla um ásakanir á Banda-
ríkjamenn vegna meintra lotft-
árása á óbreytta borgara í Viet-
naim og um hernað þeirra þar
almennt. Fulltrúar allra fol'kka
nema kommúnista í utanríkis-
nefnd sænska þingsins, hafa
getfið út sameiginlega yfirlýs-
ingu, þar sem þeir harma þá
ákvörðun Russells og félaga hans
að réttarhöldin skuli haldin í
Svíþjóð. Segir í yfirlýsingunni
að réttarhöldin geti á engan hátt
stuðlað að friði í Vietnam. Nefnd j
armenn segja hinsvegar að í
Svíþjóð rík-i mál- og fundafrelsi,
svo ekki sé unnt að banna rétt-
arhöldin.
Tage Erlander, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, hefur einnig
bent þeim á að þar sem þeir
geti engin áhrif haft á gang mála
í Vietnaim og njóti hvergi opin-
berrar viðurkenningar, ættu þeir
að hypja sig á brott frá Svíþjóð.
Hafa áskoranir þessar engan ár-
angur borið.
Ekki hefur fengizt opinber
staðfesting á því í Washington
að Johnson forseti hafi sent
sænsku stjórninni mótmæli
vegna réttarhaldanna. Hinsvegar
er það haft eftir áreiðanlegum
heimildum að Hubert de Besche,
sendiiverra Sviþjóðar, hafi rætt
málið við forsetann í Hvíta hús-
inu í gærkvöldi. Benti de Besche
Johnson þá á að sænska stjórn-
in gæti ekkert að gert vegna
ákvörðunar um mál- og funda-
frelsi í stjórnarskrá landsins.
sem þannig er skipuð: Hermann
Guðmundsson form., Björn Þór-
hallsson, Einar Ögmundsson,
Markús Stefánsson og Óskar Hall
grímsson, hóf undirbúning að
opnun sparisjóðsins. Réði hún
sem sparisjóðsstjóra Jón Halls-
son.
— Sparisjóðsstjórnin hóf strax
að beita sér fyrir um húsnæði fyr
ir sparisjóðinn, og þegar 9 verka
lýðsfélög keyptu megin-hluta hús
eignarinnar Skólavörðustígur 16
var ákveðið að sparisjóðurinn
fengi þar inni með starfsemi sina.
Sparisjóðurinn hefur afgreiðslu-
sal á 1. hæð hússins og húsnæði
á 2. hæð, þar sem fram fer bók-
hald allt. Þar er einnig viðtals-
herbergi sparisjóðsstjóra. í þessu
húsnæði mun sparisjóðurinn
starfa fyrst um sinn en hefur
möguleika á stækkun þess °'ð-
ar. Breytingu á húsnæðinu hefur
trésmiðjan Tréverk annast. Hús-
næðið er hið smekklegasta á all-
an hát og án nokkurs íburðar.
— Snarisjóðurinn verður op-
inn frá kl. 9 til 4 og auk þess
á föstudögum kl. 5 til 7. en á
laugardögum er opnunartími frá
kl. 9 til 12. Soarisióðurinn mun
annast alla innlenda bankastarf-
semi.
Átök milli hermanna og
Rauðra varðliða í Kina
Mörg hundruð manns sœrðir eða fallnir
Tokíó, 26. apríl NTB.
MÖRG hundruð manns hafa verið
drepnir, eða særðir í átökunum
sem átt hafa sér stað milli
Rauðra varðliða og kínverskra
hermanna í Lanchow í Kansu-
héraði. Kemur þetta fram í frétt
frá Pekingfréttaritara japanska
blaðsins Shimbun á miðvikudag.
Átökin hófust, er Rauðk varð-
liðar við Lanchow-háskólann
lokuðu ritstjórnarskrifstofum
eins af dagblöðum borgarinnar,
því að blaðið átti að hafa starf-
að í þágu gagnbyltingarafla.
Andstæðingar Maos innan
flokksdeildar komimúnistaflokks-
ins í héraðinu hvöttu um 100.000
manns, sem safnazt höfðu saman
umhverfis byggingu blaðsins til
þess að snúast gegn aðgerðum
Rauðu varðliðanna. Þessir sömu
andstæðingar Maos kölluðu
einnig á sveit úr hernum, sem
kiom á vettvang í átta vörubif-
reiðum. Réðust hermennirnk
síðan gegn Rauðu varðliðunum.
Fréttaritari hins japanska blaðs
hefur upplýsingar sínar eftir
veggispjöldum í Peking.
Fjölskyldur sendisfaifsmunna
Indónesíu í Kína sendar heim
Djakarta, 27. apríl NTB
RÍKISSTJÓRN Indónesiu hefur
komið á fót sérstakri nefnd, sem
á að fá mánaðar frest í því skyni
að leysa þau bráðu vandamál,
sem stafa af veru hinna kín-
versku íbúa landsins.
Uppþot þau i Imdónesíu, sem
framkvæmd hafa verið til þess
að fjandskapast við Kínverja, og
rót sína eiga að rekja til hinn-
ar misheppnuðu uppreisnartil-
raunar kommúnista haustið 1965,
hafa aukizt að undanförnu og
koma nú stöðugt fyrir á nýjum
stöðum. Hafa þessi uppþot haft
í för með sér mikla spenu í
sambúð Indónesíu og Kína.
Hin nýja nefnd, sem greint var
frá hér að framan, er skipuð
mönnum frá lögreglunni, hern-
um, ríkisstjórinni og dómstólum
landsins.
Frá Peking berast þær fréttir,
að konur og börn sendistarfs-
manna Indónesíu í Kína muni
verða send heim vegna mótmæla
aðgerða þeirra, sem fram hafa
farið í Peking í fjamdskaparskyni
við Indónesíu. Þúsundir manna
fóru í mótmælagöngu í dag fram
hjá sendiráðsbyggingunni þar
fjórða daginn í röð, en Rauðir
varðliðar skrifuðu móðgunarorð
á veggi byggingarinnar.
- SPARISJOÐUR
Fjamh. af bls. 2
sparisjóðinn. í nefndinni áttu
sæti Hannibal Valdimarsson, Ein
ar ögmundsson, Guðmundur
Garðarsson, Pétur Sigurðsson,
Óskar Hallgrímsson, Jón Sigurðs
son og Markús Stefánsson.
— Nefnd þessi náði samkomu-
lagi um öll framkvæmdaratriði
varðandi stofnun sparisjóðsins og
var stofnfundur haldinn miðviku
daginn 9. marz 1966. Á stofn-
fundinum var samþykkt reglu-
gerð fyrir sparisjóðinn og kosn-
ir þrír menn i stjórn hans, en
síðan kaus borgarstjórn Reykja-
víkur tvo menn, svo sem tilskil-
ið er í lögum.
— Á 50 ára afmæli Alþýðu-
sambands Islands 12. marz 1966
afhenti viðskiptamálaráðherra
herra Gylfi Þ. Gíslason forseta
Alþýðusambandsins Hannibal
Valdimarssyni reglugerð fyrir
sparisjóðinn staðfesta.
— Stjórn Sparisjóðs alþýðu.
- NATO
Framh. af bls. 1
að sé að stofna sérstakt fram-
kvæmdaráð skipað fulltrúum
kommúnistafokkanna í Evrópu
er sendi út áskoranir um sam-
eiginlegar aðgerðir gegn stefnu
Bandaríkjanna og ný-nazisman-
um í Vestur ÞýzkalandL
Émsir ræðumenn á kommún-
istaráðstefnunni í Karlovy Vary
héldu því fram að margir leið-
toganna í Vestur Evrópu væru
reiðubúnir til að segja lönd sín
úr Atlamtshafsbandalaginu árið
1970, ef trygging fæst fyrir þvl
í Kreml að sovézkar hersveitir
verði kvaddar heim frá ríkjunum
í Austur Evrópu.
Ágreiningur ríkti um það á
ráðstefnunni hvort boða skyldi
fulltrúa Bandaríkjanna á fyrir-
hugaðar ráðstefnur um öryggis-
mál Evrópu. Sumir frönsku full-
trúanna voru agjörlega andvíg-
ir þeirri hugmynd, en ítölsku
fulltúarnir hédu því fram, að
mauðsynlegt væri að Bandaríkja-
menn tækju þátt i umræðum um
framtíð Þýzkalands og bandalaga
Vestur-Evrópurikja. Fulltrúar
Sovétríkianna voru líitt hrifnir af
því að bjóða bandarískum full-
trúum þátttöku í umræðunum,
en viðurkendu að vart næðist
árangur án þeirra.
- IÞROTTIR
Framhald af bls. 30.
mesta möguleika í einliðaleik,
enda sigurvegari í þeiiri grein
frá Reykjavíkurmótinu í vetur.
Isfirðingar og Siglfirðingar eru
ekki jafn þekktir hér á leikvelli
og hann, en talið er að í þeirra
hópi muni vera menn sem komi
til með að láta að sér kveða i
þessu móti. Þá teflir TBR. fram
sterkustu leikmönnum í þessum
flokki. Má þar nefna Björn Finn
björnsson, Kolbein Kristinsson
og Adolf Guðmundsson.
Eins og áður segir hefst mót-
ið kl. 20,00 föstudagskvöldið 28.
apríl, og verður framhaldið kL
13.00 laugardaginn 29. apríl. Tala
leikja að úrslitum er 69, en úr-
slitaleikirnir hefjast sunnudag-
inn 30. apríl kl. 14,00.
Til sölu
innrétting á lítilli veitingastofu ásamt öllum nauð-
synlegum áhöldum til reksturs. Allt aust og fast
á að seljast. Upplýsingar í símum 24599 og 37963.
- ÞING
Framhald af bls. 24
kennslustofur. Bankamanna-
skólinn hefur tekið á leigu hluta
þessa húsnæðis til næstu níu ára
svo segja má að húsnæðisþörf
hans sé leyst fyrir næstu fram-
tíð. Kennt hefur verið í skólan-
um síðan í október í haust.
í lok þingsins fór fram stjórn-
arkosning Var Hannes Pálsson,
Búnaðarbanka kjörinn formaður
og aðrir í stjórn voru kjörnir:
Bjami G. Magnúsison, Lands-
banka, Adolf Bjömsson, Útvegs-
banka, Sigurður Örn Einarsson,
Seðlabanka, og Ólafur Ottóssoo,
Samvinnubanka