Morgunblaðið - 19.12.1967, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.12.1967, Blaðsíða 11
M.ORGUNBLARIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19, DES. 19«7 11 á sér stað í hernaðarátökum nútímans? Daglegt Hf víkinganna En það er ótal margt fleira en hernaður og sæfarir, sem tek ið er til meðferðar í Víkingun- um. Þar er engu síður fjallað um daglegt líf víkinganna, hús- búnað og heimilisháttu, klæðn- að og áhöld, heimilisiðnað og atvinnuvegi, trú, siðferði og aldarfar, og kannske eru þetta einmitt þeir meginkaflar í bók inni, sem lesendum verða for- vitnilegastir og miðla þeim mestu af skemmtilegum og ný- stárlegum fróðleik. Allar þær frásagnir, sem margar hverjar eru komnar til skjalanna við nýjar rannsóknir, leiða glögg- lega í ljós háþróaða menningu í list og verktækni, menningu, sem hefur í raun verið auðug og fjölbreytileg langt fram yf- ir það, sem flesta hefur órað fyrir. En þetta efni er víðtæk- ara en svo, að það verði rak- ið hér. Menn verða sjálfir að kynnast því af máli og mynd- um bókarinnar og ef til vill verður þá skiljanlegra eftir en éður, hvers vegna nokkurs stór lætis kann að hafa gætt í hegð- un og yfirbragði þessara for- feðra okkar. Menning, sem stóðst ekki erlend áhrif En hvað bar þá til þess, að saga víkinganna varð víðast hvar jafnendaslepp og raun bar vitni? Um það segir í bókinni m.a. á þessa leið: „Það kann í fyrstu að þykja einkennilegt, að hvar sem víkingar unnu lönd og settust að tóku þeir upp menningu og háttu landsmanna. En skýringin er einungis sú, að þeir voru ofurliði bornir — máttu ekki við margnum. Bæði fyrir eigin vaskleik, fullkomn- ari hertækni og þá örvilnun, sem rak þá að heiman og beið þeirra, ef þeir ekki sigruðu, höfðu þeir undirokað fleira fólk og stærri svæði en þeir réðu við. Við það að verða far- menn hafði einnig losnað um rætur þeirra í menningu heima landsins. Jafnvel sænsku land- námin og verzlunarstöðvarnar í austurvegi hurfu, þó að þar væru engir menningarlegir yf- irburðir fyrir. Þá er og auðskil ið, hvers vegna þeir féllu einn- ig fyrir kristninni, því að á seinasta skeiði víkingaaldar höfðu þeir ekki lengur neina trú til að etja gegn hinum nýja sið. Auk þess var siðfræði vík- ingaaldar, eins og hún' kemur fram í Hávamálum, góður jarð vegur fyrir hinar kristnu kenn ingar.“ Hin margháttuðu tengsli við meginlandið leiddu þannig til þeirrar þróunar, sem mark- aði fyrr en varði „endalok ein- staklingsbundinnar menning ar víkinganna sjálfra og hinna sérstæðu stjórnmálalegu áhrifa þeirra. Því að fljótlega eftir að kristin trú fór með sigur af hólmi á Norðurlöndum um 1000 og flutti með sér vest- ræna menningu, leið undir lok sérstæð og sjálfstæð menning, sem frá listasjónarmiði stóð fyllilega jafnfætis hvaða menn ingu annarra sem var. Og Norðurlönd fengu hlutskipti út kjálkans í hinu kristna samfé- lagi.“ ----O---- Það er skemmtilegt til að vita, að þessi merka og mikil- fenglega bók skuli til orðin fyrir menningarlega samvinnu margra þjóða, og Almenna bókafélagið á einnig þakkir sklldar fyrir að hafa komið henni á framfæri við íslenzka lesendur. Hún á ugglaust fyrir sér að verða kjörgripur á mörgum heimilum og auka stórum þekkingu okkar allra á norrænni fortíð. Hárgreiðslustofan Guðrún í nýju húsnæði í Hafnarfirði þarna á boðstólum snyrtivörur frá Germaine Monteil og enn- fremur selur hún h/árkollur. fOlíkfundin Point Pleasant, 17. des. — AP ALLS hafa nú fundizt 10 fórn- arlömb hins hörmulega slyss í miðríkjum Bandarikjanna á föatudag, er brúin yfir Ohio- fljótið hrapaði á mesta ximferð- artímanum. Brú þessi tengir saman Ohio-fylki og V-Virginíu. Um 100 manns er saknað, en 75 bifreiðir steyptust í fljótið, er brúin, siem er um 400 metra löng, hrapaði. Tugir froskmanna og kafara hafa unnið slieitulaust að björg- unarstörfuim í fljótinu, en erfitt er um vik að ná >upp bílunum sökum þess, að þeir eru flestir fastir undir stáltoituim og toraki úr brúnni. Hafa kafararnir koan- ið auga á 40 einkabíla og 17 vöru fl'utningatoíla á botni fljótsins. Öll uimferð um fljótið á 60 km. svæði hefur verið bönnuð og hafa verkfræðingar í 'hyggju að byggja stíflu ofan við slyssvæð- ið til að grynnka vaitnsfla«um- inn, en á slysstaðnum er fljótið frá 10—20 metra dijúpt. Brúin, sem hrapaði var 40 ára gömul og var í ráði að opna aðra nýja nú um hielgina án þess þó að taka hina gömiu úr notkun. NÝLEGA tók Hárgreiðslustofan Guðrún í Hafnarfirði til starfa í nýju húsnæði. Stofan hefur undanfarin sjö ár verið til húsa að Reykjavíkurvegi 16, en hefur nú flutt í glæsilegt húsnæði í stórhýsi Olivers Steins, bóksala, að Strandgötu 31, og er hár- greiðlslustofan fyrsta fyrirtækið, sem þar hefur rekstur. Eigandi stofunnar er Guðrún Magnúsdóttir og tjiáði hún blaða- mönnum, að auk hennar ynnu þrjár stúlkur á stofunni og er hægt að afgreiða 10 viðskipta- vini í einu. Hefði ekkert verið til sparað til að gera hárgreiðslu- s'tofuna eins fullkomna og kostur var á. Hárþurrkur eru af gerð- inni Kadus, framleiddar i Þýzka landi og eru þær að sögn Guð- rúnar mjög fuHkomnar. Þá er þarna nýtt tæki, sem ekki mun vera til annars staðar hérlendis, en það er tæki til hárlitunar. Er það með últrarauðum geisl- um og hefur í för með sér, að tíminn til ‘hárlitunar styttist um allt að 35 mínútur. Annars eru öll tæki af nýjustu gerð, og að sögn Guðrúnar, er með þeim toægt að stytta hina ýmsu þætti hársnyrtingar kvenr.a til muna. Nýja húsnæðið er mjög snyrti- legt og vandað að sjá, en Guðrún og eiginmaður hennar Einar Þór Jónsson, húsgagnasmiður, 'hafa séð um innréttingu á stofunni. Hárgreiðslustofan mun veita ýmsa aðra þjónustu, t.d. verður - ASTRALIA Framhald af bls. 1. þangað fór hann á sunnudaginn með vini sínum, Alan Stewart að nafni. Eftir hádegið fóru þeir niður til strandarinnar til að synda, en Holt var talinn frátoær sundmaður og stundaði oft fisk- veiðar neðansjávar, klæddur froskmannsbúningi. Að þessu sinni var hann ekki klæddux köfunarbúningi, enda hafði l'ækn ir hans ráðlagt 'honum að hvíla sig á köfun um skeið vegna eymsla í öxl. Sitewart stóð á ströndinni á meðan Holt synti í sjónum. Ráðherrann- var kom- inn um 100 metra frá landi er hann stakk sér í eina ölduna, að sögn Stewarts, en talsvert brim var þar úti. Ekki er vitað hvað varð um Holt eftir þetta. Tal'ið er líklegt, að toann hafi lent í útsogi og borizt á toaf út, en einnig getur hann hafa fengið krampa. Þá er á það bent að óvenju mikið sé um hákarl þarna út af strönd- inni. Sagt er, að Holt hafi naum- lega sloppið undan úitsoginu þarna fyrir viku. Hafi það þá orðið honum til lífs, að hann var með blöðkur á fótunum, sem gerðu honum fært að synda út úr straumnum. Á þessium sömu slóðum hvarf fiskimaður einn fyrir um tveimur árum, og hef- ur ekkert til toa-ns spurzt síðan. Strax og fréttist a-f hvarfi for- sætisráðtoerrans, streymdu björg unarsveitir á vettvang, og hófst viðtækasta leit sem gerð hefur verið í Ástralíu. L/eitað var úr þyrlum m-eðfram strandlengj- unni og út á haf, og um þúsund m-anna lið leitaði á landi. Auk þess voru froskm-enn sendir á vettvang með þyrlu-m og flugvél um, og leituðu þeir á hafsbotni. Á mánudag var leitinni toaldið áfram árangurslau-st, og henni verður haldið enn áfram um skeið. Frú Zara Holit, kona forsætis- ráðtoierrans, var stödd á heimili þeirra hjóna í Ca-nberra, höfuð- borg Ástraliu, þegar -hún fékk fréttir af hvarfi manns síns, og fór toún þá fl'ugleiðis til Mei- hourne og þaðan til Portsea. Þegar leið á sunnudaginn vernsuðu mjög aðsitæður til 1eit- ar. Mikið brim var við strönd- ina og ölduhæðin nærri fimcn metrar. Hvolfdi einum leitarbát- anna í brim-inu, en áhöfn hans var bjargað mieð þyrlu, sem fl'utti m-ennina til lands. Veður var slæmit á mánudag og tal's- vert brim við ströndi-na, en leit- inni var þó haldið áfram eftir því sem unnt var. Flestir höfðu þó gefið upp alla von um að ráð herrann gæti enn verið á lífi. John McEwen, s-em tekið hef- ur við forsætisráðtoerraemtoætt- inu til bráðabingða, kom til Can- berra í gær, sunnudag. Hann er 67 ára og toefur átt saeti á þingi í rúm 33 ár. McEwen er for- maður bændaflokksins, sem tek- ið hefur þátt í stjórna-rsamvinnu um margra ára skeið, og toefur McEwien sjálfur gegnt ráðtoerra- emtoættum samfleytt í 30 ár, en verið varaforsætisráðtoerra frá því snemma á árinu 1958. Þótt hann nú taki við forsætisráð- herraemibættinu, er ekki talið, að hann gegni því til lengdar, því fullvíst þykir, að einhver fl'okksbræðra Holts úr Frjá s- lynda flokknum verði skipaður í emtoættið innan tíðar. Koma þar aðallega fjórir menn til 'greina: Paul Hasluck, utanríkisráðherra, William McMahon, vara-formað- ur flokksins, All-en Fairhall, varnar-málaráðherra og Leslie Bury, verkamálaráðherra. „Kvlður al Got- um og Húnum“ — með skýringum Jóns Helgasonar HEIMSKRINGLA hefur sent frá sér bókina Kviður af Gotum og Húnum í samantekt og með skýringum Jóns Helgasona-r, pró fessors í Kaupmannahöfn. í upph-afs-kafla bókarinnar seg ir, að hér standi saman í bók þrjú fornaldarkvæði um atburði 4 Jón Helgason prófessor. sem gerast með Gotum og Hún- um og í einu þeirra er sagt fná stórorustu milli þessara þjóða. Síðan eru sögð nokkur deili á báðum aðilum og skiptum þeirra hvor við aðra. Annar kafli er Hamdismál. Höfundur segir m.a. að aftast á konungsbók Eddukvæða standi tvö kvæði um Guðrúnu Gjúka- dóttur og sonu toennar tvo, Ham-di og Sörla. Fyri-rsagnir þessara kvæða eru í handritinu „Guðrúnarhvöt“ og ..Hamdis- mál“. Frarnan til eru þau ná- skyld, en með niunda erindi í Guðrúnarhvöt, ellefta í Hamdis- málum skilja leiðir.. í Hamdis- málum er bræðrunum fylgt og sagt frá aðförinni að Jörmun- reki. 1 næsta kafl-a bókarinna-r er síðan fjallað um Guðrúnarhvöt, en hún er , Eddukvæðatoandrit- inu milli Atlamála og Hamdis- mála, sem fyrr segir. Að efni er hún samsett a-f tveimu-r hlutum og átta fyrstu erindin eru þau sem kvæðið dregur nafn sitt af: þar hvetur Guðrún sonu sína til að hefna Svanhildar, hörkufull og heiftúðug. En síðan skiptir um. Þegar Sörli og H-amdir eru farnir af stað í þá för sem end- aði á tortímingu beggja, rekur hún ævisögu sína grátandi og harmþrungin og býst að lokum til að deyja. Hlöðskviða er síðasti kafli bók arinnar. í upphafi hans segir próif. Jón Helgason að Heiðreks saga, öðru nafni Hervarar sögu og Heiðreks konungs geymi fjöl breyttari og fróðlegri kveðskap en nok-kur fornald-arsaga önnur. Aftan til í henni er sagt frá mik- illi orrustu milli Gota og Húna. Þar eru felld inn í erindi um þennan bardaga og tildrög hans og ekki annað sýnna, en þau hljóti að eiga heima í kvæði sem verið -hafi heimild (höfund- ar á þessum kafla. Þá hafa ma-rg ir hallazt að því að kvæðið mundi helzt eiga heima í flokki Eddukvæða, þó að sá maður er saman tók syrpu slíkra kivæða sem varðveitt er á konungsbók hafi ekki þekl*t það eða hafnað því, og jafnvel verið talið að þvi væri skipandi á bekk með hin- um fornlegustu Eddukvæðum. GRILL INfRA-REO GRILLFIX grillofnarnir eru þeir fallegustu og fullkomn- ustu á markaðinum, vestur- þýzk framleiðsla. ■k INFRA-RAUÐIR geislar ★ innbyggðuT mótor ★ þrískiptur hiti ■k sjálfvirkur klukkurofi ★ innbyggt ljós ★ öryggislampi •k lok og hitapanna að ofan ár fjölbreyttir fylgihlutir GRILLFIX fyrir sælkera og þá sem vilja hollan mat — og húsmæðumar spara tíma og fyrirhöfn og losna við steikarbræluna. Afbragðs FONIX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.