Morgunblaðið - 12.01.1968, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1968
Nær þriðjungur
íslendinga í skóla
Fleiri bækur og meiri
skemmtanir á sl. ári
UPP UNDIR þriðjungur fslend-
Inga er tengdur skólastarfi, sem
nemendur og kennarar og liðlega
sjötti hluti af gjöldum rikisins
gengur til þessara mála. Hér
starfa nú 206 bamaskólar með 27
þúsund nemendur og 1267 kenn-
urum og 214 gagnfraeða- og fram
halds og sérskólar með 26 þúsund
nemendum og 2134 kennurum.
Þessar tölur tók Vilhjálmur Þ.
Gíslason saman fyrir áramóta-
spjal'l sitt, sem var > að venju
fullt af tölulegum upplýsingum,
sem gefa hugmynd um önn og at-
höfn líðandi árs. Tökum við hér
nokkrar slíkar fróðlegar glefsur
úr ræðu hans.
Bókaútgáfa er meiri en í fyrra,
gagnstætt því sem búizt var við,
320 jólabækur auk 100 námsbóka
og margra opinberra bóka og
skýrslna.
Aðsókn að Þjóðleikhúsinu hef
ur aukizt í haust. Aðsókn að
Markaðsmólin
aðaleíni þings
Norðnrlanda-
róðs
Stokkhólmi, 10. jan. NTB.
■Jc FORSETAR Norðurlandaráðs
hafa ákveðið, að aðalefni næsta
þings ráðsins, sem verður í Osló
í febrúar n.k. verði markaðsmál-
in.
Meðal annarra mála, sem þar
verða til umræðu. má nefna
fyrirætlanir um umferðina um
Eyrarsund og hvernig unnt er að
auka samband Norðurlandaráðs
og ríkisstjórna landanna. Þá
samþykktu forsetar ráðsins, að
bjóða fulltrúum ríkisstjórnanna
og samtaka, er annast upplýs-
ingastarfsemi, til ráðstefnu í
Helsingör dagana 19.—20. apríl
nk. um menningarmiðlun.
kvikmyndahúsum hefur sums
staðaT xninnkað, en ekki aðsótkn
að almennum skemmtistöðum.
Og tónleika sækja menn eins
mikið eða meira og eins íþrótta-
mót. En kirkjusókn mun breytast
lítið. Sjónvarpstæki eru orðin allt
að 22 þúsund og útvarpsviðtæki
á annað hundrað þúsund.
Á þessu ári hafa farið til út-
landa yfir 28 þúsund manns og
fengið í gjaldeyri 350 milljónir
kr., auk fargjalda. En erlendir
ferðamenn hafa skilað gjaldeyri
um 90 milljónum kr.
í ár var byggt fyrir um 3600
milljónir kr. og eru þá ekki tald-
ar með framkvæmdir við Búrfell
og í Straumsvík. Talið er að 1800
milljónir kr. fari til íbúðabygg-
inga og um 1700 íbúðir munu
hafa verið íullgerðar á árinu af
3802 sem í smíðum voru í árs-
byrjun.
Og að lokum: Um áramótin
áttu landsmenn inni í bönkum og
sparisjóðum 10 þúsund milljónir
króna, en í fyrra var talan 9
þúsund milljónir.
Báðir bílarnir skcmmdust nokkuð.
Harður árekstur á Reykjanesbraut
TVEIR ökumenn meiddust í
hörðum árekstri á Reykjanes-
braut síðdegis í gær. Hlaut ann-
ar áverka á höfði og fæti, en
hinn meiddist á fæti. Þeir voru
báðir fluttir í Slysavarðstofuna,
en meiðsli þeirra voru ekki tal-
in alvarlegs eðlis.
Hávaðarok var og slydda, þeg
ar áreksturinn varð, og gatan
sleip. Lítill fólksbíll var á leið
suður Reykjanesbraut, þegar öku
máðurinn missti allt í einu vald
á bílnum og rann hann yfir á
vestari vegarhelming í veg fyr-
ir jeppa og skullu bílarnir sam-
an.
Báðir bílarnir skemmdust
nokkuð en fólksbíllinn þó
meira. Varð að fá kranabíl til
að fjarlægja báða bílana.
Hefja ekki rekstur fyrr en
viðunandi grundvöllur fæst
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús.
anna efndf til aukafundar í dag
(11. janúar) um starfsgrundvöU
hraðfrystihúsanna.
Hófst fundurinn kl. 14.00 og
var fundarstjóri kjörinn Jón
Árnason, alþm., Akranesi.
Björn Halldórsson, frkv.stj., og
Árni Finnbjörnsson sölustjóri
gerðu grein fyrir sölu- og mark-
aðsmálum, Einar G. Kvaran,
frkv.stj. skýrði frá framleiðslu-
málum og Eyjólfur ísfeld Eyjólfs
son flutti skýrslu um störf yfir-
nefndar Verðlagsráð sjávarút-
vegsins við ákvörðun fiskverðs
og um rekstrargrundvöll hrað-
frystihúsanna.
Umræður urðu um vandamál
hraðfrystiiðnaðarins og sam-
þykkti fundurinn síðan sam-
hljóða hjálagðar ályktanir:
Með skírskotun til samþykktar
aukafundar 23. öktóber 1967 stað-
festir aukafundur S.H. haldinn
11. janúar 1968 ákvörðun stjórnar
S.H., um að hraðfrystihús innan
samtakanna hefji ekki rekstur
fyrr en viðunandi starfsgrund-
völlur hefur fengizt. Jafnframt
beinir fundurinm þeim tilmælum
til þeirra hraðfrystihúsa. sem
þegar hafa hafið fiskmóttöku, að
þau stöðvi rekstur eigi síðar en
innan 10 daga, hafi starfsgrund-
völlur ekki fengizt innan þess
tíma.
Aukafundi þessum verði ekki
slitið og er stjóminni falið að
boða til framhaldsfundar, ef hún
sér ástæðu til..
Aukafundur S.H. haldinn 11.
janúar, 1968 samþykkir að mót-
mæla framkomnu frumvarpi til
laga á Alþingi um breytingu á
lögum nr. 51, 10. júní 1964 um
tekjustofna sveitarfélaga.
Fundurinn felur stjórn og fram
kvæmdaráði S.H. að fylgja mál-
inu eftir og skýra afstöðu frysti-
húsanna fyrir ríkisstjórn og Al-
þingi.
Vegurinn tii
Siglufjarðar
ruddur
BÆ, Höfðaströnd, 11. jan.:
MIKLAR umhleypingar hafa ver.
ið hér að undanförnu, en sæmi-
legt veður í dag. í gærmorgun
var byrjað að ryðja veginn til
Siglufjarðar og var hann opnað-
ur. núna síðdegis. Mikil fönn var
á veginum.
Róðrar eru byrjaðir frá Hofs-
ósi og reytingsafli fengizt. —
Brotíst á snjóhílum
ytir Fjarðarheiði
Grænlenzkar stúlkur á
flæðiskeri í Kaupmannah.
DANSKA blaðið POLITIK-
EN skýrir frá illum örlögum
fjölda grænlenzkra stúlkna,
sem bundizt hafa dönskum
verkamönnum er þeir dvöldu
á Grænlandi og tekið stúlk-
urnar með sér heim til Dan-
merkur. í greininni segir að
um eitt hundrað grænlenzk-
ar stúlkur ráfi nú um í reiði-
leysi í Kaupmannahöfn, eft-
ir að hinir dönsku ástmenn
eða eiginmenn þeirra hafi
svikið þær eða rekið þær á
dyr.
POLITIKEN hefur tekið
fréttina úr grein í „Græn-
landspóstinum" en hana rit-
ar Elinor Bryld, félagsráð-
gjafi og forstöðukona græn-
lenzkrar ráðleggingarskrif-
stofu, sem sett var á stofn
fyrir hálfu ári. Á þesisum
tíma hafa um 80 stúlkur snú
ið sér til skrifstofunnar til
að fá hjálp — og hún hefur
verið veitt þeim í öllum til-
fellum. Allar stúlkurnar hafa
farið til Danmerkur til að
búa með Dönum, sem þær
hafa kynnzt á Grænlandi.
Hér er því ekki um að ræða
stúlkur, sem sendar eru til
Danmerkur til að mennta sig.
Yfirvöldin dönsku fylgjast
náið með þeim og yfirleitt
gengur þeim vel.
Stúlkurnar sem leita til
skrifstofunnar hafa verið
sviknar af mönnum þeim,
sem þær hafa búið með. Fýrst
ráfa stúlkurnar um í reiði-
leysi á götunum, vegna þess
að þær hafa ekki hugmynd
um> hvert þær eiga að leita
og þegar skrifstofan hefur
upp á þeim, harðneita þær
að snúa aftur heim til Græn-
lands, vegna þess að þær
skammast sín.
Félagsráðgjafinn nefnir til
dæmis eina unga grænlenzka
móður með fimm börn, tvö
kornu með henni frá Græn-
landi og síðan hafa þrjú
bætzt við. Maður hennar rak
hana á dyr og síðan flakkaði
hún frá einni knæpu til ann
arar, bjó um tíma með öðrum
manni. en hann varð einnig
þreyttur á henni og ,rak íana
frá sér. Skrifstofan segist nú
hafa tekið konuna upp á
arma sér og muni sjá um
hana, en heim til Grænlands
vill hún ekki fara fyrir nokk-
urn pening.
Auk þeirra stúlkna, sem
hafa fengið hjálp, er talið að
í Kaupmannahöfn einni séu
nú um 100 grænlenzkar
stúlkur, sem engan samastað
eiga og þó að skrifstofufólk-
ið sé allt af vilja gert að
hjálpa þeim, er það næsta
erfitt þar sem þær neita að
hafa samneyti við aðra Græn
lendinga.
í Grænlandsmálaráðuneyt-
inu er nú í bígerð að gera
kvikmynd sem á að vara
grænlenzkar stúlkur við því
að fara með dönskum mönn-
um. sem vinna á Grænlandi
um stuttan tíma, til Danmerk
ur. Sagt er að strax verði að
hefjast handa til að reyna að
sporna við þessari óheilla-
vænlegu þróun.
Egilsstöðum, 11. janúar.
MIKILL snjór er nú á Fjarðar-
heiði og er hún ófær öllum bíl-
um. Mikill skafrenningnr er á
heiðinni og því ekki verið lagt
í að ryðja hana. Allir snjóbílar
sem gengið hafa yfir hana und-
anfarin ár, eru nú ógangfærir
og er miklutn erfiðleikum bund
ið að koma fólki og mjólk, sem
flytja þarf úr sveitinni, til Seyð
isfjarðar.
Undanfarna daga hefur þó
verið leyst úr mesta vandanum
með því að fá lánaðan snjóbíl
læknanna á Héraði til að koana
fólki og farangri, sem nauðsyn-
Spilakvöld
NÆSTA spilakvöld félagsins
verður mánudaginn 15. janúar
næstkomandi. Það er jafnframt
fimmta og síðasta kvöld í spila-
keppni sem hófst síðastliðið
haust. Spilakvöldið hefst á Garða
holti kl. 8,30, og er fólk beðið
að mæta vel og stundvíslega.
lega hefur þurft að komast ýfir
til Seyðisfjarðar. f dag var svo
fenginn stór snjóbíll frá Kaup-
félaginu á Reyðarfirði til að
koma mjólk og öðrum nauð-
synjavörum yfir heiðina.
Bæjarfógeta-
skrifstofurnar
í Hafnarfirði
flytjast
Bæjarfógetaskrifstofurnar í
Hafnarfirði flytjast í nýtt hús-
næði í febmar næstkomandi. Fá
skrifstofurnar um 700 fermetra
húsnæði á tveimur hæðum I
búsinu Strandgötu 31, glerhöll-
inni miklu.
Húsnæði það, sem skrifstofurn
ar hatfa verið í til þessa, er í
rauninni löngu orðið ocf lítið. Rík-
ið á gamla húsið og er enn ekki
ákveðið hvað gert verður við
það. Lögreglan verður átfram til
húsa á gamla staðnum.
Finnar fíytja sand
tii Saudi - Rrahíu
Helsinki, 11. jan. AP.
* FINNAR hafa flutt út 3,200
lestir atf sandi til eyðimerkur
ríkisins Saudi Arabíu og kostar
sá flutningur 250.000 dollara.
Ástæðan er sú, að finnska
byggingarfélagið „Genearl Eng-
ineering“ er að byggja vatns-
hreinsunarstöð í nágrenni Riyadh
höfuðborgar Saudi Arabíu, og
þarf til byggingarinnar mjög
hreinan og fínan sand. Slíkan
sand var hvergi að finna í Saudi
Arabíu né nærliggjandi löndum.