Morgunblaðið - 09.12.1967, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. DES. 1967
Þórarinn Ólafsson
trésmíðam. - Minning
Sigurlín Erlends
dóttir - Minning
F. 30. maí 1896.
D. 28. nóv. 1967.
VAGGA hans stóð fyrir vestan,
hvar vorsólin klífur skörð og
tinda á leið til byggða. Hvar
fjall á raetur í firði miðjum og
undirl-endi / eftir því. Svipmót
átthaganna bjó með honum ævi-
langt og umturnaðist hvergi á
flatlendinu suður með sjó.
í eina tíð stofnaði ég Bóka-
búð Keflavíkur í húsinu hans
við Aðalgötu 10. Þá hófust
kynnin, sem urðu aðvináttu með
árum. Fáskiptinn var hann jafn-
an, en fór sínu fram, svo í for-
setakosningunum sem á öðrum
vettvangi.
Og trésmíðameistarinn byggði
ár og eindaga yfir Keflvíkinga,
eins þótt sá aldur faeri að, er
flestum verður hvöt til að setj-
ast í helgan stein.
Að vísu hans iðja, að byggja.
En sem ég og aðrir ungir
menn þeirra ára sýndum Þór-
arni teikningu að húsi, var
hann óðar byrjaður að maela,
negla og reisa uppá krít, óskjal-
festa, ótímabundna krít. Jóhann
heitinn í Vatnsnesi lánaði bygg-
ingarefnið, en Guðmundur í
Sparisjóðnum peninga til þess,
sem á vantaði, að húsið yrði
hús. Þeir voru ókrýnd húsnæð-
ismálastjórn staðarins, þessir
menn. Og mun nú, því miður
leitun á kapítalískri þrenningu,
er haldin sé hjálpfýsi á borð við
Þá' .
Þórarinn Ölafsson hugsaði
lengra en í fetum og haerra en
t
Konan mín
Lára Guðbrandsdóttir
lézt á Borgarspítala að morgni
8. desember.
Fyrir hönd vandamanna,
Ásgeir Björgvinsson.
t
Eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigurjón Sigurjónsson
birgðavörður,
Ljósheimum 11, Rvík,
andaðist að heimili sínu 7.
þ. m. Jarðarförin auglýst síð-
ar.
Gróa Halldórsdóttir,
Hulda Sigurjónsdóttir,
Skæringur Hauksson
______og barnaböm.___________
t
Konan mín,,
María ólafsdóttir
andaðist 8. desember.
Ríkarður Jónsson.
t
Jarðarför
Sigríðar Jónsdóttur
frá Smiðjuhóli
fer fram frá Dómkirkiunni
þriðjudaginn 12 desember
n. k. og hefst kl. 13,30.
Fyrir mína hönd og systra
hennar
Þorsteinn Sveinsson.
í álnum. í starfandi félögum,
eins og Rotaryklúbbmim, var
hann af lífi og sál og mátti ekki
vamrn sitt vita, hvort heldur
hann var í forsæti eða á hinum
óæðra bekk með okkur hinum.
Vandfyllt sæti hans og fátækari
góðra vina fundir.
Veit, að orðskrúð og málaleng
ingar voru þér lítt að skapi,
gamli vinur. Og skal í hóf stillt.
Þegar við komum að heims-
þekktu samkomuhúsi á ferðalagi
okkar erlendis, í fyrra, hafðir
þú orð á því, að slík hurð og
karmur, er við blöstu, þættu
ekki beysin, ef komið hefðu út
af þínu verkstæði.
Fornt mun hið gullna hlið
orðið. Og ekki að vita, nerna
þú finnir þar nokkra missmíði
á. En þú hefur þá einhvern tíma
teglt og gefið guðshúsi eins og
nýja hurð og nýjan karm. Svo
að einnig þar er þér heilsað
með hlýju handtaki.
Samúðarkveðju sendi ég ást-
vinum þínum. Sjálfum þér hug
heila þökk og ósk um birtu og
yl í áfangastað.
Kristinn Reyr.
ÞÓRARINN fæddist fyrir löngu
eða nánar tiltekið að Fífu-
stöðum í Arnarfirði. Að vera
Vestfirðingur eru góð meðmæli
bæði hérna — og hinum megin.
Við Þórarinn kynntumst fyrst í
Keflavíkinni fyrir mörgum árum
en þangað kom hann um 1932,
en ég nokkru síðar. Þá þegar
benti allt til þess sem síðar varð,
að þar var á ferð áhuga. og at-
orkumaður, bæði um störf og fé-
lagsmál stéttar sinnar, sem þá
voru að skapast í mynd Iðnaðar-
mannafélags Keflavíkur. Þórar-
inn var stofnandi þess félags og
stjórnandi um árabil. Við 25 ára
afmæli félagsins var Þórarinn
kjörinn fyrsti og eini heiðursfé-
lagi Iðnaðarmannafélagsins, sem
nú spannar um öll Suðumesin.
Það æxlaðist svo til að leiðir
okkar lágu snemma saman, þá
var Þórarinn yfirsmiður og aðal-
maður við byggingu hafnar I
Keflavík, en ég einn af sumar-
vinnumönnum hjá Óskari Hall-
dórssyni. Þá var ég smeykur við
Þórarin, augu hans voru alls
staðar og ávörp hans lítið mjúk-
leg ef linlega var unnið.
Siðar kynntist ég Þórarn; á
öðrum sviðum, sem ég er þakk-
látur fyrir nú og framvegis. Und-
ir hans hornóttu skel bjó hinn
t
Eiginmaður minn og faðir
Skúli Hallsson
verður jarðsunginn mánudag-
inn 11. þ.m. frá Keflavíkur-
kirkju, og hefst athöfnin frá
heimili okkar kl. 1 e. h.
Bílferð verður kl. 12 frá
Umferðarmiðstöðinni.
Ásdís Ágústsdóttir,
Sigurður Skúlason.
t
Otför föður okkar og tengda-
föður,
Jóhannesar Ásgeirssonar
Álftamýri 19,
er lézt í Landsspítalanum 1.
desember fer fram frá Frí-
kirkjunni mánudaginn 11.
desember kl. 1.30.
Jarðsett verður í gamla
kirk j ugarðinum.
Guðrún Jóhannesdóttir,
Sverrir Hermannsson,
Unnur Jóhannesdóttir,
Valur Jóhannsson,
Sjóley Jóhannesdóttir,
Sigurjón Guðjónsson.
góðgjarni, velviljaði maður, sem
öllum vildi vel og var sáttfús
og örfandi, þó fast væri staðið á
meiningunni á stundum. Ég hef
hitt marga menn á langri leið
og á ýmsum sviðum, blíða lognið
líkar mér ekki, hressandi kæla
er miklu betri og það stóð gjarn-
an svolítill gustur af Þórarni vini
mínum, hvar sem hann fór.
Með Þórarni er fallinn að velli
mikill og sérkennilegur persónu-
leiki, dugnaðarmaður og góður
drengur. Á meðan við erum
hérna megin vara í hugum okkar
minningar um forustumanninn,
dugnaðarmanninn og hinn góða
félaga.
í þeirri von að að Þórariren,
vinur minn skynji á einhvern
hátt, það sem um hann er sagt
í dag, þá þakka ég honum alla
vinsemd á liðnum árum, þakka
honum margháttaða félagsmála-
forustu, forsæti í Rotaryklúbb
Keflavíkur og svo fjölmargt ann.
að sem hugurinn staldrar við. Ég
veit að minn karl réttir mér
höndina, þegar ég lendi á sömu
strönd og hann hefur nú tekið
land. Ég kveð Þórarinn Ólafsson
með þakklæti og virðingu fyrir
samleiðina hérna megin. Fegin
vildi ég eiga hann að þegar þar
að kemur, eins og ég átti svo
oft á lífsferli okkar.
Helgi S.
Leiðrétting
á Volvo-verði
í VIÐTALI við Torben Friðriks-
son, innkaupastjóra Reykjavíkur,
sem birtist í Mbl. í gær. kom
fram misskilningur í sambandi
við verð á Volvo-bílum í Dan-
mörku og Bretlandi. Samkvæmt
brezka blaðinu Observer kosta
Volvobílar fyrst tim sirm það
sama í Bretlandi og fyrir geng-
islækkunina, en í Danmörku
hækkaði verð þeirra um 1/4 af
því, sem gengislækkun dönsku
krónunnar nam.
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og jarðar-
för móður minnar og tengda-
móður,
Elísabetar Ágústu
Hallmundsdóttur.
Sérstakar þakkir færum við
hr. Guðjóni Lárussyni lækni
og hjúkrunarliði Landakots-
spítala.
Gunnar Hinz.
Jóhanna G. Hinz.
Innilegt þakklæti til allra er
sýndu okkur samúð og vinar-
hug vi'ð andlát og jarðarför
móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
Tryggvinu S.
Sigurðardóttur
og sömuleiðis innilegar þakk-
ir til allra. á Hrafnistu.
Börn, tengdaböm og
baraaböm.
Fædd 1. september 1885.
Dáin 27. nóvember 1967.
Á bernskunnar dögum bærðir fót
um blikandi víðar lendur,
sem vallarins blóm af vænni rót
í varpa sem tigið stendur.
Þér bar ekki arfur auð aé völd
en útsjón og styrkar hendur.
Á grundunum þarna gæfan beið
með göfgandi ástarvarma
og saman þið genguð langa Icið
við lukkunnar bros og harma,
nær sextigu ára hönd í hönd
í heillandi trúar bjarma.
Já Drottinn gaf styrk í dagsins
önn
og dagarnir fagrir runnu.
Þig heilluðu tökin heil og sönn
og hendurnar þráðinn spunnu,
þú kveiktir í ranni kærleiks yl
á kertunum ljósin brunnu.
Af ljósunum stundum ljómann
dró
er léku sér ský á tindum.
En hamingjubros í huga bjó
frá heillandi gleði lindum
þvi barnanna leikir, bros, og tár
FÉLAGASAMTÖKIN Vernd,
munu eins og að undanförnu
hafa jólafagnað á aðfangadags-
kvöld í Góðtemplarahúsinu fyrir
þá, sem ekki hafa tækifæri til að
vera þetta helgasta kvöld ársins
hjá vinum eða vandamönnum.
Félagasamtökin hljóta að vísu
nokkurn styrk frá ríki og bæjar-
félögum til starfsemi sinnar, sem
er fyrst og fremst fangahjálp. Er
þessum jólafagnaði algjörlega
haldið utan við það. Það sem
stendur undir kostnaði við þenn-
an þátt starfseminnar er ein-
göngu hin alkunna rausn og
hjálpsemi Reykvíkinga, sem æfin
lega eru viljugir að veita þörfum
málefnum lið.
Mörgum stofnunum og einstakl
ingum eigum við það að þakka
að hægt hefur verið að halda
uppi þessari starfsemi, og jafn-
framt senda jólagjafir til þeirra,
sem af ýmsum ástæðum eiga
ekki von á þeim frá öðrum.
Seinasta jólafagnað Vemdar
sóttu yfir 50 manns, sem allir
fengu jólagjafir. Alls hafa verið
sendir út um 200 jólapakkar ár-
lega, síðan þessi stafsemi hófst.
Mögum hefur þótt gefast vel
að „heita“ á Vernd, en allar slík-
ar gjafir og áheit eru notuð til
matarkaupa, því þótt sorglegt sé
frá að segja koma daglega margir
á skrifstofu samtakanna á Grjó'-
argötu 14, sem eru matarþurfi.
Einnig hefur Vernd haft for>
göngu með að næturgestum
Fangageymslunni í Síðumúla sé
gefin heit súpa, áður en þeir fara
útá götuna aftur.
Allt þetta kostar mikið fé, og
teystum við því eins og áður á
hjálp og velvilja Reykvíkinga til
þess að hægt sé að halda þessari
starfsemi áfram, svo að enginn
þurfi að sitja einn, kaldur og
svangur á aðfangadagskvöld.
Jólanefnd Verndar skipa þess-
ar konur: Sigríður J. Magnús-
son, sími 12398, Lóa Kristjáns-
dóttir, s. 12423, Rannveig Ingi-
mundardóttir 12385, Hanna Jó-
hannessen s. 13677, Emilía Hún-
27 í Fél. ísl.
listdansara
Aðalfundur Félags íslenzkra
listdansara var haldinn laugar-
daginn 18. nóv. 1967.
Stjómin var endurskosin, en
hana skipa: Ingibjörg Bjömsdótt
ir, formaður, Edda Scheving, rit-
ari, Ingunn Jensdóttir, gjaldkeri,
Sigrún Ólafsdóttir og Guðný Pét-
ursdóttir meðstjórnendur.
Meðlimir Félags íslenzkra list-
dansara eru nú 27.
þér birtust í ótal myndum.
Nú stundaglas lífsins stöðvað er
og stirnuð er hagleiks mundia.
En ástkæra minning undin sker
svo orpin er móðu grundin.
Frá árroðans landi birtu ber
og blessi þér Drottinn fundirm.
Einar Eyjólfsson.
fjörð s. 81833 og Unnur Sigurð-
ardóttir, s. 17880.
Skrifstofa Verndar er opin alla
daga frá 9—12 f.h, og frá 4—10
e.h.
Sigríður J. Magnússon.
—UTAN ÚR HEIMI
Framh. af bls. 16
vart Biaframönnum.
Hinsvegar virðast Biaf-a-
menn ekki lengur skoða
sendinefndina líklega til að
verða þeim að neinu gagni.
Upphaflega var það að
frumkvæði Biafra, að OAU
ákvað að senda sendinefnd.
Tilgangur þeirra var auðvit-
að sá lað öðlast viðurkenmngu
á skilnaðarríki þeirra og mál
stað. Þeir sáu fram á mögu-
leika slíkrar sendinefndar til
að miðla málum — undir
vernd hlutlausra manna —
sem gæti dregið úr bardög-
um og komið í kring viðun-
andi samkomulagi.
En sú von er löngu að
engu orðin. Fyrst sendineínd
in byggði afstöðu sína að
mestu — ef ekki öllu — á
skilmálum sambandsstjórnar-
innar, gátu Biaframenn litlar
vonir haft um að græða neitt
á henni. Eftir að Tubman for
seti hafði talað utan dagskrár
og formælt Biaframönnum,
toku þeir að ráðast að hlut-
verki sendinefndarinnar opin
berlega og sökuðu suma
nefndarmenn um að 'nafa
„fallið fyrir illkvittnislegum
lygaáróðri Gowons“.
En hafi Tubman fcrseti
lent í árekstri við Biafra, þá
varð Ankrah hershöfðingja
hið sama á við sambands-
stjórnina, samkvæmt skýrsl-
um, sem komu fyrir Samein-
uðu Þjóðirnar. En þó að Tub
man hafi sagt af sér sjálfur,
þá hefur Ankrah ekki gert
slíkt hið sama.
Eins og mál nú standa, er
það engan veginn Ijóst, hvort
friðstillarnir komast yfirleitt
nokkurntíma til Biafra. Þess
vegna eru sem stendur svo
litlar horfur á raunhæfri af-
rískri milligöngu. En eins og
ég bef þegar bent á, verða
menn að reikna með slyng-
leik keisarans og samverka-
manna hans þirggja. Ef nokk
ur ráð eru til að leysa vand-
ann, munu þeir finna þau.
Og jafnvel þótt þeir geti ekki
framkvæmt neitt bráðlega,
gætu þeir enn orðið þess um
komnir að koma málinu á
rekspöl.
(Observer — öll réttindi á-
akilin)
Jólafagnaður Verndar