Alþýðublaðið - 23.07.1920, Síða 1
Alþýðublaðið
Crefið út af Alþýðuflokknum.
1920
laœsasaga krónunur.
Eftir Ólaf Friðriksson.
(Frh.).
Þegar mismunurinn á inn- og
útflutningi verður svo mikill að
gjaldey.-íslækkun hlýst af, getur
orsökin verið (miðað við það sem
eðlilegt er fyrir landið), að of
niikið sé flutt inn, eða of lítið
flutt út, og þegar gerð er tilraun
til þess að bæta úr gjaldeyris-
verðfallinu, þá er vitanlega mjog
þýðingarmikið að athugað sé
hvort af þessu tvennu. sé orsökin,
ef ekki stendur þá svo á, að með
sanni megi segja að bæði hafi
verið flutt of mikið inn, og of
llítið út.
Sá sem fer að athuga hvers
-vegna danska krónan hafi fallið
verður brátt þess vísari að Danir
hafa ekki flutt minna verðmæti
-út úr Iandinu en við var að búast.
Aftur á móti hafa þeir flutt mikið
meira inn en eðlilegt er. Á stríðs-
árunum græddu margir menn ó-
grynni fjár, og eyddu síðan milj-
ónum króna í alls konar óþarfa,
4 sig, á sig og undir sig, svo sem
t. d. f kampavín, silkifatnað og
bifreiðar, og fóru tugir miljóna
króna út úr landinu fyrir þennan
varning.
Þýzka markið stóð mjög lágt í
fyrra, og er mælt að danskir auð-
menn hafi keypt 1500 miljónir
i von um gróða þegar markið
stigi. En í stað þess að stíga féll
;það ofan í sama sem ekki neitt.
Það sem þó öllu öðru fremur
olli falli danskrar krónu, var það,
að danskir heíidsalar keyptu
kynstrin öll í Ameríku og Eng-
landi af varningi sem þeir ætluðu
að græða á að selja Þjóðverjum
og íbúum hinna nýju rfkja við
Eystrasalt. En þegar til kom, höfðu
hvorki Þjóðverjar né hinar þjóð-
irnar peningaráð, svo að þær
.gætu keypt vörurnar, og dönsku
heildsalarnir sátu uppi með þær,
og sárt ennið.
Föstudaginn 23. júlí
166. tölubl.
Þannig varð óhóf og gróðafýsn
dönsku auðmannanna til þess að
lækka gengi dönsku krónunnar.
En hvað var / svo ráðið við
þessu ?.
Það var auðvitað að takmarka
innðutning, úr því búið var að
flytja of mikið verðmæti ian í
landið, og það var gert. Árang-
urinn af þeirri ráðstöfun kom brátt
í Ijós, krónan fór að stíga. Ea
áður en langt var umliðið urðu
stjórnarskifti í Ðanmörku; Radi-
kala-flokkurinn fór frá völdum,
en Vinstrimenn mynduðu stjórn.
En sú nýja stjórn nam úr gildi
aliar ráðstafanir til þess að hækka
gengi krónunnar, en síðar hefir
danska krónan hríðfallið.
Hvers vegna gerði hin nýja
stjórn þaðr Ja — því var barið
við að ráðstafanirnar mundu ekk-
ert gagn gera, en iegðu óþarfa
höft á viðskiftalífið, en orsökin
var hvorttveggja, það, að stór-
gróðamennirnir sem eru leiðandi
menn í Konservatíva-flokknum (en
við þann flokk styðst Vinstri-
mannastjórnin einnig) töldu sig
hafa óhag af ráðstöfununum, og
hitt að allur þorri danskra bænda
(en það eru þeir sem mynda
Vinstri fiokkinn) hafa fremur hag
af þvf að krónan standi Iágt, af
þvf þeir selja afurðir sínar til
Englands, og fá borgun í sterl-
ingspundum.
Slys.
Kolaprammi sekkur.
Menn bjargast.
í fyrradag var byrjað að afferma
kolaskip landsverzlunarinnar, sem
legið hefir undanfarið á ytri höfn-
inni og liggur enn. Kolin voru
látin f uppskipunarpramma og
dróg sfðan mótorbátur hann í
land. Gekk alt slysalaust þangað
til síðdegis í gær, er tók að
hvessa af norðri og var vindurinn
þá á hlið bátana, er þeir fórti
milli skips og lands.
Prammarnir eru þungir í vövum,
ekki sfzt hlaðnir, enda fór það
svo í síðustu ferðinni í gærkvöldi,
að taugin milli bátanna slitnaði
oftar enri einu sinni og varð ekki
að sök, fyr en komið var í hafnar-
mynnið. Var mótorbáturinn kom-
inn inn úr því, en prammina £
þann veginn að sleppa þegar
taugin slitnaði skyndilega, raksfc
pramminn á garðshornið, hailaðisfc
á hliðina af árekstrinum og sökk
á svipstundu.
Sex menn voru f prammanuin
og lentu þeir aliir f sjóinn. Mót-
orbáturinn snéri auðvita við £
skyndi og hélt á vettvang. Náð-
ust 3 mennirnir svo að segja strax,
en hinir náðust bráðlega. Var
einn þeirra allþjakaður, en þó
ekki hættuiega veikur.
Það er ekki dygð þeirra, er
sjá eiga um, að allar tilfærur víð
vinnu séu f lagi, að ekki hlaust
meira slys af þessn, en þetta.
Verður ekki betur séð, en að
tauginn milli bátanna hafi verið
of veik og er líklegt, að eftir-
leiðis verði vírstrengur notaður.
Einnig er ófyrirgefanlegt að hlaða
uppskipunarbáta svona.
Pramminn er að sögn úr járni
og voru í honum um xoo smát.
af kolum. Verður líklega erfitt að
ná honum upp, en burt verður
að koma honum af þeim stað, er
hann nú liggur á, því það er rétfc
við hafnarmynnið.
Porsfceinn Gíslason ritstjóri,
hafði f veizlu er haldin var á skip-
inu „Ægi" á höfninni í Sönder-
borg, lesið upp kvæði eftir sig til
Danmerkur og Suður-Jótlands.
Hafa dönsk blöð birt kæðið £
heild, eins og fréttastofa Ritzau
sendi það út.