Morgunblaðið - 03.10.1967, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.10.1967, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKT. 1967 Útgefandi: Hf. Aryakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús jónsson. Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Jphannessen. Eyjólfur KonráS Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri: Bjöm Jóhannsson. Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson. Rifstjóm og afgreiðsla: Aðaistræti 6. Sími 10-100. Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið. Askriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands. REKSTRAR GR UND- VÖLLUR SJÁVAR- ÚTVEGSINS - k lyktun aukafundar Lands- -t*- sambands íslenzkra út- vegsmanna staðfestir það, sem raunar er á allra vitorði, að sjávarútvegurinn á við mikla erfiðleika að etja. LÍÚ staðfestir einnig, að kjarni vandamálsins er verðfall á sjávarafurðum og aflabrestur. Bolfiskafli bátaflotans síð- ustu vetrarvertíð minnkaði um 16% frá árinu áður, nam 175 þús. lestum en var 208 þús. lestir 1966. Verðfall á frystum fiskflökum nemur nú 15—20% frá meðalverði sl. árs. Aflabrestur hefur orðið á humarveiðum og dragnóta- veiðum og sérstök vandamál hafa skapazt í skreiðarsölu vegna borgarastyrjaldar Ní- geríu. Miðað við 16. sept. var verðmæti síldaraflans upp úr sjó 264,6 milljónir en 715,5 milljónir sl. ár og aflaverð- mæti á skip var 16. sept. sl. 1.740.000 kr. en var á sama tíma í fyrra 3.850.000 kr. Mið að við 23. sept er áætlað út- flutningsverðmæti síldaraf- urðanna 474 milljónir en var á sama tíma í fyrra 1464 milljónir og nemur lækkun- in um 990 milljónum. Verðfallið á lýsi er gífur- legt. Um mitt sl. ár var mark- aðsverð á því rúmlega 70 sterlingspund er nú talið 36 sterlingspund. Markaðs- verð á mjöli var um mitt sl. ár rúmlega 19 shillingar en er nú komið í rúmlega 14 shill inga. Þótt togaraútgerðin hafi gengið betur í ár að því er afla varðar stendur hún nú frammi fyrir lækkuðum toll kvóta á ísfiski á Þýzkalands- markaði og stórhækkuðum tollum og jafnvel hvalveið- arnar sjá nú fram á verulega erfiðleika vegna verðfalls á lýsi og mjöli og sölutregðu á sumum hvalafurðum. fslenzk stjórnarvöld fá ekki ráðið við þetta mikla verðfall á afurð- um okkar eða aflabrestinn, það er væntanlega öllum ljóst. Þessum erfiðleikum verður að taka og bregðast við þeim á raunsæjan hátt. fslenzkt efnahagslíf og af- koma landsmanna er enn bundin sjónum í svo ríkum mæli að slíkir erfiðleikar hljóta að snerta hvern einasta landsmann. Fólk verður að búa sig und ír að taka afleiðingum minnk andi afla og lækkandi verðs, það er óhjákvæmilegt. Um leið verður að treysta á skiln- ing almennings á þeim ráð- stöfunum, sem nauðsynlegt er að gera til þess að skapa sjávarútveginum á ný skap- legan rekstrargrundvöll. Sjáv arútvegur og fiskiðnaður er meginundirstaða lífsafkomu okkar og þegar slíka vá ber að höndum í þeirri atvinnu- grein hljóta allir landsmenn að taka þátt í að leysa þá erfiðleika. LÝÐRÆÐI í S- VIETNAM |Z osningarnar í Suður-Víet- nam voru tvímælalaust spor í rétta átt. Það virðist samdóma álit þeirra, sem með þeim fylgdust að þær hefðu farið svo heiðarlega fram sem frekast mátti búast við og enn hafa ekki komið fram sannfærandi upplýsingar um hið gagnstæða. Kosningarnar munu því styrkja þá meginröksemd Bandaríkjamanna fyrir þátt- töku í Víetnamstríðinu, að þeir séu þar til þess að berj- ast fyrir málstað lýðræðis og frelsis en óneitanlega veikti herforingjastjórnin mjög þá röksemd, eða eins og Robert Kennedy sagði í ræðu fyrir nokkru: „Skuldbindingar okk ar eru gagnvart fólkinu í Suð ur-Víetnam — ekki hershöfð- ingjunum í Saigon“. En á sama hátt og kosn- ingarnar og framkvæmd þeirra eru spor í rétta átt og styrkja málstað Bandaríkj- anna í Suður-Víetnam er handtaka helzta andstæðings herforingjanna í kosningun- um spor aftur á bak. Ekki verður séð að fram hafi kom- ið a.m.k. til þessa sannfær- andi rök fyrir þeim ákærum sem á Duz eru bornar. Þær kunna að sjá dagslins Ijós síð ar. Engum dettur í hug að lýð- ræði, eins og við þekkjum það á Vesturlöndum verið byggt upp á einum degi í Suð ur-Víetnam, en hins vegar á hershöfðingjunum, sem nú hafa verið kjörnir lögmætri kosningu þar í landi, ekki að líðast að setja pólitíska and- stæðinga sina í fangelsi nema óyggjandi rök liggi fyrir um sekt þeirra. Frá því var skýrt í fréttum inni Tijuna í Mexikó. Telp- sem lögð voru í sjúkrahús, fyrr í vikunni, að tugir barna uranr tvær á myndinni en lifðu eitrunina af. Mæður hefðu látizt af völdum mjólk- Maria Rodrigues og Ruth þeirra sitja við rúm þeirra. ureitrunar í landamæraborg- Morales voru meðal 50 barna, Gefur morgunstund guli í mund? Nýstárlegar rannsóknir á morgunhönum og nœturhröfnum MARGIR álíta sig bezt fyrir kallaða að morgni dags gagn- stætt öðrum, sem telja sig bezt fyrirkallaða að kvöld- lagi. Þetta keinur glögglega fram meðal skólanemenda. Þcir skipast i aðalatriðum í tvo hópa. Annar stritar viff lærdóminn að morgni og fyrri hluta dags, en hinn kýs fremur seinni hlutann um kvöldið. Nú hafa niðurstöður rann- sóknar á þessu sviði staðfest að trúin um morgun og kvöld menn hefur við nokkur rök að styðjast. Munurinn er tal- inn fólginn í tveimur ólikum persónuleikum hinum dula og innhverfa og hinum opna og úthverfa. Það var sá liður rannsókn- arinnar, sem beindist að vak- andi athygli, sem sýndi fram á, að hinir innhverfu náðu beztum árangri að morgni, en þeir úthverfu að kvöldi. Við athuganir sálkönnun- ardeildar læknisfræðistofn- unarinnar í Cambridge kom í ljós, að mismunur þessi er einnig í tengslum við dagleg- ar sveiflur líkamshitans. Líkamshiti mannsins er að öllu lægstiur snemma að morgni dags, en nær hámarki um klukkan 9 að kvöldi. En Cambridge athuganirnar leiddu einnig í ljós, að lík- amshiti hins innhverfa stígur fyrr en hins úthverfa, en fell- ur fyrr að kvöldi. Þegar líkamshitinn er lág- ur er hugur og líkami sljórri en ella. Aftur á móti eykst heilastarfsemin við aukinn hita. Þetta kann að vera ástæðan fyrir betri árangri hins innhverfa að morgni andstætt hinum úthverfa að kvöldi. Orsakirnar fyrir áður- nefndu sambandi persónu- leikans við líkamshitann eru ókunnar. En þessar mikil- vægu líffræðilegu sveiflur í líkamanum eru í vaxandi mæli viðfangsefni vísinda- legra rannsókna. Afleiðingarnar af hinum lága morgunhita eru margvís legar í daglega lífinu. Slysa- tíðni þeirra morgunsvæfu er mest árdegis. Þotuflugmönn- um lætur sízt að bregðast við óvæntri hættu og skurðlækn- ar hafa ekki náð hámarks- hæfni á þessum tíma dagsins. Nútíma iðnaðarþjóðfélag leiðir æ meir til vaktavinnu- fyrikomulags. Sumir aðlag- ast tiltölulega skjótt breyting um líkamsstarfseminnar, sem af vöktunum hlýzt. Þó er tal- ið, að það taki hinn aðlögun- arhæfasta mann fimm daga, að venjast þessum breyting- um. Flestir þarfnast tveggja vikna til slíkrar samhæfing- ar og sumir ná henni aldrei. Þetta gefur til kynna, að ef um næturvaktir er að ræða skyldu menn kappkosta að stunda þær a.m.k. um mán- aðartíma eða lengur svo að álagið á líkamann, sem orsak- ast af breytingunni jafnist sem mest. Slíkt er auðvitað hægara sagt en gert vegna trufiandi áhrif næturvinnu á allt félags og fjölskyldulíf. Samhliða þessu virðist ýmis legt benda til, að viss meðöl, röntgengeislar og uppskurðir verki mijafnlega á hinum ýmsu tímum sólarhringsins. Þessi breytileiki kann í fram- tíðinni að hafa áhrif á með- höndlun sjúklinga á spítöl- um. Ekki er öll líkamsstarfsem- in í gangi allan sólarhring- inn. Alkunna er að hkiti þess arar stafsemi fylgir hinum 29 daga tunglgangi. Ástæðan fyrir að kynhvötin t.d. virð ist háð tunglgangi er mjög á huldu. Síðustu rannsóknir bandarískra vísindamanna hafa enn aukið óvissuna með því að sýna fram á að fjórvg- un og fæðingar standa einnig í tengslum við tunglganginn. Dr. Walter Menaker í New York borg hefur nýlega not- fært sér tölvu ti' að rannsaka fæðingar 500 þúsund barna á árunum 1961—’63. í ljps kom að fæðingar voru tíðari á hálfsmánaðar tímabilinu í kringum fullt tungl en ella. Þar af leiðir að líkur á frjóvg un eru meiri kringum fullt tungl. Þó tunglskin hafi löngum verið orðað við rómantík og kynhvatir er vísindaleg skýr- ing fyrirbærisins ekki fyrir hendi. Niðurstöður fyrr- greindra rannsókna undir- strika að sveiflur í líkams- starfseminni eru snarari þátt- ur í daglegu lífi en margan grunar. VORUSKIPTA- JÖFNUÐURINN ITöruskiptajöfnuðurinn við * útlönd frá áramótum til ágústloka er óhagstæður um 1973,9 milljónir en var á sama tímabili í fyrra óhagstæður um 874,6 milljónir. Útflutn- ingstekjurnar eru á þessu tímabili um 830 milljónum minni en í fyrra en hins veg ar er innflutningurinn mjög svipaður, eða örlítið meiri í ár, þegar frá er dreginn inn- flutningur skipa, flugvéla og vegna Búrfellsvirkjunar í báð um tilvikum. Það er athyglisverð stað- reynd, að innflutningurinn helzt svipaður og verið hef- ur, þrátt fyrir stórminnkaðan útflutning og almenna erfið- leika í efnahags- og atvinnu- lífi sökum verðfalls og afla- brests. Þetta sýnir, að enn hef ur almenningur ekki að ráði takmarkað einkaneyzlu sína. Hitt er svo ljóst, að með tilliti til fyrirsjáanlegra og áframhaldandi erfiðleika á er- lendum mörkuðum er ekki hægt að búast við því að einkaneyzla haldist svo mik- il, sem verið hefur. Úr henni hlýtur að draga um sinn með an aflabrestur og óhagstæð verðlagsþróun varir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.