Morgunblaðið - 12.01.1968, Síða 12
f*
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1%'8
ÁRAMÖTARABB
- úr vestustu byggð landsins
FYRIR rúmum 70 árum. eða nán
ar tiltekið 1/1. 1896 hóf göngu
sínia kristilegt mánaðarrit sem
bar nafnið: „Verði ljós“. Útgef-
endur voru: Jón Helgason presta
skólakennari, Sigurður P. Sí-
vertsson -og Bjarni Símonarson,
kandidatar í guðfræði.
Blaðið hófst í bundnu máli eft
ir séra Valdimar Briem. Leyfi
ég mér að taka upp fyrsta er-
indið. Sem hljóðar svo:
„Verði ljós í voru landi,
villumyrkrið hverfi svart
Kveiki guð í kirkju simni
kristindómsins ljósið bjart.
Kuldinn. svefninn, dimman,
dauðinn
dvíni fyrir geislum hans
Ylinn, fjörið, ljósið. lifið
lifgi kraftur sannleikans".
Þegar litið er til baka yfir lið
ið ár í þessari vestustu sveit
landsins þar sem úthafsaldan
brotnar við lönd svo til allra
jarða sveitarinnar. og brimlhljóð
ið drynur og blandast veður-
gnýnum í hömrum og björgum,
þegar stormarnir æða af hafi,
færandi sælöðrið og sjávarselt-
una yfir lönd og hús. í þessari
sveit sem á svo marga fagra góð
viðrisdaga á fögrum stöðum.
bjartar nætur, og litbrigði sól-
ar svo töfrandi fögur þegar hún
að kvöldi dags gælir við haf-
flötinn, að það gleymist ekki
þeim sem notið hafa.
Þá verður ekki annað sagt- en
þetta hafi verið strembið ár frá
náttúrunnar hendi fyrir bónda,
en af búskap lifa fiestir í þess-
ari sveit að meira eða minna
leyti. ,
Síðastliðinn vetur var harður
og gjafafrekur, svo kom afburða
kalt og gróðurlaust vor. allt
fram í síðari hluta júnímánaðar.
Fóðurbætisgjöf fyrir búfénað
varð því óeðlilega mikil, þar sem
hey hrukku ekki til. Nokkuð
Fatabreytingar
Bragi Brynjólfsson klæðskeri
Laugavegi 46, 2. hæð, sími 16929.
Vélstjórar
1. vélstjóra vantar strax á 250 tonna vertíðarbát
á Vestfjörðum.
Upplýsingar í síma 22280 og á kvöldin í sima 17661.
SÖLUMIÐSTÖÐ HRAÐFRYSTIIIÚSANNA,
eftirlitsdeild.
Ver/lunarstiilka
Reglusöm og dugleg stúlka óskast strax, til af-
greiðslu í raftækjaverzlun í Vesturbænum. Svo
lítil vélritunarkunnátta æskileg. Eiginhandarum-
sókn sendist blaðinu fyrir mánudagskvöld 15. jan.
merkt: „2904“.
Orðsending
til hafnfirzkra verkamanna
Þeir verkamenn sem eru atvinnulausir í Hafnar-
firði eru vinsamlegast beðnir að koma til viðtals
á skrifstofu V.M. F. Hlífar Vesturgötu 10 n.k.
fimmtudag kl. 4—7 e.h.
Stjórn verkamannaféiagsins Hlífar.
Matvöruverzlun
í eignarhúsnæði á góðum stað til sölu. Kvöldsölu-
leyfi. Stöðug vaxandi viðskipti. Tilboð sendist
Mbl. fyrir þrðjudagskvöld merkt „Verzlun — 123“.
Útsala
Stórkostleg verðlækkun á kven-
og barnafatnaði.
Allt undir hálfvirði,
t. d. barnakjólar frá kr. 100.—
SÓLBRÁ, Laugavegi 33.
kom þar í móti, að fóðurbætir
lækkaði stórlega í verði fyrri
hluta ársins.
Grasspretta varð með lakasta
móti á flestum bæjum, og hey-
fengur eftir þvú en víðast mjög
góð bey, það sem fékkst. Ásetn-
ingur búfjár mun því vera víða
í frekara lagi á þann heyforða
sem fyrir er, en meint að bæta
það upp með fóðurbæti. Síðast-
liðið sumar var hér þurrviðra-
samara sumar en ég man áður
eftir, og því víða orðið lítið um
vatn. stuðlaði það mjög að gróð
urleysinu. Vetrarveðráttan kom
í fyrra lagi á þessum vetri, og
heldur harkalega sem hefir hald
izt síðan, með sífelldum rosa og
illviðrum, sem kemur sér illa
á lítinn heyforða. Sumir bænd-
ur hafa orðið að skerða bústofn
sinn. og alið honum til viðhalds
í minna lagi. Sérstaklega hefir
kúm fækkað meira en ætlað var.
Búsafurðir eftir árið voru ekki
sem verstar, og sjálfsagt víðast
betri en í fyrra, en þá var mjög
lélegt ár með sauðfjárafurðir.
Ekkert býli hefur farið í eyði
á árinu- en vonir um að eitt
komi aftur í byggð á næstá vori,
er það stórbýlið og prestsetrið
Sauðlauksdalur, sem verið hefur
í eyði um skeið. en ún mun taka
það til ábúðar Skúli Hjartarson
frá Patreksfirði, ungur maður
sem ólst upp hér í sveitinni, og
hefir áhuga á skemmtilegasta at
vinnuvegi okkar lands. búskapn
um. Annað stórbýli býður eftir
ábúanda, en það er hið forna
stórbýli Saurbær á Rauðasandi
sem verið hefir í eyði um mörg
ár, en ekki vitað um að úr ræt-
ist.
Vegagerð ,
Verulegar lagfæringar voru
gerðar á veginum úr örlygshöfn
um Breiðavík og að Látrum. einn
ig frá Hænuvík í Kollsvík, svo
allt annað viðhorf er nú að
mæta vetri með þessa vegi en
áður var.
Þá munaði vel á samskotaveg
inum í Keflavík á þessu ári, og
vantar nú aðeins herzlumuninn
að ljúka honum. f því sambandi
leyfi ég mér að nota ætkifærið
og þakka Bárði Sveinssyni frá
Reykjavík (önnur deili veit ég
ekki á þeim góða manni) fyrir
fimm þúsund krónur og ágætt
bréf sem hann sendi mér í þenn
an veg. Hafnfirðingnum sem endi
lega vi-ldi borga kr. 200.00 fyr-
irfram í vegatoll, ef hann gæti
komið því við að fara þennan
veg. Ferðamálaráðsmönnum o.
fl. Vona ég að margur hafi not-
ið ánægju af að fara þennan
veg á síðastliðnu sumri. en sú
ánægja verður meiri þegar þetta
er orðið eins og það á að vera.
En eins og ég hef áður tekið
fram, er höfuðtilgangur þessa
vegar að koma til góða, ef slys
ætti sér stað þarna undir bjarg-
inu á stóru svæði.
Raforkumál:
Já, það er nú það. Lítið hef-
ir miðað áfram í raforkumálum
sveitarinnar. annað en það, að
nánar hafa verið athuguð virkj-
unarskilyrði innan sveitarinnar,
og þá sérstaklega á Skersfjalli,
og þar í grennd. Reyndust þau
Endingargóðir
ódýrir úrvals sokkar
kr. 39.00 parið.
rHMIMIMIi
HIMMMIMMl
>MIIIIMMMM
MMMMMIMMm
IMHMMMMIMI
iIIMIMIMMMIMMIIIIMMMIMMI
IMIIIIIII. *.
MIIIMMIf
MMIMlMMIl.
MIIMMMMIII.
IIMIIMMMIMIi
IMlMIMMIMMI
IMMMMMMIMH
IMMMHMMMM
IMMMMIMIMM
MMMIMIMIir
IIIMMMMIM*
IMMMMM'
Hinn þekkti gamanleikur Shakespeare, Þrettándakvöld, er
sem kunnugt er sýndur í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir.
Næsta sýning leiksins verður á sunnudagskvöld. Aðalhlut-
verkin eru leikin af Kristbjörgu Kjeld, Rúrik Haraldssyni,
Bessa Bjarnasyni, Jónínu Ólafsdóttur, Ævari Kvaran og Flosa
Ólafssyni. Leifur Þórarinsson hefur samið tónlistina, sem
fiutt er með leiknum. Una CoIIins gerir leikmyndir og bún-
ingateikningar. — Myndin er af Kristgjörgu Kjeld og Erlingi
Gíslasyni.
betri en við var búist, og talin
mjög hagkvæm. Þá stóð til. að
lagður væri rafstrengur yfir
Patreksfjörð, en varð ekki af,
því miður, og varð það fól'ki
mikil vonbrigði. svo ekki sé
meira sagt. Það er flestum skilj-
anlegt hversu niðurdrepandi það
er, að vita næga raforku stein-
snar frá sér, og geta ekki feng-
ið þessa ómissandi orku allra nú
tíma lífsþæginda. Ég er ekki al-
veg viss um hvað veldur þeirri
tregðu, og vil ekki geta mér þess
til. en það er eitthvað.
Heilbrigðismál:
Tveir ungir og efnilegir læknar
ásamt einum apótekara hafa sezt
að í læknishéraðinu sem nær nú
yfir V-Barðastrandasýslu. Lækn-
arnir eru báðir fjölskyldumenn
og heita: Guðmundur Guðjóns-
son, og Þórir Arinbjarnarson.
Apótekarinn Sigurður Jónsson, er
einihleypur maður en nær sér
trúlega í kvennlega aðstoð, því
hér vestra eru margir góðir
kvennkostir. Allir eru þessir
ungu menn með búsetu á Pat-
reksfirði og hafa þar sína bæfci-
stöð. Þetta er stórt spor í rétta
átt í heilbrigðismálum. spor sem
fólkið fagnar.
Heilbrigði hefir verið hér í
sveitinni þegar á heildina er lit-
ið þótt alltaf séu einhverjir ein-
staklingar sem hafa við vanheilsu
að stríða. lengri eða skemri tíma.
Fræðslumál:
Vistheimilið í Breiðavík er
rekið með myndarbrag, undir
stjórn Þórhalls Hálfdónarsonar
og konu hans Guðmundu Hall-
dórsdóttur, sem eru samhent um
að gera drengjunum til góða.
Kennari er þar einnig sá sami.
Trausti Árnason.
Heimavistin í örlygshöfn er nú
fullgerð, nema hvað eftir er að
ganga frá lóðinni. Skólastjóri er
sá sami, Ingólfur Þórarinsson. og
hefir þar um 25 börn, sem eru
öll úr sveitinni utan 3 sem eru
úr öðrum sveitum, þar sem er-
vitt er að ná tiíl skóla og ekki
heimavist.
Ráðskona við heimavistina er
Jórun Sigurmundsdóttir ung
stúlka frá Bíldudal. Svo það er
æskan sem er við völd og nám.
í Heimavistarskólanum í örlygs-
höfn, og farnast vel.
Það hefir því raunar allt geng-
ið áfalla-laust á árinu í þessari
útkjálkasveit, og raunar undan
engu að kvarta, þótt ýmislegt
væri æskilegra á annan og betri
veg komið. Og ekki þarf að
fara mjög langt aftur í tímann.
til þess að slík ár hefðu fært á
bændur stór áföll. Þetta stönd-
um við betur í dag, í baráttunni
við néttúruöflin.
Að lokum leyfi ég mér að
enda þetta rabb með nokkrum
orðum úr niðurlagi fyrsta blaðs
„Verði ljós“. sem hljóða svo:
..Þrennt mikilsvert:
Þrennt að elska: Hugrekki, hóg
værð og sannsögli.
Þrennt að hata: Grimd, stæri-
læti og vanþakklæti,
Þrennt að biðja um: Trú, frið-
ur og hreint hjarta.
Þrennt að forðast: Leti, mælgi
og gálaust hjal.
Þrennt að ráða við: Hugarfar.
tunga og hegðun.
Þrennt að muna eftir: Lífið
dauðinn og eilífðin".
Þeir sem hugleiða þessar
þrenningar í alvöru á komandi
ári, munu með því stuðla að far-
sælu ári sér og sinni þjóð til
handa.
Gleðilegt nýtt ár, þökk fyrir
það liðna.
Látrum á gamlársdag 1967.
Þórður Jóasson.
að bezt
er að
auglýsa í
MORGUHIi