Morgunblaðið - 12.01.1968, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 12.01.1968, Qupperneq 8
8 MORGUINrBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1968 Arnagarður reistur að sjö tíundu fyrir happdrættisfé RÉTT sunnan við fþróttahús Há skólans við Suðurgötu er nú að rísa mikil bygging, sem gert er ráð fyrir, að fullgerð verði og tekin í notkun eftir tæp tvö ár. Þessari byggingu er um fram allt ætlað það hlutverk að efla íslenzk fræði. Þar verður öll kennsla Háskólans í þeim fræð- um, Orðabók Háskólans og Hand ritastofnun íslands. Hlutur Hand ritastofnunarinnar er vitanlega greiddur úr ríkissjóði. en meira en % hlutar eru greiddir af fé Happdrættis Háskólans. Er rétt og skylt, að viðskiptamenn Happ drættisins viti, til hvers varið er því fé, sem þeir greiða til þess fyrirtækis. Byggingin hefir hlotið heitið Árnagarður. kennd við Árna Magnússon, hinn mikla handrita safnara og fræðimann, sem bjargaði mörgum beztu handrit um íslands frá glötun. Þótti við eiga, að bygging þessi. sem á að verða til eflingar íslenzkum fræðum, væri tengt nafni hans. Þeir, sem eiga leið um Suð- urgötu og sjá hina glæstu bygg- ingu rísa. gera sér ef til vill ekki grein fyrir því, að þeir þeirra, sem kaupa miða 1 Happ- drætti Háskólans, stuðla að bygg ingu þessa húss. Allir leggja þeir fé af mörkum til Árnagarðs. Happdrættið leggur fram sjö tí undu hluta þess fjár. sem til hússins fer, þrír tíundu hlutar koma úr ríkissjóði vegna Hand- ritastofnunar íslands. Meira en fjögur ár eru liðin, síðan Alþingi og ríkisstjórnin á- kváðu, að samvinna skyldi höfð f GÆR var opnuð listsýning barna úr Myndlistarskólanum í Reykjavík á Mokka, en á sýn- ingunni eru 27 myndir úr mos- aik og keramik deild skólans. Sýningin verður opin í 15 daga. Keramik og mosaik myndir eftir börn á aldrinum 6—12 ára eru nú til sýnis á Mokka við Skólavörðustíg. Börnin eru í mosaik og keramik deild Mynd- listarskólans í Reykjavík, sem er til húsa í Ásmundarsal á Skóla- vörðuholti og á Grundarstíg 11. Skólastjóri Myndlistarskólans í Reykjavík er Baldur Óskarsson. 21. starfsár skólans hófst 1. jan. sl. og getur skólinn ekki annað umsók-narfjölda og er ávallt á við Háskólann um byggingu þessa húss. Handritastofnunin þurfti á húsakosti að halda og aukin þörf á húsrými Háskó'lans var brýn. Háskóli íslands lagði til lóð af lendum sínum. Ákveð- ið var. að byggingin skyldi þann ig gerð, að húsakosti Handrita- stofnunar mætti breyta 1 kennslu rými fyrir Háskólann, ef síðar þætti hentara, að henni yrði ætl aður annar staður. t.d. í sam- bandi við nýja bókasafnsbygg- ingu. Háskólaráð ákvað fyrir sitt leyti, að í hinni nýju byggingu skyldu íslenzk fræði hafa for- gangsrétt. Húsið við Suðurgötu er fjór- ar hæðir. Grunnflötur þess er alls um 3300 fermetrar, en rúm mál rúmlega 11.000 teningsmetr ar. Af þessu nemur hlutur Hand ritastofnunar tæpum þriðjungi af heildargrunnfleti hússins. Hið nýja kennslurými Háskól ans í byggingunni er ætlað bæði til fyrirlestrarhalds og viðræðu- kennslu, sem nú ryður sér æ meira til rúms. Á efstu hæð verða vinnuherbergi prófessora. Þar er Orðabók Háskólans einnig ætl- að vinnurými. Óþarft er að kynna landsmönn um. að aðsókn að Háskólanum hefir vaxið mjög hin síðari ár. Menntaskólar landsins braut- skrá æ fleiri stúdenta. Flestir þeirra setjast síðan í Háskólann, þótt ekki ljúki því nær allir námi. Samtímis hefir Háskólinn aukið námsgreinafjölda í sam- ræmi við þarfir þjóðfélagsins og hefir ýmsar áætlanir á prjónun- um í þeim efnum. En því er biðlista umsækjendur sem vilja komast inn í skólann. Skólinn starfar 7 mánuði árs- ins og skiptist í 3 námskeið, sem eru 3 mán., 2 mán. og 2 mán. Sýningin á Mokka er eftir börn sem hafa verið í skólanum 1—3 ár og kennari þeirra er Ragnar Kjartansson. Börnin vinna eftir eigin hugmyndum og vinnuað- ferðin er sú, að börnin hnoða myndina í leir og búa til lág- mynd, sem síðan er brennd og gjarnan máluð með glerung og að lokum er fyllt upp í kring um lágmyndina með mosaik. Myndirnar á Mokka eru glöggur vottur um hugmyndaauðgi og sköpunarþrá barnanna. ekki að leyna, að þessi æðsta menntastofnun þjóðarinnar á við þrengsli að búa. Þjóðinni er það nauðsyn, að úr þessu verði bætt. Ella getur hann ekki rækt það hlutverk. sem honum er ætlað. Vaxandi þjóðfélagi er nauðsyn á auknum hópi menntamanna, Árnagarður mun leysa mikinn vanda, ekki aðeins fyrir Háskól- ann, heldur einnig fyrir þjóðfé- lagið. Kennslurými mun verða álíka og í aðalbyggingunni. Þar verða þrjár stórar kennslustofur og auk þess nokkrar minni, þar að auki lestrarsalur. einkum ætl aður stúdentum í íslenzkum fræðum. Gert var ráð fyrir, að bygging Árnagarðs mundi kosta um 43 milljónir króna. Hlutur Happ- drættisins yrði samkvæmt því um 30 milljónir króna. Stjórn Happdrættisins er ljóst, að þetta fé kemur frá viðskiptavinum þess um land allt. En því má ekki gleyma, að nú hefir bygg- ingarkostnaður allur hækkað. og er því sérlega brýn nauðsyn, að Happdrætti Háskólans fái meira fé til umráða. Að framan sögðu er greini- París, 10. janúar NTB. FRAKKAR áforma að kalla heim 3000-5000 hermenn frá Vestur-Þýzkalandi. Er þetta þáttur áætlunar um að gera franska herinn nýtízkulegri, að því er franski upplýsingamála- ráðherrann, George Gorse sikýrði frá í París í dag. Fran.ski herinn í Veisitur-Þýzkalandi mun verða útbúinn nýtizkulegustu vopnum, sem til eru. Ráðherrann sagði, að vesltur-þýzku stjórninni hefði verið slkýrt frá þessmm áform- um. Frakkar, sem eru að breyta her s'ínum frá því að vera búinn venjulegum hergögnum í kjarn- orkuvopnabúinn her, ætla að fjölga í hernum. Þessi skipulags- breyting á hernum mun ná til þeirra tveggja herfylkja, sem eru í Vestur-Þýzkalandi undir stjórn Massu hershöfðingja. Háskólinn 09 Happdrættið legt, að þeir mörgu menn — og þær mörgu konur — sem leið eiga um Suðurgötu, mega gera sér ljóst. að þeirra framlag ber ávöxt í hinni nýju byggingu við Suðurgötu. Viðskiptavinir Happ- drættis Háskólans hafa með fram lagi sínu gert kleift að hrinda í framkvæmd byggingu stofn- ana, sem nú og síðar munu stuðla að æðri menntun á ís- landi — og framvegis mun fé Happdrættisins varið í sama skyni, Árnagarður er aðeins einn áfangi á þessari leið. Margir eru stuðningsmenn Happdrættisins. en þeir mættu vera enn fleiri. Happdrætti Há- skólans hefir þó ekki yfir neinu að kvarta um undirtektir og á- huga almennings. Happdrættið hefur alltaf notið óbrigðuls stuðn ings alþjóðar. Viðskiptavinum skal á það bent, að í happdrætti hafa sum- ir persónulegt happ, en aðrir ekki. En Happdrætti Háskólans vinnur ekki aðeins að happi ein staklingsins, heldur að happri æðri menntunar á íslandi. þar er markið. (Frá Happdrætti H. í.) Fjöldi hermannanna í herfylkj- unuim, en þeir eru nú um 30.000, verður sennilega fækkað niður í 15000-20000 manns, en vopna- búnaður þeirra verður aukinn með hinum nýju öflugu AMX-30 stríðsvögnum, sem eru útbúnir kjarnorkuvopnum. Þessar ráðstafanir munu hins vegar ekki snerta fransk-þýzka samninginn frá 14. desember 1966 um, að tvær franskar her- sveitir verði hafðar í Vestur- Þýzkalandi og að baki þeim liggja engin pólitísk eða efna- hagsleg sjónarmið, sagði Gorse upplýsingamálaráðherra. Humphrey I Túnis Túnis, 10. jan. AP. ■k HUBERT H. Humphrey, vara forseti Bandaríkjanna. sagði í ræðu, er hann hélt fyrir háskóla- stúdentum í háskóla í Túnis í dag, að Bandaríkjamenn væru reiðubúnir að hætta loftárásum á Norður-Vietnam, ef það gæti íeitt til jákvæðra viðræðna. sem vænta mætti af einhvers árang- urs og friðar í Iandinu. Var þetta í fyrsta sinn á Afríku ferð sinni, sem Humphrey ræddi um Vietnammálið opinberlega. Honum var vel fagnað en úti fyrir háskólanum höfðu nokkrir S’túdentar safniast saman og köll- uðu „Jahnson er morðingi". Mótmæla sam- þykkt alþingís SKIPSTJÓRA- og stýrimannafé- lagið Vísir í Keflavík hefur gert eftirfarandi samþykkt: „Aðalfundur Skipstjóra -og stýrimannafélagsins Vísis á Suð urnesjum, haldinn 30. des. 1967, samþykkir að víta harðlega þær aðgerðir stj'órnarvaMa að mds- nota Alþingi til lagasetninga, er miða að því að svifta sjómenn hluta af gengisbreytinga fé sjáv- arafurða sem þeim ber með réttu. --------------------------; Sími 14226 Einbýlishús við Aratún. Einbýlishús við Víðihvamm. Fokhelt garðhús við Hraunbæ. Fokhelt raðhús við Látra- strönd. Húsið selst múrað og málað að utan. 3ja herb. íbúð við óðinsgötu, Lokastíg og Álfheima. 3ja herb. íbúð í timburhúsi í Hafnarfirði. 3ja herb. íbúð við Hraunbraut í Hafnarfirði. 4ra herb. íbúð við Ásbraut í Kópavogi. 4ra herb. íbúð við Kleppsveg. 5 herb. íbúð við Ásgarð í blokk. 5 herb. íbúð í Stigahlíð í blokk 5 herb. íbúð í Hvassaleiti, bQ- skúr. 5 herb. ný íbúð við Hraunbæ. Laus nú þegar. Fasteigna. og skipasala Kristjáns Eiríkssonar hrl. Laugavegi 27 - Sími 14226 Fasteignasalan Hátúnl 4 A, Nóatúnshúsið Símar 21870 og 20998 5 herb., 120 ferm. falleg íbúð á 2. hæð við Háaleitisbraut. Tilbúið undir tré- verk og málningu Mjög fallegt einbýlishús, múr- að og málað að utan á skemmtilegum stað á Flöt- unum. Húsið er 175 ferm. og tvöfaldur bílskúr, 52 fer- metrar. Söluverð kr. 1450 þús. Hilmar Valdimarsson fasteignaviðskipti Jón Bjarnason hæstaréttarlögmaður Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar púströr o. fl. varahlutir í margar gerðir bifreiða Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168 - Sími 24180 síld ' < Cœðavara Fæst í næstu verzlun LJÚFFENG i SALÖT OG SEM ÁLEGG GEYMIST ’a KÖLDUM STAO ReyKveRi ^ HAFNARFIRÐI Ein myndanna á sýningunni á Mokka eftir Ingu R. Ragnarsdóttur, 12 ára. Keramik og mosaik sýning barna á Mokka Frakkar fækka herliöi sínu í V-Þýzkalandi Nýtizkuvopn eiga að bœta fœkkunina upp

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.