Morgunblaðið - 20.05.1967, Síða 5

Morgunblaðið - 20.05.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAI 1967. Möguleikar á stðrauknum fjölda brezkra ferðamanna HÉR hefur verið staddur að undanförnu Brian Harvey, sem ritstýrir greinum í Lund- únablaðið Daily Telegraph. Morgunblaðið átti í gær stutt samtal við Harvey um dvöl hans hér. Hann sagði: — Ég kom til Reykjavíkur að kvöldi 11. maí sl. með flugvél frá Flugfélagi íslands, en á morgun, laugardag fer ég heim aftur. — Þetta er fyrsta ferð mín ■til íslands og kom ég hingað sérstaklega tii að skrifa um ferðamálin í blað mitt. Ég stunda mikið fiskveiðar, bæði á sjó og landi, og það hefur ef til vill orðið til þess að ég varð fyrir valinu, þegar rætt var um hver okkar blaða- mannanna við Daily Tele- graph ætti að fara til íslands. — Ég hef farið víða þessa fáu daga, m. a. til Lauga- vatns, Geysis, Þingvalla, Ak- ureyrar og Mývatns, en þang- að varð að fara á jeppa vegna vegaskemmda. — Þá fór ég til Vestmanna- eyja og var þar um helgina viðstaddur sjóstangaveiðamót ið, sem var mjög skemmtileg T-eynsla. Og einnig fór ég til Surtseyjar og dvaldist þar dagstund, sem verður mér ógleymanleg. — Það sem ég hef séð af landinu er nægjanlegt tilþess, að ég hef löngun til að sjá meira og hafa til þess meiri tíma. Það er svo margt, sem dregur ferðamanninn hingað, gönguferðir í stórbrotinni náttúru, veiðar, fuglaskoðun, allt eftir því hvers óskað er. — Bretar gera sér yfirleitt ekki ljóst, að ísland er á sterlingssvæðinu, en það þýð- ir að þeir geta haft meiri gjaldeyri til umráða. Hér tala fleiri ensku, en nokkur Eng- iendingur getur ímyndað sér og slikt auðveldar að sjálf- sögðu brezkum ferðamönnum mjög ferðalög hingað. Auk þess er gestrisni fslendinga Brian Harvey mikil, reyndar einstæð. — Verðlag er.hér hátt, eins og reyndar í flestum velmeg- unarríkjum. Matur er góður á veitingastöðum, en það verð ur að segjast eins og er, að þjónustan mætti vera betri og þá fyrst og fremst fljótari. Þetta er atriði. sem verður að lagfæra vegna erlendra ferða- manna. — Ég tel mikla möguleika á því að stórauka fjölda brezkra ferðömanna til lands- ins, hér er víðáttan mikil og ferðamaðurinn losnar við þá mannþröng, sem h®nn er vanur á ferðamannas'töðum heima. — fsland hefur einstætt að- dráttarafl, náttúra þess er hrífandi. Hér er mikið að ger- ast, ör framþróun. Þar sem ég hef komið hef ég tekið efitir starfsgleði og þrótti í öllum framkvæmdum, og hér er uppbyggingin svo nýtízkuleg, að við Bretar gætum r ikið af ykkur lært. Fleiri fyrirspurnir um Islands- feröir en nokkru sinni fyrr — segir Jóhann Sigurðsson í London JÓHANN Sigurðsson, umboðs- maður Flugfélags íslands í Lond- on og fréttaritari Mbl. þar í borg, leit inn í ritstjómarskrif- stofur blaðsins í gær. Inntum við hann frétta af starfsemi Flug- félagsins í London. — Við erum alltaf að kynna landið, sagði Jóhann, og þegar við komumst að því að einhver kynningaraðferð hefur reynzt vel, höldum við henni áfram. Við kynnum ísland fyrir Breturn og fólki á meginlandi Evrópu. Síðustu 18 mánuði höfum við t.d. unnið markvisst að því að fá brezku blöðin til að sýna íslandi meiri áhuga, en þau hafa gert áður. Gerum við það á þann hátt, að við sendum blöðunum öll gögn, sem við getum komizt yfir um ísland á ensku, alla bæklinga og áætlanir og síðast en ekki sízt Iceland Review. Þá höfum við gengizt fyrir landkynningum í samvinnu við hin Norðurlöndin. Hafa þar ver- ið fluttir stuttir fyrirlestrar um hvert land, en síðan kynntur Norðurlandamatur og fleira, sem sérstætt er fyrir löndin. Árang- ur þessarar viðleitni hefur birzt í ýmsu. Þannig kom í marz hálfrar síðu grein í Sunday Press. Þá hafa undantfarna daga verið staddir hér á landi trveir vel metnir brezkir blaðamenn, Brian Harvey, aðstoðarritstjóri hjá Daily Telegraph og John Carter frá Tomson Press, sem er formaður í félagi brezkra blaðamanna, sem skrifa um ferðamál. Mun Harvey skrifa þrjár greinar í Daily Telegraph og kemur sú fyrsta á morgun og mun fjalla um veiði á íslandi, önnur, sem fjallar um Surtsey og heimsókn þangað kemur í blaðinu 27. maí en sú þriðja, sem fjallar um ísland, land og þjóð með sérstöku tilliti til ferða- manna, kemur síðar. Carter mun skrifa um ísland í tveimur laug- ardagsdálkum 8 til 10 Tomson- blaða í Englandi 3. og 10. júní. í ágúst kemur svo hingað til lands Diana Petry, sem ritar um ferðamál í The Observer. Mun hún dveljast hér í tólf daga og birta greinar um landið í blaði sínu síðar í haust. Fyrir utan þessi skriif, sem ég var að telja upp, höfum við fengið margar greinar birtar í brezkum blöð- um vegna þess að við erum á sterlingssvæðinu og munu marg- ir Bretar leggja leið sína tiil ís- lands í sumar fyrir þá sök. En Bretar fá ekki nema £50 til ferðalaga til landa utan sterlings svæðisins. Við í London sjáum einnig um að koma íslandi á framfæri í Frakklandi. ítallíu og Sviss og okkur hefur einnig tekizt vel að koma blaðagreinum á framfærd í þeim löndum, einkum á Ítalíu. Hefur árangur af þessum grein- um orðið sá, að við höfum fengið fleiri fyrirspurnir frá þessum löndum en nokkru sinni fyrr og lítur mjög vel út með ferðalög til landsins. Hafa bókanir hjá okkur aukizt um 30% frá því í tfyrra. Þá höfum yið undanfarin tvö ár haldið námskeið fyrir brezka ferðaskrifstofumenn í samvinnu við fulltrúa hinna Norðurland- anna. Standa þessi námskeið i tvo daga og hefur hvert land um 1% til 2 tíma til ráðstöfun- ar. Er tímanum venjulega varið þannig, að skiptist á fyrirlestur ög kvikmynd. f lok námskeiðsins 'svara svo þátttakendur spurn- ingum og eru veitt verðlaun fyr- ir beztu svörin. Að námskeiðinu loknu fá allir skírteini, sem tek- ið hafa fullan þátt í því og set.ið 'fyrirlestrana og hafa verið gef- in út um 600 skírteini á vegum námskeiðanna. Aðaltilgangurinn með þessum námskeiðum er að minna ferða- 'skrifstofumenn á þann mögu- leika að ferðast norður á bóginn Jóhann Sigurðsson í sumarfríinu í stað þess að lóta strauminn bera sig suður eftir. Og þessi samvinna Norðurland- anna hefur Vakið sérstaka at- hygli fulltrúa annarra landa í í Englandi, en nú eins og oft áður hefur það sýnt sig, að Norð- urlandabúar geta unnið sem'einn maður að sínum sameiginlegu óhugamálum. Njótið hinnar útfjólubláugeislunar af fjalla-snjónum Verið brún - Brennið ekki NOTIÐ Ch»5 rtr U.CA, Coppertone er langvinsælasti sólaráburðurinn í Bandaríkjunum í dag, enda hafði Coppertone og Q. T. (Quick Tann- ing) frá Coppertone 77,4% af allra samanlagðri sölu á sólaráburðum þar árið 1966. Fáanlegt af Coppertone vörum eru: Coppertone Lotion, Coppertone Oil, Copperton Oil Spray, Coppertone Shade fyrir rauðhærða og viðkvæma húð), Coppertone Noskote (til varnar bruna á vörum, nefi, eyrum) og Q. T. (Quick Tanning) frá Coppertone.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.