Morgunblaðið - 01.12.1967, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 1. DES. 1967
31
Stífla springur á Jövu
— McNamara
Frairuhald af bls. 1.
bákni heraflans, PentagoA, sem
kostar rúma 70 milljarða dala að
reka á ári.
Þeir sjö menn, sem til greina
koma í embætti landvarnaráð-
herra, eru:
♦ Paul Nitze, varalandvarna-
ráðherra, sem var yfirmaður
skipulagsdeildar utanríkisráðu-
neytisins í stjórnartíð Trumans.
Nitze er sextugur að aldrL
♦ Cyrus Vance, sem var
varalandvarnarráðherra áður en
Nitze tók við því starfi. Vance
varð að láta af þessu embætti
vegna meiðsla í baki, en á þessu
ári hefur hann fengið ýmis sér-
stök verkefni. f ágúst stjórnaði
hann því starfi, að koma á lög-
um og reglu í Detroit eftir kyn-
þáttaóeirðirnar þar, og nú reynir
hann að miðla málum í deilu
Grikkja og Tyrkja, sem sérlegur
sendimaður Johnsons forseta. —
Vance er fimmtugur að aldri.
♦ Robert Anderson, flota-
málaráðherra, sem var vara-
landvarnaráðherra í stjórnartíð
Eisenhowers. Hann er 57 ára
gamall.
♦ Clark Clifford, sem er 60
ára gamall og náinn vinur John-
sons.
♦ McGeorge Bundy, sem var
ráðunautur forsetanna Kennedys
og Johnsons um öryggismál, þar
til hann sagði af sér í fyrra og
gerðist forstjóri Ford-stofnunar-
innar í New York.
♦ Charles Thornton, sem er
forstjóri fyrirtækisins Litton
Industries og er 54 ára gamall.
♦ Ríkisstjórinn í Texas, John
Connally, sem særðist um leið
og Kenedy forseti var myrstur í
Dallas. Hann hyggst ekki gefa
kost á sér til endurkjörs sem
ríkisstjóri, en hefur einnig látið
svo um mælt, að ekkert sé hæft
í fréttum um að hann verði skip-
aður eftirmaður McNamara.
Viðbrögð kommúnista
í Peking er litið á afsögn Mc-
Namara sem vísbendingu um al-
varlegan klofning í bandarísku
stjórninni vegna Víetnamstríðs-
ins, að sögn fréttaritara japönsku
fréttastofunnar Kyodo í Peking.
Pólska kommúnistablaðið „Try-
bunda Luda“ segir, að afsögn
McNamara tákni að stjórnmála-
menn í Bandaríkjunum hafi lot-
ið í lægra haldi fyrir herforingj-
um. „Izvestía" í Moskvu segir af
sögn McNamara viðurkenningu á
því að Víetnamstefna stjórnar-
innar hafi farið út um þúfur.
V ----------------
— Jarðskjálfti
Framihald af bls. 1.
skjálftadeildar háskólans þar,
að jarðskjálftinn hefði mælzt
6,5 stig á Richter mælikvarða.
Til samanburðar má geta
þess, að jarðskjálftinn sem
lagði Skopje í rúst árið 1963
var 6 stig. Upptök jarðskjálft-
ans voru 105 km fyrir vestan
Skopje.
Hermenn úr Júgóslavíuher
og fjölmargir sjálfboðaliðar
hafa unnið í allan dag að
bjarga fólki úr rústum,
hreinsa götur borgarinnar og
hlúa að fólki, særðu og heim-
ilislausu. í Debar bjuggu um
16 þúsund manns og munu
flestir heimilislausir, enda
sagt að um 80 prósent borgar-
innar hafi hrunið til grunna.
Allt símasamband rofnaði
við Debar og þar varð einnig
rafmagnslaust. Matur og vatn
er flutt þangað með vöru-
flutningabifreiðum frá ná-
grannahéruðum. Útvarpið í
Belgrad gaf út áskorun um að
senda tafarlaust 10 þúsund
tjöld til bæjarins, sem bráða-
birgðaskýli handa íbúunum.
Borgin Debar er í djúpum
dal, sem umlukinn er háum
fjöllum. fbúarnir 16 þúsund
hafa flestir atvinnu af akur-
yrkju og landbúnaðarstörfum.
Af þeim átta, sem vitað er
með vissu, að farizt hafa, eru
sjö börn.
Samkvæmt síðustu fréttum
hefur albanska borgin Peshkopi
orðið allharkalega úti í jarð-
skjálftanum. — Hjálparboði frá
Júgóslavíu var hafnað, en út-
varpið í Tirana sagði í kvöld, að
tíu manns hefðu farizt, 120
meiðzt og 2000 byggingar
skemmzt eða eyðilagzt.
— McCarthy
Framhald af bls. 1
að han-n verði í framboði fyrir
flokkinn.
Á blaðamannaifundi í dag sagði
McCarhhy, að góðar horfur væru
á þvi að einhver annax maður
en Johnson forseti yrði fonseta-
fraimbjóðandi diemiókrata á næsta
ári. Ef hann sjálfur væri efcki
maðfuirinn, gæti Robert Kennedy
ö Ldungad'e ilLdarma ður verið
hann.
McCarthy sagði, að hann
hetfði góðar sigurlíkur í tvekn-
ur eða þremur þeirra undan-
kosninga, sem hann hyggst taka
þátt í. Hann kvaðst mundu leita
eftir stuðningi í ríkjum, þar sem
flokksþing velja fulltrúa á lands
fund Demókrataflökksins. Hann
kvað ekki ólíklegt, að demó-
krataleiðtogar í Indiana og Suð
ur-Dakótaríki byðiu sig fram
gegn forseanuim í undankosning
unum í þessuim ríkjuim, -en öld-
ungadeilldanmennirnir Vance
Hartke frá Indiana og George
S. McGovern frá Suður-Dakóta
eru eindregnir andsitæðingar
Vietnamstefnu forsetans.
Aðspurður neitaði McCarthy
því, að hann byði sig fram í
undankosniingunum til þess að
ryðja brautina fyrir Robert
Kennedy, en sagði að Kennedy
gæti erft þann stuðning er hann
hlyti í baráttu sinni. Hann
kvaðlst ekki hafa gert samning
við Kennedy um að víkja fyrir
honum þegar nær drægi lands-
fundi demókrata, en hins vegar
væri það í samræmd við póli-
tískar erfðavenjur í Bandarikj-
unum ef Kennedy gæfi kiost á
sér.
McCarthy sagði að nýlegar
stjómaryfirlýsingar, er gæfu til
kynna að áfram verði hert á
styrjöldinni í Vietnam, hafi
styrkt sig í þeirri ákvörðun að
bjóða sig fram gegn forsetan-
um. Hann lét í ljós áhyggjur
vegna þess, að Vietnamstyrjöid-
in gerði það að verkrun að minna
væri varið en ella til baráttunn-
ar gegn fátækt, til húsnæðismála,
mennta og annanra mála í Banda
rikjunum, auk þess sem styrjöld
in hefði valdið siðferðislegri
upplausn í landinu. Hann full-
yrti, að ákvörðun hans mundi
ekki rjúfa einingu Demókrata-
flokksins.
McCarthy játar, að nær ógern
ingur sé að koma í veg fyrir að
ríkjandi forseti hljóti tilnefningu
sem frambjóðandi í forsetakosn
ingum, en heidur þvi fram,
að umræður verði að fara fram
innan Demókrataflokksins um
Vietnammálið. í síðustu kosning
um mun Johnson forseti hafa
haft augastað á McCarthy sem
varaforsetaefni sínu. McCarthy
vonar að hnn fái töLuvert fylgi í
undankosningunum í Wisconsin,
sem fara fram 2. apríl, játar að
honum geti orðið lítið ágengt í
Nebraska (14. maí), en er viss
um mikið fylgi í Oregon (28.
maí). Undankosningarnar í Kali
forníu eru mikilvægastar að
dómi McCarthys, en þar vonast
hann eftir stuðningi flokksráðs
demókrata, sem er andvigt John
son forseta. Þessar kosningar
fara fram 4. júní.
— Kýpur
Framhald af bls. 1
tveimur vikum. Grískir leiðtog-
ar eru verr settir hvað þetta
snertix, því að loforð þeirra um
að flytja hersveitir sínar frá Kýp
ur felur í sér meiri tilslökun en
loforð Tyrkja um að gera ekki
innrás í eyna..
Tilkynning í dag.
Væntamlega verður tilkynning
gefin út á morgun um samkomu-
lagið, og þykir hinum þremur
ríkisstjórnum skipta miklu máli
hvernig fonm þessarar tilkynn-
ingar verðuir.
Samkvæmt samkomulaginu
verða grísku hermennirnir á
Kýpur fluttir þaðan í smáhóp-
um á næstu sjö mánuðum, og
greiddar verða skaðabætur vegna
árása Kýpur-Grikkja á tvö þorp
Kýpur-Tyrkja 15. nóvember. Það
voru þessi átök er leiddu til
styrj aildarhættunnar.
Tyrkir munu hafa kraflzt
þess, að gríska herliðið á Kýpur
yrði flutt á brott nær sam-
stundíis, og var hér um að "æða
erfiðustu hindrunina, sem varð
að yfirstíga til að koma á sam-
komulagi. En í Aþenu er brott-
flutningur Grikkja talinn fela í
sér mikinn stjórnmálaisigur fyrir
Tyrki. Sat er, að nú verði þess
beðið með mikilli eftirvæntingu,
hvort deila Grikkja og Tyrkja
hatfi áhrif á stjórmmálaástandið í
Grikklandi og völd herforimgja-
stjórnarinnar.
Margir sérfræðingar f Aþenu
telja, að hinn nýskipaði utan-
ríkisráðherra Grikkja, Panayotis
Pipinelis, fyrrum forsætisráð-
herra, hafi með lagni sinni átt
mikinn þátt í því að koma í veg
fyrir styrjöld milil Grikkja og
Tyrkja. AP hermir, að fólki í
Aþenu hatfi létt mikið er það
spurðist í dag, að samkomu'ag
hefði náðst. Flestir Grikkir virð-
ast hafa viljað að komið yrði í
veg fyrir styrjöld út af Kýpur.
Bylting í Tyrklandi?
í Ankara visaði Suleyman De-
mirel, forsætisráðherra, eindreg-
ið á bug orðrómi um að tyrk-
neskir herforingjar væru óánægð
ir með Kýpursamkomulagið.
Lausafregnir herma, að herfor-
ingjarnir hyggist gera stjórnbylt
ingu.
Samkvæmt góðum heimildum
felur Kýpur-samkomuilagið með-
al annars í sér, að Tyrkir fækki
í herliði því sem undanfarinn
hálfan mánuð hefur verið þess
albúið að gera innrás í Kýpur.
I dag flaug engin tyrknesk könn
unarflugvél yfir Kýpur, í fyrsta
skipti í eina viku. Um 1.200 brezk
ir borgarar, sem um síðustu helgi
leituðu hælis í brezku herstöð-
inni Dhkelia á Kýpur fóru það-
an í dag *il heimila sinna.
Hinn sérlegi send'imaður John
sons forseta, Cyrus Vance, ræddi
sjö tíma við Makarios forseta í
dag, og þegar Makarios var að
því spurður, að viðræðunum
loknum, hvort friður hefði verið
tryggður sagði forsetinn: „Ég
held það“. Vance hólt síðan til
Aþenu, þar sem hann dvelst enn,
en sendknaður U Thants, Jose
Rolz-Bennett frá Guatemala, fór
í dag áleiðis til New York, og
Manlio Brosio, framkvæmda-
stjóri NATO, fór til Briissel. Áð-
ur en Brosio fór frá Aþenu sagði
hann:
— Hlutverki minu er lokið.
Grikkir og Tyrkir hatfa náð sam
komulagi. Styrjaldarhættan er
liðin hjá.
Sennilegt er talið, að Kýpur-
samkomulagið verði birt í fonmi
áskorunar frá U Thant tiil
stjórna Grikklands og Tyrklands,
um að vissar ráðstafanir verði
framkvæmdar og ríkisstjórnirnar
taki áskorunina til greina.
í FRÉTT frá NTB í gær segir, að
íslendingar hatfi sótt um það til
norskra yfirvalda að £á að flytja
þangað 700 tonn af dilkakjöti.
Ennfiremur segir efttr landbún-
aðarráðuneytinu norska, að
þessu hafi verið Synjað. Ákvörð-
unin um synjunina byggist á því
að norskir k jötframleiðendur
hafi nægilegt kindakjöt fyrir
markaðinn þar í landi.
Geirðir d megin-
londi Kína
LEYNIÞJÓNUSTA þjóðernis-
á Formósu segir, að undanfarna
daga hafi hvað eftir annað kom-
ið til harðra átaka á meginlandi
Kína milli stuðningsmanna Mao
Tse tung annars vegar og and-
stæðinga hans hins vegar.
Djakarta, 30. nóv.
NTB-Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 112 manns
fórust, er stifla á Mið-Jövu
brast eftir miklar úrkomur þar,
og þrjú þorp grófust undir forar-
eðju.
Fréttastotfan Antara í Djakarta
tilkynnti, að atburðurinn hefði
gerzt s.l. mánudagskvöld. Sagt
var að hermenn og sjálfboðaliðar
leituðu enn að fólki, sem óttazt
er um. Þegar stíflan, sem var ó-
fullgerð brast, skall fjörutíu og
fimm metra breið flóðbylgja yfir
dalinn og vatnið og forareðjan
náði yfir 5-6 kílómetra svæði.
Svæðið er í nágrenni bæjarins
Hombong og um 40 kílómetra frá
ströndinni.
Talsmaður Djakartastjórnar
Hurðor úrekstur
ú Reykjunesbr.
í GÆRKVÖLDI rétt fyrir kl. 21
varð allharður árekstur á Reykja
nesbraut á móts við Slökkvi-
stöðina. Skullu þar saman tvær
bifreiðir og skemmdust báðar
mikið. Kona, er ók annarri bif-
reiðinni gætti sín ekki á hálk-
unni og var í þann mund að
renna aftan á bifreið, er var
ekið á undan henni. Sá konan
að sér yrði ekki unnt að forða
árekstri og tók þá það ráð að
sveigja út á hægri vegarhelming
götunnar.
Um leið kom bifreið á móti
og skullu bifreiðirnar allharka-
lega saman. Flytja varð telpu er
var í annarri bifreiðinni í Slysa-
varðstofuna og ökumaður kvart-
aði undan þrautum í brjósti. —
Ekki mun neinn þó hafa slasazt
alvarlega.
Hljómleikur til
styrktur Flug-
björgunur-
sveitinni
HLJÓMLEIKARNIR sem Lúðra-
sveit Reykjavíkur heldur til
styrktar fyrir Flugbjörgunar-
sveitina, hefjast í Háskólabíói
klukkan 3 á laugardaginn (2.
des.). Þar verða flutt létt tón-
verk, lög úr kvikmyndum og
fleira. Miðasala er þegar hafin
hjá Eymundsson og á laugardag
verða þeir einnig til sölu í Há-
skólabíói.
Vegna þessarar fréttar sneri
Mbl. sér til Agnars Tryggvason-
ar framkvæmdastjóra búvöru-
deildar SÍS, en hún hefir séð um
útflutning meginþorra landbún-
aðar.vara okkar. Agnar sagði, að
þetta væru slæmar fréttir. Við
hefðum i fyrra fengið útflutn-
ingsheimild fyrir 700 tonnnum
af kjöti til Noregs, en þá hefðu
ekki verið notuð nema 290 tonn
af heimildinni. Hins vegar hefði
verið fliutt út til Noregs 700 tonn
árið þar áður.
— íslenzka kindakjötið er
mjög vinsælt í Noregi og þykir
þar kostafæða og þar eru stórir
innflytjendur, sem haía hags-
muna að gæta í þessu efni. Mark-
aður þessi hefir einnig verið
mjög þýðingarmikiH fyrir is-
lenzkan landbúnað, sagði Agnar
Tryggvason.
sagði í dag, að hjálparsveitir
verði sendar til Hombong til að
taka þátt í björgunarstarfinu. í
marz í fyrra fórust 166 manns,
er stíflan við Solofljót á Mið-
Jövu brast, en mesta stífluslys
seinni ára varð á Ítalíu árið
1963, er 1600 manns fórust í
Piavedalnum.
I* -----» ♦ »-----
- FLOSY
Framhald af bls. 1
greiddu 100 milljónir punda í
skaðabætur fyrir 128 ára ný-
lendustjórn, en samkomulag
hefði enn ekki tekizt.
Al-Shaabi sagði að lokamark-
mið hans væri að sameina hið
nýja ríki Jemen-lýðveldinu,
sem hann kallar Norður-Jemen.
í Kaíró tilkynnti forysta
FLOSY (Frelsisfylkingar hins
hernumda Suður-Jemen), sem
hefur átt í deilum við NLF, að
hreyfingin mundi haldi uppi bar
áttu gegn hinni nýju stjórn
Suður-Arabíu. Hreyfingin kall-
aði stofnun alþýðulýðveldisins
Suður-Jemen skrípaleik og sak-
aði NLF um að vinna með
brezku leyniþjónustunni og
CIA, FLOSY hefur skorað á
Nasser Egyptalandsforseta, að
endurskoða þá ákvörðun sína a’ð
viðurkenna hið nýja lýðveldi, en
Egyptar hafa hingað til stutt
FLOSY.
! Fishafli Fæiey-
! inga svipaður
! og í iyrra
4 Einkaskeyti til Mbl.
/ frá Þórshöfn í Færeyjum.
J FISKAFLI Færeyinga er
1 svipaður í ár og í fyrra. —
í Fyrstu níu mánuði ársins nem
i ur aflinn 17 þúsund lestum,
; en hinsvegar er útflutningur
1 á blautfiski og sólþurrkuðum 4
4 saltfiski 42 prósent meiri en í J
i fyrra og hefur verið flutt ut J
7 magn fyrir 50 milljónir fær- 1
1 eyskra króna. Aukning út- 4
| flutningsins stafar einkum af i
t því, að um síðustu áramót 7
/ voru allmiklar fiskbirgðir í )
\ landinu. Frosin fiskflök hafa 4
4 verið flutt út fyrir eina millj. i
4 krónur, eða 10 prósent lægri 7
/ upphæð en í fyrra, og af ís- |
1 uðum fiski til Englands er 4
4 fjórðungi minni en á síðasta l
| ári. — ARGE.
Bretum boðin
onhoaðild?
Diisseldorf, 30. nóv. NTB.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Vest-
ur-Þýzkalands, WiIIy Brandt,
gaf í skyn í dag, að möguleiki
væri á því að Bretar fengju
aukaaðild að Efnahagsbandalagi
Evrópu og að slík aðild gæti
seinna leitt til fuilrar aðildar.
Hann sagði í merkri ræðu í
Dússeldorf, að vestur-þýzka
stjórnin væri fús að athuga
möguleika á því hvernig leysa
mætti til bráðabirgða umsóknir
er fyrir liggja um aðild að EBE
og lagði áherzlu á að stjórn hans
teldi að leysa mætti þessi vanda
mál.
Samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum í Dusseldorf er líklegt að
Bonn-stjórnin leggi til, að Bret-
um verði veitt aukaaðild er síð-
ar geti leitt til fullrar aðildar
til þess að koma í veg fyrir að í
odda skerist með Frökkum og
öðrum aðildarríkjum EBE á ráð-
herrafundi bandalagsins í Briiss-
el 18. desember. Brandt mun
bera þessa hugmynd upp við
franska utanríkisráðherrann,
Couve de Murville, á ráðherra-
fundi NATO, sem haldinn verð-
ur í Brússel skömmu fyrir ráð-
herrafund EBE.
Innflutningi Isl. kinda-
kjöts til Noregs synjaö