Morgunblaðið - 12.01.1968, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 1968
Forstjóri Lyfjaverksmiðjunnar ásamt ísl. dýralæknum.
FRAMFARIR í
ORMALÆKNINGUM
FORSTJÓRI Lyíjaverksmiðjunn
ar Leo í Helsingborg bauð dýra
læknum landsins til fundar að
Hótel Sögu í desember 1967.
Þar kynnti hann fyrir þeim fram
farir sem orðið hafa á sviði orma
lækninga á sau&fé. Sýnd var
lærdómsrík kvikmynd af starfi
dýralækna í sveitum Norður-
landa við lækningu ormaveikinn
ar. Rannsakaðar voru á staðnum
í smásjá hinar ýmsu tegundir
ormaeggja, þeirra orma, sem
veikinni valda á hverjum tíma.
Sýndar voru ýmsar heilsufræði
legar ráðstafanir, sem gerðar
voru á sauðfjárbúum til þess að
fyrirbyggja mikla ormasýkingu
fjórsins. I>á var sýnd notkun á-
hrifaríkra nútíma ormalyfja. Á-
hrif þeirra eru betri en áður var
sérstaklega vegna þess að þau
vinna á fleiri tegundum orma en
gömlu lyfin. Þannig hafði t.d.
aðallyfið, sem notað var, ful-1-
komin eyðandi áhrif á lungna-
orma, bitorma og magaorma.
Fróðlegt var að kynnast því
að Lyfjaverksmiðian Leo lætur
árlega framkvæma yfirgrips-
miklar tilraunir með notkun
ormalyfja. í samræmi við orma-
sýkingu fjárins í hverjum lands
hluta er stórum fjárhópum gefin
inn viðeigandi ormalyf. Aðrir
jafn stórir fjárhópar eru hafðir
til samanburðar. Þær kindur fá
engin ormalyf eða aðeins handa
hófskennda og óvísindalega
lækningu. Þannig kemur greini-
lega í liós hvaða vanþrifum orm
ar valda daglega í sauðfjárrækt
inni og hvers virði ormalækning
ar á fénu eru á hverjum tíma.
Það er auðvelt að reikna reikn-
ingsdæmið um hagnaðinn af
fullkomnum og vísindalegum
ormalækningum á fénu. Útkom
an nam milljónum sænskra
króna. Heilbrigða féð gaf miklu
meiri og betri afurðir en hitt
féð. Það kom fram í auknum
fallþunga dilka og betri ull.
Það er tilkomumikið að sjá
kvikmyndina vegna þess að í
henni var hægt að sjá hver á-
hrif ormaiækningar geta haft á
útlit fjárins og hreysti. Vel með
farið og hraust fé er undirstöðu
atriði fjárræktar hvar sem er í
heiminum. Ormalyf frá Lyfja-
verksmiðjunni Leo var gefið
einni milljón kinda á Norður-
löndum á siðasta ári, en 260
milljónum kinda í öllum heim-
inum var gefið ormalyf þaðan.
Samt er tilgangur minn ekki sá
að mæla með neinu sérstöku
ormalyfi til notkunar hér á
landi. Það sem vakti sérstaka
athygli mína í kvikmyndinni var
sleitulaust rannsóknar- og lækn-
ingastarf dýralækna á Norður-
löndum við ormaveiki í fé. Þar
hafa rannsóknir og reynsla Sonn
að að rýrleiki dilka að haustinu
stafar fyrst og fremst af margs-
konar ormasýkingu fjárins.
Skyldi ekki óhreysti og rýr-
leiki íslenzks fjár vera af sömu
rótum runnin? Á komandi árum
verður að ráða bót á ástandinu
í fjárræktarmálum vorum ef
íslenzk sauðfjárrækt á að stand-
ast samanlburð við sauðfjárrækt
annarra landa.
Mikilvægt er að vita hvaða teg
und orma veldur sýkingu á hverj
um stað, þess vegna þarf að rann
saka veikina á staðnum eins og
gert er í Noregi t.d. Þannig er
það reynsla mín á undanförnum
ánrm að-lungnaormar geta öðr-
um fremur valdið vanþrifum
í fé. Nú er auðveldara en áður
að lækna þá veiki.
Dýralækningamál á fslandi
þarf bæði að bæta og skipu-
leggja I samræmi við dýralækn
ingamál á hinum Norðurlöndun
um.
Bragi Steingrímsson.
dýralæknir
- RÉTTARHÖLD
. Framhald af bls. 1
að útgáfu „hvítrar bókar“ um
réttarhöldin yfir rithöfundunum
Yuri Dan el og Andrei Sinyav-
sky vorið 1966, og gefið út bók-
menntatímaritið „Fönix-66‘.
Báðir héldu því fram í réttin-
uim, að hér væri ekki um and-
sovézka starfsemi að ræða. Vera i
Lashkova viðurkenndi að hafa |
vélritað gögn bæði fyrir „hvítu
bókina“ og bókmenntatiimaritið,
en neitaði að hafa stundað and-
sovézka starfsemi. Kvaðst hún
;kki iðrast gjörða sinna.
Fjórmennmgarnir hafa þegar
setið í ár í fangelsi, og verði
farið að kröfu saksóknara, hef-
ur Lashkova því afplánað dóm
sinn og ætti að verða Mtin laus,
þegar dómur hefur verið kveð-
inn upp. Búizt er við, að það
verði síðdegis á morgun, föstu-
dag. Saksóknari flutti mál sittt
í dag í tveggja klukkustunda
ræðu, og sagði þar, að hinir á-
kærðu væru sekir um and-sov-
ézkan áróður í samvinnu við
flóttamannasamtökin N.T.S., setm
hafa aðalbækiistöð í Vestur-
Þýzkalandi. Verjendurnir flytja i
varnir á morgun, og er búizt |
við, að réttarhölidunum ljúkd fyr i
ir hádegi en dómar kveðnir upp !
síðdegis.
Galanskov og Ginsburg hafa
báðir neitað að hafa átt sam- !
vinnu við N.T.S. samtökin, og
samkvæmt áreiðanlegum heim-1
illdum lýsti G'nsburg yfir við i
réttarhöldin: „Ég er ekki and-
sovézkur, og tel mig fyigjandi
lýðræði öreiganna." Bókmennta-
fræðingurinn Leonid Pinsky vitn I
aði fyrir G nsburg í réttarhöld-
unum, og sagði hann vera sann
an fulltrúa menningarinnar en
engan afbrotamann.
Neitað um aðgang.
Norski lögfræðingurinn In-
gjald Örbeck Sörheim ræddi í
dag við fréttaritara norsku frétta
stofunnar NTB, í Moskvu. Sagði
hann að sér hafi verið neitað
um heimild til að hulsta á rétt-
arhöldin í dag, og hefði hann
því ekki betri upplýsingar um
gang málanna en vestrænir
fréttamenn. Sönheim er ritari
þingflokks norska Verkamanna-
flokksins, og talar ágæta rúss-
nesku. Hann var við nám í
Moskvu, að loknu stúdentsprófi,
fyrir átta árum, og var frétta-
ritari norska útvarpsins í
Moskvu árið 1964.
Þegar Sörheim reyndi í morg-
un að fá heimiid dómisyfirvalda
til að sitja í réttarsalnum, náði
hann aðeins sambandi við vél-
ritunarstúlku eina, sem ekki gat
leyst vanda hans. Síðar 1 dag
ræddi hann í stundarfjórðung við
Almasov, forseta réttarins, sem
tilkynnti honum, að ekki væri
unnt að veita Norðmanninum
undanþágu til að fá að hlusta á
réttarhöldin. Erlendir fréttarit-
arar h&fa ekki fengið aðgang að
réttarsalnum, en verða að bíða
á ganginum fyrir framan salinn
og sitja þar undir lögreglueftir
liti. Þegar Sörheim ætlaði að
bíða fyrir framan réttarsalinn
hjá erlendu fréttamönnunum,
véku óeinkennisbúnir lögreglu-
menn sér að honum og spurðu
hann álits á réttarhöldunum.
Hann tjáði þeim að hann
viidi ekkert um þau segja
fyrr en hann hefði fengið tæki-
færi til þesis að fylgjast með
því sem fram færi inni í rétt-
arsalnum. Virtuist lögreglumenn
irnír hafa sérstakan áhuga á Sör
heim, og segir ha.nn, að sama
hafi verið, er hann kom til
Moskvu á miðvikudagtskvöld. Á
flugvellinum var farangur hans
toliskoðaður-mjög ítarlega, þótt
aðrir farþegar hafi fengið að
fara óhindraðir gegnum tollskoð
unina.
Mótmæli í Sviþjóð.
f frétt frá Stokkhólmi segir
að samtök sænskra rithöfunda,
„Författarcentrum", hafi senit
Alexei Kosygin, forsætiisróðherra
Sovétríkjanna, mótmœlaskeyti
vegna réttarhaldanna. Mótmæla
þeir því að sovézkir rithöfund-
ar, sem skrifi af sannfæringu,
hljóti refsingu aðlaunum. Undir
símkseytið rita meðal annars rit
höfundarnir Vilhelm Moberg,
Sven Stolpe, Gösta Friberg, Siv
Arb og Rudolf Knutsson. Sendu
rithöfundarnir þeim Leonid
Brezhnev flokksleiðtoga, Roman
Rudenko rík issaksóknara og Eka
terinu Furtsevu, menntamálaráð-
herra afrit af skeytum, auk þess
sem afrit var sent sovézku rit-
höfundasamtökunum.
- VÍSAÐ ÚR LANDI
Framfhald af bls. 1
hafi stundað í samvinnu við her-
málafulltnia kanadiska sendi-
ráðsins. Er búizt við, að einnig
honum verði vísað úr landinu.
Fulltrúinn bandaríski heitir
Edward H. Metzger og hefur
starfað við sendiráðið frá því í
maí 1966. Samkvæmt upplýsing-
um pólskra yíirvalda var hann
handtekinn. þar sem hann var
að ljósmynda hernaðarlega mikil
váega staðí í bæ einurn 260 km.
norðvestur af Varsjá. Bandaríska
sendiráðið hefur mótmælt hand-
tökunni og sagt, að hún sé brot
á reglum um friðhelgi starfs-
manna sendiráða.
- UMMÆLI
Framhald af bls. 1
að fara sjálfur til Hanoi, ef það
mœtti verða að einhverju gagni.
Hann tal'di, að Danmörk hefði
nokkra möguleika til að leika
hlutverk málamiðlara í deilunni
þrátt fyrir smæð lands og þjóð-
ar, þar sem gott samband væri
miili Danmerkur og Bandaríkj-
anna, þótt danska stjórnin hefði
hvað eftir annað skorað á Banda
ríkjastjórn að hætta loftórásum
á N-Vietnam. Sagði Tabor, að
stjórnirnar í Washington og
Hanoi vissu báðar stefnu og
vilja dönsku stjórnarinnar í
þessu máli.
- VETRARHÖRKUR
Framhald af bls. 1
átt í vandræðum á ýmsum stöð-
um úti fyrir strönd Danmerkur
og danski sjóherinn var hvað
eftir annað beðinn aðstoðar.
Sem fyrr sagði ná vetrarhörk
urnar allt suður til Ítalíu. Þar
var kaldast í dag í Cortina D
Ambezoz, tuttugu stiga frost.
Víða hefur leitt til vandræða,
m.a. umhverfis Rómaborg, þar
sem fannkoma hefur einangráð
tugi smábæja og þorpa. Á Sik-
iley leita úlfarnir úr fjöll-
um ofan í byggð og höfðu
er síðast fréttist, grandað á sjö-
unda tug húsdýra.
í Helsingfors í Finnlandi er
mjög kalt en þeir, sem þar verða
verst úti af völdum kuldanna
§° uu.íBguii^nCsS'TgusjB n.ia
ingarnir í Helsinki, um átta
hundruð talsins. Fyrr í vetur
var komið upp skýli fyrir þá í
gömlum bragga, en þeir hafa
ekki ætíð sótt þangað til nætur-
vistar og nú í kuildunum hafa
þeir hreinlega ekki náð þangað
vegna veðursins .Hafa margir
lagt sig, þar sem þeir voru komn
ir og verið nær dauða en lífi„
er þeir fundust. Hefur marga
þeirra kalið illa og nokkur dæmi
þess að orðið hafi að skera af
mönnum fætur.
Til þessa í vetur hafa þrír
flækingar orðið úti vegna þess,
að þeir lögðust dauðadrukknir
úti á víðavangi. Hafa yfirvöldin
finnsku af þessu miklar áhyggj-
ur og hafa til athugunar hvað
gera eigi til úrbóta.
- 400 MILLJ. KR.
Framhald af bls. 28
samtals að upphæð kr. 93.245.
000.00. Loks veitti Húsnæðismála
málastofnunin bráðabirgðalán á
árinu til byggingarframkvæmda
FB í Breiðholti. Nam sú lán-
veiting samtals kr. 86.380.000.00.
Um næstu lánveitingu Húsnæð
ismálastofnunarinnar vísast til
auglýsingar, er birtist um þess-
ar mundir í blöðum og útvarpi".
Til samaniburðar má geta þess
að á árinu 1965 námu heildar-
lánveitingar Húsnæðismálastjórn
ar 283,4 milljónum til 2555 um-
sækjenda en 1966 námu heildar-
lánveitingar 343,4 millj. til 2452
umsækjenda þar af til 1253
nýrra ífoúða.
Lýst eftir
leigubílstjóra
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
biður ökumann á rauðum Mer-
cedes Benz leigubíl, sem varð
vitni að því, er bíll kastaðist á
Ijósastaur við Hverfisgötu 71 17.
nóvember sl„ að gefa sig fram.
Leigubílstjóri þessi gerði lög-
reglunni viðvart, en var horfinn
á braut, þegar hún kom á stað-
inn.
VÍSINDASJÓÐUR hefur auglýst
styrki ársins 1968 lausa til um-
sóknar og er umsóknarfrestur til
1. marz næstkomandi.
Sjóðurinn skiptist í tvær
deildir: Raunvísindadeild og Hug
vísindadeild.
Raunvísindadeild annast styrk
veitingar á sviði náttúruvísinda,
þar með taldar eðlisfræði , og
kjarnorkuvísindi, efnafræði,
stærðfræði, læknisfræði, líf-
fræði, lífeðlisfræði, jarðfræði,
jarðeðlisfræði, dýrafræði, grasa-
fræði, búvísindi, fiskifræði,
verkfræði og tæknifræði.
Formaður stjórnar Raunvís-
indadeildar er dr. Sigurður Þór-
arinsson jarðfræðingur.
Hugvísindadeilð annast styrk-
veitingar á sviði sagnfræði, bók-
mennta, ræði, málvísinda.félags-
fræði, lögfræði, hagfræði, heim-
speki, guðfræði, sálfræði og upp-
eldisfræði.
Formaður stjórnar Hugvís-
indadeildar er dr. Jóhannes Nor-
dal bankastjóri.
Formaður yfirstjórnar sjóðsins
Hámarkslán miðað við byflun
arframkvæmdir 1965 voru 280
þúsund en það ár máttu sameig-
inleg hámarkslán Húsnæðismála
stjórnar og lífeyrissjóða nefia
480 þúsundum. Árið 1966 námu
hámarkslaun Húsnæðismála-
stjórnar miðað við byrjunar-
framkvæmdir það ár 340 þús-
undum og sameiginlegt lánshá-
mark fyrrgreindra agrtó 540
þúsundum. Á sl. ári námu há-
markslán Húsnæðismálastjórn-
ar 380 þúsundum miðað við
byrjunarframkvæmdir það ár,
en sameiginlegt hámark stofn-
unarinnar og lífeyrissjóða hefur
enn ekki verið ákveðið.
- UPPÞOT
Framhald af bls. 1
viðskiptadoildum háskólans í
borginni.
Stúdeniarnir kveiktu m.a. í
strætisvagni með því að fleygja
inn í hann heimagerðri sprengju.
En þegar nokkrir stúdentar tóku
sig til og girýttu farþega í öðrum
vagni, chúgu flestir sig í hlé.
Stúdentarnir réðust einnig að
slökkviliðsmönnum með grjót-
kasti og var órólegt mjög um hríð
eða þar til lögreglan kom og
jkakkaði leikinn.
- PENINGAFÖLSUN
Fraimhald af bls. 1
Það var á Kennedy flug-
velli í New York 29. des. sl.
sem starfsmenn leyniþjónust-
unnar fundu hundrað dollara
seðlana, að upphæð um 4,1
milljón dollara. Seðlarnir
áttu að fara til kaupanda er-
lendis, sem hafði samþykkt
að greiða tíu sent fyrir doll-
arann, eða samtals um 410.000'
dollara. Þrír menn voru hand
teknir, sem fyrr sag'ði, einn
í New York og tveir í Ohio.
Sá, sem tekinn var í New
York, er lögfræðingur, að
nafni Joel Lee og hefur starf
að í Florida. Hann er sagður
hafa verið sölumaður og út-
breiðslustjóri falsaranna. Hin-
ir tveir voru sakaðir um að
hafa prentað peningana.
Talsmaður leynilögreglunn-
ar, Albert E. Whitaker, sagði
fréttamönnum, að hundrað
dollara seðlarnir, sem eru
með mynd af Benjamin Frank
lin, hefðu verið ágætlega
gerðir og hefði sennilega ekki
reynzt erfitt að dreifa þeim
í New York og annars staðar
í Bandaríkjunum. Hinsvegar
taldi hann líklegast, að þeir
hefðu allir átt að fara úr
landi.
Bandaríska leynilögreglan
hefur aldrei fyrr tekið svo
mikið magn falsaðra peninga.
Fyrra metið voru falsaðir
tuttugu og fimmtíu dollara
seðlar, að upphæð tvær millj-
ónir dollara, sem fundust í
San Fransico árið 1963.
er dr. Snorri Hallgrímsson pró-
fessor.
Hlutverk Vísindasjóðis er að
efla íslenzkar vísindarannsóknir,
og í þeim tilgangi styrkir hajin:
1. Einstaklinga og vísinda-
stafnanir vegna tiltekinnar
rannsóknarverkefna.
2. Kandídata til vísindalegs sér
náms og þjálfunar. Kandídat
verður að vinna að tilteknum
sérfræðilegum rannsóknum eða
afla sér vísindaþjálfunar til þess
að koma til greina við styrkveit-
ingu.
3. Rannsóknastofnanir til
kaupa á tækjum, ritum eða til
greiðslu á öðrum kostnaði í sam
bandi við starfsemi, er sjóður-
inn styrkir.
Umsóknareyðublöð, ásamt upp
lýsingum, fást hjá deildarritur-
um, í skrifstofu Háskóla íslands
og hjá sendiráðum íslands er-
lendis.
Deildarritarar eru Guðmundur
Arnlaugsson rektor, fyrir Raun-
vísindadeild, og Bjarni Vilhjálms
son skjalavörður, fyrir Hugvís-
indadeild.
Styrkir úr Vísindasjóði