Morgunblaðið - 03.10.1967, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJTJDAGUR 3. OKT. 1967
— Landspróf
Framhald af bls. 32
hefur verið í margra ára skóla
námi. Fyrst og fremst verða
börnin og ungiingarnir að
kunna undirstöðuna.
— Miðið þið kennslu ykkar
í hjálpardeildunum við ein-
hver ákveðin próf?
— Það er náttúrlega mikið
miðað við landspróf, en á
þessum námskeiðum verða
eigi að síður nemendur úr
fyrsta, öðrum og þriðja bekk
gagnfraeðaskólanna. Þeir sem
eru að byrja miða náttúrlega
flest að landprófi.
— Hver er ástæðan fyrir
margra ára vanrækslu í námi
Einar?
i — Um það efni væri hægt
Laugavegi 87
Sfcni 18066
UNGAR raftaekin
fást nú aftur
að halda heilu fyrirlestrana
eða skrifa heila Sam-
vinnu. Ég tel, að það sé við-
kvæmt mál, og tæplega hægt
að ræða það á þessum vett-
vangi. Orsakirnar eru auðvit-
að margar. Jafnvel hinir d.ug-
legustu nemendur geta slegið
slöku við um tíma, og lenda
í lægð. Það er mjög slæmt ef
ekki er hægt að hjálpa þess-
um börnum. Landsprófið
sjálft tel ég persónulega fjar-
stæðukennt í framkvæmd, —
á ég þar við hvernig lesið er
undir það og þær kröfur sem
eru gerða þar um námsefni.
— Er eitt'hvert eitt fag, sem
nemendur standa áberandi
verst að vígi í?
/ — ísienzka er fa.g, sem á-
kaflega margir gagnfræða-
skólanemendur standa höllum
fæti í. Á ég þar við íslenzika
málfræói og setningafræði, en
ég tel það algjöra fjar.stæðu
hvernig haldið er á málum
við kien.nslu þessara greina oig
va.l námsefnis í þeim.
— Hvernig er með kennslu-
bækur?
— Um það mætti margt
segja, en það horfir til stór-
vandræða hvað erfitt er að fá
enskar orðafoækur. Kem ur það
sér illa fyrir fleiri en skóla-
fdlk.
— Hversu mikil kennsla
verður í hjálpardeildunum?
— Þetta verður allt tíma-
kennsla. Tveir tímar í viku
fyrir hvern nemanda í
hverju fagi. Nemendurnir
velja sjálfir námsgreinarnar
Við höfum nú ráðið fimm
kennara til að annast þessa
kennslu.
— Er eitthvað um það að
nemendur æðri skóla sæki
málatíma hjá Málaskólanum
Mími?
— Það er ekki svo mikið
á meðan á námi þeirra stend
ur þar. Hins vegar er mjög
mikið um það að stúdentar
komi hér til málanáms, og
læri þá að tala málin.
— Hvað verða margir nem
endur hjá ykkur í vetur?
— Það er ekki hægt að
segja endanlega um það enn-
þá, en ég gæti trúað að þeir
yrðu um 800, eða svipað og
verið hefur undanfarna vet-
ur.
— Dahlsgárd
Framhard af bls. 1
ræn málefni, en Ivar Nord-
gárd efnahagsmálaráðherra
myndi einnig fara með mark-
aðsmál.
Tyge Dahlgárd, sem ekki
tók þátt í blaðamannafundin-
um, kom af stað dieilum í síð-
ustu viku, er hann á stúdenta-
fundi í Kaupmannahöfn sagði,
að grundvallarmarkmfð
daniskrar utanríkismálastefniu
væri að fara að í samræmi
við þau atvik, sem máli skiptu
fyrír efnahagslega hagsmuni
laðdsins, og að dönsk utanrík-
isstefna hefði verið mótuð um
of af hugsjónum og róman-
tík.
1 athugasemdum, sem Dahl-
gárd hefur látið frá sér fara
varðandi yfirlýsingu forsætis-
ráðherrans, segir hinn fyrr-
nefndi.
— Ég hef rætt við forsæt-
isráðherrann um þau ummæli,
sem ég viðhafði í algjörlega
óformlegum viðræðum vi’ð stú
denta um utanríkismálastefnu
okkar. í því sambandi hef ég
staðfest, að ég er sammála
þeim sjónarmiðum, sem liggja
til gjundvallar danskri utan-
ríkismálastefnu. Samt sem áð
ur hef ég talið það geta farið
saman við starf mitt sem ráð-
herra í ríkisstjórninni að geta
rætt frjálsmannlega við ungt
skólafólk um helztu vanda-
mál hverju sinni. Þetta er
gert, án þess að nakikur vand-
ræði stafi af, í öðrum lýðræ'ð-
islegum ríkjum. Forsætisráð.-
herrann er þeirrar skoðunar,
að ég sem meðlimur ríkis-
stjórnarinnai hafi ekk: þetta
frelsi, jafnvel frammi fyrir
stúdentum í setustofu á stú-
dentagarði. Hann óskar því
þess, að ég fari fná. — Fyr-
ir mig er slíkt hlutur, sem
aldrei hefur heyrzt eiga sér
stað í lýðræðislandi. Ég mun
á næstunni gera grein fyrir
þxi opinberlega, hvað hefur
leitt til þessa.rar undiairleg.u nið
urstöðu. Það mun varpa ljósi
á aðferðir og vinnuskilyrði í
dönskum stjórnmálum. Þann-
ig lýkur yfirlýsingu Dahlgárd.
1 yfirlýsingu K^ags forsæt-
isráðherra, sem getið var hfr
í upphafrj sagði hann enn
fremur, að hann harmaði að
þurfa að stíga þetta skref, og
að hanr. hefði reyndar óskað
sé’- bess að finria laus á þessu
máli, sem ekki væri jafn á-
hrifamikil, en hann kvaðst
haí'a álitið, að ekki hefði ver-
ið unnt að finna aðra leið til
þess að leiða skýrt í ljós
danska utanríkismáiastefnu og
stefnu á sviði utanríkisvið-
skipta. Þess vegna hefði Dahl-
gárd orðið að víkja. Ein rík-
isstjórn gæti nú emu sinni að
eins haft eina iitcnríkismála-
stefnu, sagði Krag.
Það var á lokuðum fundi
með ungum stúdentum í síð-
ustu viku, sem hinn 46 ára
gamli T> ge Dahlgárd mælti
me'ð meira raunsæi og minna
af barnarlegum hugsjórum í
danskri utanríkismálastefnu.
Hélt hann því fram, að danskt
atvinrulíf, utanvíkisverziun og
utanríkismálastefna yrði að
táxa tillit hvað til annars.
Hagsmunir Danmerkur væru
í Evrópu, ekki í Suður-Víet-
nam, Suður Afríku eða Grikk
landi
Nokkrum dögum éður hafði
Dahlgárd sagt svipað á iðn-
sýningu á Jótlandi. Ýms ié-
lög urgra sósíaldemókrata
kröfðust þess, að honum yrði
vikið frá, þegar yfirlýsingar
hans komust á almanna vit-
orð. Krag var um þetta layti
í Bandaríkjunum, þar sem
JAMES BOND - * - - * - - - - - - * - IAN FLEMING
I BOND'S FRIEND, TUE SECRET
SERV/CE AGENT, NAD NEARD I
1 OF GOLDFINGER AND J
ENTREPRISES AURIC A.G. . . . I
jainca uuiiu
BY IAN FLEMING
DRAWING BY JOHN McLUSKY
THEY MAKE METAL ’
FURKIITURE - FOR TUE
RAILWAYS AND .
s. AIRUNES...
r KNIOIV 1
anything i
ABOUT
TUEM? WHAT
THEY DO...?
^LIKE MECCA.THE v
BIG CHARTER LINE
TO INDIA. IT'S PART
OWNED BY J
L AURICS, I m
ÍK believe. ../T:
INDIA-? THAT'9
MIS BEST MARKET
FOR SMUGGLED .
GOLD... Jí
WfAWF and ue
brings it
, UEREIN THAT
:AR ' IT ISN’T a silver ghost
kT all, its a golden ghost
ALL Ywo TONS OF IT /
Vinur Bonds, leyniþjónustumaðurinn,
hafði heyrt ýmislegt um Goldfinger og
fyrirtækið Auric A.G.
— Veiztu nokkuð, hvað þetta fyrirtæki
hefur fyrir stafni?
— Það framleiðir húsgögn úr málmi —
fyrir járnbrautir og flugvélar.
— Eins og t.d. Mecca, sem flýgur til
Indlands. Ég held, að fyrirtækið eigi eitt-
hvað í því flugfélagi.
— Til Indlands? Þar er hezti markað-
urinn fyrir smyglað gull.
— Og hann flytur það hingað í bílnum
sínum. Bifreiðin er engin silfurdós —
heldur gullstykki — öll bifreiðin er hreint
gull!
hann sat Allsherjarþing Sam-
einu'ðu þjóðanna og ræddi m.
a. styrjöldina í Víetnam.
Varðandi framtíð Dahlgard
sagði Krag á olaðc.mannafund
inum að hinn fyrrverandi ráð
herra gæti aftur tekið upp
stirf í utanríkisráðuneytinu.
— Njósnarinn
Framhald af bls. 2
stúdentar úr efri stéttum
brezka þjóðfélagsins mjög
orðnir gagnrýnir á þau gildi
og sjónarmið er eldri kynslóð
ir stétta þeirra mátu mest.
Philby hóf að stanfa með
vinstri sinnuðum stúdent'um
og þegar hann dvaldist í
Austurríki árið 1934, þá 22
ára að aldri, og sá hverni'g
uppreisn sósíaldemókratískra
verkamanna var bæld niður,
gerðist hann harður kommún
isti.
Þegar heim kom til Eng-
lands, notaði hann sér sín
gömlu stéttasambönd til þess
að komast í brezku leyniþjón-
ustuna. Hann hækkaði 'hratt í
metorðum og árið 1949 var
han-n sendiur til Washington
sem yfirmaður brezku leyni-
þjónustunnar þar. í því starfi
hafði 'hann samvinnu við
æðstu embættismenn banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIAl,
leynilögreglunnaor, FBI og
annarra mikilvægra banda-
rískra stofnana -— og allar
mikilvægustu upplýsingar
fóru um hans hendur.
Árið 1951 munaði minnstu,
að upp kæmist um Philby,
þegar brezku sendimennirnir
Guy Burgess og Donald Mac-
Lean flýðu til Sovétríkjanna.
Það var Fhil’by, sem lét Mac-
Le-an vita að brezku yfirvöld-
in hefðu í hyggju að yfir-
heyra han.
Víð þann mikla úlfaþyt,
sem mál þetta vakti í Bret-
landi, féll Philby í ónáð og
varð að segja af sér starfi
sínu hjá leyniþjónustunni. —
En ekki var hann af baki
dottinn — fimm árum síðar
fékk ha-nn starf sitt á ný, eft-
ir að þáverandi utanríkisráð-
herra, Harold Mac-Mill'an,
hafði ihreinsað hann af öllum
grun fyrir Neðri málstofu
brezka þingsins. Árið 1956 fór
Philby til Beirut, opinfoerlega
var sagt, að hann hefði farið
sem blaðamaður fyrir Observ-
er — en blaðið upplýsir nú að
aðalstarf hans hafi verið fyrir
brezku leyniþjónustuna.
Ævintýrinu lauk svo árið
1963, er háttsettur starfsmað-
ur sovézku leyniþjónustunnar
flúði til Vesturlanda og sagði
Bretum sannleikann um Phil-
by. Hann brá skjótt við, er
hann frétti, 'hvað gerzt hefði
og flúði til Moskvu. Þar hef-
ur hann síðan starfað í stóru
bókaforlagi og lifað kyrrlátu
og rólegu lífi, kominn inn úr
kuldanum.
TOYOTA CROWN 2300
Japanska Bifreiðasalan, Ármúla 7
Glæsilegur og vandaður 6 manna bíll. —
Traustasti bíllinn á markaðnum. — Byggð-
ur á sjálfstæðri ferstrendri X-laga stál-
grind. — 6 cylindra 115 ha. vél með yfir-
liggjandi knastás og 7 höfuðlegum. Fáan-
legur með sjálfskiptingu.
Hagstætt verð.
Innifalið í verði m.a.; Riðstraumsrafall (Alternator),
hvítir hjólbarðar, Toyota ryðvörn, þykk teppi,
tveggja hraða rúðusprautur, rafmagnsrúðusprauta,
þriggja hraða miðstöð með kerfi fyrir fram- og aft-
ursæti, tvöföld aðalljós, mælaborðshilla, loftræsti-
kerfi, bakkljós, tvöfaldur þéttikantur á hurðum,
verkfærataska o.fl.
Tryggið yður Toyota
Sími 34470 og 82940.