Morgunblaðið - 09.12.1967, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DES. 1967
5
RÍMNASAFN
— gefið út af Helgafelii
MEÐAL margra merkra nýrra
bóka sem hér hafa birst á bóka-
markaði þessa árs er Rímnasafn-
ið, sem gefið er út af Helgafelli,
en eigandi þess er hinn gagn-
merki og stórvirki bókaútgefandi
Ragnar Jónsson. Er þetta safn
sýnishorn allmargra rímnaflokka
frá þeim tíma er rímnager’ð fyrst
hefst hér á landi á fjórtándu öld
og til vorra daga. Þá er í bók-
inni stutt æviágrip höfundanna,
sem eru um sextíu og fimm að
tölu. Hefir hinn landskunni hag-
yrðingur og bragfræðingur,
Sveinbjörn Beinteinsson frá
Draghálsi, valið efni bókarinnar
og leitast við, eins og hann seg-
ir í formála, „að sýna sem flest-
ar myndir rímnagerðar í yrkis-
efnum og bragarháttum, einnig
að leiða í ljós einkenni hvers
tíma.“
Ég sem þessar línur rita finn
hjá mér sérstaka hvöt til þess
að vekja athygli á bók þessari
og hvetja menn, eldri og yngri,
til þess að lesa hana. Lestur
hennar leiðir huga vorn að því,
hve stórmerkur og yfirgripsmik-
ill þáttur í bókmenntasögu þióð-
ar vorrar rímurnar eru. Langar
mig til að víkja að þessu með
nokkrum or'ðum.
íslendingar skyldu ávallt gæta
þess og hafa það ríkt í huga, að
sjálfstæði þeirra og þjóðarmeð-
vitund er á því reist fyrst og
fremst, að þeim tókst að vernda
tungu sína. Á íslandi er skráð
saga norrænna manna fyrir og
eftir landnámstíð. Með ritun
þessara sagna og verndun máls-
ins á vörum þjóðarinnar í dag-
legu tali, hefir Islendingum ein-
um norrænna þjóða tekizt að
bjarga frá glötun rit- og tal-
máli hins norræna kynstofns.
Frá því skráningu íslendinga-
sagna lauk, eru rímurnar lang-
samlega fyrirferðarmesta bók-
menntagrein íslendinga á næstu
öldum. Þessar bókmenntir eru
alveg sérstæðar fyrir íslendinga
og af þeim bókmenntum sem
til hafa orðið á íslandi eru þær
þjó'ðlegastar. Þar birtist lifandi
mál þjóðarinnar eins og það lá
á tungu hennar þegar rímurnar
voru kveðnar. Þá eru rímurnar
góður skóli til viðhalds og glöggv
unar ó fornyrðum tungunnar.
íslenzk tunga er kjarnyrt og
býr yfir mikilli orðgnótt. íslend-
ingar þurfa nú engu síður en áð-
ur að vera á verði um tungu
sína, hreinleik hennar og hrynj-
andi. En því aðeins tekst oss
að gæta þessa hlutverks, að vér
látum ekki undir höfuð leggjast
að kynna oss til hlítar þær bók-
menntir vorar, sem auðugastar
eru að frumleik tungunnar, fjöl-
breyttni í meðferð hennar og blæ
brigðum. Náin kynni af gullald-
armáli fornsagnanna og orðgnótt
og hrynjandi í máli rímna vorra
er þjóðinni án alls efa megin
styrkur og aflgjafi til þess að
halda tungu vorri hreinni og
vernda hana fyrir amböguhætti
og áföllum í sambúð við erlendar
tungur.
íslendingasögurnar eru nú all-
ar, þær sem varðveizt hafa,
löngu komnar á prent. Að þessu
sama þurfum vér að keppa um
prentun rímnanna. Þær hafa
sama hlutverki áð gegna þjóð-
inni til /málverndar og íslend-
ingasögurnar, auk þess sem hag-
mælska sú sem þar birtist og
á stundum skáldleg tilþrif,
snerta ávallt viðkvæma strengi
í brjóstum íslendinga. Vér höf-
um ekki efni á því að láta dýr-
mæta fjársjóði ónotaða, gleymda
og grafna í afkimum handrita-
safna hér og annarsstaðar. Rím-
urnar eru nú sem áður upp-
spretta hins lifandi orðs. Það
er þessvegna gildisríkt hlutverk
með þjóð vorri að endurvekja
áhuga og löngun fólksins til þess
Sigurður Breiðfjörð
að leita sér í því sálubóta að
kynna sér þessar rammíslénzku
bókmenntir. Það er þjónusta við
sjálfstæðishugsjón íslendinga.
Á vegum háskólans er nú ver-
ið að vinna að undirbúningi nýrr
ar orðabókar yfir íslenzkt mál.
Er það mikið verk, svo gagnaúð-
ug sem tunga vor er. Kemur það
æ betur og betur í ljós, eftir
því sem verkinu skilar áleiðis,
hver gullnáma rímurnar eru í
þessu efni.
Það er vissulega vakahdi með
þjóð vorri skilningur á þýðingu
og gildi þess, að þessi bókmennta
grein vor fái sem bezt notið sín
á sjónarsviði hins daglega lífs.
Rímnafélagið var stofnað síðari
hluta árs 1947. Hlutverk þess er
að gefa út rímur í vönduðum
útgáfum svo og fræðirit um þá
bókmenntagrein. Hefir sfðan ár-
lega sótzt nokkuð í áttina með
þá útgáfustarfsemi. Á síðastliðnu
ári kom út á vegum félagsins
Rímnatal í tveimur bindum. Að
samningu þess hefir staðið hinn
víðkunni fræðimaður Finnur Sig
mundsson fyrrverandi landsbóka
vörður. Er þetta mikið rit sem
kostað hefir mikla vinnu. Þar
eru skráð heiti með nokkurm
skýringum tíu hundruð og fimm-
tíu rímna, en af þeim hafa ekki
verið prenta'ðar nema tvö hundr-
uð og fjörutíu. En ekki koma hér
öll kurl til grafar, því vitneskja
er um rúmlega þrjú hundruð
rímnaflokka sem munu vera
glataðir. Þá er í riti þessu stutt
æviágrip fjögurhundruð og átta-
tíu rímnahöfunda. Þá er og vert
að geta þess, að Pétur Ólafsson
forstjóri ísafoldarprentsmiðju
hefir hafizt handa um prentun
á Ijóðmælum Sigurðar Breið-
fjörðs, en hann kvað um Jxrjátíu
rímnaflokka auk annars. Sigurð-
ur var vinsælasta og afkasta-
mesta rímnaskáld nítjándu ald-
arinnar og höfðu allmargir af
rimnaflokkum hans verið prent-
------------------------------
*
Aramótabrennui
EFTIRFARANDI regiur gilda
um áramótabrennur:
Fyrir hverri brennu skal
standa ábyrgiur aðili, einstakl-
ingur eða féiagssamtök.
Sækja skal skriiflega um
brennuleyfi til lögreglustjóra.
Lögreglustjóri veitir brennu-
leyfi að undangenginni sameig-
inlegri atihugun lögreglu og
slökkviliðs á öllum aðstæðuim.
enda samþykki slökkviliðið
staðsetningu brennunnar.
Gætt sé Iþess, að ekki sé sett í
bálköstinn neitt það efni, sem
valdið gæti sprengju, t.d. til-
búinn áburður og olíubrúsar.
Heimilt skal eftirlitsmanni að
banna að sett sé í bálköstinn
efni sem orsaka mikinn reyk t.d.
bíldekk og einangrunarplast.
Stærð bálkastar er 'háð sam-
þykki eftirlitsmanns.
Eftirlitsmenn geta bannað að
kveikt verði í brennu, ef veður-
s'kilyrði eru þannig að hætta geti
stafað af (mikil veðurhæð eða
ó'hagstæð vindátt.)
Olíutunnur skulu staðsettar
nægilega langt frá bálkesti.
Tómar olíutunnur skulu standa
opnar, þ.e.a.s. tapparnir ekki
skrúfaðir í.
Tómar olíutunnur má ekki
setja á bálköstinn og fjarlægja
verður þær strax að brennu lok-
inni.
Eftirlitsmaður skal fjarlægja
allar þær brennur, sem ekki hef-
ur verið sótt um leyfi fyrir og
jafnframt srkal ihann gera brennu
efnið upptækt.
aðir á'ður, fleiri en nokkurs ann-
ars rímnahöfundar. Miðar þessari
útgáfustarfsemi ísafoldarprent-
smiðju vel áfram. Komnir eru
þar út nokkrir rímnaflokkar
auk Ljóðasmámuna Sigurðar í
þremur bindum.
Allt er þetta gleðilegur vott-
ur þess, að útgáfa rímnahand-
rita vorra hafi nú fengið byr í
seglin er vel nýtist til þess að
hrinda í framkvæmd því þjóð-
þrifaverki, að þessar merku bók-
menntir vorar geti orðið almenn-
ingseign.
Ragnar Jónsson bókaútgef-
andi á beztu þakkir skilið fyrir
að hafa kvatt sér hljóðs á þess-
um vettvangi með þeim kynnum
af þessari bókmenntagrein sem
-í Rímnasafni hans felst.
Þa'ð er engan veginn að ófyrir-
synju eða ástæðulausu, þó á það
sé bent, að við bókmennta-
kennslu í-skólum vorum sé ræki-
lega vakin athygli á því, hvað
rímnaskáldin hafi lagt af mörk-
um í þjóðlífi voru.
Pétur Ottesen.
Kaupmenn — kaupfélög-
Höfum fyrirliggjandi hið
landsþekkta og vinsæla
Matadorspil.
Sendum gegn póstkröfu
hvert á land sem er.
Pappírsvömr h.f.
Skúlagötu 32 . Sími 21530
VERÐ KR.
295,-
VÖRBOFEIL
IJOSilill IÖOKOII
Snilldarlega skrifuð njósnabók eftir meistara slíkra
skáldsagna, Jhon Le Carré, höfund metsölubókarinnar
„NJÓSNARINN, SEM KOM INN LM KULDANUM!'
Bókaútgáfan VÖRÐUFELL - Bókaútgáfan VÖRÐUFELL - Bókaútgáfan VÖRÐUFELL - Bókaútgáfan VÖRÐUFELL
ICELAND1966
Vl»>‘
HANDB00K
PUBLISHED
BY THE
CENTRAL BANK
0F ICELAND
©AUGLÝSINGASTOFAN
Kjörin tækifærisgjöf til fyrirtækja og vina erlendis.
Mikilvæg handbók stofnunum og heimilum hér á landi.
í ICELAND 1966 er að finna allar helztu upplýsingar um land og
þjóð. Bókin er 390 lesmálssíður, prýdd nokkrum fögrum litmynd-
um og íslandskorti.
Bókinni er skipt í 11 höfuðkafla:
Landið og fólkið
Saga og bókmenntir
Stjórnarskrá og ríkisvald
Utanríkismál
Atvinnuvegir
Verzlun og samgöngur
Efnahags- og fjármál
Félagsmál
Trúarbrögð og menntamál
Vlsindi og listir
Tómstundaiðja.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Hátt á annað þúsund atriðisorð (Index) er að finna aftast í bókinni.
ICELAND 1966 er tvímælalaust vandaðasta handbók um íslenzk
málefni sem völ er á. Bókin kostar kr. 400,00 með söluskatti.
Útgefandi: Seðlabanki Islands.