Morgunblaðið - 20.05.1967, Síða 32
FYRSTAR^
MEÐ
TÍZKU-
LITINA ^
f&Aé
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1967
Dregið eftir 3 daga
Landshappdrœtti
Sjálfstœðisflokksins
ísbreiða
útaf
N-landi
FRÉTTAMENN íóru í ískönn-
unarflug með landhelgisgæzlu-
vélinni Sif í gær og reyndist
vera allmikill ís út af norður-
strönd landsins. Flogið var út
yfir Bjargtanga í norðvesturátt
og komið að meginísnum fimm-
tíu sjómílur norðvestur af
Barða. Var hann allþéttur á þeim
slóðum. Síðan var flogið áfram
norður og norðaustur með ís-
röndinni, sem reyndist vera um
55 mílur frá Straumnesi og
liggja nokkurnveginn í boga.
Frá Kögri var ísjaðarinn 45
mílur en ekki nema 3-5 mílur frá
Horni. Þar var þéttleikinn hins-
vegar orðinn mun minni.
Frá Horni var haldið áfram
í austur þa“r til komið var yfir
miðjan Húnaflóa. Þá var sveigt
nær landinu aftur og flogið þar
til þrjátíu m. voru eftir í Skaga
og var ísinn þar gisinn. Næst vzir
haldið að Grímsey og var ísinn
nokkuð fyrir norðan hana. Frá
Grímsey sveigði ísröndin upp að
Rauðunúpum en var gisin. Við
Rifstanga sveigði hún út aftur
í um tíu, tuttugu sjómílna fjar-
lægð og síðan kom smárani upp
að Melnakkanesi og þaðan lá hún
réttvísandi þrjátíu gráður, eins
langt og sá9t. Á svæðinu fyrir
austan Grímsey var sá ís sem
til sást fremur gisinn. Við Svína-
lækjatanga var smáspöng land-
föst og íshnafl allt austur að
Langanes-Fonti. En þar suður
af var enginn ís svo að teljar.di
sé. Vopnafjörður var svo til ís-
laus og sjórinn austur af land-
inu alveg hreinn.
Kaldur sauðburður og
víða horfir til vandræða
Pétnr Fríðrik
opnar sýningu
PÉTUR Friðrik listmálari opnar
í dag málverkasýningu í Iðn-
skólanum í Hafnarfirði. Á sýn-
ingu Péturs verða 46 málverk,
mörg hver máluð í Hafnarfirði,
eða þar í grennd. Sýningin verð-
ur opnuð fyrir boðsgesti kl. 4 í
dag, en verður síðan opin dag-
lega til 29. maí frá kl. 2—10.
Hey gengur til þurrðar eftir 5 og 6 mánaða gjöf
SAUÐBURÐUR er nú hafinn
um allt land, en miklir kuld-
ar hafa gengið yfir landið
síðustu daga og hafa ær því
al'lsstaðar orðið að bera inni
í húsium. Gróður er hvergi
kominn að gagni og verður
því að hafa fé á gjöf. En hey
eru nú víða að ganga til
þurrðar, enda hefur verið gef
ið óvenju mikið í vetur í
flestum sveitum landsins.
Morgunblaðið hafði í gær
samband við nokkra frétta-
ritara sína og fara frásagn-
ir þeirra hér á eftir:
Mikið annríki
Hofi, Vatnsdal
Hér um slóðir er enginn gróð
ur kominn að heitið geti, enda
Þorsteinn og Jakob stað-
festa frásögn Morgunbl.
— Bændum aldrei /ið/ð betur en
nú sogð/ Þorsteinn á Vatnsleysu á
aðalfundi Stéttarsambandsins
ÞEIR Þorsteinn Sigurðs-
son, bóndi á Vatnsleysu,
formaður Búnaðarfélags
íslands og Jakob Frí-
mannsson, formaður
stjórnar SÍS hafa nú op-
inberlega staðfest þá
frétt Mbl. að þeim hafi
verið vikið úr miðstjórn
Framsóknarflokksins, Jak
obi að vísu fyrr en Þor-
steini nú í vetur.
Þessi opinbera staðfest-
ing þeirra Þorsteins og
Jakobs kemur skýrlega
fram í yfirlýsingum, sem
Tíminn birtir frá þeim í
gær og blaðið segir að
„hnekki söguburði“ Mbl.
Það er öðru nær. Báðar
staðfesta að Mbl. hefur
haft á réttu að standa. .
Ljóst er, að Framsóknar-
foringjarnir hafa mikið á sig
lagt til þess að knýja Þor-
stein og Jakob til að gefa
þessar yfirlýsingar, en ekki
hefur betur til tekizt en svo,
að þær eru báðar staðfesting
á ummælum Mbl. og raunar
Ijóst að a.m.k. Þorsteinn hef-
ur orðað sín ummæli á þann
veg, að gióggt má sjá hversu
tregur hann hefur verið til
þess að gefa slíka yfirlýsingu
og hversu sárreiður hann er
flokksbræðrum sínum fyrir
meðferðina á sér.
Framhald á bls. 12
■þótt autt sé og snjólaust upp á
fjallabrúnir. Vorið er hart, mun
verra en í fyrra og heybirgðir
víða orðnar mjög litlar. Flest-
ir munu þó hafa hey út þenn-
an mánuð. Fé er hýst á nóttum
og gefið og þarf að gefa vel.
Sauðburður er hafinn fyrir
u.þ.b. viku og bera ærnar inni.
Er annríki mikið og eykur það
erfiði, að nokkuð margt er tví-
lembt. f dag er hér sólskin, en
napur norðanstormur.
„Eitthvert versta útlit sem ég
man eftir“.
Bæ, Höfðaströnd
Hér er í dag hríðarveður með
frosti og í morgun var allt grátt
niður í sjó. Sér ekki fram í dali
fyrir snjókomu og allt er bál-
hvítt. Sauðburður er allsstaðar
byrjaður og er fé allt I hús-
um. Er þetta eitthvert það vexsta
útlit, sem ég man eftir. Er víða
að verða heylaust, en óvíða er
hægt að fá hey. Það hefur pó
orðið mörgum til bjargar, að
Hólabúið var aflögufært og hef-
ur miðlað miklu heyi. En annars
er ekki annað að sjá en til vand
Framhald á bls. 31
Reykjanes-
kjördæmi
ÞEIR Sjálfstæðismenn, sem vilja
lána Sjálfstæðisflokknum bíla
eftir hádegi nk. sunnudag, hafi
samband við kosningaskrifstof-
urnar í kjördæminu í dag kL
2—4.
Framkvæmdastjórn
kosninganna.
Togari kyrrsettur
í Reykjavíkurhöfn
TOGARINN Dorinda FD 22 frá
Fleetwood kom inn í Reykjavík-
urhöfn kl. 4 í fyrradag. Var tog-
arinn með veikan mann, en enn-
fremur var einhver bilun í vél
skipsins. Þetta er sami togarinn
og Sif, flugvél landhelgisgæzl-
unnar, stóð að meintum ólögleg-
um veiðum á Eldeyjarbanka 24.
apríl sl., en þá stóð flugvélin
einnig brezka togarann Brand
GY 111 að ólöglegum veiðum.
Þar sem flugvélin gat ekki sinnt
báðum togurunum, slapp Dor-
inda á haf út, en Brandur var
færður til hafnar sem kunnugt
er.
Er DoTÍnda hafði lagzt að
bryggju í Reykjavík og yfirvöld
höfðu kynnt sér hvaða skip
þetta var, var togarinn kyrrsett-
ur hér í höfninni og löggæzlu-
menn settix um borð. En er nán-
Framhald á bls. 31