Morgunblaðið - 12.01.1968, Page 28

Morgunblaðið - 12.01.1968, Page 28
. EINANGRUNARGLERj Oárn reynsla hérlendl triöiWúMúMfo FÖSTUDAGUR 12. JANUAR 1968. ASKUR. Suðurlandsbraut 14 — Simi 38550 Milljónatón er frystihúsið á Raufarhðfn brann til grunna Hindra tókst að eldurinn bærist í sambyggt sláturhús MILLJÓNATJÓN varð er frysti- húsið á Raufarhöfn brann til kaldra koia seint í gærkveldi. Á hinn bóginn tókst slökkviliði þorpsins að bjarga því, að eldur kæmist í siáturhúsið, sem er sambyggt frystihúsinu. Mikið af vélum alls kyns var í frystihús- inu, og má telja fullvíst að þær hafi allar eyðilagzt. Ekkert af hráefni mun hafa verið í frysti- húsinu utan einhvers magns beitusíldar. Talið er að eldurinn hafi kom ið uipp um kl. átta í gærkvöldi. Á þeiim tíma átti fréttaritari Mbl á Rautfarhöfn, Einar Jónsson, leið um þorpið og fann hann þá megna reykjarlykt berast frá frystihúsinu, en géðd ekki frek- ar að, þar sem hann hélt að ver ið væri að kveikja í rusli. Laust fyrir kl. 8.30 átti hann svo aftur leið út, og sá hann þá að mikill eldur var kominn í vesturhluta frystihússins, sem er all stórt — um 40 metrar að lengd en einlyft. Litlu síðar kom slökkviliðið á vettvang og hóf það þegar slökkvistarf. Strax varð ljóst að ekki yrði forða'ð að frystihúsið brynni til kaldra kola, og var því lögð á- herzla á að hindra, að eldurinn næði að komast í sláturhúsið, sem er sambyggt frystihúsinu, eins og áður segir. Eldurinn í Ávísonaials- frystihúsinu barst fljótt út, og til að hindra að eldurinn bær- ist í þak sláturhússins var grip- ið til þess bragðs að reyna að fella þak frystihússins niður í salinn. Tókst það og um kl. 10 var frystihúsfð að mestu fallið. Um kl. 11,30 hafði frekari út- breiðsla eldsins verið hindruð, og logaði þá aðeins í vélasal. Þrjár ötflugar slökkvidælur voru notaðar við slökkvistarfið. Frystihúsið -var með stein- steypta útveggi, en klætt að inn- an með korki og tréþili. Þakið var með trésperrum, og tréklætt með bárujárni ofaná. Sem fyrr segir var í frystihúsinu full- komið frystikerfi og mikið af dýrum vélum, og má því full- yrða að þarna hafi orðið mill- jónatjón. Þorkell máni landaði í gær TOGARINN Þorkell Máni land- aði í gær um 110 tonnum af blönduðum fiski sem hann hatfði fengið á hieimamiðum. Hann hatfði verið að veiðum síðan á þriðja jóladag. Aflinn fór allur í frystingu. Tveggja lítra mjólkur- umbúðum vel tekið Þökkum frábær afrek TVEGGJA lítra mjólkurumbúð unum hefur verið mjög vel tek ið, og Stefán Björnsson, for- stjóri Mjólkursamsölunnar, sagði Morgunblaðinu að þær seldust jafnan upp skömmu eft- ir að þær kæmu í mjólkurbúð- imar, og hefðu þeir ekki við að framleiða. Framleiðslan nú nemnur um 8000 fernum á sólarhring. Stef- án sagði að vélarnar hetfðu reynzt veL en hins vegar væri arar hand- j Glugga- teknir RANNSÓKNARLÖGREGL- AN handtók í fyrrakvöld þrjá menn, sem við yfirheyrslur í gær játuðu að hafa gefið út fimm falsaðar ávísanir, alls að upphæð tæpar níu þúsund krónur. Einn þremenninganna fann sl. sunnudag ávísanahefti á gólfinu í Austurbæjarbíói. Á mánudag byrjuðu þeir svo að gefa út ávísanir, keyptu fyrst einn kassa af víni, en hinar ávísanirnar seldu þeir í verzl unum og veitingastöðum í Reykjavík og Hafnarfirði. gæg ir fundinn RANNSÓKNARLÖGREGLAN handtók í fyrrakvöld 22 ára mann, sem viðurkenndi að hafa lagzt á glugga í einu húsi í Kleppsholtinu. Þessi maður hef- ur áður orðið uppvís að sams konar athæfi. Ekki vildi hann láta uppi er- indi sitt á gluggann, en rann- sóknarlögreglunni hafa nýlega borizt nokkrar kvartanir vegna manns, sem legðist á glugga í Kleppsholtinu. Vestur - íslendingar undirbúa hópierS til Islands á næsta sumri Þjóðræknisfélag íslendinga í Vesturheimi er að undirbúa hóp- ferð til fsiands á næsta siunri. Er rúm fyrir 100 manns í ferðinni og þátttaka takmörkuð við félaga Þjóðræknisfélagsins, konur þeirra, böra og foreldra er hjá þeim búa. Ætlunin er að hefja ferðina í Winnipeg 30. júní og fara til ís- lands um New York með flugvél um frá Northwest Airlines og Loftleiðum. Farið verður sömu leið frá Keflavík mánuði seinna eða 30. jú'lí. Nefnd, sem kjörin hefur verið til að undirbúa ferðina, skipa þessir menn. Sir. Philip M. Pét- ursson, formaður Þjóðræknis- félagsins, Grettir L. Jóhannsson, aðalræðismaður, frú Kristín R. Johanson, sem gegnir störfum gjaldkera og ritara og Jakob F. Kristjánsson, sem er formaður nefndarinnar. Er farið að taka við pöntunum í ferðina og reiknað með mikiu meiri þátttöku en hægt er að anna. starfsfólkið ekki alveg búið að læra á þær. Vélarnar hefðu ver ið teknar í notkun rétt fyrir jól og S'VÍinn, sem komdð hefði til að þjálfa fólkið, hefði þurft að fara heim í jólahald áður en kennslunni var að fullu lokið. „En þetta er nú allt að komast í lag, við áttum í sömu byrjun- arörðugleikum þegar hyrnurnar komu fynstf.“ Það var mikið fjölmenni hjá Birni Pálssyni á sextugs- afmæli hans og margir ára- uðu honum heilla með gjöf- um, blómum og skeytum. Einna vænzt hefur honum sennilega þótt um þennan grip, sem hann heldur á í hendinni, og sem Slysavama- félagið færði honum. Á silf- urplötu á granítstöpli stend- ur:Björn Pálsson 10/1 1968. Þökkum frábær aferk. Slysa- varnafélag íslands. Og ofan á er hvaltönn, sem í er skorin mynd af gömlu flugvélinni hans, Cessna 180. Þetta var eiginlega hans fyrsta sjúkra- flugvél, sem var frambærileg til slíkra nota. Hún er nú 14 ára gömul og enn við líði. Hafa margir sjúklingar verið fluttir í henni. Ljósm. Ól. K. Mag. Lánveitingar Húsnœðismálastjórnar 1967; Nær 400 millj. kr. - til 2519 aðila — 531 lánsloforð að upphæð 93 millj. tíl greiðslu á þessu ári Á SL. ÁRI nam lánveiting Húsnæðismálastofnunar rík- isins hærri upphæð en nokkru sinni fyrr og voru veitt 2519 lán að upphæð nær 400 millj- ónir króna. Ennfremur voru veitt 531 lánsloforð að upp- hæð rúmlega 93 milljónir, sem koma til greiðslu eftir 1. IViíií seldi í Grimsby TOGARINN Maí frá Hafnar- firði seldi, á miðvikudagsmorg- uninn 157 lestir af blönduðum fiski, aðallega þorski, í Grimsby fyrir 16.342 sterlingspund. Lítið framboð hefur verið á brezkum markaði að undan- förnu, sem stafar af jólafríi brezkra togaramanna. Eru þeir enn ekki komnir úr veiðiferðum, er þeir héldu í eftir hátíðarnar. maí n.k. Loks veitti Hús- næðismálastofnunin bráða- birgðalán að upphæð rúm- lega 86 milljónir. Fréttatilkynning Húsnæðis- málastjórnar fer hér á eftir: ,-Á árinu 1967 afgreiddd Hús- næðismálastofnun ríkisins 2519 lán samtals að upphæð 391.462. 900.00. Er þetta hæsta lánveit- ing sem fram hetfur farið á veg- um stotfnunarinnar. Lánveitingar fóru fram vorið og haustið 1967. Voru veitt bæði byrjunarlán og viðbótarlán. Veitt voru ný lán til 1070 íbúða og 1449 viðbótarlán eða alls 2510 lán. Auk þess fór fram á árinu veiting lánsloforða er koma til greiðslu eftir 1. maí á árinu veiting lánsloforða er koma til greiðslu eftir 1. maí á þessu ári, Eru lánslofbrð þessi Framhald á bls. 16 Isl. mjólkurumbúöir til Saudi - Arabíu KASSAGERÐ Reykjavíkur hf. hefur þrívegis sent nokkuð magn af 25 Iítra mjólkurumbúðum til Bahrein í Saudi-Arabíu. Agnar Kristjánsson, framkvæmdastjóri sagði Morgunblaðinu, að 2000 umbúðir hefðu verið í hverri sendingu og að þær hefðu líkað svo vel, að þeir teldu frek ari viðskipti örugg. Það er danskt fyrirtæki í Saudi-Arabíu sem notar þessar umbúðir, og selur mjólk í þeim til skipa og fyrirtækja. Þessar hvrnur eru líka notaðar af Varn arliðinu á Keflavíkurflugvelli og á Ellihemilinu Grund, en hins- vegar hefur Reykjalundi og Loft- leiðum verið neitað um að fá þær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.