Morgunblaðið - 29.10.1967, Blaðsíða 2
4
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. OKT. 1987
t
*
Landsvirkjun tekur
spildu á Hólmsheiði
Stjórn Fjöliðjunnar hf. Frá vinstri: Eyjólfur Bjarnason, Sigurbjörn ólafsson, frú Hrefna Ingvars-
dóttir, frú Sigurlaug M. Jónsdóttir og Ingvar S. Ingvarsson. (Mynd: Ól. K. M.).
Fjöliðjan hf. opnar nýja
verksmiðju á Hellu
Á FUNDI borgarráðs sl. þriðju-
dag var samþykkt að gera leigu
samning við Landsvirkjun um
landsspildu í Hólmsheiði, 164965
ferm. að flatarmáli, til fimmtiu
ára. Ársleiga fyrir 1968 er ein
króna á fermetrann.
Jón G. Tómasson, borgarritari,
sagði Mbl. í gær, að fyíst um
Heimsljós
í einu bindi
KOMIN ER frá Helgafelli þriðja
Laxnessbókin á stuttum tíma.
Fyrst íslendingaspjall, „hið
harkalega ádeilurit en um leið
óður til íslands og hinnar miklu
þjóðar íslendingasagna". Þá kom
út í síðasta mánuði fyrsta stór-
skáldverk Halldórs, sagan Undir
Helgahnúk, sem hann skrifaði á
Klausturárum sínum af svo mikl
um eldmóði. Og loks kom i dag
það verk skáldsins, sem sumir
telja mest og aflaði honum Nó-
belsverðlaunanna öðrum fremur
Heimsljós. Kemur nú ailt verkið,
sem áður kom út í fjórum bind-
um, í aðeins einu stóru bindi.
Eskifjörður, 26. okt.
MESTA söltun á Eskifirði á
þessu ári var í gær og fram eftir
nóttu. Saltaðar voru samtals
3614 tunnur. Síldin er talsvert
blönduð. Hefð: verið unnt að
salta 200 til 300 tunnum meira,
en sýslumaður skrapp til
Reykjavíkur í síðustu viku, en
hann kom heim seint í nótt.
Nokkrar mæður komust því
ekki út í söitun í gær, þar eð
enginn var til þess að gæta
barna þeirra.
Eftirtalin síidarpiön söltuðu
sem hér segir: Auðbjörg 1100
tunnur, Bára 1000, Askja 430,
Eyri, 603, Sigfús Baldvinsson
s.f. 481. Það er ánægjulegt að
sjá hvað heimilisfólk á Eskifirði
er duglegt við að bjarga gjald-
SIÐSKIPTAHÁTÍÐ verður hald
in í Skálholti I tilefni af 450
ára afmæli siðbótar. Hátíða-
höldin hefjast með samkomu í
Skálholtskirkju næstkomandi
þriðjudagskvöld 31. október, kl.
9.15. Þá verður hátíðamessa í
Skálholtskirkju sunnudaginn 5.
nóvember klukkan 14.
Áformað er að síðar í nóv-
ember verði svo tvær til þrjár
samkomur í kirkjunni. Samkom
an á þrðijudagskvöld hefst með
sinn ætlaði Landsvirkjun að nota
svæði þetta til geymslu. Síðar
meir væru fyrirhugaðar þarna
byggingar og ef til vill yrði
svæðið nýtt á annan hátt og því
væri leigan aðeins ákveðin eitt
ár í senn. Leigutími verður
fimmtíu ár frá 1. janúar 1968
að telja.
Iðnnemar þinga
25. ÞING Iðnnema samband ís-
lands var sett á föstudagskvöld
í félagsheimili múrara, að Freyju
götu 27. Mættir voru til þings
um 60 iðnnemar víðsvegar af
landinu.
Ingi Torfason, varaformaður
I.N.S.Í. setti þingið í forföllum
formanns. Síðan fluttu ávörp,
Snorri Jónsson frá A.S.Í. og Or-
lygur Geirsson frá Æ.S.Í. Því
næst voru kosnir starfsmenn
þingsins. Ingi Torfason var kos-
inn þingforseti og Ólafur Þor-
steinsson og Örlygur Sigurðsson
varaforsetar. Ritarar þingsins
voru kosnir Kristinn Karlsson og
Sigurður Jóakimsson. Þá voru
kosnar nefndir þingsins. Þing-
fundi var framhaldið í félags-
heimili læknafélagsins Domus
Madica síðdegis í gær.
Kópavogur
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kópa-
vogs heldur almennan fund í
Sjálfstæðishúsinu við Borgar-
holtsbraut n. k .fimmtudag, 2.
nóv. kl. 20,30.
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra kemur á fundinn og ræðir
um „Viðhorf í efnahagsmálum”.
Að lokinni ræðu fjármálaráð-
herra verða almennar umræður,
og síðan mun ráðherra svara fyr
irspumum, sem fram kunna að
koma. Sjálfstæðisfólk í Kópavogl
hvatt til þess að fjölmenna á
fundinn og taka með sér gesti.
eyri þjóðarinr.ar með því að
salta síldina. Fólk sem er í
fastri vinnu á daginn fer strax
í síldarsöltun og það er búið
í sinni vinnu. En mest er ég
hissa á búðarstúlkum og síma-
stúlkum, sem söltuðu í alla nótt
frá hálf sex í gærkvöldi til sjö
í morgun og mér finnst þær
aldrei hafa verið duglegri við
afgreiðsluna en einmitt í dag.
þess má geta að 16 aðkomu-
stúlkur eru hér á Eskifirði við
síldarsöltun. — Regina.
Þess má geta að 16 aðkomu-
ur áður skýrt lesendum Mbl. frá
því að sýslumaður og skólastjór
inn á Eskifirði aðstoða konur
í þorpinu með því að gæta
barna þeirra meðan þær vinna
við söltun.
klukknahringingu og lúðra-
blæstri. Þá mun Skálholtskór-
inn syngja en aðaierindi kvölds-
ins flytur séra Eirikur J. Ei-
ríksson, þjóðgarðsvörður á Þing
völlum. Á samkomunum sem
síðar verða haldnar munu fleiri
kunnir menn flytja erindi varð
andi siðaskiptin, m.a. Róbert A.
Ottósson, er fjallar um tónlist
frá siðaskiptatímunum. Söfnuð-
ir og sóknarprestur Skálholts-
kirkju.
EFTIR rúmlega eina viku hefur
starfsemi á Hellu á Rangárvöll-
um verksmiðja, sem framleiðir
einangrunargler og öryggisgler.
Þessi verksmiðja er nokkurs
konar útibú frá Fjöliðjunni hf. á
ísafirði. Á fundi með frétta-
mönnum í gær, sagði Ingvar S.
Ingvarsson, einn af stjórnendum
verksmiðjunnar, að hluthafar
hennar teldu það æskilega þró-
un, að iðnaðurinn dreifðist um
landið, og væri ekki allur í þétt-
býlinu. Nauðsynlegt væri að
gera atvinnuvegi sem fjölbreytt-
asta í dreifbýlinu.
Hann sagði, að Hella væri og
mjög hagkvæmur staður fyrir
verksmiðjuna, hún hefði fengið
þar góða aðstöðu, það væri til-
tölulega þéttbýlt svæði, það
væri stutt á aðalmarkaðinn í
Reykjavík, og samgöngur væru
ekkert vandamál. Þar fyrir utan
þyrfti atvinnufyrirtæki að eiga
kost á góðum og stöðugum
vinnukrafti, og það fengist á
Hellu. Með tilstyrk kaupfélags-
ins Þór, hefði fengizt ágætis hús-
næði og önnur aðstaða. Það er
aðeins einn hluti starfseminnar
sem byrjar í næstu viku, það er
framleiðsla einangrunarglersins.
KVENNADEILD Reykjavíkur-
deildar Rauða kross íslands
opnar í dag fyrstu verzlun sína,
sem ætluð er til hagræðis fyr
ir sjúklinga á sjúkrahúsum.
Þessi smávöruverzlun er í and
dyri Landakotsspítalans, og
verður hún opin ki. 13 til 15
á eftirmiðdögum og kl. 18,30
til 19,30 á kvöldin. í verzlun
þeasari verða til sölu ýmsir
nauðsynjahlutir fyrir sjúklinga
og þá, sem heimsækja þá, auk
tóbaks og sælgætis.
Eins og kunnugt er var
Kvennadeild Rauða krossins
stofnuð fyrir tæpu ári
þar sem konur innan vébanda
Reykjavíkurdeildar RKÍ. töldu
það tímabært verkefni að taka
að ér ýmiss hjálpar- og þjón-
ustustörf við sjúklinga og gam
alt fólk, sem ekki hefur verið
hægt að sinna fram að þessu.
Hefur kvennadeildin hafið und
irbúning að slíkri starfsemi,
— aðstoð við sjúklinga í heima
húsum og á sjúkrahúsum, aukn
Framleiðsla öryggisglersins hefst
svo síðar, en það er nýr liður í
iðnaði hérlendis. Öryggisglerin
verða framleidd m.a. fyrir bif-
reiðar, til innréttina, í verzlana-
glugga o.s.frv., og að því er
Ingvar segir á verðmunurinn að
geta verið töluverður.
Aðspurður um samkeppni,
sagði hann, að Fjöliðjan hf. hefði
verið stofnuð árið 1961, og væri
ekki fyrirtæki, sem hefur vaxið
í skjóli hafta og tollmúra, held-
ur í frjálsri samkeppni við er-
lend fyrirtæki, og uppgangur
hennar ætti að nægja til að
svara þessari spurningu. Útlit
væri nú fyrir að umsetning
verksmiðjunnar yrði tíföld á
við það sem hún var fyrsta árið.
Hvað verðlag snertir sagði Ing-
var, að óhætt væri að fullyrða
að innlendur iðnaður á þessu
sviði hefði sparað ótaldar millj-
jónir króna, og að um árabil
hefði Fjöliðjan hf. verið með
lægstu tilboðin í útboðum hjá
Innkaupastofnun ríkisins. Fyrir
6-7 árurn hefði kostnaður við
gler verið um 3% af byggingar-
kostnaðinum, en væri nú ekki
nema 1% eða svo. Sá hluti fram-
leiðslunnar, sem fer til Reykja-
ingu og endurbót á sjúkrarúm
um og öðrum sjúkragögnum,
sem lánuð eru -endurgjalds
laust í heimahús og aðstoð við
eldra fólk.
Rauði krossinn hefur fengið
l'eyfi til að starfrækja smávöru
verzlanir á Landakotsspítala
og í Landsspítalanum, og mun
kvennadeildin reka þessar
verzlanir með sjálfboðaliða-
starfi. Þá hefur kvennadeildin
tekið að sér umsjá bókasafns
Landsspitalans, og hefUT hug
á því að koma upp bókaþjón-
utu fyrir sjúklinga á öðrum
sjúkrahúsum.
Hagnaði af smávöruverzlun
Rauða krossins verður algjör-
lega varið til verbefna á sviðá
hjúkrunar- og líknarmála. í
stjórn deildarinnar eru: Frú
SigríðuT Thoroddsen, form.,
Frú Geirþrúður Hildur Bern-
höft varaform., Frú Katrín
Hjaltested, ritari, og Frk. Halla
Bergs. gj aldkeri. Formaður
verzlunarnefndar er frú Sigríð
ur Helgadóttir.
víkur og nágrennis, fellur nú í
hlut verksmiðjunnar á Hellu, en
verksmiðjan á ísafirði mun
hinsvegar sjá Norður- og Austur-
landi fyrir því gleri, sem þang-
að þarf. Verksmiðjurnar verða
reknar sem tvö fyrirtæki, en
með aðalskrifstofu í Reykjavík.
í stjórn verksmiðjunnar á Hellu
eru: Frú Sigurlaug M. Jónsdótt-
ir, form., Ingvar S. Ingvarsson,
Eyjólfur Bjarnason, og til vara
Sigurbjörn Ólafsson og frú
Hrefna Ingvarsdóttir. Verk-
smiðjustjóri verður Þorgrímur
Guðnason. í stjórn Fjöliðjunnar
hf. á ísafirði eru frú Sigurlaug
M. Jónsdóttir, form., Páll Guð-
finnsson og Ingvar S. Ingvars-
son.
Bridge
AÐ lokinni fjórðu umferð í tví-
menningskeppni 6 efstu paranna
þannig:
1. Árni og Björn 1005 gt.
2. Stefán og Jón 946 —
3. Halldór og Helgi 928 —
4. Kristinn og Jóhann 916 —
5. Dagbjört og Kristín 907 —
6. Magnús og Ásmundur 896 —
(Frá Bridged. Breiðfirðingafél.).
AÐ undanförnu hefur staðið yf-
ir tvímenningskeppni hjá Bridge
félagi kvenna í Reykjavík og eft-
ir fjórar umferðir er staða efstu
para þannig:
1. Elín—Rósa 2211
2. Ásta—Guðrún 2147
3. Inga—Gunnþórunn 2140
4. Dagbjört—Kristín 2140
5. Eggrún—Sigurbjörg 2098
6. Steinunn—Þorgerður 2098
7. Sigrún—Sigrún 2085
8. Viktoría—Soffía 2039
9. Hugborg—Vigdís 2034
10. Kristín—Sigríður 2032
Úrslit í einmenningskeppni fé-
lagsins urðu þau, að sigurvegari
varð Anna Guðnadóttir með 1144
stig — meðalskor 990 stig. Alls
tóku 48 konur þátt í keppninni
og röð efstu varð þannig:
1. Anna Guðnadóttir 1144
2. Nanna Ágústsdóttir 1142
3. Sigríður Siggeirsdóttir 1131
4. Júlíana Isebarn mo
5. Alda Hansen 1077
6. Guðrún Jónsdóttir 1077
7. Hanna Jónsdóttir 1063
8. Kristín Þórðardóttir 1057
Mesta söltun á
Eskifirði á árinu
Siðskiptahátíð
í Skálholti
Smávöruverzlun fyrir
sjúklinga á Landakoti