Morgunblaðið - 20.05.1967, Page 28

Morgunblaðið - 20.05.1967, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MAI 1967. UNDIR VERND ingu, jaínvel þennan stutta tíma, sem ég er búin að vera hérna; — Ég skil, sagði Paula. — Og þakka yður fyrir að segja mér af því ungfrú Wintergreen. Ungfrú Wintergreen leit á úr- ið sitt. — Ég verð að fara. Það er kominn tíminn, sem hann Michael leikur sér að vísinda- legu byggingarkubbunum sín- um. Það gefur svona ungu barni prýðisgóða hugmynd um húsa- gerðarlist. Paula andvarpaði þegar hin var farin út. Það var yndislegt veður útl. Heitt. en þó ekki um eftir Maysie Greig: of. Yndislegur ilmur sumar- blóma barst inn um gluggann utan úr garðinum. Hún. hafði tal að við Marjorie í síma, sagt henni frá slysi sínu og bað hana láta niður í tösku, sem Davið mundi svo vitja um hjá henni. Marjorie var ekkert nema sam- úðin og sagðist mundi geta kom izt af án hennar í bili. — Ég held mér þyki ekkert fyrir því þó að þú verðir að vera þarna dálítinn tíma, sagði hún. — Þá færðu hugmynd um, hvernig framtíðarheimilið þitt svona kvíðin, Marjorie. Ég er viss um, að ég verð stórhrifin af framtíðarheimilinu mínu. Hún breytti þessu þó, er hún hafði lagt símann, þannig, að hún mundi kunna vel við sig á kvöldin, þegar Davíð væri kom- inn heim og auðvitað yrði nú allt öðruvísi eftir að þau væru orðin gift. Þá réði hún sjálf yfir öllu heimilishaldimu og gæti gert þær breytingar, sem henni dytti 1 hug. Frú Maitland, íklædd svört- um, brakandi kjól, kom upp til hennar með bakka, sem hún setti á náttborðið. — Gerið svo vel. ungfrú Red mond. Ég kom nú sjálf með bakkann yðar, af því að það er eins og stúlkur nú á dögum séu ekkert viljugar á slíkar sendi- ferðir, hef ég orðið vör við. — Nú, en það getur nú varla hjá því farið, að einstöku sinn- um séu gestir í svona stóru húsi. ™3Z— — Ég er hrædd um, að þjón- ustuliðið sé ekkert hrifið af gest um nú á dögum, sagði frú Mait- land dauflega og hristi höfuðið. — Hversu skemmtilegir sem þeir kunna að vera, rugla þeir fyrir daglegum störfum, og þau eru þó aðalatriðið. — Ungfrú Wintergreen vill líka hafa allt í röð og reglu í barnaherberginu, sagði Paula. — Já, hún er skynsöm kona, sagði frú Maitland. Síðan sneri hún til dyranna, en áður en hún færi út, leit hún um öxl og sagði: — Ég vona, að þér finn- ið það sem þér þurfið á bakk- anum. Ef eitthvað vantar, er bjalla þarna við rúmið. — Það væri illa hægt að segja, að frú Maitland sé gest- risnin uppmáluð, sagði Paula við sjálfa sig, til þess að hressa sig upp. Hún leyfði sér meira að segja að hlæja. Hún leit á matarbakkann og komst að þeirri niðurstöðu, að heilbrigðri stúlku með góða matarlyst mundi finnast ýmislegt vanta. En hún gerði sér samt gott af því, sem þarna var, og vonaði, að frú Maitland kæmi með eitt- hvað meira, en næstum klukku- stund leið án þess að neinn kæmi. Það var náttúrlega heimskulegt, en frú Maitland hafði hrætt hana nægilega, svo að hún var næstum hrædd við að snerta bjölluna og biðja um meira. Klukkan var orðin hálf þrjú, þegar ráðskonan sýndi sig. Hún leit undrandi á tóman bakkann. — Þér kunnið að vera sjúkl- ingur, en það virðist að minnsta kosti ekki hafa komið niður á matarlystinni, og svo gaf hún frú sér eitthvert hljóð, sem líkt- ist grunsamlega fussL Svo varð löng og óhugnanleg þögn. Paula reyndi að lesa eitt- hvað en gat ekki einbeitt sér að bókinni. Hún fór að óska sér heim til Marjorie. Jafnvel þótt enginn kæmi að heimsækja hana þar, var andrúmsloftið að minnsta kosti viðkunnanlegra. Hún sagði sjálfri sér í hundrað- asta sinn, að þessu skyldi hún breyta, þegar hún væri orðin konan hans Daviðs. En þetta hús var samt farið að hafa ein- kennileg áhrif á hana. Henni fannst einhvern vegiran það mundi vera óumbreytanlegt — að hvað sem hún sjálf tæki til bragðs mundi það engu breyta. — Mér þætti gaman að vita, hvort Davíð fengist til að flytja ef ég bæði hann um það? hugs- aði hún, og svo fann húin að hún hlakkaði til þess, og var í betra skapi en hún hafði verið alla helgina, og samt fannst henni eins og hún vildi hvergi fremur vera en í þessu skemmtilega húsi í Weybridge. Stúlka kom upp með te handa henni. Hún var viingjarnlegur unglingur og ekki eins „þrælk- uð“ og frú Maitland hafði gef- ið í skyn. Paula hélt í hana í nokkrar minútuir til að tala við hana, því að hún var afskaplega einmana. Enn hafði Mavis ekki komið nærri henni, en nokkru eftir te drykkjuna, kom hún samt inn til hennar. Hún stóð stífbein, rétt við dyrnar og sagði: — Hafið þér allt, sem þér þurf ið? Ég vona, að það hafi farið vel um yður. — Eins vel og hægt er að bú- ast við, þegar maður er bein- brotinn, svaraði Paula, og bætti svo við ofurlítið brosandi: — En ég hef verið dálítið einmana, skal ég játa. — Mér þykir leitt, að ég gat ekki komið fyrr, sagði Mavis, — en ég hef verið önnum kafin í húsinu allan daginn. — Það liggur við, að ég verði hrædd, sagði Paula. — Hér er eins og allir séu á hausnum 1 húsverkum. Þér megið ekki halda, að mig langi að vera ó- kurteis, en segið mér: Hvað ger ið þið allar? Mavis roðnaði og það kom kuldalegur glampi í gráu aug- un. — Þér hafið líklega aldrei stjórnað stóru heimili, og hafið því enga hugmynd um allt smá- legt, sem gera þarf. — Ég kem víst til með að verða að læra það, svaraði Paula rólega. — En einm vinur minn í sveitinni, hr. Wainwright, hef- ur miklu stærra heimili en hér er, og hefur oft gesti, og álíka margt fólk og hér er, og eng- inn þar virðist vera neitt út- þrælkaður. Mavis stirðnaði upp. — Já, en hér viljum við hafa allt fullkom ið, sagði hún. — Þegar hún Louise sáluga dó, lofaði ég Paula hló! Æ, vertu nú ekki V/0 EVmMASCHEKT býður AFLVÉLAR — RAFMAGIMSVÉLAR og tæki JÁRIMBRAUTIR og búnað þeirra Annast útflutning á fullkomnum vélabúnaði og tæki fyrir gufu- og vatnsorkuver, katla, túrbínur, túrbínuvélar og vatnsorkutúrbínur. — Díeselvélar og díeselmótorar lág- og háspennutæki, spennu- breytar, rafmagnsofnar fyrir iðja, rafmagns- og gas-logsuðutæki. — Eimreiðir, rafknúnir járn- brautarvagnar, rafknúnir flutningavagnar, sam göngutæki, rafknúin til notkunar í borgum o.s. frv. Náin samvinna framleiðenda og vísindalegra rannsóknastöðva í Sovétríkjunum. tryggir fyrsta flokks gæði á heimsmælikvarða, svo og afköst og endingu. — Vélar frá Sovétrikjunum eru þekkt- ar fyrir góða starfsemi í mismunandi loftslagi. V/O Energomaschexport veitir fullkomna þjónust og aðstoð við uppsetningu og rekstur. — Góð vara- hlutaþjónusta. Allar upplýsingar fáir þér hjá: V^O Energomíischexporl IVfloskva V 330 Símritari: Telex 243 V/s Garðar GK 175 er til sölu. Skipið er 180 rúmlestir að stærð, með 500 ha. Lister-vél, 8 tonna þilfarsvindu og öllum tækjum til síldveiða. Skipið selst með haffæris- skírteini að aflokinni 4 ára flokkunarviðgerð. Upp- lýsingar gefa Axel Kristjánsson, lögfræðingur (sími 17060) og Guðni Jóhannsson, skipstjóri (simi 17662 milli kl. 13—14). ITtvegsbanki íslands. Einbýlislms til sölu á bezta og eftirsóttasta stað í Reykjavík, við ró- lega fullgerða götu, mjög nýtízkulegt, stór garður með háum trjám, bílskúr, hitaveita. Fyrirspurnir til Morgunblaðsins merktar: „Tækifæri 863.“ Basar og kafíisala Félagsgarði í Kjós 21. maí kl. 3. Kvenfélagið. Tilkvnning Þann tíma sem afgreiðsla bankanna verður lokuð á laugardögum, frá 15. maí til 30. september n.k., mun bankinn annast kaup á erlendum gjaldeyri (ferðatékkum og bankaseðlum) fyrir erlenda ferðamenn aðeins, á laugardögum kl. 9,30 til 12. Inngangur frá Lækjartorgi. Útvegsbanki fslands. Kvennaskólinn á Blönduósi Námsmeyjar við Kvennaskólann á Blönduósi er brautskráðust skólaárið 1936—37, eru vinsamlega beðnar vegna þessara tímamóta að hafa samband, eigi síðar en 20. þessa mánaðar við frú Þorgerði Sæmundsen, Blönduósi, eða frú Margréti Sigurð- ardóttur, sími 18493 í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.