Morgunblaðið - 03.10.1967, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKT. 1987
Verður norskt síldar-
flutningaskip fengið til
flutninga á síld til
söltunar á Siglufirði?
FÉLAG um kaup á síldarflutn-
ingaskipi á Siglufirði vinnur nú
að því að fá leigt hingað til
lands norska síldarflutningaskip-
ið Kloster til tilraunar við flutn-
ing á síld til söltunar. Er gert
ráð fyrir því að skipið komi
hingað bráðlega, takist samning-
ar.
Kloster er með einfalt þilfar
u.þ.b. 200 fet að lengd og 975
nettótonn áð stærð. Það er smíð-
að í Hollandi árið 1960. Um borð
í því eru mjög fullkomin tæki
til að ísa fersksíld úti á regin-
hafi. Hefur skipið verið í til-
raunum með þessa aðferð í sum-
ar.
Aðferðin sem notuð er við ís-
inguna á sildinni er í stuttu máli
þessi. Skipið nær í síldina beint
á miðum. Það leggst upp að síld-
arnótum vei'ðiskipanna, ef svo
má að orði komast, en dælir síð
an síldinni um borð í 400 hl.
geymi, sem er í miðju skipinu.
Afköst dælunnar eru 660 rúm-
metrar á hverja klukkustund við
5C0 sn/mín. Frá geyminum renn
ur síldin svo niður í róterandi
mál, þar sem hún er mæld í
skömmtum, er hæfa í hvern
kassa. Þaðan heldur hún áfram
ar þró, áfram í gegnum hreyfan-
legt rör niður- í gegnum töpp-
unarvél í lestinni, og þaðan rað-
ast hún í kassana, sem allir eru
á hjólum. Þarna er um að ræða
fjögur færibönd, sem eru sam-
anlagt 110 metrar að lengd og
fjórar töppunarvélar
ísinn kemur frá kæliklefum
fremst í lestinni. Hann er flutt-
ur upp á þilfarið í lyftu, en
þar tekur færibandið vi’ð og flyt
ur hann áleyðis til geymslu. Þar
er svo ísnum deilt á fjögur færi-
bönd, sem flytur hann áfram til
töppunarvélanna í lestinni — í
gegnum þróna og hið hreyfan-
lega rör. Til þess að afferming
geti gengið fljótar fyrir sig, er
köstunum staflað upp á uppskip-
unarpalla.
Sé um miög stór köst að ræða
hjá veiðiskipunum, getur Kloster
lagzt upp að nótinni eftir sem
áður og dælt úr henni meðan
veiðiskipið fyllir sig einnig.
Kloster á að geta athafnað sig
við allar sömu aðstæður og veiði
skipirt.
Norska síldartlutningaskipið Kloster.
Samþykkt aukafundar LÍÚ:
Stjórn LIU undirbúi
greinargerð og ályktun um
tengsl við EFTA og EBE
A AUKAFUNDI Landsam-
bands íslenzkra útvegsmanna,
sem haldinn var sl. föstudag
var samþykkt tiilaga frá
Jarðskjálftamælum
komið fyrir syðra
ÞEGAR Morgunblaðsmenn heim
sóttu vitavörðinn í Reykjanes-
vita sl. laugardagskvöld voru þar
fyrir þeir Þorbjörn Sigurgeirs-
son, prófessor, og Ragnar Stef-
ánsson, jarðskjálftafræðingur,
sem unnu að því að koma jarð-
skjálftamæli fyrir.
Þeir félagar völdu mælitæki
sínu stað uppi á lofti radíóvita-
húss vitavarðar, en það er mjög
rammbyggilega gert, járnbent í
hólf og gólf.
Þarna var komið fyrir jarð-
skjálftamæli þeim, sem áður var
í Surtsey. Hinar minnstu jarð-
hræringar koma fram á segul-
bandstæki, en við það eru
tengdar leiðslur með rafstraumi
frá mælum, sem þeir félagar
höfðu komið fyrir í allmikilli
fjarlægð. í gær komu þeir fyr-
ir fleiri jarðskjálftamælum úti
við, þannig að þeir mynda þrí-
hyrning.
Ragnar Stefánsson tjáði Morg
unblaðinu í gær, að síðustu jarð
skjálftakippirnir hefðu mælzt
aðfaranótt sunnudags. Hefðu
upptök þeirra verið 50—55 km
frá Reykjavík, eða úti fyrir
Reykjanesi.
stjórn LÍÚ um að sérstakri
samþykkt varðandi aðild Is-
lendinga að EFTA og tengsl
við EBE yrði vísað til stjórn-
ar samtakanna sem síðan ber
að undirbúa greinargerð og
ályktun um hugsanlega að-
ild eða samninga íslands við
Fríverzlunarbandalagið og
Efnahagsbandalag Evrópu og
afhenda hana ríkisstjórninni
enda verði hún samþykkt af
a.m.k. % stjórnarmanna. Jafn
f%. ______
Þeir Þorbjörn Sigurgeirsson (t.v.) og Ragnar Stefánsson
koma tækjum sínum fyrir uppi á lofti radíóvitahússins.
Ljósm. Ól. K. M.
SovétnjósnarSnn sem var nær orðinn
yfirmaður brezku leyniþiónustunnar
London, 2. okt. NTB.
Ó Brezku sunnudagshlöð-
in Observer og Sunday
Times birtu í gær einstæða
njósnasögu um sovézkan
njósnara, sem litlu mun-
aði, að yrði yfirmaður
brezku leyniþjónustunnar.
Hér er um að ræða Bret-
ann Kim Philby, sem árið
1963 flúði frá Beirut til
Moskvu, eftir að sovézkur
leyniþjónustumaður, er
hafði gefið sig fram við
vestræn yfirvöld, skýrði
þeim frá starfsemi hans.
Blöðin segja, að Philby
hafi farið að ráðum Sovét-
stjórnarinnar, þegar hann ár-
ið 1934, hóf að gera ráðstafan-
Kim Philby.
ir til þess að komast inn í
brezku Ieyniþjónustuna. Hon-
um tókst það árið 1941 og
þremur árum síðar var hann
einn helzti yfirmaður allrar
njósnastarfsemi Breta um
Sovétríkin. Segir Observer, að
Philby hafi verið mikilvæg-
asti njósnari, sem Sovétríkin
hafi nokkru sinni haft á Vest-
urlöndum. „Hann klifraði svo
hratt upp eftir metorðastigan-
um í brezku leyniþjónustunni
og leyndi svo vel hinni sönnu
starfsemi sinni, að um tíma
var talað um hann sem verð-
andi yfirmann leyniþjónust-
unnar“, segir Observer.
Brezka utanríkisráðuneytið
hefur ekkert viljað segja um
mál þetta, hvorki neitað né
játað, en talsmaður ráðuneyt-
isins sagði, að það væri venja,
þegar um slík mál væri að
ræða.
Elzti sonur Kims Philbys,
John Philby, sem er 24 ára,
kom nýlega til London frá
Moskvu, þar sem hann, að
eigin sögn, atfhenti föður sín-
um bréf frá Sunday Trmes.
Hann sagði hinsvegar í gær,
að hvorki hann né faðir hans
hefðu haft sarmvinnu við Sun-
day Times um frásögnina. >ó
birti blaðið myndir af Kim
Philby í Moskvu, sem það seg
ir, að John Philby hafi tekið.
Að því er Observer segir
má rekja þessa furðulegu
sögu til áranna upp úr 1930,
þegar Philby stundaði nám í
Cambridíge. Um þær mundir
voru margir brezkir háskóla-
Framhald á bls. 24
framt samþykkti fundurinn
að vísa til stjórnar samtak-
anna tveimur öðrum tillögum,
sem snertu þetta mál.
Hin upphaflega tillaga, sem
lögð var fyrir fundinn var svo-
hljóðandi:
„Með tilliti til þess að núver-
andi tollar í EFTA og EEC, 10—
30%, gera sölu sjávarafurða okk-
ar til landa í þessum bandalögum
mjög óhagstæða og frekari hækk
un virðist yfiorvofandi og toll-
arnir stappa nærri því a'ð hindra
viðskipti við löndin innan banda
laganna, þá telur fundurinn nauð
sýnlegt, að ísland gerist aðili að
EFTA og leiti eftir aukaaðild að
EEC, þar sem sérstaða Islands
sé viðurkennd og tryggð, ef
EFTA-löndin gerast almennt aðil
ar að því bandalagi".
Þórhallur Ásgeirsson ráðuneyt
isstjóri mætti á fundinu að
beiðni samtakanna, og skýrði
fundarmönnum nokku'ð frá þess-
um tveim bandalögum og svar-
aði fyrirspurnum.
Á stjórnarfundi í samtökunum,
sem haldinn var síðar þennan
sama dag, var ákveðið að breyta
ofangreindri ályktun, og leggja
hana fyrir fundinn þannig:
„Fundurinn samþykkir að vísa
8. lið í tillögum þeim, sem fyrir
fundinum liggja, til stjórnar LÍU.
og felur henni að undirbúa
greinargerð og ályktun um hugs
Fraimhald á bls. 31
Bílaárekstrar á
Vesturlandsvegi
HARÐUR árekstur varð á Vest-
urlandsvegi, skammt fyrir sunn-
an Þingvallaafleggjarann um
hálfsex á sunnudag. Volvobíll,
sem var á leið til Reykjavíkur
ók fram úr öðrum bíl, sem
sveigði inn á veginn í sömu mund
og neyddist ökumaður Volvosins
þá til að fara yfir á hægri
kantinn. Við það rakst hann á
bíl, sem kom á móti, og varð
áreksturinn allharður. Hvorug-
an ökumanninn sakaði, en stúlka
í Volvubílnum og fullorðinn
maður í hinum hlutu bæði höfuð
högg. Var maðurinn fluttur í
sjúkrahús. Báðir bílarnir
skemmdust töluvert.
Aðalfundur
Varðar á
Akureyri
AÐALFUNDUR Varðar, FUS, á
Akureyri, verður haldinn í Sjálf
stæðishúsinu uppi nk. föstudags
kvöld, 6. október, og hefst klukk-
an 20:30. Dagskrá: Venjuleg að-
alfundarstörf og umræður um
vetrarstarfið. Varðarfélagar eru
hvattir til að fjölmenna.