Morgunblaðið - 01.12.1967, Page 12

Morgunblaðið - 01.12.1967, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DES. 1967 f Skipulag framrœslu verði komið í betra horf: Á tuttugu árum hafa verið grafnir 15 milljónir lengdar- metrar af framræsluskurðum STEINÞÓR Gestsson mælti í gær fyrir frumvarpi um breyt- ingu á jarðræktarlögunum, sem landbúnaðarnefnd efri-deildar flytur. Sagffi Steinþór að frum- varpið væri samið af Vélanefnd ríkisins og flutt að ósk hennar. i Steinþór sagði sfðan m. a. í * ræðu sinni: Hinn 1. júní s.l. höfðu skurðgröfur Vélasjóðs verið að verki í 25 ár. Þann dag árið 1942 hóf fyrsta skurðgrafa vinnu í Garðaflóa við Akranes, og litlu síðar, eða hinn 25. júní 1942 var hafin vinna með ann- arri gröfu í Staðarbyggðarmýr- um í Eyjafirði. ■I Á þessum árum hafa veri'ð grafnir rúmlega 15 miilj. lengd- armetrar af framræsluskurðum, eða um 62,5 millj. rúmmetra. Með gröfum Vélasjóðs hafa verið grafnir tæplega 38 millj. rúmmetra, eða um 60% alls þess sem grafið hefur verið. En allt fram til ársins 1961 er hlutur ■ Vélasjóðs um 70% af heildar- framkvæmdunum. Hin síðari ár í hefur þetta hlutfall snúist við ; og það svo, að árið 1965 er hlut- f ur Vélasjóðs ekki nema 33,5% ; af öllum skurðgreftri og ári'ð | 1966 enn minni, eða um 26%. 1 Þessi breyting á sér þær or- f sakir fyrst og fremst, að all- 1 margir gröfueigendu í landinu hafa snúið sér að því að grafa framræsluskurði. Hafa þeir þá tekið að sér framkvæmdir hjá einstökum b ændum, en alla Jafnan hliðrað sér hjá að taka að sér óhagstæð verkefni, svo að einstakar jarðir og bygg’ðar- lög hafa orðið útundan og Véla- •jóður því mátt sinna þeim Íverkefnum og þá oft með æm- ttm kostnaði við tilflutning tækja | og vegna þess að oft er þarna * nm verra land að ræða, svo að afköst verða lítil og verki því éhagstætt, sé það unnið eitt sér. Af þessu öllu leiðir, að rekstur Vélasjóðs hefur orðið mjög elæmur og það svo að á árinu 1965 varð halli á rekstri sjóðs- ins rúmlega 2 miljónir króna. Þrátt fyrir þennan halla á 1] rekstri Vélasjóðs, mætti segja, að hann gæti veri'ð réttlætan- | legur og ríkið þyrfti ekki að | meta hann til útgjaldaaukningar, i þar sem taxtar sjóðsins eru | lagðir til grundvallar þegar jarð f ræktarframlag ríkisins á fram- j ræslu er ákveðið, en það er | eins og fyrr segir 70% af kostn- * aðinum og því mikils vert að * halda þeim vöxtum sem lægst- um. M Þetta verður þó ekki talin eðli leg leið að því marki, heldur er hallast að því, að halda kostn- | aði við skurðgröftinn sem lægst- um með því að skipulegja framfærsluframkvæmdirnar bet- ; tir en enn hefur verið gert, með áaetlanagerð fyrir 5 ára tímabil 1 einu, sem þó væri endurskoð- uð árlega, og á grundvelli þeirra áætlana væru verkin boðin út. ‘ i Með þessum vinnubrögðum má tetla að náist að mun hagstæð- ari árangur í heíld, án þess að þrengdur sé hagur þeira, er að framkvæmdunum standa. Þeir eem annast skurðgröftinn munu t fá samfelldari verkefni, minni | tími færi í tilflutning tækja' og I I upphafi hvers vinnutímabils í begi það ljósar fyrir en áður, hversu verkefnið væri stórt. Bóndinn ætti og að hafa meiri tryggingu fyrir því að verkin væru unnin á fyrirfram ákvörð- uðum tíma, og er það til mik- illa bóta og þæginda fyrir hann og heimili hans. Þá mundi þessi tilhögun verða til þess, að hægt væri með meiri nákvæmni en áður hefur verið fært, að áætla hversu stór hlut- ur ríkisins verður á næsta ári í krónum talinn. Þá rakti Steinþór nokkrar aðrar breytingar er frumvarpið gerði ráð fyrir og sagði þá m.a.: í lok a-liðs 1. geinar frum- varpsins er nýmæli, sem ég tel rétt að staldra aðeins við, en þar segir svo: „Á ræktunarsvæðum, þar sem kostnaður við skurð- gröft, vegna óhagstæðrar að- stöðiu, er meira en 25% hærra en meðalkostnaður á landinu, — en telst þó nauðsynleg fram- kvæmd, er landbúnaðarráðherra heimilt, eftir tillögu Búnáðar- félags íslands, að hækka ríkis- framlagið svo, að hlutur bónd- ans verði eigi hærri en meðal- kostnaður.“ Ákvæði þetta miðar beint að því, að gera þeim bændum kleift að bæta bújarðir sínar, sem þannig eru settir að kostnaðar- samt er að koma þangað þung- um vinnuvélum, en þó því a'ðeins yrði þetta framkvæmt, að sér- fróðir menn teldu framræslu nauðsynlega á þeim stað. í gild- andi jarðræktarlögum er gert ráð fyrir, að koma á fót jöfn- unarsjóði. Tekjur sjóðsins eru áætlaðar um 700 þús. kr. á þessu ári, en sýnt þykir að þær hrökkvi ekki til að jafna hall- ann, þar sem erfiðast er fýTÍr fæti, svo sem víða er um Vest- firði og á nokkrum svæðum öðrum. Tekjur jöfnunarsjóðsins er vart hægt að auka, nema heimila að jöfnunarsj óðsgj aldið megi ganga inn í heildarkostn- aðinn, en það mundi vega á móti höfuðsjónarmiði þeirra, sem frumvarpið hafa samið, en það er að lækka heildarkostnað við þessar tilteknu framkvæmdir. En á hitt ber að líta og þess að gæta, að skáka ekki úr leik, þeim bújöi'ðum, sem eiga góða möguleika og þurfa að haldast í byggð, og vera bakhjarl nær- liggjanndi bygðarlaga. Þetta dæmi er þekkt víða um land og má með engu móti missa sjónar á því atriði. I lok ræðu sinnar dró Stein- þór fram meginatriði frumvarps- ins, sem -hann sagði vera: 1. að koma á betra skipulagi á framræsluframkvæmdir um land allt með áætlanagerð og út- boðum. 2. að minnka útgjöld ríkis- sjóðs, án þess að ganga á hlut bænda. 3. að fá Vélasjóði ríkisins sam- keppnisaðstöðu til jafns við aðra skurðgröfueigendur með því að gera bindandi útboðssamninga. 4. að tryggja hag ræktunar- og búnaðarsambanda. 5. að jafna aðstöðu bænda við framræsluframkvæmdir og 6. að lækka kostnað ríkis- sjóðs vegna ræsagerðar. Fiskimálaráö móti heildarstefnuna - í uppbyggingu sjávarútvegs- og markaðsmála Á FUNDI neðri-deildar i gær mælti Matthías Bjarnason fyrir frumvarpi um stofnun Fiskimála ráðs, en meðflutningsmenn hans að frumvarpinu eru Pétur Sig- urðsson, Birgir Finnson, Bene- dikt Gröndal og Sverrir Júlíus- son. I upphafi ræðu sinnar í gær gat Matthías þess, að á Alþingi í fyrra hefði verið flutt frum- varp, nær samhljóða þessu frum varpi, en það hefði ekki hlotið afgreiðslu þá, og væri því end- urflutt nú. Frumvarpið miðar að því að komið verði á Fiskiimálaróði, sem skuli vera ráðgefandi um rnótun heiManstefnu í uppbygg- ingu sjávarútvegsins og mark- aðsmála, og skal það bedta sér fyrir góðri samvinnu allra að- ila, sem hlut eiga að míáli, með gagnasöfnun, umræðufundum, skýrslugerð,- útgáfu og fræðslu- starfsemi og öðrum róðum, sem Miklegust væru talin til þess hverju sinni, að tilganginum að stofniun ráðsins verði náð. Matthías sagði í ræðu sinni, að margir álitu, að þegar væru fyrir hendi nógu margar nefnd- ir og ráð er störfuðu að mál- efnum sjávarútvegsins, en algjör lega skorti á, að þessi samtök væru sameinuð í eina heM, sem gæti stöðugt fylgst með gangi mála og lagt fyrir raunhæfar og samræmdar tiUögur. Þeir aðilar sem lagt er til að eigi sæti í Fisktmálaráði eru eftirtaMir: Landssamband út- vegsmanna, Félag ísL botn- vörpuskipaeigenda, Sjómanna- samband ísiands, Farmanna- og fiiskimannasambands íslands, Al- þýðusamband íslands, Félag fiskiðnfræðinga, Söiumiðstöð hraðfrystihúsanna, Sjávaraf- urðaidteild Sambands ísL sam- vinnufélaga, Sölusamband ísl. fiskframleiðenda, Síldarútvegs- nefnd, Félag ísl. fiskimjölsfram leiðenda, Seðlabanki ísalnds, Fiskiveiðasjóðui- íslands, Fiski- málasjóður, Efnahagsstofnunin og Fiskiféiag fslands. Þé á sjáv- arútvegsmálaráðherra að eiga sæti í ráðinu og skal hann vera fonmaður þess. Matthías sagði, að meginhlut- verk Fiiskimátaráðs ætti að vera þríþætt: í fyrsta lagi það að gera álykanir og áætlanir um uppbyggingu fiskiskipastólsins, í öðru lagi ætti það að gera ályktanÍT um uppbyggingu fisk- vinnslu- og fiskiðnaðarfyrir- tækja og í þriðja lagi skyldi það hafa forgöngu um markaðsrann- sóknir og skipuleggja aðgerðir til öflunar nýrra markaða fyrir sjávarafurði'r, svo og um fram- leiðslu nýrra vörutegunda. Skýrði flufningsmaður einstaka þætti frumvarpsins, en að ræðu hans lokinni var málinu Vísað til sjávarútvegsmálanefndar deildarinnar og til 2. umræðu með samhljóða atkvæðum. Afgreitt til 3. umræðu Á FUNDI efri-deildar í kær kom til 2. urnræðu stjórnaffrumvörp in um lögræði og stofnun og *lit hjúskapar. Mælti Jón Þorsteins son fyrir áliti allsherjarnefndar á málunum og mælti nefndin samhljóða með samþykkt þedrra. Báðum var mákinum vísað til 3. umrœðu. ítulir bjóðu styrki ÍTÖLSK stjómvöld bjóða fram nokkra styrki handa íslendingum til námsdvalar á ítalíu á háskóla árinu 1968—69. Styrkimir eru m. a. ætlaðir til að sækja ýmiss konar námskeið við æðri mennta stofnanir á Italíu, og kemur mis- munandi löng námsdvöl til greina til styrkveitinga. Styrk- fjárhæðin nemur 90 þúsund lírum á mánuði. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðu- neytisins, Stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg, fyrir 5. janúar n. k. f umsókn skal m.a. greina, hvaða nám umsækjandi hyggst stunda, nafn fyrirhugaðrar náms stofnunar og áætlaða lengd námsdvalar. Umsóknareyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu. (Frá menntamálaráðuneytinu) 1000 ítulii Róm, 29. nóv. — NTB-AP ÍTALSKI umbótafrömu’ðurinn Danilo Dolci gekk í fylkingar- brjósti þúsund syngjandi göngu- manna inn í Róm í dag eftir tuttugu og fimm daga gönguferð frá Milano. Fylkingin staðnæmd- ist við þinghúsið, þar sem Dolci afhenti bænarskjal, þar sem kraf izt er að loftárásum verði tafar- laust hætt á Norður-Vietnam, og látin er í ljós andúð á hernaðar- bandalögum, og fordæmd var herforingjastjórnin í Grikklandi. - ALÞINGI Framhald af bls. 32 mundur Skaftason, er var for- maður hennar, Bjarni Bragi Jóns son, Guðlaugur Þorvaldsson, Sig- urður Stefánsson og Þorvarður EHasson. Við samningu frum- varpsins var höfð hliðsjón af frumvarpi til norskra bókhalds- laga, svo og dönskum bókhalds- lögum. Sem fyrr segir gerir frum.varp- ið ráð fyrir aukinni bókhaldis- skyldu og kveður á um að eftir- taldir aðitar verði bókhalds- skyldir: A. 1. Hlutafélög, o,g önnur félög með takmarkaða ábyrgð. 2. Gagnkvæm tryggingarfélög, samvinnufélög og önnur félög með breytilegum höfuðstól og breytilegri félagatölu, sem hafa það markmið, að efla hag félags- manna eftir þátttótou þeirra í starfsemi félagsins. 3. Sameignarfélög og önnur félög með óta kmarkaðri ábyrgð félagsmanna. 4. Bankar og sparisjóðir. 5. Félög, sjóðir og stofnanir, sem hafa á hendi fjáröflun, fjár- vörzlu eða rekstur, svo sem líf- eyrissjóðir, stéttarfélög, íþrótta- félög, líknarstofnanir, minning- ar- og styrktarsjóðir. B. Einstaklingar, sem í atvinnu- skyni reka eftirgreinda starf- semi: 1. Verzlun, þar með ta'Hn lyfjaverziun. 2. Byg.gingarstarfsemi og önn- ur mannvirkjagerð, svo og al'ls konar verktakastarfsemi, þar með talið viðhaMs og viðgerðir mann virkja. 3. Námarekstur, vinnsla og sala jarðefna, svo sem malar- nám. 4. Framleiðsila, saia og dreifing vatns og orku. 5. Bóka- blaða- og tímarita- útgáfa. 6. Skóiar. 7. Sjúkrahús, elliheimili, heilsu hæli o.þ.h. stofnanir. 8. Umsýslustarfsemi, svo sem fasteigna,- skipa- og bílasala, vöru- og skipamiðlun, afgreiðsla skipa og annarra farartækja, rekstur ferðastorifstofu, kaup- þing, kaiuphallir og uppboðs- markaðir. 9. Málflutningur og önnur lög- mannsstörf. 10. Sala verðbréfa og peninga- útlán. 11. Útleiga á fasteignum og lausafé. 12. Skemmtistarfsemi hvers konar, svo sem t.d. kvikmynda- hús, leikhús, hljómsveitÍT og miðlun skemmtikrafta. 13. Iðnaður og iðja, þar með talin viðgerðarstarfsemi. 14. Útgerð til veiða, verkun sjávarafla og fiskirækt. 15. Vinnsla landbúnaðarafurða. Búrekstur, þar sem afurðirnar eru að meiri hluta seldar beint til smásala eða neytenda. 16. Fólks- oig vöruflutningar. 17. Veitinga- og gistihúsa- rekstur. 18. Læknar, tannlæknar, tann- smiðir og dýralæknar. 19. Þjónustustarfsemi, svo sem starfsemi húsameistara, verk- fræðinga, endurskoðenda, dóm- túlka og skjalaþýðenda, bók- haldsskrifstofur, auglýsinga- stofur, teiknistofur, fjölrit'unar- stofur, þvottahús og efnalaugar, ljósmyndastofur, rakarastofur, baðhús, nuddstofur og snyrti- stofur, björgunarstarfsemi og þjónustustarfsemi ótalin annars staðar. IMúrarar mótmæla fram- kvæmdum í Breiðholti MBL. hefur borizt eftirfarandi ályktun Múrarafélags Reykj avík ur: Á félagsfundd 16. nóv. sl. voru gerðar eftirfarandi samiþykktir. Fundur Ihaldinn í Múraraifé- lagi Reiykjavíkur 16. nóv. 1967 mótmælir harðlega þeiim fram- kvæmdium í Breiðholtshverfi, sem framk væmdanefnd bygging aráætil'Unar ríikisins er og hetfur látið framlkvæma, t.d. með bygg- ing-u timburlhúea, fundurinn tel- ur að fé það sem ætlað er til íbúðabbygginga, og Húsnæðis- málastotfnun ríkisins hetfur ráð- stafað fram að þessu, væri bet- ur varið á sama háitt og hún gerði áður. Kretfjast verður atf ríkisstjórn- inni að hún sjái lánakerfi Hús- næðismálastotfnunar ríkisins fyr ir nægu fjlármaigni svo lokið verði byggingu þeirra ílbúða, sem þegar eru að verða fokheld ar, svo staðið verði við júnísam- komulaigið hvað þetta snertir og húsnæðismálastjórn þurfi ekki að vísa lánshæfuim umsóknum frá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.