Morgunblaðið - 01.12.1967, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 1. DES. 1967
V
í daig verða gefin saman í
hjónaiband af %éra Magnúsi Guð-
jónssjtni, Eyrarbakka, ungfrú
Gréta Jónsdóttir, símamær,
Björk, Sandvíkurlhreppi og Er-
lendur Danieilsson, framkvæmda
stjóri, Selfossi. Heimili þeirra
verður að Birkivöllum 30, Sel-
fossi.
Sunnudaginn 22. okt. voru gef-
in saman í Garðakirkju af séra
Braga Friðrikssyni ungfrú Bryndís
Guðmundsdóttir og Steinn Bald-
vinsson. Heimili þeirra verður
væntanlega í Hnífsdal.
(Ljósmyndastofa Þóris).
Hiinn 28. október s.l.' voru gef-
in saman í hjónaband í Langholts-
kirkju af séra Sigurði Hauki Guð-
jónssyni, frk. Dóra Gunnarsdóttir,
Landssímahúsinu, Þorlákshöfn og
hr. Gylfi Hjörleifsson, kennari,
Hólavegi 25, Siglufirði. Heimili
brúðhjónanna verður fyrst um
sinn í Landssímahúsinu, Þorláks-
höfn.
Laugardaginn 11. nóv. voru gef-
in saman í Dómkirkjunni af séra
Jóni Auðuns ungfrú Anna Ósvalds
dóttir og Þorgrimur Stefánsson.
(Ljósmyndast. Jón K. Sæmunds-
son, Tjarnargötu 10B).
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Erna Einarsdóttir, Ásveg
16 og Ragnar Hermannsson, Vest-
urgötu 69.
23. nóv. opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Halldóra Linda Ing-
ólfsdóttir, Álftamýri 21 og Halldór
Jónasson, Kleppsveg 60.
Spakmœli dagsins
Þolgæðið er beizkt, en ávextir
eru sætir. — Rousseau.
Þann 21. okt. sl. voru gefin sam-
an í hjónaband í Langholtskirkju
af séra Árelíusi Níelssyni ungfrú
Friðrikka Jónína Jónsdóttir sjúkra
liði frá ísafirði og Jose Soriano
Almasan frá Filippseyjum. Heim-
ili þeirra er að Vallatúni 2, Kefla-
vík. (Ljósm. Jón K. Særn.)
Þann 4. nóv. voru gefin saman í
hjónaband í Laugarneskirkju ung-
frú Edda Sigrún Gunnársdóttir,
flugfreyja og Þórður Sigurðsson,
kaupmaður. Heimili þeirra er að
Köldukinn 19, Hafnarfirði.
(Ljósm.: Studio Guðmundar).
Blöð og tímarit
Æskulýðsblaðið, málgagn Æsku-
lýðsfélags kirkjunnar í Hólastifti,
nóvemberblaðið, og er þetta 18.
árgangur þess. Æskulýðsblaðið hef
ur ekki komið út um nokkurt ára-
bil, og er ekki að efa, að margt
ungmennið gleðst yfir því að sjá
það aftur.
Ritstjóraskipti hafa orðið að rit-
inu. Af störfum lét séra Sigurður
Haukur Guðjónsson, sem nú er
prestur í Langholtssöfnuði, en við
tekur séra BoIIi Gústavsson, prest-
ur í Laufási við Eyjafjörð. Blaðið
er 28 síður að stærð, í allstóru
broti, prýtt fjölda mynda.
Af efni þess má nefna: Frá rit-
stjóra, spjall eftir séra Bolla
Gústavsson, Áfram að markinu,
eftir séra Pétur Sigurgeirsson, sem
nú er formaður ÆSK í Hólastifti,
séra Sigurður Guðmundsson á
Grenjaðarstað skrifar um Sólskins-
dag við Vestmannsvatn, Súrdeigið,
hugleiðing eftir Kristján Sigur-
bjarnarson, Biblían og þú, þáttur
I umsjá séra Xngþórs Indriðasonar,
Hjálpfús drengur, smásaga eftir
Önnu Maríu Halldórsdóttur frá
Dalvfk, Starfsfræðsla Æskulýðs-
blaðsins, séra Heimir Steinsson rit-
ar um guðfræðinám, Myndaopna
frá 20 ára starfi ÆFAK og einnig
samtal við Gunnlaug P. Kristins-
son, fyrsta formann ÆFAK. Erindi
eftir Jón Þorsteinsson frá Ólafs-
firði. Þá eru ýmsir smáþættir, og
sagt frá vettvangi starfsins. Einn-
ig sagt frá íþróttum. Árgangur
blaðsins, sem ætlunin er að komi
4 tbi. út af á ári, kostar 75 krón-
ur, en þetta hefti kostar 20 kr. Af-
greiðslumaður er Jón A. Jónsson,
Hafnarstræti 107, Akureyri.
Faxi,
blað Keflvíkinga, er kominn út.
Efni hans er meðal annars: Kven-
félagið Gefn í Garði hálfrar aldar,
Enskur miðill í heimsókn, Kenn-
arafélag Gagnfræðaskóla Keflavik-
ur eftir Gylfa Guðmundsson, Er
eldgos væntanlegt á Reykjanes-
skaga eftir H. Th. B., Úr flæðar-
máiinu, Umskiptingurinn (ljóð eft- '
ir Sigurgeir Þorvaldsson lögreglu-
þjón). — Einnig prýða blaðið
fjöldi mynda.
VÍSUKORM
Sumir eru fæddir flón,
fólskir sér til baga,
ganga upp í að gera tjón,
grafa undan og naga.
Þ. S.
Minningarspjölr1
Minningaspjöld
Óháða safnaðarins fást hjá
Andrési Andréssyni, Laugaveg 3,
Stefáni Árnasyni, Holtagötu 9,
Fanneyju Þórarinsdóttur, Lokastíg
10, Björgu Ólafsdóttur, Jaðri við
Sundlaugaveg, Ragnheiði Einars-
dóttur, Suðurlandsbraut 95E og
Guðbjörgu Pálsdóttur, Sogavegi
176.
Minningarspjöld
Heimilissjóðs Hjúkrunarkvenna-
félags íslands eru seld á eftirtöld-
um stöðum: Önnu Ó, Johnsen, Tún
götu 7, Bjarneyju Samúelsdóttur,
Eskihlíð 6A, Elínu Eggerz Stefáns
son, Herjólfsgötu 10, Hf., Guð-
rúnu L. Þorkelsdóttur, Skeiðar-
vogi 9, Maríu Hansen, Vífilsstöð-
um, Ragnhildi Jóhannsdóttur,
Hvítabandinu, Sigríði Bachmann,
Landsspítalanum, Sigríði Eiríks-
dóttur, Aragötu 2, Margréti Jóhann
esdóttur, Heilsuverndarstöðinni,
Maríu Finnsdóttur, Kleppsspítalan-
um.
FRÉTTIR
Húsmæðraféiag Reykjavíkur.
Jólafundur á Hótel Sögu mið-
vikudaginn 6. des. kl. 8. Jólaspjall.
Tvísöngur. Sýnt verður jólamat-
borð og gefnar leiðbeiningar og
uppskriftir. Tízkusýning, happ-
drætti. Aðgöngumiðar afhentir að
Hallveigarstöðum mánud. 4. des.
kl. 3—5. Vinsamlegast sýnið skír-
teinin og greiðir félagsgjöldin.
Aðventukaffi.
Hin árlega kaffi sala kristniboðs
félags karla er eins og að undan-
förnu sunnudaginn 3. des., sem er
fyrsti sunnudagur í Aðventu.
Sjálfstæðiskvennafél. Sókn,
Keflavík, heldur bazar sunnud.
3. des. kl. 4 í Sjálfstæðishúsinu í
Keflavík. Margt ágætra muna.
Allur ágóði rennur til góðgerðar-
starfsemi fyrir jólin.
Bolvíkingar.
Spilað verður í Lindarbæ uppi,
sunnudaginn 3. des. kl. 3.
Þeir, sem ætla að koma
auglýsingum í Morgunblaðið á
sunnudag eru vinsamlega beðnir
að hafa samband við auglýsinga-
skrifstofuna sem allra fyrst.
Morgunblaðið.
GENGISSKRÁNIN6
Nr. 87 - 27. nívember 1967.
SkrÍB trÁÉining Kaup Sala
27/11 '67 1 Bandar. dollar 56,93 57,07
- - 1 Sterllngspund 137,75 138,09
• - 1 Kanadadollar 52,77 52,91
- - 100 Danskar I(r6nur 761,86 763,72
- - 100 Norskar krónur 796,92 798,98
• - 100 Sænskar krónur 1.100,15 1 .102,85
. - 100 Flnnsk mörk 1.362,78 1.366,12
• - 100 Tranaklr frankarl.161,81 r.164,65
- - 100 Belg. frankar 114,72 115,00
- • 100 Svlsan. frankar 1.319,271.322,51
• - 100 Ojrlllnl 1.583,60 1 .587,48
• - 100 Tékkn. krónur 790,70 792,64
- - 100 V-þýnk »Örk 1.431,30 1 .434,80
• - 100 Lírur 9,15 9,17
- - 100 Austurr. ech. 220,23 220,77
• - 100 Peaetar 81,33 81,52
- • 100 RelknIngakrónur- Vörusklptalönd 99,86 100,14
' - 1 Relknlngapund- VöruBklptalönd 136,63 138,97
L A.D Y
JESQUIRE
5HÓLITUR - 33 LJTJ^
LEÐURVÖRUR H/F.,
6/örið gamla sfcó sem nýja, Akureyri — Sími 12794.
með Lady Esquire skólit
Til sölu - Skoda - gamla verðið
Höfum til sölu tvær notaðar Skodabifreiðar, Skoda
Octavia 1960 og Skoda Octavia 1964, er við bjóð-
um á sama verði og fyrir gengisfellingu.
Hagstætt verð — hagstæð kjör — bifreiðar ný-
skoðaðar — lán vaxtalaus.
Bezt að kaupa SKODA hjá SKODA.
Tékkneska Bifreiðaumboðið h.f.
Vonarstræti 12 — Sími 19345.
EIMAMGRUMARGLER
BOUSSOIS
INSULATING GLASS
er heimsþekkt fyrir gæði.
Verð mjög hagstætt.
Stuttur afgreiðslutími.
10 ÁRA ÁBYRGÐ.
Leitið tilboða.
Fyrirliggjandi
RÚÐUGLER
2-4-5-6 mm.
Einkaumboð:
HANNES
ÞORSTEINSSON,
heildverzlun,
Sími 2-44-55.
★
Ullarmusseline
mörg mynstur.
★
FLAUEL
m. a. hvítt, svart, brúnt og blátt.
★
DONBROS
peysur — peysusett
IUARKAÐURIMM
HAFNARSTRÆTI 11.
Nýjar sendingar:
ULLARSLÁR (CAPES)
full sídd — margir litir.
★
SAMKV ÆMISKJÓLAR
stuttir — síðir.
MARKAÐURIMM
LAUGAVEGI 89.
i