Morgunblaðið - 12.01.1968, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.01.1968, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 196« JMmtttttfrliifrtfe Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri: Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100. Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80. í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið. Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði ’.nnanlands. SAMSTARF SVEITAR- FÉLAGA Á HÖFUÐ- RORGARSVÆÐINU róunin í uppbyggingu höf- uðborgarsvæðisins hefur á síðustu árum verið einkar athyglisverð. Auk þess sem höfuðborgin hefur vaxið og dafnað, hafa nágrannasveit- „ arfélögin stöðugt vaxið og stækkað, að vísu mismunandi mikið, Garðahreppur og Sel- tjarnarneshreppur, Kópavog- ur og Hafnarfjörður, svo og Mosfellshreppur. Menn sjá fram á þá tíma, að þessar byggðir muni á næstu ára- tugum tengjast saman og verða ein samfelld heild og skapar það bæði vandamál í sambýli og tækifæri til auk- innar hagkvæmni á þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðis- ins. Nú þegar hefur tekizt sam vinna á ýmsum sviðum milli þessara sveitarfélaga, þótt sú samvinna nái yfirleitt ekki til allra sveitarfélaganna nema að því er varðar skipulags- mál, en starfandi er sam- . vinnunefnd sveitarfélaganna, á höfuðborgarsvæðinu um skipulagsmál þess, en sú nefnd fjallar raunar bæði um skipulagsmál og vatnsbólin. vinnufyrirtæki hafa flutt starfsemi sína til nágranna- sveitarfélaganna, ekki sízt í Garðahrepp og er það þróun, sem alls staðar hefur orðið í stórborgum erlendis, að at- vinnufyrirtæki flytja starf- semi sína í útborgirnar. Á næstu árum er ljóst, að méð náinni samvinnu sveit- arfélaganna á höfuðborgar- svæðinu er hægt að sinna sameiginlegum þörfum þeirra á hagkvæmari hátt en ella, ef hvert sveitarfélag fyrir sig reyndi að fullnægja þeim, og má þar t.d. nefna skólabygg- ingar fyrir sérkennslu af- brigðilegra barna og enn- fremur má benda á, að fram- tíðar uppbygging hitaveitunn ar í Reykjavík, sem hugsan- lega mun byggjast á Nesja- vallaveitunni svonefndu, get- ur einmitt haft þörf fyrir mun stærri markað en fyrir hendi verður í Reykjavík, og er þá spurning, hvort víðtæk samvinna sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um þá stórvirkjun getur komið til greina eða a.m.k. samvinna um nýtingu vatnsins. Auk þessarar samvinnu milli allra sveitarfélaganna er margvíslegt samstarf milli einstakra sveitarfélaga. Þann- ið þjónar slökkviliðið í Reykjavík sameiginlega þörf- um Reykjavíkur, Kópavogs, Seltjarnarness og Mosfells- hrepps, en slökkvilið Hafnar- fjarðar þjónar bæði Hafnar- firði og Graðahreppi. Kópa- vogur og Seltjarnarnes eiga lögum samkvæmt rétt á að fá vatn og rafmagn frá þjón- usfustofnunum í Reykjavík, en yfirleitt hefur Garðahrepp ur haft samvinnu við Hafn- arfjörð þar sem slík sam- vinna hefur komið. Strætis- vagnar Reykjavíkur halda uppi ferðum í Seltjarnarnes- hrepp, Kópavogsbúar notfæra sér kirkjugarða Reykjavíkur, samvinnunefnd er starfandi um jarðhitarannsóknir á höf- uðborgarsvæðinu og þannig mætti lengi telja. Auk þessa samstarfs um til tekna þætti í starfi sveitarfé- laganna er ljóst, að hagsmun- ir sveitarfélaganna á höfuð- borgarsvæðinu eru samofnir með ýmsum öðrum hætti. Þannig leita íbúar Seltjarn- arnesshrepps, Kópavogs og Graðahrepps og e-t.v. að nokkru leyti Hafnarfjarðar, atvinnu í Reykjavík, en á síð- ustu árum hefur sú þróun orðið áberandi, að stór at- Einstaka raddir hafa jafn- an verið uppi um það, að sam eina bæri sveitarfélögin á höf uðborgarsvæðinu eða a.m.k. einhver þeirra. Ljóst er, að það mál er ekki enn komið á raunhæft stig, hvað sem síð ar kann að verða, en hins vegar er þörfin fyrir aukna samvinnu milli sveitarfélag- anna augljós og getur vafa- laust sparað þeim, hverjum fyrir sig, mikla fjármuni. Þess vegna er ástæða til að varpa því fram til íhugunar og yfirvegunar, hvort ekki beri að koma föstu formi á samvinnu þessara aðila. Hún er nú þegar fyrir hendi á til- teknum og takmörkuðum svið um, og um eitt skeið mun borgarstjóri, bæjarstjórar og sveitastjórar á þessu svæði hafa haldið með sér reglulega fundi. Slík skipulagsbundin, varanleg samvinna eða sam- ráð, mundi tvímælalaust stuðla að því, að þau vanda- mál, sem síðar kunna upp að koma vegna nábýlisins verði auðleystari en ella. OLÍUMÖL ITaranleg vatnagerð hefur ' allt fram á síðustu ár set- ið mjög á hakanum, bæði í Reykjavík og einstökum kaup stöðum og öðrum sveitarfé- lögum úti um land, en á und- anförnum árum hefur orðið Frá vinstri: Brenda, Christine, Carol, Joan og VaLerie. „Bretlandi allt“ IMý lausn á efnahagsvandainum í Bretlandi FIMM vclritunarstúlkur hafa gerzt frumkvöfflar nýrrar hreyfingar föðurlandsvina í Bretlandi, sem hyggjast styffja land sitt með ráðum og dáð í efnahagsraunum þess. Stúlkurnar buðust til að vinna aukalega í hálfa klukkustund á dag án launa og hafa orðið landsfrægar fyrir vikið, en fáir hafa fetað í fótspor þeirra, enn sem komið er a.m.k. Skoðanakönnun hefur ver- ið gerð í Bretlandi um hug- mynd stúlknanna og þykir flestum hún þjóðráð til að auka framleiðni. Hins vegar halda sumir forystumenn verkalýðssamtakanna og efnáhagsisérfræðiingar, að hún dugi ekki til að leysa vandamál BretAands hvað greiðsl’Uhallann snertir. Hugmyndin er reyndar fengin að láni frá Bandaríikj- unum. Sölustjóri Colt-fyrir- tækisins í Surrey sagð'i, þeg- ar hann kom frá verzlunar- erindum í Bretlandi, að efna- hagisvanda Bretlands væri hægt að leysa, ef sérhver starfandi maður ynni auka- lega hálfa klukkustund á dag. Vélritunarstúlkurnar Vale- rie, Brenda, Joan, Carol og Christine gerðu hugmyndina að veruleika þegar í stað. Hafa þær orðið margvíslegs heiðurs aðnjótandi fyrir bragðið. Filippus drottningar- maður, sendi þeim símskeyti og sagði, að þetta framlag þeirra væru ánægjulegustu fréttirnar, sem hann hefði fengið á árinu 1907. Þetta er kannski ekki ofmælt því lið- ið ár v ar í Bretlandi snautt af ánæjjulegum fregnum, en öll bre?ka þjóðin tók undir ummæli hertoganjs. Prentarar í Norw ich dreifðu ókeypis 10.000 merkjum til að festa í jakkalboðunginn og er letr- að á merkin „Bretlandi allt!“ Auglýsingafirma keypti beil- síðu í „The Times“ á 4.300 dollara til að kunngera, að það gerði auglýsingar ókeyp- is fyrir þau fyrirtæki, sem færu að dæmi stúlknanna fimm. Tíu viðbótarsímum var komið fyrir í skrifstofum fyr irtækisins, þar sem stúlkurn- ar vinna til þess að þær gætu tekið á móti heillaóskum. Og nýja lárviðarskáldinu, Cecil Day-Dewis, var falið að yrkja k'væði um hina nýju baráttu. Hundrað starfsmenn í plast verksmiðjunum í Staffords- skíri fórnuðu kaffilhléinu af einskærri föðurlandsást. Mun þeim verða fært te og kaffi við vinnu sína til að _ gera þeim fórnina bærilegri. í Dur ham samþykktu 175 verka- men-n að f-eta í fótspor stúlkn anna og vinna aukal-egan hálf tíma. Brezku iðnaðarsamtök- in eru hrifin af þessari hug- mynd en verkalýðissamtökun- um hefur til þessa tekizt að leyna hrifningu sinni. Að vísu telja sumir forsvars- menn þeirra hugmyndina „fjári góða“, en stjórn stærstu verkalýðssamtaka í Bretl-andi segir, að hugmyndin muni deyja eins snögglega og hún fæddist. En hún lifir ennþá góðu l'ííi og margt bendir til að 'hún sé að vinna á. Víst er u-m það, að hún hefur vakið sanna ham- in-gju í brjóstum allra, sér- staklega þó þeirra Valerie, Brendu, Joan, Carol og C'hristine. mikil breyting á í þeim efn- um. Stórátak hefur verið gert í malbikun gatna í Reykjavík á sl. 5-6 árum og hefur borgin gjörbreytt um svip af þeim sökum. Ýmsir kaupstaðir út um land hafa einnig gert myndarlegt átak í þessum efnum og hafa jafn- vel steypt helztu umferðar- götur hjá sér. í nágrannasveit arfélögum Reykjavíkur hefur þetta vandamál að sjálfsögðu verið mjög aðkallandi og jafn framt erfitt, vegna örrar upp- byggingar og takmarkaðs fjár magns, og þess vegna hefur tilraun verið gerð með lagn- ingu olíumalar, sem er tölu- vert ódýrari en malbik- Ekki eru menn á einu máli um reynsluna af olíumölinni, en í viðtali við Morgunblaðið í gær sagði Ólafur G. Einars- son, sveitarstjóri í Garða- hreppi, m.a. um þetta mál: „Við erum ánægðir með þá reynslu, sem við höfum af olíumöl á íbúðargötur. Á þeim götum hefur ekkert við- hald verið hjá okkur. Menn hafa orðið fyrir nokkrum von brigðum með olíumölina, en ég mundi segja, að það væri eingöngu á þeim stöðum, þar sem umferð er mikil. Hægt er að nefna Vífilstaðaveg- inn. Olíumölin á honum gaf sig af þremur ástæðum, á neðsta kafla vegarins var um ferðin komin yfir 2000 bíla á dag, en hámark er 1500 fyr- ir olíumölina, í öðru lagi var vegurinn ekki undirbyggður sem skyldi, þannig að í hon- um er veruleg frostlyfting, samt þolir olíumölin meiri frostlyftingu en t.d. malbik. í þriðja lagi var vegurinn rifinn upp í sumar með þar til gerðu verkfæri en við það eyðilagðist slitlagið á honum og er orsökin sú að heflað var of djúpt eða upprunalegt lag af olíumöl of þunnt“. Þessi ummæli sveitarstjór- ans í Garðahreppi benda til þess, að olíumöl geti dugað í fáfarnar götur, en ekki hin- ar fjölfarnari umferðaræðar. Vafalaust munu skoðanir manna enn skiptar um nota- gildi olíumalar og verður því fróðlegt að fylgjast með áframhaldandi reynslu af henni. Tékkneskur rithöfundur ánægður Tel Aviv, 8. jan. NTB- TÉKKNESKI ritihöfundur- inn Vladislav Mnacko lýsti í diag yfir þeirri s'koðun sinni að kjör Alexander Dulbeck, sem nýs leiS- toga kommúnistaflokksin-s væri sigur fraimfarasinnaðra afla í landi hans. Mnacko sem er víð- lesinn höfundur í Tékkóslóvakíu fór þaðan í ágúst til að mótmœla fjands'amlegri stefnu Tékkósló- vakíu gagnvart ísrael. Hann var síðar sviptur tékkneskum borg- ararétti. I viðtali sem birtist við Mnacko í Tel Aviv segir hann, að breyt- ingar sem g-erðar hafa verið und- anfarna daga á stjórn landsins og kommúnistaflokksins ljúki upp möguleikum á að flokkuirinn taki upp lýðræðislegri háttu. Er hann var spurður um ált á Dutoeck, sem á föstudag tók við af Antonin Novotny, sagði nit- höfundurinn: „Frá fræðilegu og siðferðilegu sjónarmiði getur hann hafið hinar æslkilegu breyt- ingar“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.