Morgunblaðið - 20.05.1967, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1967.
9
Leiguíbúð óskast
3—4ra herb. íbúð óskast til
leigu frá 1—15 júní n.k. í
10—12 mánuði. Fyrirfram-
greiðsla. Uppl. gefa:
Vagn E. Jónsson
Gunnar M. Guðmundsson
hæstaréttarlögmenn
Austurstræti 9.
Símar 21410 og 14400.
íbúð til sölu
íbúðin er á efri hæð í tví-
lyftu steinhúsi við Njarðar-
götu. 3 herb. og eldhús, á
hæð, 2 herb. og bað í risi.
íbúðin er í húsinu Njarðar-
götu 49 og er til sýnis í dag,
laugardag kl. 14,00—18,00 og
á morgun sunnudag kl. 14,00-
16,00.
Vagn E. Jónsson
Gunnar M. Guðmundsson
hæstaréttarlögmenn
Austurstræti 9.
Símar 21410 og 14400.
FASTEIGNASALAN
GARÐASTRÆTI 17
Simar 24647 og 1522L
7/7 sölu
5 herb. vönduð endaibúð við
Álfheima, útb. kr. 700 þús.
4ra herb. ný íbúð á 2. hæð
við Hraunbæ. AUir veðrétt
ir ausir.
4ra herb. hæð við Bogahlíð,
ásamt einu herb. í kjallara.
3ja herb. íbúð, 110 ferm. á 3.
hæð við Stóragerði.
3ja herb. íbúðir í Miðbænum,
nýstandsettar.
2ja herb. kjallaraíbúð í Laug-
arneshverfi, sérinng., laus
strax.
Einbýlishús í smíðum við Nes
veg.
Einbýlishús í Kópavogi og
Garðahreppi, tilbúin og í
smíðum.
Einbýlishús, fokhelt við Há-
bæ.
Arni Guðjónsson. hrl.
Þorsteinn Geirsson, hdl.
Ilelgi Ólafsson sölustj.
Kvöldsími 40647.
Tékknesk vörusýning
Frá 20 maí — 4. júní.
SÖLUSTAÐIR:
Verzl Geysir, Aðalstræti 2,
Málarinn, Bankastræti 7,
Persía, Laugavegi 31,
Kaupféiag Eyfirðinga, Akureyri,
Hlynur, Húsavík,
Bólsturgerðin, Siglufirði,
Húsgagnaverzlun Sauðárkróks,
Verzl. Marinós Guðmundssonar, Vestmannaeyjum.
Umboðsmenn óskast í öðrum kaupstöðum
Einkaumboð
PáJI Jóh. ÞorEeifsson hf.
Skólavörðustíg 38 — símar 15416 - 15417.
Síntinn er 24300
20.
Einbýlishús
af ýmsum stærðum í borg-
inni, Kópavogskaupstað,
Seltjarnarnesi, Garðahreppi
o.g Hafnarfirði.
Nokkrar 2ja, 3ja, og 4ra herb.
rbúðir í borginni, sumar ný-
legar.
Nýtízku 5 herb. íbúðir, með
sérinng., sérhitaveitu og
bílskúrum. Einnig nýtízku
5 herb. íbúðir 115—130
ferm. í Háaleitishverfi og
víðar.
I smíðum
Einbýlishús og 3ja, 5 og 6
herb. sérhæðir, með bílskúr
um.
Eignarlönd
af ýmsum stærðum í borg-
arlandinu, nágrenni borgar-
innar, Mosfellssveit og víð-
ar.
í Hveragerði
Nýtt steinhús 130 ferm. í smíð
um. Tvö gróðurhús geta
fylgt, ef óskað er. Hag-
kvæmt verð og væg útb.
Verzlunar- og iðnaðarhúsnæði
í borginni og margt fleira.
KOMIÐ OG SKOÐIÐ.
Sjón er sögu ríkari
Mýja fasteignasalan
Laugaveg 12
Sítni 24300
HIIS 0« HYKYU
Höfum kaupendur að 3ja—4ra
herbergja nýlegum íbúðum í
Vesturbæ, Háaleitishverfi og
Álfheimum. Útborgun 7—800
þúsund.
Athugið að oft er um skipti
að ræða.
HARALDUR MAGNUSSON
TJARNARGÖTU 16
Símar 20925 - 20025
Kvöldsími 21905.
Til sölu
2ja herb. íbúð tilb. undir tré
verk í Vesturbænum. Suð-
ursvalir. 2. hæð.
3ja herb. íbúð tilb. undir tré-
verk í Vesturbænum.
4—5 herb. ný og glæsileg íbúð
arhæð í Vesturbæuum. Suð
ursvalir, útsýnL
FASTEIGNASTOFAN
Kirk juhvoli 2. hæð
SÍMI 21718
Kvöldsími 42137
FÍLAGSIÍF
Farfuglar — Ferðamenn!
Gönguferð á Hengil og í
Marardal í fyrramálið. Einn-
ig verður unnið í Valabóli á
morgun.
Farið verður frá bifreiða-
stæðinu við Arnarhól kl. 9,30.
Farseðlar við bílana.
Golfklúbburinn Keilir
Innanhúsæfingar í golfi fyr-
ir meðlimi. Uppl. í síma 52122
— Minning
• Framhald á hls. 23
þar. J>á fluttust þau til Vest-
mannaeyja árið 1920 og áttu þar
heima ætíð upp frá því. Gerðist
Guðjón formaður á vélbát fljót-
lega eftir komu sína til Eyja
og stundaði formennsku og sjó-
sókn í meira en meðal manns-
aldur.
Árið 1926 gerðist Guðjón
meðeigandi í mb. iHöfrungi III
og það sama ár byggðu þau hjón
in húsið Reyki, sem hann var
ætíð síðan kenndur við. Berg-
þóra og Guðjón eignuðust 10
börn og eru 7 þeirra á lífi, 6
synir og 1 dóttir. Tvö barna
sinna misstu þau ung, en einn
sonur þeirra varð hvíta dauða
að bráð, er hann var á þrítugs-
aldri.
Þegar Guðjón hóf fyrst sjó-
sókn frá Eyjum var vélbátatíma
bilið að hefjast hér á landi. Þess
ir bátar voru ekki stórar fleyt-
ur og mörgum vankostum bún-
ir. f dag myndu þeir naumast
teljast haffærir innan hafnar,
hvað þá á brimótt og storma-
söm fiskimið Vestmannaeyinga.
Þó leystu þeir af hólmi’úrabát-
ana ,sem notaðir höfðu verið til
sjósóknar um langan aldur, og
þóttu meira að segja eins og
hafskip, samantborið við þá.
Guðjón Jónsson var sævíking
ur, sem lét sér ekki fyrir brjósti
brenna þótt stórviðri geisuðu á
hafinu og fjallháar öldur risu,
svo að naumast var skipgengur
sjór, og káffærðu kletta og sker
á hinum hættulegu sgilingaleið-
um milli Vestmannaeyjanna
fknmtán. Nokkrum sinnum
komst hann í lífsháska á sjó-
mennsku ferli sínum, en fyrir
harðfengi sitt kbmst hann lífs af,
þá er félagar hans uxðu hinni
votu gröf að bráð. Það var eng-
inn barnaleikur að heyja bar-
áttu við villtar Ránardætur á
farkostum, sem trauðla voru
stærri en svo, að hæfa myndu
sem björgunarbátar á nútíma
fiskiskipum íslendinga.
Guðjón á Reykjum var óvæg-
in við sjálfan sig, ekki síður en
aðra, eins og manni með sönnu
sjómannsblóði ber að vera.
Hann barðist við sjósókn og eig-
in útgerð, sem varð honum síð-
ur en svo tekjulind, jafnt sem
annarra útgerðarmanna, ekki
sízt eftir aflaárið mikla og hið
ægilega verðfall fiskjar árið
1930, sem gerði hundruð manna
að algjörum öreigum. En það
var ekki að skapi þeirra tíðar
manna að krefjast og þiggja
styrki úr ríkissjóði, að hætti
sníkjudýra, og flatmaga sig sjálf
ir í auði Qg allsnægtum greidd-
um af almannafé, eins og nú er
algengt og þykir næsta sjálf-
sagt. Töpin og áföllin unnu
menn upp í sveita síns eigin
andlits og tóku þá hönd til ann-
arra starfa. Svo var og um Guð-
jón Jónsson.
Milli vertíða gekk hann. til
hverra þeirra starfa sem hugs-
anleg voru í Eyjum, enda var
hann eftirsóttur til vinnu. Hann
var afkastamaður mikill, ósér-
hlífinn áhugamaður, afburða
dugnaðarforkur og jötunn að
afli og þrótti.
Vinnudagur Guðjóns var jafn
an langur enda hafði hann sam-
fara öðrum störfum sínum kýr í
fjósi og fénaði til búdrýginda og
annaðist heyskap og önnur störf
í sambandi við búpeninginn. Þá
annaðist hann einnig slátrun
dýra fyrir Eyjabúa um áratuga-
skeið og það var sannarlega eins
og þessi maður hefði alltaf tímar
til að sinna bónum annarra hve
nær sólarhringsins sem var.
Allt sitt margþætta lífsstarf
vann hann af einstakri trú-
mennsku, góðvild, alúð og sam-
vizkusemi.
Það má með sanni segja að
Guðjón á Reykjum hafi verið
sérstæður maður, sem mótaði
óafmáanlegan svip á bæjarlíf
Vestmannaeyja.
Ekki fór heimilið í Reykjum
varhluta af sjúkdómum, auk
þess sem áður er getið. En þau
Guðjón og Bergþóra stóðu sem
klettur úr hafinu í hverri raun
og hertust við hvert áfall. Þau
æðruðust aldrei og góðmennska
og mannkostir þeirra beggja
hafa efalaust átt sinn sterka
þátt þar í. Bæði voru þau farin
að beilsu síðari árin, en buguð-
ust ekki þrátt fyrir það, unz
Guðjón lézt í Landsspítalanum
á hvítasunnunótt hinn 14. þ.m.,
etfir aðeins hálfs mánaðar legu.
Frú Bergþóra lifir mann sinn,
áreiðanlega sátt við lífið og til-
veruna.
Þau hjón Guðjón og Berg-
þóra voru mikilir og órofa-
tryggir vinir foreldra minna.
Faðir minn og Guðjón unnu
mikið saman í fjölda ára, og
fór mæta vel á með þeim, Móð-
ir mín og frú Bergþóra veitt.u
hvor annarri styrk, yl og hlýju,
eftir því sem máttur þeirra stóð
til, hvenær sem eitthvað bját-
aði á. Milli þessara tveggja
hjóna má ég segja að hafi ver-
ið kærleikur, skilningur, hjálp-
semi og tryggð.
Ég kynntist þeim Guðjóni og
Bergþóru á æskuárum mínum.
Þau kynni verða mér ógleyman-
leg um alla framtíð, sökujn ein
stakrar ljúfmennsku, góðvildar
og hjálpsemi þeirra.
Um leið og ég að síðustu kveð
Guðjón á Reykj.um hinztu
kveðju, þennan sérstæða mann
sem ætíð vildi úr öllu og alls
staðar gott gera, votta ég eftir-
lifandi eiginkonu hans mina
dýpstu samúð, ásamt alúðar-
þakklæti fyrir óvenju góðvild
og hjálpsemi mér og mínum til
handa. Jafnframt votta ég hin-
um mannúðlegu mannkostabörn
um þeirra samúð mína og bið
öllum aðstandendum hins látna
blessunar hins alvalda í lífi og
starfi á ókomnum árum.
Jónas St. Lúðvíksson.
Skriístoíulmsnæði
5 herbergi, um 100 fermetra, er til leigu í húsi
í Miðbænum nú þegar. Tilboð merkt: „Skrifstofu-
húsnæði 990“ óskast sent blaðinu.
Arður til
hluthafa
Á aðalfundi H.f. Eimskipafélags íslands,
12. maí 1967 var samþykkt að greiða
10% — tíu af hundraði — í arð til hlut-
hafa, fyrir árið 1966. Arðmiðar verða inn-
leystir í aðalskrifstofu félagsins í Reykja-
vík og hjá afgreiðslumönnum félagsins
um allt land.
H.f. Eimskipafélag íslands.