Morgunblaðið - 03.10.1967, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 03.10.1967, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. OKT. 1967 23 Svava Fells sextug „Af slíkuim konum vaxa lönd og þjóðir“. f DAG 3. okt. fyllir sjötta tuginn frú Svava Stefánsdóttir Fells Ingólfsstræti 22. Hún er kona Grétars Fells rit- hötfundar. Það stendur einhversstaðar, að „létt skuli lofa né róma, lasta né fella dóma“. En hví skulu ekki miklir ágætir mannkostir virtir og þakkaðir. Hvers er okkur meira vant í heimi átaka og þrauta? hún missti móður sína. En þar urðu örlagavöldin henni misk- unsöm, því móðirin lifði til hárr- ar elli, koinst á tíræðisaidur og dvaldi hjá henni til dauðadags. Hjá dóttirinni naut hún ástúðar og óþrotlegrar umhyggju. Milli tengdasonarins og gömlu kon- unnar bar aldrei skugga. Fögur elli getur verið yndisleg engu síður en æskan og svo var það í þessu tilfelli. Safi líkamans þornaði ofuriítið um leið og hárið fékk sinn silfurföla blæ. Óskertum vitsmunum hélt hún, fjaraði aðeins smásaman burt. Svava er mjög gáfuð kona, söngvin og fögur, að mér finnst. Slíkar konur hafa fundist meðal mannanna, á öllum öldum, gæddar „sumargleði og vetrar- þoli“ í ríkum mæli. í sál þeirra býr æskan þótt árin líði. ’ f allri framkomu Svövu er eitthvað, er minnir á hressandi og hreinan fjahablæ, angan í ætt við vor og gróanda, manni býður í grun, að þarna komi ekki vetur framar. Við skynjum yl frá göfugri sál, er aldrei muni bregðast, heldur alltaf reyna að skilja tildrög allra bresta og mistaka. Af lífi slíkra kvenna eflast Lönd og þjóðir". Heill þér sextugri. Vinkona. Svava er kennari að mennt og rækti það starf á unga aldri. Eflaust hefur hún stundað kennslu með fúsu og veitulu hjarta, sáð fræum vaxtar í ungar sálir. Eftir að hún giftist Grétari Feils hefur hún gefið sig heils- hugar að samstartfi við mann sinn og þeirra sameiginlegu hugð arefnum — en það er að vinna að framgangi guðspekistefnunn- ar og er það mikið lán fyrir það málefni að eiga slíkan starfs- mann. Er ánægjulegt að kynn- ast svo nánu og góðu samstarfi milli hjóna og mikil hamingja hlýtur að vera, þegar tveir, sem saroan eiga fá að sameina svo iífsorku sína, sér og öðrum til blessunar. Á heimilinu ríkir mikil gest- risni, alltaf er rúm fyrir alla er koma vilja, Við glóð þessa heimilis hafa margir vermt sig, hraktir af berangri lífsins og farið þaðan bjartari í augum. Margt er þar og spaklega mælt, er rætt er um lífið og tilveruna. Svavá virðist hafa tamið sér sér- stök innri blæbrigði, er varpa birtu og yl, yfir öll viðbrögð og framkomu hennar við aðra menn. Hún á víðtfeðma vöku- vitund og í eðli hennar býr óvanaleg farsæld, er ungum, sem öldnum drýpur blessun frá. Hún er ein af þeim konum, sem bætir, græðir og starfar, hvar sem hún fer. Þess má geta, sð Svava hefur um langt árabil gætt listasafns Einars Jónssonar að Hnitbjörg- um. Rækir hún það s.tarf af miklum innileik, því henni mun umhugað um, að fólk skynji og skilji þau miklu andlegu verð- mæti, sem þar er að finna og njóti um leið hinna fögru forma er þar birtast í steininum. Einn- ig aðstoðar hún aldna ekkju lista mannsins, eftir beztu föngum. Og er þetta ekki lítil viðbót við önn ur sbörf. Það er skemtilegt að horfa á Svövu vinna. Oft hefi ég staðið og horft á hana leysa margskon- ar verk af hendi og undrazt hversvegna það væri svo gaman að horfa á hana. En skyndilega skaut því up í hitgann, hver galdurinn er. Hún er eins og hún sé að leika sér, svo þjónustufús og veitul. Um veru hennar alla leika skærir töfrar. Svava er borin af stotfni bænda, frá Þeiamörk nyrðra. Ekki kann ég að rekja ættir hennar, en faðir hennar mun hafa látizt, áður en hún var í heiminn borin. Hún hefur látið þau orð falla, að af engu hafi sér staðið slíkur beygur í bernsku, sem því ef Við Laugarnesveg Til sölu eru 2ja og 3ja herb. íbúðir í húsi, sem verið er að byrja að reisa sunnarlega við Laugar- nesveg. Seljast tilbúnar undir tréverk og sameign úti og inni fullgerð. Teikning til sýnis á skrif- stofunni. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Múlflutningur. Fasteignasala. Suðurgötu 4. Sími 14314. Vélritunarstúlka Heildverzlun í Miðbænum óskar eftir vanri vél- ritunarstúlku. Sími 13863 kl. 10—12 og 1—5. Sendisveinn óskast V2 eða allan daginn. A CUUpUcUcli, Vesturgötu 29, sími 11916. r I Vesturbænum Til sölu er nýleg,, lítið niðurgrafin, 2ja herbergja kjallaraíbúð við Meistaravelli. Á allri íbúðinni eru stórir suðurgluggar. Vandaður frágangur á öllu úti og inni. Laus fljótlega. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Mólflutningur. Fasteignasala. Suðurgötu 4. Sími 14314. Mat svein vantar á 100 tonna togbát frá Keflavík strax. Upplýsingar í síma 1579. Verkamenn óskast strax. — Upplýsingar eftir kl. 7, HLAÐPRÝÐI H/F., sími 37757. Laust starf Starf ljósmóður í Neskaupstað er laust til umsókn- ar. Veitist frá 15. des. 1967. Umsóknarfrestur til 5. okt. 1967. Umsóknir sendist undirrituðum. Bæjarstjórinn í Neskaupstað. Hef opnað tannlæknastofu að Hverfisgötu 37, 2. hæð. Sími 10755. Viðtalstímar kl. 1—5. Geymið auglýsinguna. Hrafn G. Johnsen tannlæknir. Drengjaúlpur Nýkomnar loðfóðraðar úlpur með hettu. fallegar drengja- lausri Vönduð efni — fallegt snið. Teddýftníðin Laugavegi 31. ALLT A SAHflA STAÐ Campbell-snjólieðjur Hakkapeliitta- snjóhjólbarðar BIÍIÐ YÐIIR UIMDIR VETURIIMIM TÍUAIMLEGA SEIMDUM í PÓSTKRÖFU UM ALLT LAND EGILL VILHJÁLMSSOIN HF LAUGAVEGI 118 — SÍMI 22240.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.