Morgunblaðið - 12.01.1968, Page 5
MORGUNBXAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR lí>68
5
UNDANFA R.™ annað hvert
ár hafa Karlakór og Lúðra-
sveit Keflavíkur með aðstoð
Skátafélagsins og annarra
ungmennasamtaka, staðið fyr
ir hinni þjóðlegu skemmfcun,
að kveðja jólin með álfadansi
og brennu á Þrettándanum.
Að þessu sinni var svo einnig
gert og fór skemmtan öll
fram með miklum glæsibrag.
Hefur sjaldan verið meirí
mannfjaldi við útiskemmtun
í Keflavík, jafnvel ekki þeg-
ar fslandsmeistararnir fyrr-
verandi sýndu listir sínar. —
Glöggir rnenn áætla, að um
4000 manns hafi verið við-
staddir þess-a sérkennilegu og
skemmtilegu sýningu gamall-
ar þjóðtrúar og þjóðhátta.
Frá þrettáiiclafagnaðinum i Keflavik. (Ljósm. Mbl. Heimir Stígsson)
inn kom, sem var ísi lagður,
upphófst söngur og lúðraspil,
blysfarar gengu í kring og
skrípakarlar léku listir sínar.
Gamli Skugga-Sveinn var
kargur í skapi og skamimaði
Ketil óspart, öllum til ánægju
— brugðið var upp vikivaka-
dansi og kóngur og drottning
sungu svo yfir gnæfði. Karla
kórinn og Lúðrasveitin sungu
og léku af hjartans list og
mannfjöldinn fagnaði vel.
Bálkestirnir loguðu glatt. í
stóruibrennunni fór fram með
al annars bálför happaskips-
ins Skírnis, sem voru því
ágæta skipi verðug ferðalok.
— í kringum brennuna, sem
var miðsvæðis, dönsuðu álf-
arnir. Um það bil er flug-
eldasýningin hófst féll logn
snjór á jérð, til að slétta yfir
sporin og ef til vill til að láta
vita að nú væri veðurhléi
lokið.
— Mannfjöldinn snéri þá
heim, þakklátur fyrir þennan
þjóðlega streng, sem snert-
ur hafði verið. Það skipti litl
um togum, að þegar fólk var
komið til sinna heima hvessti
aftur af norðaustri með miklu
fjúki og frosti, sem kæfði
glæður eldanna og sléttaði yf
ir sporin — en náðd ekki til
að kæla góðar minningar um
skemmtilegt kvöld, sem við
hlökkum til næst, þó tvö ár
séu þangað til.
— HSJ.
Ketill nkrækur og Skugga-Sveinn vöktu mikla kátínu.
Bregðum blysum á loft
Alfadans og brenna í Keflavík
Það er alltaf viss uggur í um eða mótum standa, hvern-
þeim sem fyrir útiskemmtun- ig véðrið verði, því það get-
ur kollvarpað öllum, svo sem
dæmi eru til, en í þetta skipti
gerðist það merkilega, að
frost og stormur vék úr vegi
og breyttist í frostleysu og
logn á meðan skemmtunin
fór fram. — Veðurfræðingar
kunna ef til vill aðra skýr-
ingu á því en hér hafi verið
um velvild æðri máttarvalda
að ræða — en við hér heima
höldum fast við það og þökk-
um af alhug. —
— Þessi. „Þréttánda“-fagn-
aður hófst með því að blysin
voru tendruð við áætlunar-
bilastöðina norðarlega í bæn-
um. — Þar var allur lýður-
inn rnættur, Álfakóngur og
drottning (Sigríður og Böðv-
ar Pálsson) ásamt fylgdarliði
sínu — álfum, skrípakörlum
og púkum og Skuggasveinn
og Ketill tróðu sér inn í hóp-
inn. Þar voru einnig mennsk-
ir menn, svo sem Karlakór-
inn og Lúðrasveitin og nokkr
ir hestamenn á bestum sínuim.
Gengið var um helztu götur
bæjarins með blysum og
lúðraspili og ruddu hesta-
menn brautina gegnum kát-
an og aðsópsmikinn mann-
fjölda, sem var þó ekki tii
neins skaða.
Þegar á gamla íþróttavöll-
Verzlunarhúsnæði
óskast á leigu við Laugaveg, Bankastræti og við
Langholtsveg eða Álfheima.
Tilboð sendist Mbl. merk: „2880“.
Laghentur maður
helzt bókbindari óskast. Þarf að hafa bílpróf.
Prentsmjðja Jóns Helgasonar,
Síðumúla 8.
Trésmíðameistarar óskast
til að veita verkstæði forstöðu í nágrenni Reykja-
víkur. Aðstaða mjög góð. íbúð fyrir hendi.
Lysthafendur leggi umsóknir inn á afgr. Mbl.
merktar: „Tækifæri — 2907“ fyrir 20. janúar.
Karlakórinn Þrestir
Hafnarfirði
Skemmtikvöld verður í Alþýðuhúsinu kl. 8.30
í kvöld.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Styrktarfélagar og aðrir velunnarar kórsins
hvattir til þátttöku.
STJÓRNIN.
Vorið er komið!
Komið til okkar og takið svolítið af vorinu
heim með ykkur.
Gróðrarstöðin við Miklatorg, símar 22822, 19775.
ALLT MEÐ
EIMSKIP
A næstunni ferma skip vor
til íslands, sem hér segir:
ANTWERPEN:
Askja 20. janúar **
Reykjafoss 2. febrúar
Skógafoss 12 febrúar
Reykjafoss 21. febrúar
ROTTERDAM:
Skógafoss 15 janúar
Reykjafoss 31. janúar
Gogafoss 5. febrúar **
Skógafoss 14. ferbúar
Reykjafoss 23. ferbúar
HAMBORG:
Skógafoss 14. febrúair
Reykjafoss 23. febrúar
Goðafoss 13. febrúar **
Skógafoss 17. febrúar
Reykjafoss 27. febrúar
LEITH:
Gullfoss 19. janúar
Gullfoss 2. febrúar
Gullfoss 16. febrúar.
HULL:
Askja 22. janúar **
Mánafoss 31. janúar
Askja 15. febrúar **
LONDON:
Askja 17. janúar **
Mánafoss 29. janúar
Askja 13. febrúar **
NORFOLK:
Fjallfoss 19. janúar *
Brúarfoss 2. febrúar
Selfoss 16. febrúar
NEW YORK:
Fjallfoss 25 janúar *
Brúarfoss 8. febrúar
Selfoss 23. febrúar
GAUTABORG:
Bakkafoss 13 janúar
Tungufoss 23. janúar **
Bakkafoss 6. febrúar
K AUPMANNAHÖFN:
Baikkafoss 16 janúar
Gullfoss 16. janúar
Tungufoss 25. janúar **
Gullfoss 30. janúar
Bakkafoss 8. febrúar
KRISTIANS AND:
Tungufoss 20. janúar **
Bakkaýoss 3. febrúar
Tungufoss 17. febrúar
BERGEN:
Skip í lok janúar
OSLO:
Dettifoss um 23. janúar
KOTKA:
Dettifoss um 20. janúar
VENTSPILS:
Lagarfoss um 18. janúar
GDYNIA:
Lagarfoss um 20. janúar
* Skipið losar á öllum að-
alhöfnum Reykjavík
ísafirði, Akureyri og
Reyðarfirði.
** Skipið losar á öllum að-
alhöfnum, auk þess i
Vestmannaeyjum, Siglu
firði, Húsavík, Seyðis-
firði og Norðfirði.
Skip sem ekki eru
merkt með stjörnu losa
í Reykjavík.
ALLT MEÐ
EIMSKIP