Morgunblaðið - 10.06.1967, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1967.
Tveir leikir í
1. deild í dag
- Þar sem barizt verður um forystu
/ mótinu eða „botnsætið"
KEPPNIN í 3. aldursflokki
drengjamótsins í Reykjanesum-
dæmi hélt áfram sl. fimmtudags
kvöld, og t>á leiknir tveir leik-
ir, báðir í Keflavík. Hafnarfjarð
arliðin FH og Haukar heimsóttu
Keflvíkinga og töpuðu Hafnfirð
ingar báðum leikjunum. Ung-
mennafélagið — eða UMFK —
sigraði FH með einu marki gegn
engu í jöfnum leik, þar sem
varnarleikmenn beggja liða
sýndu góðan leik.
f seinni leiknum, sem var
milli Knattspyrnufélags Kefla-
víkur og Hauka, sigruðu Kefl-
víkingar með 4—1.'
Vera má að 3. flokks keppn-
in verði til lykta leidd í dag er
Breiðablik og UMFTC mætast i
Kópavogi kl. 4.15. Viiini UMFK
leikinn hefur liðið tryggt sér
sigurinn í 3. flokki, en verði hins
vegar jafntefli, eða Breiðablik
vinni er möguleiki að tvö félög
verði jöfn með 8 stig hvort.
Hinn leikurinn í Kópavogi
verður milli Stjörnunnar úr
Garðahreppi og KFK.
í Hafnarfirði mætast FH og
Haukar, og hefja leik kl. 4.15.
Staðan í 3 flokki er nú þessi:
UMFK 4
Breiðablik 4
FH 4
KFK 4
Stjarnan 4
Haukar 4
Úrslitin í 4. flokki verða á
Hafnarfjarðarvelli, milli FH og
UMFK, kl. 8 n.k. þriðjudags-
kvöld. Tveir úrslitaleikir verða
í 4. og 5. flokki — þ.e. heima
og heiman.
Fyrir opnu marki fékk Einar tsfeld (t.h.) knöttinn sendann ntan af kantl í leik KR og Fram
í fyrrakvöld. Mark virtist óumflýjanlegt. En svo hrapallega tókst til a# knötturinn fór yfir.
Meira að segja Þorbergur Atlason í marki Fram virSist hræddur viS þrumuskotið. Vel mi
greina að Einar er miðja vegu milli markteigs og marklinu.
í DAG verður 1. deildarkeppn-
inni fram haldið og verða leikn-
ir tveir leikir á sama tíma eða
kl. 4 síðdegis, Annar verður í
Reykjavík en hinn á Akranesi.
í Reykjavík mætast á Laugar-
dalsvelli Valsmenn og Akureyr-
ingar. Má þar búast við harðti
baráttu, því hvert stig í deild-
inni er dýrmætt og kann að ráða
úrslitum. Valsmenn gætu með
sigri náð „óskabyrjun" ef þeir
hefðu 4 stig úr viðureign við
A'kureyri og Akranes í fyrstu
leikjunum. Akureyringar hafa
hins vegar tapað tveim leikjum
í mjög jafnri baráttu — upp-
skorið ekkert þrátt fyrir betri
byrjunarleiki en á undanforn-
Tveir ntarklausir
lundsleikir
- og loks 3-0 sigur
ENSKA landsliðið í knattspyrnu
(u'ndir 23 ára) lauk nýlega
keppnisför til Balkanskaga og
Tyrklands. Liðið gerði jafntetfli
gegn Grikklandi í Aþenu, 0—0,
en sigraði Tyrkland í Ankara
með þremur mörkum gegn engu.
Sammels (Arsenal), Coates
(Buriey) og Clarke (FuRiam)
skoruðu fyrir England. Vörn Eng
lendinganna þótti mjög góð þar
sem þeim tókst að halda marki
sín,u hreinu í 270 mánútna leik,
samanlagt. Enska liðið beitti
4—3—3 kerfinu sem er sama
kerfið og heimsmeistaraliðið
beitti sl. sumiar.
um árum. Slæm byrjun hefur
einkennt Akureyrarliðið, sem
síðan hefur verið erfiður keppi-
nautur öllum félögum er á líður.
Það er því mál til komið fyrir
Akureyringa að „komast á blað“
nú og þeir munu ekki gefa sinn
hlut.
Á Akranesi mætast „andlbýl-
ingarnir“ við innsta hluta Faxa-
flóa Keflvíkingar og Akurnesing-
ar. Síðast unnu Skagamenn 4—0
öllum á óvart og því hafa Kefl-
víkingar mikils að hefna og
Skagamenn mikið að verja. En
báðum kæmu stigin vel.
Núverandi stjórn HSf. Fremri röð f.v. Axel Sigurðsson, Ásbjöm Sigurjónsson form., en hann hef-
ur setið í stjóm sambandsins frá stofnun þess, og Jón Ásgeirsson. Aftari röð f.v. Rúnar Bjarna
son, Einar Th. Matthiesen, Valgeir Ársælsson og Axel Einarsson.
HSÍ 10 ára:
„Getum horft björtum
augum til framtíðarinnar
— með stóran og glæsilegan hóp ungra manna
og kvenna undir okkar merkjum
Á MORGUN era 10 ár liðin
frá stofnun Handknattleikssam-
bands íslands. Minnist samband
ið þeirra tímamóta í dag með
þvi að hafa opið hús í Átthaga-
sal Hótel sögu kl. 3-5. Stjórn sam
bandsins ræddi við blaðamenn
og gaf eftirfarandi yfirlit um
Bikaramir sem sitrákamir keppa um. Kópavogur geíur bikar í
3. dl, Keflavik í 4 fl og Hafnar fjörður í 5. flokki.
Baráttan um
bikarana í dag
starfsemi sambandsins:
Þann 11. júní árið 1057, var
handknattleikur orðinn svo um-
svifamikil íþróttagrein hér á
landi, að fyllilega þótti tímabært
að stofna um hann sérsamband,
Handknattleikssamband fslands.
Við höldum nú upp á 10 ára af
mæli þessara þróttmiklu sam-
taka, sem lánazt hefur að vinna
íþrótt sinni sess meðal sterkustu
handknattleiksþjóða heims.
Talið er, að handknattleikur
hafi borizt til landsins órið 1921,
en að opinberir kappleikir hafi
fyrst komið til á árunum milli
1925 og 1930. Fyrsta fslandsmót-
ið var haldið innanhúss, í íþrótta
húsi Jóns Þorsteinssonar, árið
1940. Utanhúss var svo keppt ár-
ið eftir í kvennaflokki, 29. jan-
úar 1942 var Handknattleiksráð
Reykjavíkur stofnað og þar með
var grundvöllurinn lagður að
verulegum uppgangi handknatt-
leiksins.
Stærri vellir.
Árið 1945 þótti handknattleiks-
fólki sem það hefði himininn
höndum tekið, er Hálogalands-
húsið fékkst til afnota eftir banda
ríska herinn, svo mikil voru við
ibrigðin frá hinum þrönga sal
Jóns Þorsteinssonar. Og 20 árum
síðar endurtekur sama sagan sig,
hinu langþráða marki er náð; að
leika á velli af löglegri stærð,
er hin langþráða og glæsilega
Laugardalshöll kemur til sögunn
ar. Og þá fyrst skapazt aðstaða
til milliríkj akeppni við löglegar
aðstæður. En rétt er að geta þess,
að fyrsti landsleikur innanhúss
háður á íslandi fór fram í íþrótta
húsi varnarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli, sem af velvilja og skiln
ingi rétti handknattleiksmönnum
hjálparhönd. Fyrsti landsleikur
íslands var leikinn gegn Svíþjóð
í Lundi, árið 1950 og sigruðu
Svíar 15:7, en fyrsti landsleikur
íslands á heimavelli fór fram á
Melavellinum í Reykjavík árið
1060 og mættum við þar Finnunv.
Fórum við þar vel af stað, en
leiknum lauk með jafntefli, 3:3.
f dag eru landsleikir karla orðnir
40 talsins og hafa margir þeirraí
orðið til þess að bera hróður ís-
lands og okkar fþróttar víða um
heim. Má þar m.a. nefna sigur.
yfir Rúmenum 1958 (13:11), jafa
tefli við Tékka 1961 (16:15), sig
ur yfir Svíum 1964 (12:10), ea
þessar þjóðir hafa allar hlotið
Heimsmeistaratitil undanfarin
áratug.
Og ekki hefur kvenfólkið látið
'tt eftir liggja og er öllum íþrótta
unnendum í fersku minni
sigur Íslands á Norðurlanda-
meistaramótinu 1964, sem haldið
var á Laugardalsvellinum 1
Reykja\ ik.
★ Unglingastarf
Handknattleikssambandið hef-
ur ávallt lagt mikla áherzlu á
öflugt starf fyrir unglinga, en
með því er lagður grundivöllur-
inn að æ sterkari landsliðum
þeirra eldri. Árið 1962 sendum
við í fyrsta sinn lið pilta til
keppni á Unglingameistaramót
Norðurlanda, og hefur svo verið
Framlhald á bls. 19.