Morgunblaðið - 20.05.1967, Page 2

Morgunblaðið - 20.05.1967, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1067. Heilfrystur fiskur úr Narfa endurfrystur í fyrsta sinn hér á landi fyrir erl. markað SEM kunnugt er af fréttum kom togarinn Narfi í þessari viku, með fullfermi af heii- frystum fiski til Reykjavikur og auk þess með 60 lestir af ferskum fiski á þilfari. Mbl. fregnaði að verið væri að vinna frysta fiskinn í fyrsta skipti fyrir Bandaríkjamarkað í frystihúsinu Meitlinum í Þorlákshöfn. Blaðið sneri sér til Guðmundar Jörundssonar útgerðarmanns Narfa og spurði hann frétta af þess- um málum. Guðmundur sagði að á s.l. ári hefði Narfi framleitt 2500 lestir af hausuðum og slægð- um heilfrystum fiski fyrir Rússlandsmarkað að brúttó- verðmæti 36.5 milljónir ísl. kr. Sala á þessum fiski er fyrir utan hinn venjulega rammasamning, sem gerður var milli islands og Sovét- ríkjanna. Hann sagði að ekki hefði tekizt að ná nýjum samningi enn sem komið er, því að kaupendur fisksins, V. O. Prodintorg í Moskvu hefðu ekki fengið leyfi So- vézkra yfirvalda fyrir við- bótarsamningi og hefðu þeir talið eðlilegt að fslendingar afgreiddu fyrst upp í þá samninga, sem þegar hafa ver iið gerðir um 5000 Iestir og mjög lítið hefur verið fram- leitt upp I þá til þessa og þá fyrst væri hægt að ræða um viðbótarsamninga. — Hefur þá ekki safnazt fyrir hjá ykkur óseldur fisk- ur? Jú, við eigum nú 600 lestir af fiski í Hafnarfirði, sem pakkaður er fyrir þennan markað, auk 326 lesta, sem nú er verið að vinna í Þor- lákshöfn, eins og áður sagði. — Hvaða vonir hefurðu þá um sölu á þessum fiski? — Ég hef fengið samþykki útflutningsdeildar SÍS fyrir 500 lestum af þeirra hlut í rammasamningnum við Rúss- land og ennfremur hef ég far ið þess á leit við sjávarút- vegsmálaráðuneytið, að það hlutaðist til um að mér yrði úthlutað öðrum 500 lestum af þeim kvóta sem Sölumið- stöð Hraðfrystihúsanna hef- ur, en sem kunnugt er hafa þessir tveir aðilar einkaleyfi á sölu á frosnum fiski til Sovétríkjanna. Mál þetta hef- ur enn ekki verið til lykta leitt og bíður nú Narfi ferð- búinn með fullri áhöfn eftir afgreiðslu þess máls, sem ég vona að verði hið allra bráð- asta. En að sjálfsögðu verð- ur skipið ekki sent á veiðar fyrr en markaður fyrir afla þess hefur verið tryggður. — Hvað viltu segja frekar um vinnslu aflans hér innan- lands fyrir erlendan markað? — Mín skoðun er sú að stefna beri að því í framtíð- inni að fullvinna heilfrystan fisk í íslenzkum frystihúsum, með endurfrystingu fyrir augum. Má í því sambandi benda á þá reynslu, sem ná- grannaþjóðir okkar hafa feng ið í þessum efnum. T.d. fluttu V-þjóðverjar árið 1966 út um 10.000 lestir af fiskflökum til Bandaríkjanna, sem unnin voru úr heilfrystum fiski. Að sjálfsögðu þurfa íslendingar að koma sér upp uppþíðing- artækjum af nýjustu og full- komnustu gerð. — Hvað hugsar þú þér þá um áframhaldið á þessu? í fyrsta lagi vonast ég eftir því að geta látið Narfa stunda áfram sömu veiðar upp í nú- gildandi Rússlandssamninga þar til árangur af endurfryst- ingu fyrir Bandaríkjamarkað liggur fyrir, en ég er mjög bjartsýnn í þessum efnum, eftir að hafa séð niðurstöður rannsókna, sem þegar hafa verið gerðar fyrir mig hjá Atvinnudeild Háskóla ís- lands. — Er eitthvað því til fyrir- stöðu að Narfi geti fiskað upp í þessa samninga, eins og aðrir framleiðendur? — Ég myndi álíta að svo ætti ekki að vera, þar sem hafa ber í huga, að áðurgreind ir samningar hljóta að vera gerðir fyrir allan íslenzka sjá- varútveg og má á það benda, að á sl. ári nam framlefðsla Narfa rúml. 40% af heildar- útflutningi íslendinga á heil- frystum fiski til Sovétríkj- anna. Má því telja eðlilegt, að Narfa verði úthlutað kvóta i hlutfalli við það. Togarinn Narfi. * sekt vegna r I Danskir follverðir fundu 50 f)ús sigarettur og 413 vodkaflöskur i skipinu 479 þús. kr. smyglvarnings Ástand vega að skána en er ekki orðið gott Einkaskeyti til Mbl. Kaupmannahöfn 19. mai. SKIPSTJÓRANUM á ísl. skip- inu Dettifossi hefur verið gert að greiða 77000 danskar krónur (479,017 ísl. krónur) í sekt og toll eftir að tollstjórnin í fri- höfninni fann 50 þús. óinnsigl- aðar sígarettur og 413 flöskur af vodka í lest skipsins, þar sem stykkjavörur eru geymdar. Siga Slasaðist alvarlega ALVARLEGT umferðarslys varð í Kópavogi í eftirmiðdaginn í gær, er átta ára drengur varð fyrir bíl rétt sunnan við Kópa- vogsbrú. Fjórir drengir voru að leik I fjörunni skammt frá brúnni og komu upp á veginn rétt í þann mund er Bronco- ieppi fór þar um á leið til Hafn- arfjarðar Skipti það engum tog- um að einn drensurinn varð fyrir bílnum og skall á hægra horni hans. Var bíllinn að sögn næstum stöðvaður er slysið varð. Fékk drengurinn mikinn á verka á höfði. Var hann fluttur á Slysavarðstofuna og þar gert að sárum hans, en síðan var hann fluttur á Landakotsspítala. Var líðan drengsins sögð eftir atvikum. er blaðið hafði sam- band við Landakoís^pilala í gær- kvöldi. retturnar voru geymdar í kassa. Fjárupphæðin var strax greidd og hélt Dettifoss áfram ferð sinnL Tollstjórninni var tjáð, að sígaretturnar og áfengið væri eign bátsmannsins. Stykkjavör- urnar voru frá Lettlandi og átti að fara til Reykjavíkur. Skipstjórinn skýrði frá því Ómor flýgur uð Flúðum EINN kunnasti skemmtikraftur meðal norrænna manna, Ómar Ragnarsson, flýgur frá Akureyri í kvöld suður yfir hálendið og lendir nærri Flúðum í Hruna- mannahreppi. Tilefni þessarar flugferðar er vorskemmtun Félags ungra Sjálfstæðismanna, sem halda á að Flúðum í kvöld. Ómar flýgur vélnni sjálfur og lendir við fjárhúsin í nýrækt Grafarbakkalands. S.U.S. Huíufiiðingur NÚ fer hver að verða síðastur að gera skil í Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins. . Skrifstof- an er opin í dag frá kl. 1-7 og á sunnudag 1-4. við yfirheyrzlur að smyglsvarn- ingurinn hefði átt að fara til íslands. Um svipað leyti fundu toll- verðir 6600 sígarettur og eina vískiflösku í sænsku skipi og kostaði það 6,600 danskra kr. sekt og toll — Rytgaard. Bókmenntii í GREININNI, Böðvar á uppleið. sem birtist í blaðinu í gær, slæddust inn prentvillur, og línur brengluðust. Prentvillurn- ar liggja flestar í augum uppi. En málsgreinar þær, sem brengl- uðust, eru hér endurprentaðar: Böðvar mun vera, eins og flestir núlifandi fslendingar, sveitamaður og borgarbúi í senn, og minna kvæði hans á hvorn tveggja upprunann; kannski öllu meir á sveitamennskuna. Böðvar er líka grunnmúraður í þjóðlegum kveðskap og notar sér þá þekking 1 eigin kveðskap. Böðvar er. eins og fyrr segir, létt um að binda í rím og ljóð- stafi. En það er segin saga, að manni, sem er á þann hátt létt um að yrkja, hættir gjarnan til að láta undan forminu, velja hverju sinni það orð, sem fer vel í hinu ytra formi án hliðsjónar af hinu innra formi. Böðvar ann landi sínu og hef- ur því á tilfinningunnþ hvað að því snýr. Hann veit, að þvi færri. sem erja þetta land, því meiri ábyrgð hvílir á sérhverjum fs- lendingi. Til eru einstaklingar, sem ekki nenna að taka á sig þá ábyrgð, en slá hælum við þjó, hendast til framandi landa og fela sig undir öðrum og — að þeirra dómi — fínni þjóðernum. Böðvar sendir á eftir þeim þejsa maklegu slettu: Ástand vega að skána. ÁSTAND vega landsins fer held ur batnandi, en þó gildir enn- þá fimm tonna öxulþungatak- mörkun fyrir vegi á Vestur- landi, Suðurlandi og i uppsveit um Árnessýslu. Þungatakmarkanir á Ieiðinni frá Kollafirði til Akraness hafa verið færðar úr níu og hálfu tonni niður í sjö. Sogsvegur og Þingvallavegur eru ennþá lok- aðir og Grafningurinn einung- is fær jeppum. Uxahryggir og Lyngdalsheiði er lokuð allri um ferð og frá Gýgjarhóli upp að Gullfossi er aðeins fært á jepp- um. Snæfellsnes og Dalir eru fær ir öllum bílum að Bjarkarlur.di en þaðan er aðeins fært jeppum að Skálmardalsá. Verið er að moka heiðar og búið að Vest- fjörðum með Sandsheiði, Gemlu fallsheiði. Breiðadalsheiði og Botnsheiði. Á Breiðadalsheiði eru samt 10 metra djúpar snjó- traðir, sem er hætt við að falli saman. Fært er til Bolungarvík- ur en mikið ber á grjóthruni úr Óshlíð. Frá Patreksfirði er fært yfir Vatnsfjörð og Bíldu- dal og þaðan yfir Dynjandis- heiði, sem verið er að moka ásamt Rafnseyrarheiði. Snjór- inn hefur verið kannaður á Þing mannaheiði, Þorskaf jarðarheiði og Tröllatunguheiði. Hann er ó- venju mikill þar og ekki talið tímabært að hefja mokstur á þeim. Öllum bílum er fært í Kollafjörð á Ströndum og það- an er jeppafært í Árneshrepp. Allir vegir Húnavatns- og Skaga fjarðarsýslu eru færir fólksbif- reiðum, nema Skagavegur sem aðeins er fær jeppum. Verið er að moka Siglufjarð- arskarð og óvíst hvenær því lýk ur og ekki er talið tímabært að moka Lágheiði ennþá. Eyja- fjarðarsýsla er öll fær nema hvað Vaðlaheiði og Fljótsheiði eru ekki færar nema jepnum. Mývatnssveit er öllum bílum fær og jeppum í GrímsstaðL Sæmilegur vegur er fyrir Tjör- nes að Kópaskeri og fyrir Sléttu, jeppafært er að Þórs- höfn. Á Möðrudalsöræfum og Jökuldalsheiði er óvenjumikill snjór og engar áætlanir um að hreinsa vegi þar í bráð. Frá Egilsstöðum er fært jeppum í efri Jökuldal og Jökuldalshlíð. Unnið er að því að moka Fjarð arheiði og fært er frá Egilsstöð- um til Norðfjarðar á jeppum og svo einnig um Suðurfjarða- veg. Brúarvinnuflokkar eru að undirbúa vinnu og einn kominn að Jökulsá á Breiðamerkur- sandi. Eftir helgina flytur ann- ar að Jökulsá að SólheimasandL ,Eieisaraskurður6 gerður á kú Nú fyrir stuttu síðan var gerð- ur keisaraskurður á kú á einum bæ hér í sveitinni (Káranesi). Sá, sem framkvæmdi verkið, var Sighvatur Snæbjörnsson settur dýralæknir. Honum tókst að bjarga kúnni, en kálfurinn var dauður. Virðist aðgerðin hafa heppnazt vel. Er það frekar sjaldgæft, að slíkra aðgerða þurfi við. Vonandi er vorið komið. Túnávinnsla er þegar hafin. Klaki v:rðist lítill í túnum. Og ekki sést snjór nema á efstu tindum, og hefir svo verið lengst af i vetur. Þó er gjafatími orð- inn langur, ekki vegna snjólaga, heldur vegna áfreða og illviðra, og minnkar því heyjaforðinn hjá mörgum. Margir bændur erU búnir að hjálpa þeim, sem hey- þurrð var hjá og einhverjir erU enn aflögufærir. En vonandi held nr áfram að hlýna, enda þesa full þörf. fC

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.