Morgunblaðið - 15.11.1967, Side 1
32 SÍOUR
Sato í Washington
- til viðræðna við Johnson
Wa9hington, 14. nóv. — AP —
FORSÆTISRÁÐHERKA Jap
ans, Eisako Sato, kom til
Washington í gærkvöltli og
hitti Johnson Bandaríkjafor-
seta að máli í Hvíta húsinu
í morgun. Bauð Johnson for-
sætif ráðherrann velkominn
með ræðu, þar sem hann
sagði að brautir Bandaríkjji-
manna og Japans lægju sam-
i>n í Asíu og þessi lönd vissu
fullvel hvaða skyldum þau
ættu að gegna við þjóðir álf-
unnar. Hann sagði ennfrem-
ur, að markmið landanna
væri að stuðla að friði á ó-
friðarsvæðum SA-Asíu.
Tulið oð
Temple nói
ekki kjöri
Redwood City, 14. nóv.
AP.
STERKAR ilíkur benda til,
að stórmnálaferill kvikmynda. ,
stjörnunnar fyrrverandi Shir-
ley Temple Black verði ekki I
lengri að sinni, en kjósendur í
San Mateo sýslu, rétt suður af '
San Francisco, kusu í dag i
forkosningum til fulltrúaþimgs
ins og var Temple meðal fram
bjóðenda. Hafa kosningarnar
vakið heimsathygli vegna'
framboðs hennar. 1
Aðeins 60—65% af 221.961
kjósendum á skrá neyttu at-
kvæðisréttar síns og voru
fyrstu tölur ekki til þess falln-
ar að vekja bjartsýni Temple
og fylgismanna hennar. Taln-
ingu var hins vegar ekki lok-
ið, er blaðið fór í prentun i
nótt. Alls buðu niu manns1
sig fram til fulltrúaþingsins í
San Mateo; fjórir repúblikan-
ar, þar með talin Shirley
Temple, og fimm demókratar.
Kosningabaráttan mun hafa |
kostað hana um 9 mill. isl.
kr.
Grein um Temple ex á bls.
3 í dag.
í ræðu sinni sagði Sato, að
Johnson æt'ti hrós skilið fyrir
tilraunir hinnar ábyrgu stjórn-
ar hans til að koma á friði í
Asíu. Kom í ræðu hans fram
ekkert nýtt varðandi stefnu Jap-
ans til Vietnam-stríðsins. Kvaðst
Sato hlakka til viðræðna sinna
við Johnson um sameiginleg
hagsmunamál landanna.
Johnson minntist í ræðu sinni
ekkert á fyrirhugaðar viðræður
þeirra Satos um framtíð Okin-
awa og Bonin-eyjaklasans alls,
sem Bandaríkin hafa ráðið frá
lokum síðari heimsstyrjaldarinn
ar. Japansstjórn hefur hug á að
fá stjórnmálayfirráð yfir eyja-
klasanum, en krefst þess ekki,
að Bandaríkjamenn ieggi niður
herstöðvar sínar á eyjunum,
sem þjóna vörnum Japans og
Auistur-Asíu. Japanski forsætis-
ráðherrann hóf viðræður við
bandaríska ráðherra og ráða-
menn í Washington síðdegis í
dag.
: I
Við brottför Satos frá Tókíó á sunnudag, efndu vinstrisinnaðir stúdentar til óeirða við flug-
völlinn, til að mótmæla stefnu Japansstjórnar í Vietnam-deilunni. Myndin sýnir Iögreglu-
lögregluþjón vopnaðan kylfu á hælum eins stúdentsins, en annar liggur særður á götunni.
(AP-mynd).
FLÓTTAMAÐIJR í IMESKAUPSTAÐ;
„Þrái frelsi og öryggi - hvorugt
fyrir hendi í Austur-Þýzkalandi"
— segir 19 ára austur-þýzkur
sjómaður, sem leitaði hér hælis
Neskaupsstað, 14. nóvember,
frá fréttaritara Mbl. Asgeiri
Lárussyni.
NÍTJAN ára gamali austur-
þýzkur sjómaður leitaði til
bæjarfógetans í Neskaups-
stað á mánudagskvöld, og
baðst hælis sem pólitískur
flóttamaður. Kvaðst hann
ekki fara aftur um borð í skip
sitt nema hann yrði fluttur
með valdi. Skipstjórinn krafð
ist þess að fá hann framseld-
an, en var synjað, og verð-
ur pilturinn sendur með
fvrstu flugvél til Reykjavík-
ur, þar sem vestur-þýzki
ambassadorinn tekur á móti
honum.
Flóttamaðurinn, sem heitir
S-Arabía sjálfstæö 30 nóv.
- segir Georg Brown á fundi
IMeðri málstofunnar
Lundúnum, 14. nóv. — AP-NTB
GEORGE Brown, utanríkis-
ráðherra Stóra-Bretlands, til
kynnti á fundi í Neðri mál-
stofunni í dag, að S-Arabía
fengi fullt sjálfstæði og brezk
ir herflokkar yrðu kallaðir
heim frá landinu 30. nóvem-
ber nk. Aður var ætlunin að
kalla brezku hermennina
heim 22. nóvember. Brown
upplýsti ennfremur, að samn
ingaviðræður við s-arabísku
þjóðfrelsisfylkinguna mundu
hefjast í Genf innan viku
og yrði samið um ýmis at-
riði sem lúta að sjálfstæði
landsins. — Mun Shackleton
lávarður, sonur hins fræga
heimskautafara, annast samn
ingagerðina af hálfu Breta.
Brown sagði, að leiðtogar
þjóðfrelsishreyfmgarihnar hefðu
sent brezka utanríkisráðuneyt-
inu skeyti, þar sem þeix end-
urtóku fyrri kröfur sínar um að
fá að mynda ríkisstjórn og að
samningaviðræður hæfust inn-
an viku. Skýrði Brown frá því,
að ganga þyrfti frá mikilvæg-
um atriðum á samningaviðræð-
um í Genf, en ef þeim yrði ekki
lokið fyrir 30. nóv. væri ekk-
ert því til fyrirstöðu, að halda
þeim áfram eins og um sjálfstæð
ríki væri að ræða.
S-Arabía hefur verið vett-
vangur stjórnmáladeiina, upp-
þota og hermdarverka frá þeim
tíma, er stjórn McMillans mynd
aði þar sambandsríki 17 fursta
dæma. Þá hefur nýlendan Ad-
en verið vettvangur harðrar
valdabaráttu milli stríðandi
Framh. á bls. 2
Bernt Kapahnke, er af fiski-
skípinu National Front, sem
ásamt tveim öðrum þýzkum
skipum leitaði inn til Nes-
kaupstaðar vegna veðurs.
Skipverjar fengu landgöngu-
leyfi um kvöldið og leitaði
Bernt þá ásjár hjá yfirvöld-
um staðarins.
Fréttaritari Morgunblaðsins
ræddi við hann í dag með aðstoð
túlks, og kvaðst hann þá ekki
fara um borð í skip sitt aftur
nema hann yrði fluttur með
valdi.
„Ég á foreldra í Austur-Þýzka
landi og það er sárt að skilja
við þá“, segir þessi ge’ðugi ungi
piltur.
„En það er ekki um annað að
ræða fyrir mig, ég þrái frelsi
og öryggi, en eins og nú er hátt
að í Austur-Þýzkalandi er það
ekki fyrir hendi. Ég er óánægð-
ur með stjórnmálaástandið, sem
þar ríkir og bætist það við, að
vörur hafa hækkað í verði og af
koma fólksins versnar. Ég var
óhamingjusamur heima, þar var
alltaf þetta hræðilega öryggis-
leysi, ekkert nema boð og bönn,
og enginn veit hvað morgundag
urinn ber í skauti sínu. Sífelld
afskipti hins opinbera af öllum
hlutum hafa leikið mig grátt.
Þess vegna réði ég mig til sjós,
ég þóttist sjá þar möguleika til
að flýja, en að reyna að flýja
á landi er að verða ógerning-
ur. Ég þóttist vita, að við kæm-
um einhvern tíma í höfn í er-
lendu ríki, þar sem kommúnist-
ar réðu ekki ríkjum, og ég var
löngu búinn að ákveða þetta.
Þegar við svo leituðum hafnar
Framh. á bls. 2
Hvíta húsið:
Ræða tímabundna
stöðvun loftárása
Washington, 14. nóv. — AP —
BLAÐAFULLTRÚI Johnsons
forseta, George Christian, tjáði
fréttamönnum í dag, að líkur
séu til, að tímabundin stöðvun
loftárása á N-Vietnam verði
tekin til umræðu á fundi John-
sons og hernaðarsérfræðinga
hans. Christian kvaðst þó ekki
vilja of mikið úr málinu
og stöðvUn loftárásanna yrði
einungis eitt þeirra málefna,
sem rædd yrðu. Hann sagði, að
umræðurnar mundu mestmegn-
is snúast um næsta skref Banda
Framh. á bls. 2