Morgunblaðið - 20.05.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAI 1067.
Bí LALEICAN
FERÐ
SÍMI 34406
SENDUM
iviagnOsar
SKIPHOLTI 21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381
Hverfisgötu 103.
Sími eftir iokun 31160.
LITLA
bllaleigan
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldl.
Sffwi 14970
BÍLALEIGASVI
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
f-f==J0/eJKl£/GJUV
RAUOARÁRSTÍG 31 SÍMI 22022
Fjaðrir. f jaðrabiöð. hljóðkútar
púströr o.fl varahlutir
f margar gerðir bifreiða.
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegi 168. — Simí 24180.
GOLF:
KYLFUR
BOLXAR O. FL.
P. EYFELD
LAUGAVEG 65
Simi í»2822 • 19775.
Poftamold
Blómaáburður
'k Hámenning, há-
reysti og heilsufar
H.S. skrifar:
„Það hefur verið á borð bor
ið og.' læknar bornir fyrir
því að þriðji hver maður hafi
geðtruflazt einhvern tíma á
ævinni.
Þá, er þ'að einnig mikið á
orði haft, að mjög sé pláss-
vant á sjúkrahúsum fyrir hrað
vaxandi fjölda sjúklinga.
Óumdeilt' er lögmál orsaka
og afleiðingar. Hlýtur því þessi
vaxandi vánheilsa að eiga sín-
ar orsakir. Hverjar þær. ,eru
er spurning, sem brýn nkúð-
syn er að fá svarað.
Lángt er síðan heimskunnnir
læknar fóru að vara við ýms-
um þeim venjum og neyziu-
háttum, sem verið hafa fylgi-
nautar menningarinnar, með
tilliti til líkamlegs og andlegs
beilsufars.
Mikið og margvísiega hefur
hin svokallaðz merming hækk-
að á tróni sfðan læknar höfðu
fjrst orð á þessu.
Að sama skapi virðast hafa
farið vaxandi líkamleg ssm
andleg veiklun og hrörnunar-
sjúkdómar. Er ekxi hugsanlegt
og jafnvel líklegt, að orsaka
samband sé þar á milli?
Fylginautar vaxandi menn-
ingarsóknar eru margir og
margvíslegir: Atíkinn hávaði
og hraði; æsandi kappleikir og
skemmtanalíf innisetur í meng
uðu andrúmslofti, vaxandi
hræringarleysi, hóglífi og
nautnalíf. — Allt hefur þetta
drjúg áhrif til veiklunar, lík-
amlegrar sem andlegrar.
Oft er kvartað um hávað-
ann af götuumferð ökutækja.
En hvað er hann í samanburði
við hávaðann af völdum út-
varpsins í húsum inni? Stjórn
þess er haldin þeirri meinvillu,
að láta það glymja í eyrum svo
að öðrum kosti ferð eða ónæði
að kalla allan guðlangan dag-
inn. Af skiljanlegum skorti á
fræðilegu og skemmtandi efni
hefur það tekið erlenda sem
innlenda hljómleika til eyðu-
fyllingar. Hljómleikar hafa
sjálfsagt sitt gildi í sérstökum
hljómleikasölum, en inni í önn
og ys heimili eru þelr aðeins
hávaði þessi þrásækni hávaði
tekur á taugarnar og sljóvg-
ar athyglina — eina dýrmæt-
ustu guðgjöfina, sem mannin-
um hefur verið gefin. Ekki er
heldur óhugsandi, eða jafnvel
ólíklegt, að hann eigi sinn hlut
í vaxandi taugaveiklun og geð
veiklun.
Hljómleikarnir eru ekki eini
hávaðinn, sem útvarpið veitir
inn á heimilin. Allt hraðflutt
lesmál, og fréttir nýtist illa,
og er þá oft ekki annað en há-
vaði.
H. S.
^ Vond sending'
„Kæri Velvankandi!
Viltu gjöra svo vel að taka
fyrir mig orðsendingu til Happ
drættisnefndar B-listans?:
Það sannast nú sem oftar
að „sveltur sitjandi kráka“ og
mun það sennilega vera kjör-
orð framsóknarmanna í kosn-
ingabaráttu þeirra um þessar
mundir. Ekki verður betur séð
en að þeir hafi heldur betur
hafið sig til flugs.
Síðastliðinn laugardag 13/5
fékk ég senda í pósti fjóra
happdrættismiða „ferðahapp-
drættis B-listans“. Hver miði
bostar eitt hundrað krpnur.
Að sögn er efnt til þessa
happdrættis til að standa
straum af kostnaði við kosn-
ingabaráttu B-listans fyrir al-
þingiskosningarnar í júní n.k.
Ég er flokksbundinn sjálf-
stæðismaður og hef hvergi
nærri framsóknarflokknum
bomið. — Mér er því spurn:
Hvað kemur happdrættisnefnd
B-listans til að halda, að ég sé
fús til að standa straum af
þeirra kostnaði á nokkurn
hátt?
Hvernig er það, getur hver
sem er sent alsaklausu fólki
happdrættismiða og ætlast til»
að það borgi þá, eða geri sér
til að skila þeim til réttra eig-
enda?
Mér þykir hreinasta háðung
að hafa fengið þessa sendingu
og vonast til, að framsóknar-
menn sjái sér fært að sækja
miðana, sem réttilega eru
þeirra eign, sem fyrst, heim
til mín að Hamrahlíð 13.
Ég ætila ekki að færa þeira
þá og ekki heldur að borga.
Halldór Friðriksson.
Hamrahlíð 13.
Forsending
Ekki var þetta skemmti-
leg sending; hálfgerð forsend-
ing; en hvað er það á móti
því, þegar „Þjóðviljinn" tók
upp á þeim skolla í auglýs-
inga- og útbreiðsluskyni að
senda nýgiftu fólki margra
mánaða áskrift af sjálfum sér
í brúðkaupsgjöf? Það sögðu
mér ung hjón sem urðu fyrir
þessari hrellingu í búskapar-
byrjun sinni, að ekki hefði ver
ið nókkur vegur að losna við
gjafaráskriftina, fyrr en hún
var runnin út, og jafnvel eft-
ir það hélt blaðið áfram að
slæðast til þeirra. Getið þið
ímyndað ykkur smekklegri og
skemm,tilegri brúðkaupsgjöf?
Önnur ung hjón urðu fyrir
þessu sama (eins og líklega öll
nýgift hjón um tíma), þótt
brúðguminn væri yfirlýstur
andstæðingur kommúnista og
fengi blaðið þar að auki ó-
keypis á vinnustað, stöðu sinn-
ar vegna. Ekki var nokkur
leið að biðja aðstandendur
blaðsins um að hætta þessura
óvelkomnu sendingum, en
ungu hjónin höfðu nefnilega
flutt inn í fjölbýlishús við gift
inguna og voru þar einu mann-
eskjurnar, sem fengu „Þjóð-
viljann." Fannst ungu frúnni
óþægilegt að fara niður á
morgnana að vitja um póstinn,
því að þeir, sem fyrir voru,
höfðu auðvitað tekið eftir þess
um sendingum og voru farnir
að hvísla hver að öðrum: Við
erum þó ekki búnir að fá
komma í húsið? („Það er möl-
ur í íbúðinni til hægri á
fimmtu hæð,“ eða: ,Það sást
rotta í kjallaranum í gær).
Viljum ráða stundvísa
og áreiðanlega stúlku til skrifstofu-
starfa. Einhver vélritunarkunnátta nauð-
synleg. Upplýsingar á skrifstofunni í dag
kl. 11—12. Fyrirspurnum ekki svarað í
síma.
Bergnas sf.
umboðs- og heildverzlun, Bárugötu 15.
Afgreiðslumaður
Óskum eftir manni til afgreiðslustarfa í bifreiða-
deild okkar.
Garðar Gíslason hf.
Hverfisgata 4—6.
H E R RA D E I L D
IV VÖRU SÝNING
KAUPSTEFNAN
REYKJAVÍK1967
20. MAÍ-4.JÚNÍ ÍÞRÓTTA- OG SÝNINGARHÓLLIN
LAUGARDAL OPIÐ FRÁ KLUKKAN 14-22 ALLA DAGA
Vörusýningin hefst í dag kl. 16.00 en verð-
ur síðan opin daglega kl. 14.00 til 22.00. —•
Fimm A-Evrópuþjóðir hafa sýningar-
deildir. — Sýningarsvæðið er um 4000
fermetrar. — Fjölbreytt úrval sýningar-
vara. — Kvikmyndasýningar fimm sinn-
um daglega. Veitingasalur er opinn.
Aðgangur kr. 40.— börn kr. 20.
FÓLLAND TÉKKÓSLÓVAKÍA
SOVÉTRÍKIN UNGVERJALAND
ÞÝZKA ALÞÝÐULÝÐVELDIÐ