Morgunblaðið - 25.06.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚNl 1967.
11
Skógar (Skaugum), sveitasetur konungsættarinnar. Þar fæddist Haraldur ríkisarfi fyrir rúm-
um 30 árum.
irnar, sem hann hafði hug á i
öllum tómstundum frá lexí-
unum í skólanum. Og hann
varð góður íiþróttamaður, eink-
um á skíðum og í siglingum,
svo sem faðir hans var og er.
Ólafur krónprins vann „gullið"
fyrir kappsiglingar á Olym-
píuleilkjunum í Amsterdam
1928, en Haraldi tókst ekki að
gera það sama í Tokyo 1964.
Eigi að síður heldur hann trútt
við siglingaíþróttina — hvað
íþrótt snertir á hún hann hálf-
an. En hinn helmingurinn af
tómstundaiðjunni er helgaður
ýmsu — fyrst og frernst þó
veiðiskap í ám. Hann hafði
framan af mest gaman af lax-
veiði, en smám saman fannst
honum silungsveiði vera öllu
skemmtilegri. í Lærdalsá í
Sogni, sem er eína verulega
góða laxá í sunnanverðum Nor-
egi (vegna þess að partar úr
henni hafa verið í eign sömu
fjölskyldunnar, mann fram af
manni i nokkrar aldir), er Har
aldur ríkisarfi einn slyngasti
veiðimaðurinn sem þangað kem
ur, hvort heldur er á lax eða
silung.
Þó að Haraldur ríkisarfi hafi
nú í nær tíu ár verið stað-
gengill föður síns í ríkisráði, er
saga hans sem ríkisstjóra ekki
byrjuð enn — og byrjar ekki
fyrr en Ólafur konungur er all-
ur. En starfssaga hans er löngu
byrjuð. Og hún hefiur einkum
beinst að því, að búa æsku-
lýð Noregs betri daga en áður
voru, og sjá til þess, að vel sé
búið að unglingum, sem fyrir
vanmeta sakir hafa dregizt aft-
urúr, svo að úr þeim geti orðið
nýtir menn. Þegar hann varð
þrítugur, fyrir fjórum mánuð-
um, hafði verið gerð lands-
söfnun til ágóða fyrir „sumar-
vistir'* barna, sem þætti hafa
sérstaka þörf fyrir að breyta
um loftslag og þroskast. Þessi
,afmælisgjöf“ varð stórfé, sem
innan skamms breytist í
„Þroskaheimili“ fyrir börn og
unglinga.
Lesandinn vill helzt vita,
ásamt öðru, hvernig „maður-
inn líti út“ — ríkisarfinn, sem
ætlar að skoða Reykjaivík,
Þingvöll og marga aðra staði
— en umfram allt Reykholt —
í ágúst í sumar? Ég vil ekki
taka það að mér, að gefa jafn
glögga lýsingu á útliti hans,
vaxtarlagi og andlitsdráttum,
sem sagnaritarinn Snorri gaf
af Haraldi hárfagra: .„hann var
allra manna mestur og sterk-
astur og fríðastur sýnum, vit-
ur maður og skörungur mikill".
Haraldur ríkisarfi er friður
sýnum, hár vexti, djarfmannleg
ur i framgöngu, ræðumaður
góður, hnyttinn í tilsvörum og
oft gamansámur á líkan hátt og
Hákon afi hans varð frægur
fyrir á sinni tíð.
En að eðlisfari mun hann
vera hlédrægur og sízt fyrir
það gefinn að láta taka eftir
«ér. Að svo stöddu vill hann
helzt vera sonur föður síns og
semja háttu sína á sama hátt
og aðrir uragir menn kjósa.
Hann veit um skyldur þær,
sem sökum ætternis hvíla á
honum í nútíð og framtíð, en
hann er um leið bam sinnar
tíðar og sú hugsun mun ríkust
í honum, að geta orðið hvort-
tveggja í senn: góður og þjóð-
legur Norðmaður — og vin-
sæll og þjóðlegur arftaki föður
síns og afa.
Morgunblaðið bað mig um
að koma þeim spurningum á
framfæri við Harald ríkisarfa
hvort hann hlakkaði til íslands
ferðarinnar í sumar, og hvers-
vegna. Sivar hans var á þessa
leið:
Hann hlakkar til fslands-
ferðarinnar, margra hluta
vegna, en kannske fyrst og
fremst vegna hins nána sam-
bands beggja þjóðanna, hinna
sögulegu tengsla og hinna
gildu þráða sem kynslóð eftir
kynslóð hafa haldið við teragsl-
unum milli frændþjóðanna.
Haraldur ríkisarfi vonar, að
heimsókn hans í ágúst verði til
þess að styrkja þau tengsli.
En viðvíkjandi spuming-
unni um, hvað mest aðdráttar-
afl fslands sé á ríkisarfann,
svarar hann hiklaust:
— Heimskringla — Noregs-
konungasögur Snorra Sturlu-
sonar, og svo í viðbót sú merki-
lega lífspeki, sem hægt er að
læra af Hávamálum.
Skúli Skúlason.
Vanur eftirlits-
maður
með þekkingu á jarðvinnu og steypuvinnu óskast
strax til starfa. Enskukunnátta nauðsynleg. Skrif-
legar umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist í pósthólf 244 Hafnarfirði.
ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ.
LÓUBÚÐ
Fallegar ítalskar kvenpeysur, ítalskir
undirkjólar, verð kr. 180. — Dömubuxur,
þykkar og þunnar. — Regnkápur á telpur
og drengi kr. 120. — Hnepptar drengja-
blússur, drengjahattar, terylenebuxur á
drengi. — Regnbuxur í úrvali. — Sund-
bolir, sólföt og stuttbuxur. — Kringlóttir
kafidúkar.
LÓUBIJÐ
Starmýri 2.
TIL LEIGU
Til leigu er 80 — 90 fermetra húsnæði,
4 herbergi (eldhúslaust) og bað. Húsnæðið
er á 4. hæð skrifstofuhúss við Hverfisgötu
og Snorrabraut. Tvö herbergjanna eru
stærst og þau má auðveldlega sameina.
Húsnæðið leigist helzt sem skrifstofuhús-
næði, iðnaðarhúsnæði (léttur iðnaður),
læknishúsnæði eða þ.u.l. — Mánaðar-
greiðslur — Einnig kemur til greina að
leigja húsnæðið sem íbúðarhúsnæði. Til-
boð berist blaðinu fyrir 3. júlí merkt:
„Leiguhúsnæði“.
Nýkomið
HANZKAR — TÖSKUR — VESKI.
BEjóðfærahús Reykjavílan*
HAFNARSTRÆTI 1.
Aletrun
á flest alla málmhluti t. d. vindlinga-
kveikjara, vindlingaveski, skálar,
bakka, verðlaunabikara, penna, borð-
búnað og gull og silfurskartgripi.
Biðjið um sýnishorn.
Afgreitt innan 24 klst.
Ódýr og vönduð vinna.
Sendi í póstkröfu.
inni^i i—n=ui___m
HÚSBYGGJENDUR
nýtt trá DEXTER!
Útihurðaskrár
H urðabankarar
Bréfalúgur
B jöllubnappar
Allt með „ANTIK“ áferð og
setur skemmtilegan svip á
útihurðina.
DEXTER kúluhúnaskrár
fyrir innihurðir einnig
komnar í úrvali.
Einkaumboð:
Laugavegi 15
Sími 1-33-33.
r 1
r L ludvig STORR i
L ^^ Á
Nýkomnir afar stöðugir 12 og 12 feta
súðbirtir plastbátar.
Ennfremur 13 feta opnir hraðbátar.
Kynnið yður hagstætt verð og greiðslm
skilmála.
skilmála.
Þ. Þorgrímsson & Co.
Suðurlandsbraut 6 — Sími 38640.