Morgunblaðið - 21.01.1968, Síða 1
32 8IÐUK OG LESBOK
17. tbl. 55. árg. SUNNUDAGUR 21. JANUAR 1968. Préntsmiðja Morgunblaðsins.
Sprenging í olíustöð
na J
á t
GftÐÆRI í afkomu manna
bygg-ist á því að vel aflist
sjónum, og er vonandi aS ver- i
tiðin sem er byrjuð eigi eftir ’
að efla hag landsmanna. Viða
hafa bátar hafið róðra, en vart 1
mun þó vertíðin fara að fullu
í gang fyrr en frystilhúsin fara
að frysta fisk. Myndina tók
Sigurgeir Jónasson, ljós-
myndari Mbl. í Vestmannaeyj l
um, um borð í einum línu-1
bátnum og er sjómaðurinn að ;
slengja griðarstórri löngu inn
fyrir borðstokkinn. Sjá má i
sundmagann þrýstast út um
kjaftinn á löngunni. I.ínufisk-
urinn þykir bezti fiskurinn til
vinnslu. Sjá myndir úr línu-
róðri á bls. 19.
200. gervitungl
Sovétmonnu
Moskvu, 20. jan. — AP:
SOVÉTRÍKIN skutu í morgun
upp 200. gervitungli sínu ómönn
uðu, og var í því tilefni mikið
um hátíðarhöld í Moskvu. Eld-
flaugarskot þetta er liður í Kos
mos-geimferðaáætlun Sovétríkj-
anna. Segja sovézk stjórnvöld,
að Kosmos 200 muni framkvæma
veðurathuganir eingöngu.
Bandaríkjastjórn álítur, að um
80 sovézk gervitungl séu notuð
Framhald á bls. 31
— Tveir fórust og 65 sœrðust
Rotterdam, 20. jan. (NTB).
MIKIL sprenging varð í olíu-
hreinsunarstöð Shell-félagsins í
Rotterdam í morgun, og kviknaði
eldur í mörgum olíugeymum við
sprenginguna. Vitað er um tvo
menn sem fórust í sprenging-
unni, en að minnsta kosti 65
manns særðust.
Svetlana fordæmir réttarhöldin
Spáir byltingu lýðrœðishugmynda í Sovétríkjunum
New York, 20. jan-
SVETLANA Allilujeva
Stalín hefur fordæmt fang-
elsisdómana yfir sovézku
rithöfundunum þremur,
sem dæmdir voru í 2—7
ára þrælkunarvinnu í fyrri
viku. I yfirlýsingu, sem
Svetlana birti í bandaríska
stórblaðinu The New York
Times kveðst hún vilja
vekja athygli á skírskotun
Pavels Litvinov og Larissu
Daniel til almenningsálits-
ins í heiminum. Litvinov
og frú Daniel dreifðu þess-
ari skírskotun prentaðri
meðal erlendra frétta-
manna, sem fylgdust með
réttarhöldunum yfir rithöf
undunum Ginsburg, Galan
skov og Dobrovolskí.
f yfirlýsingunni lauk Svetl-
ana lofsorði á Litvinov og frú
Daniel, sem hún sagði, að
hefðu virt að vettugi hættur
og ógr.anir til þess að gera
Svetlana
það lýðum ljóst erlendis, að
þessi réttarhöld væru skrípa-
leikur frá upphafi til enda.
í viðtali við CBS-útvarps-
stöðvarnar nú nýlega sagði
Svetlana viðvíkjandi þessum
réttarhöldum: „Við getum
ekki leitt þessi réttarhöld og
skírskotun tvímenninganna
hjá okkur . . . Við getum ekki
verið þögul andspænis ofsókn
um gegn grundvallarréttind-
um mannsins, hvar í heimin-
um, sem þær eiga sér stað.
Við verðum að veita allt okk
ar fulltingi þeim, sem varð-
veita heiðarleik sinn og hug-
rekki jafnvel þar sem ástand-
ið er óþolandi, þeim sem hafa
styrk til að berjast“.
Svetlana benti á, að yngri
kynslóðin í Sovétríkjunum
sýndi æ meira hugrekki til að
gagnrýna og mótmæla skorti
á lýðræði og óhæfri stjórn sov
ézkra ráðamanna.
f yfirlýsingu sinni í The
New York Times sagði Svetl
ana, að þessi réttarhöld væru
Framhald á bls. 31
Shell-stöðin í Rotterdam er ein
stærsta oliuhreinsunarstöð heims
og við hana er fjöldi olíugeyma
og mikil hafnarmannvirki. Við
bryggjurnar voru nokkur olíu-
flutningaskip félagsins, en ekki
er vitað að tjón hafi orðið á
þeim, enda sigldu þau flest á
brott hið skjótasta strax eftir
sprenginguna.
Forstjóri stöðvarinnar, I. van
den Berg, segir að á rúmlega 60
þúsund fermetra svæði, þar sem
stóðu geymslur og birgðaskemm-
ur, standi nú ekki steinn yfir
steini eftir. sprenginguna, en
gluggarúður brotnuðu í margra
kílómetra fjarlægð. Eldurinn
breiddist ört út og teygðu eld-
tungurnar sig upp í 120 metra
hæð.
Um 600 manns voru við vinnu
í stöðinni þegar sprengingin
varð, og slösuðust margir þeirra,
en fæstir alvarlega. Aðallega
hlutu þeir sár af splundruðum
gluggarúðum.
Hvirfilbylur
í Mozombique
Loureneo, Marques, 20. jan AP
FIMMTÁN munu hafa farizt og
fjögurra er saknað eftir að hvirf
ilbylur gekk yfir norðlæg strand
héruð Afrikurikisins Mozam-
bique.
Hiitabeltiisstormurinn, sem veð
urfræðingar nefna Georgette,
olli mestu tjóni í smáborgunum
Antonio Enes, Boila, Larde og
Quinga. Plantekrur gereyðillögð-
ust á þes.su svæði og fólk flýði
heimili sín í þúsundatali. Mörg
hundruð fjölskyldna eru nú
heimilislausar á stormasvæðun-
um og er tjónið metið á millj-
ónir dala.
25 þingmenn reknir úr
Verkamannaflokknum
— vegna óhlýðni við Wilson
London, 20. jan. (AP).
TUTTUGU OG FIMM þingmenn
brezka Verkamannaflokksins
hafa verið reknir úr flokknum —
að minnsta kosti um stundarsak-
ir — fyrir þá sök að hafa ekki
greitt tillögum stjórnarinnar í
efnahagsmálum atkvæði á þingi
nú í vikunni. Greip flokksstjóm-
in til þessara aðgerða eftir að
einn hinna brottreknu, Reginald
Paget, hafði krafizt þess að Har-
old Wilson segði af sér forsætis-
ráðherraembætti.
Brottrekstrartilkynningin er
gefin út í nafni John Silkins,
framkvæmdastjóra þingflokks
Verkamannaflokksins, að loknum
viðræðum hans við Wilson og
meðráðherra hans.
Þykir brottreksturinn benda til
þess að Wilson hafi ákveðið að
grípa í taumana til að tryggja
frekari samstöðu þingmanna
flokksins í framtiðinni. Það hef-
ur nokkrum sinnum komið fyrir
áður að einstaka þingmönnum,
og jafnvel fámennum hópum
þingmanha hefur verið vikið úr
Verkamannaflokknum, en sjald-
an eða aldrei jafn mörgum í
einu og nú. Talið er fullvíst að
flestir hinna brottreknu fái á ný
að fylkja sér í raðir Verkamanna
fiokksins ef þeir heita flokknum
og flokksforustunni meiri trú-
mennsku í framtíðinni.
Þótt það dragist eitthvað að
þingmennirnir 25 gangi á ný í
raðir Verkamannaflokksins, þarf
Wilson forsætisráðherra ekki að
óttast að andstæðingar hans nái
meirihluta á þingi. Þingmanna-
fjöldi í Neðri málstofu brezka
þingsins á að vera 630, og skipt-
ast sætin nú sem hér segir milii
flokka: Verkámannaflokkur 352,
íhaldsflokkur 254, Frjálslyndi
flokkurinn 12, fimrn aðrir flokk-
ar, þar á meðal þjóðernissinnar í
Wales og í Skotlandi, hafa eitt
sæti hver, og sex sæti eru óskip
uð.
Um 20 hinna brottreknu þing-
manna Verkamannaflokksins eru
úr vinstri armi flokksins, og með
al þeirra er leiðtogi vinstri arms-
ins, Michael Foot. Hinir fimm
eru flestir hægri sinnar.