Morgunblaðið - 19.12.1967, Síða 32
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1967.
ASKUR
Suðurlandsbraut 14 — Sími 38550
Gdð síldveiði eystra
Torfurnar stærri en undanfarið
Á LAUGARDAGINN var komið
gott veður á síldarmiðunum, en
veiðisvæðið yfir helgina var
70—80 sjómilur suð-austur af
Dalatanga. Sildin stóð yfirleitt
djúpt, enda bjart af tungli, og
var hún í stærri torfum en und-
anfarið, þar sem sumar torfurn-
ar voru meira en undir nót.
Samkvæmt upplýsingum síld-
arradíósins á Neskaupstað lönd-
uðu eftirtalin skip eystra á
sunnudag:
Hoffell 110 tonn, Hólma-
nes 180 tonn, Sveinn Svein-
7 innbrot um heigina
björnsson 110 tonn, Bjartur 180
tonn, Heimir 220 tonn, Gunnar
80 tonn, Giedon 140 ton, Dagfari
60 tonn, Birtingur 130 tonn, Bára
70 tonn, Sigurbjörg 200 tonn,
Guðbjörg IS 65 tonn.
Sigurbjörg sigldi með 200 tonn
til Ólafsfjarðar.
í dag hafa tilkynnt síld: Sig-
urður Jónsson 100 tonn, Guðrúr
Þo rkelsdóttjr 240 tonn, Hafdís
50 tonn, Börkur 280 tonn,
Krossanes 140 tonn, Gígja 300
tonn, Margrét 120 tonn, Reykja-
borg 80 tonn og Guðbjörg IS 140
tonn.
1?
Selvogsleðursblakan í vígahug
BROTIZT var inn á sex stöð-
um aðfaranótt sunnudags og
eitt innbrot var framið aðfara-
nótt mánudags.
Góð veiði
— ef veður helzt
MBL. hafði í gær samband
við Jakob Jakobsson fiski-
fræðing og sagði hann, að
norski síldarstofninn væri
enn þá fyrir Austurlandi
og væri síldin nú komin í
mjög stórar og góðar vetr-
artorfur. Menn gætu því
gert sér vonir um góða
veiði, ef veður héldist, en
það hefði fyrst og fremst
hamlað veiðunum í haust.
Brotizt var inn í veitingastað-
ina Hábæ og Glaumbæ og er tal
ið, að einhverju af víni hafi ver
ið stoiið. í Glaumbæ var .vin-
skápurinn brotinn upp. en um-
gengnin í Hábæ var öllu verri,
því þar vom öll símtól eyðilögð
og ýmislegt fleira brotið og
bramlað.
Þá var brotin stór rúða í hurð
á Tóna.bíó og farið þar inn og
leitað. Taiið er, að innbrotsmað-
urinn hafi haft á brott með sér
eitthvað af tóbaki o.g sælgæti.
Lúga var fjarlægð fná söluopi
á Tjarnarbar í Tjarnargötu og
stolið þaðan einhverju af tóbaki.
Brotizt var inn í matsölu að
Austurstræti 12 og stolið það-
an matvælum og einu máfa-
stelli.
Sjötta innibrotið aðfaranótt
sunnudags var svo í hesthús við
Elliðaár. Þaðan var stolið rúm-
Framhald á bl's. 31.
Leðurblokur á
Talið að þær komist hingað
af eigin rammleik
í höndum dr. Finns.
í SÍÐASTA hefti tímaritsins
Veðrið skrifar Jónas Jakobs-
son grein, er hann nefnir:
Leðurblökur á íslandi, þar
sem hann kemst að þeirri
niðurstöðu, að mjög miklar
líkur séu til þess, að hrím-
blökur þær, sem hér hafa
fundizt, hafi komizt hingað
af eigin rammleik með loft-
straumum frá Labrador.
í upphafi greinar sinnar
segir Jónas Jakobsson, að dr.
Finnur Guðmundsson hafi
farið þess á leit við sig, að
hann kannaði veðurlag og
vinda vestan um haf á þeiim
tíma, sem leðurblökutegund-
ar þeirrar, sem hér hefur
fundizt fjórum sinnum, hrím
blökunnar, varð vart.
Hrímblakan fannst fyrst 9.
sept. 1943 á Hvoli í Mýrdal
í kartöflugarði 200 m frá
sjávarmáli. Lá hún þar i
loðnu grasi, blaut og úfin, en
Vinningsnúmerið
25489
DREGIÐ var í happdrætti
Sjálfstæðisflokksins sl. föstu-
dag hjá borgarfógeta. Vinn-
ingsnúmerið var þá innsiglað,
þar sem skil höfðu ekki bor-
izt frá öilum umboðsmönnum.
En í gær var innsiglið rofið
og kom þá upp vinningsnúm-
erið 25489 — Aðalvinningur-
inn í happdrættinu er Dodge
Dart-bifreið, og getur eigandi
vinningsmiðans haft samband
við skifstofu Sjálfstæðis-
flokksins í Sjálfstæðishúsinu
við Austurvöll.
Útsöluverö mjólkur hækkar ekki
Samkomulag I sexmanna-
nefnd um búvöruverð
í FYRRINÓTT varð sam-
komulag í .sexmannanefnd
um verðlag landbúnaðarvara,
sem hækkar nokkuð vegna
gengisbreytingarinnar. Hins
vegar verður útsöluverð
mjólkur ekki hækkað og aug-
lýsing um hækkun þess, sem
birt var í gærmorgun því á
misskilningi byggð.
Ekki liggur enn fyrir hve
hækkun á landbúnaðarvörum
verður mikil en tiikynningar um
það má vænta síðari hluta dags
í dag. Um þessa hækkun varð
hins vegar samkomulag miili
fulltrúa framlei'ðenda og neyt-
enda í sexmannanefnd. Jafn-
framt hefur yfirnefnd fellt úr-
skurð um dreifingarkostnað á
búvöru en sexmannanefnd náði
ekki samkomulagi um það at-
riði. ,
Úlvaður bílþjófur eltur
DRUKKINN bílþjófur náðist
eftir nokkurn eltingarleik að-
faranótt sunnudags og tóku
nokkrir leigubílstjórar af BSR
Utsvar aöeins frádráttarbært, aö
helmingur sé greiddur fyrir 1. júlí
— Stjórnarfrumvaip d Alþingi,
að ósk Sambands íslenzkra sveitarfélaga
I GÆR var lagt fram á Alþingi
stjórnarfrumvarp um breytingu
á lögum um tekjustofna sveitar-
félaga. Aðalefni frumvarpsins
er eftirfarandi:
Skýrari ákvæði eru sett um
aðstöðugjaldstofn í samræmi við
þá framkvæmd álagningar
skattayfirvalda sem tíðkazt hef
ur. Breytingin er talin nauðsyn-
leg vegna nýgengis Hæstarétt-
ardóms.
Útsvör verða aðeins frádráttar
bær, ef helmingur þeirra er
greiddur fyrir 1. júlí ár hvert
og hinn helmingurinn fyrir árs-
lok. Samkvæmt núgildandi á-
kvæðum eru þau dregin frá
tekjum, ef þau eru aðeins greidd
að fullu fyrir áramót.
Að samræmd verði álagning
eignaútsvara og álagning eigna-
skatts, svo að eignarútsvar
verði jafnhátt og eignarskattur.
Vegna þeirrar hækkunar, sem nú
er áformuð á eignarskatti, verð-
ur hér um að ræða möguleika á
nokkurri tekjuhækkun hjá kaup
stöðum og kauptúnahreppum.
Framlengd verður heimild til
að vikja frá ákvæðum skatta-
laga um frádrátt vegna tekna,
sem eiginkona aflar, um tap frá-
dráttar á milii ára, um gjafir
til menningarmála o.fl., um sjó
mannafrádrátt*og um varasjóðs-
frádrátt.
í ' greinargerð frumvarpsins
þar sem frumvarpsgreinarnar eru
ítarlega útskýrðar kemur fram,
að frumvarp þetta er flutt sam-
kvæmt eindreginni ósk stjórnar
Sambands ísl. sveitarfélaga.
5
DAGAR
TIL JÓLA
hresstist brátt, er hún var
tekin í hús.
Næst fannst hrímblaka í
Selvogi hinn 8. okt. 1957 é
túninu að Bjarnarstöðum. Var
hún blaut og dösuð, en hresst
ist brátt, eftir að hún var
tekin í hús.
Þá náðist hrímblaka hinn
9. des. 1957 í Vestmannaeyj-
um, þar sem hún hékk á suð
urgafli leikfimihúss Gagn-
fræðaskólans. Nokkra næstu
daga á undan höfðu nemend
ur skólans veitt eftirtekt sér
kennilegri klessu á gafli skól
ans í töluverðri hæð, en það
Framhald á bls. 31.
7 bátar teknir
í landhelgi
SAMKV. upplýsingum Land-
helgisgæzlunnar tók þyrla henn
ar, Eir, 7 báta að ólöglegum veið
um á laugardaginn, þar af 5
grunna undan Stokkseyri og 2
í Garðasjó.
Örn
í Hval-
þátt í eltingarleiknum auk lög-
reglunnar.
Laust eftir klukkan tvö um
nóttina hringdi maður í lögregl-
una og sagði, að bilnum sínum
hefði verið stolið og kvaðst hann
hafa séð þjófinn aka upp Hofs-
vallagötu.
Lögreglan hóf þegar eftirför
og jafnframt voru leigubílstjór-
ar beðnir að svipast um eftir
stolna bílnum. Bílstjóri frá BSR
tilkynnti svo skömmu síðar, að
hann sæi til ferða bílsins og
kvaðst mundu veita honum eft-
irför.
Á endanum var bílþjófurinn
króaður af og eftir nokkur hlaup
gafst hann upp fyrir ofureflinu,
þá staddur á Landakotstúni, og
tók lögreglan hann í sína vörzlu.
í Ijós kom, að bílþjófurinn var
sautján ára piltur og undir á-
hrifum áfengis, en hann hefur
áður orðið uppvís að sams kon-
ar bro+i og þessu.
firði
FYRIR nokkrum árum héldu
tveir ernir til í Hvalfirði, ann
ar gamall, en hinn ungur. Sá
gamli drapst, en um svipað
leyti hvarf sá ungi. Laust fyr
ir hádegi í gær bar svo við,
að Magnús Thorvaldsetn í 1
Borgarnesi sá örn í fjörunni
við Múlafjall milli Brynju-
dals og Botndals.
Magnús var á leið frá
Reykjavík, þegar hann sá
fugl sitja á steini við fjöru-
borðið. I fyrstu hélt hann að
þetta væri hrafn, en fannst
hann nokkuð stór. Stanzaði
hann bílinn, en fuglinn flaug
þá upp og sá Magnús þá
strax, að hér var öm á ferð.
Flaug hann mjög nálægt hon
um og hélt síðan inn með múl
anum í átt að Botnsdal. Ók
Magnús á eftir erninum í
nokkrar mínútur þar til hann '
settist á klett niður við fjöra.
Var þetta ungur fugl, hugs-
anlega sá sami og hafði áður
búsetu í Hvalfirði.