Morgunblaðið - 28.01.1968, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1968
Annast um skattframtöl að venju. Tími eftir sam- komulagi. Friffrik Sigurbjörnss., lögf. Harrastöðum v/Baugsveg. Sími 16941 og 10100.
Skrifstofustúlka óskar eftir atvinnu í 2—3 mánuði, er vön almennum skrifstofust., símavörZlu, vélritun og enskum bréfa- skriftum. Uppl. í s. 20964.
Bif rei ðast jór ar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. HEMLASTILLING H.F. Súðavogi 14 - Sími 30135.
Skattaframtöl Sigfinnur Sigurffsson, hag- fræffingur, Malhaga 15. — Sími 21826 eftir kl. 18.
Skattaframtöl Komið strax, því tíminn er naumur. Fyrirgreiffsluskrif stofan, Austurstræti 14, sími 16223. Þorleifur Guð- mundsson, heima 12469.
Útsala í Hrannar- búðunum Skipholt 70. S: 83277. Hafnarstræti 3. S: 11260. Grensásvegi 48. S: 36999.
Get bætt við mig bókhaldi fyrir smaerri fyr- irtæki, um lengri eða skemmri tíma. Ármann ö. Ármannsson stud. oecon.
Innréttingar Tek að mér smíði elhúsinn. réttinga, einnig fataskápa. Uppl. í síma 31307.
3ja herb. íbúð til leigu í Vesturbænum. Tilboð skilist á afgr. Mbl. merkt: „5030“ fyrir 3. febr.
Bílskúr óskast til leigu, má vera í Kópa- vogi. Uppl. í síma 42135.
Aðstoða við skattframtöl bygginragskýrslur og fl.. Verð M. 450—750. Innifal- ið kaerur og bréfaskipti síðar ef með þarf. Sig. S. Wium, sími 40988.
Milliveggjaplötur Góður lager, þykktir 5, 7 og 10 cm. Hagstaett verð og greiðsluskiim. Hellu- og steinsteypan sf. við Breið- holtsveg. Sími 30322.
íbúð til leigu í Hafnarfirði 1 herb., eldh., með snyrtiherb. og sérinng. Tilb. sendist Mbl. fyrir 31. þ. m. merkt „5195“. Aðeins fyrir einhl. eða einhl. hjón.
Til sölu 3 gyltur með unga og 16 grísir. Uppl. í Skipholti á Vatnsleysxiströnd, sími um Voga.
Vil selja eða skipta á 3ja herb. íbúð á góðum stað í Háaleitishv. og stærra hiisnæði, sem má vera í byggingu. Uppl. í síma 32620.
Sunnudagaskólar
Minnistexti sunnudagaskóla-
barna:
Guð stendur gepn dramblát-
um, en auðmjúkum veitir
hann náð.
I. Pétursbréf, 5, 5b.
Sunnudag:askólar KFITM og K
í Reykjavík og Hafnarfirði
hefjast í húsum félaganna kl.
10.30. Öll börn eru hjartanlega
velkomin.
Hjálpræðisherinn
Sunnudagaskóli kl. 2 e. h. —
Öll börn velkomin.
Heimatrúboðið
Sunnudagaskólinn kl. 10.30. —
Öll börn hjartanlega velkomin.
Sunnudagaskólinn,
Mjóuhlíð 16, kl. 10,30. — Öll
börn hjartanlega velkomin.
Fíladelfía
Sunnudagaskólar hefjast kl.
10.30 að Hátúni 2 og Herjólfs-
götu 8. Öll örn velkomin.
Sunnudagaskóli
kristniboðsfélaganna í Skip-
holti 70 hefst kl. 10.30. — Öll
börn velkomin.
Nálægið yður Guði, og þá mun
hann nálgast yður. (Jak. 4,8).
f dag er sunnudagur 28. janúar
og er það 28. dagur ársins 1968.
Eftir lifa 338 dagar. 4. sunnudagur
eftir þrettánda. Karlamagnús keis-
ari. Ardegisháflæði kl. 4.30.
Upplýsingar um læknaþjónustu i
borginni eru gefnar í sima 18888,
simsvara Læknafélags Reykjavík-
ur.
Slysavarðstofan í Heilsuverndar-
stöðinni. Opin allan sólarhringinn
— aðeins móttaka slasaðra —
sími: 2-12-30.
Læknavarðstofan. Opin frá kl. 5
síðdegis til 8 að morgni. Auk þessa
alla helgidaga. — Simi 2-12-30.
Neyðarvaktin fSh^arar aðeins á
virkum dögum frá kl. 8 til kl. 5,
sími 1-15-10 og laugard. kl. 8—1.
Kvöldvarzla í lyfjabúðum 1
Reykjavík vikuna 27. jan. til 3.
febr. er 1 Reykjavíkurapóteki og
Apóteki Austurbæjar.
Næturlæknir í Keflavík:
27. og 28. jan. Kjartan Ólafsson.
29. og 30. jan. Arnbjörn Ólafsson.
31. jan. og 1. febr. Guðj. Klemenz
Næturlæknir í Hafnarfirði.
Helgarvarzla laugard.—mánudags
morgun 26.—29. jan. er Jósef. Ól-
afsson, sí im51820. Einnig aðfara-
nótt 30. jan.
Keflavíkurapótek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—2
og sunnudaga frá kl. 1—3.
Framvegis verður tekið á móti
þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 f.h. Sérrtök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
ur á skrifstofutíma er 18-222. Næt-
ur- og helgidagavarzla, 18-230.
Skolphreinsun hjá borginni. —
Kvöld- og næturvakt, simar
8-16-17
A.A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir: I fé-
lagsheimilinu Tjamargötu 3«
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, í Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lífsins svarar í síma 10-000.
D Mímir 59681297 — 1 Frl.
IOOF 3 = 1491298 = M.A.
RMR-31-1-20-SPR-MT-HT.
IOOF 10 = 1491298= N. K
Nýlega voru gefin saman í hjónaband frk. Margrét Dorotea
Marinósdóttir, Ásabraut 3, Sandgerði og Pétur Sigurðsson, Merki-
landi, Selfossi.
Frk. Þórunn Haraldsdóttir, Stokkseyri og Helgi Brynjar Marin-
ósson, Ásabraut 3, Sandgerði. Heima Suðurgötu 14, Sandgerði.
FRÉTTIR
Frá Kvenstúdentafélagi íslands.
Aðalfundur verður haldinn í Þjóð
leikhúskjallaranum þriðjudaginn
30. jan. kl. 8,30.
Keflavík
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn
neldur aðalfund þriðjudaginn 30.
janúar í æskulýðshúsinu kl. 9. —
Bingó verður spilað á eftir.
Heimilasambandið
Heimilasambandið hefur 40 ára
afmælishátið þriðjud. 30 janúar.
Nánar auglýst síðar. Enginn fund-
ur mánud. 29.
Kvenfélag Neskirkju býður eldra
sóknarfólki í kaffi að aflokinni
guðsþjónustu kl. 3 sunnudaginn 28.
janúar í Félagsheimilinu. Skemmti
atriði. Allt eldra fólk velkomið.
Tilkynnlng til sóknarfólks
Simanúmer mitt er 16337 og
heimilisfang Auðarstræti 19. Séra
Ragnar Fjalar Lárusson, sóknar-
prestur í HallgrímsprestakalU.
Spakmœli dagsins
Það er ekki fyrr en sólin skín
á glugga þína, að þú gerir þér ljóst,
hvað þeir eru óhreinir. — H. Red-
wood.
Vísukorn
Með kveðju til Ó. E. S.
Kannski hef ég lofað meiru en má,
það má víst engu treysta.
Ég býst við þér fyndist birtan grá
birta af mínum neista.
En innilega þakka ég þér.
Og því mtátu alveg treysta,
ég gæti þó alltaf gefið þér
góða, hlýja leista.
Sólveig frá Niku.
sá NÆST bezti
Séra Hákon: „Hvaða ógn eru líkar drógarnar, sem þú hefur
með þér, Bjarni minn, — báðar rauðar og alveg eins.“
Bjarni: „Það er ekki svo undarlegt. — Þær eru hvor undan
annarri."
Sýning i iWorgunblaðsglugga
Um þessar mundir sýnir Þór-
dís Tryggvadóttir myndir sinar
í glugga Morgunblaðsins.
Þórdísi þarf ekki að kynna
Iesendum Mbl., hún er þegar
landsþekkt af ágætum bóka-
skreytingum sínum. Við hittum
hana rétt sem snöggvast að
máli, þegar hún var að koma
myndunum fyrir í glugganum.
„Þetta er nú eiginlega sitt úr
hveiTÍ áttinni", sagði Þórdís.
„Hér eru nokkrar gamlar mynd-
ir, en sumar eru þó splúnku-
nýjar af nálinni. Þær eru ekki
allar til sölu, en margar þeirra.
Ég lærði hérna heima I Hand-
íðaskólanum, en mitt fyrsta
nám var auðvitað í heimahús-
um ,enda hæg heimatökin, þvl
að faðir minn sálugi, Tryggvi
Magnússon, listmálari og skop-
teiknari, var iðinn við að kenna
mér.
Þá var ég einn vetur við nám
i Kaupmannahöfn, og auk þess
hef ég notið kennslu í frægum,
amerískum bréfaskóla, en
meðal kennara hans er lista-
maðurirm kunni, Norman Rock-
well.
Ég held að fyrsta bókin, sem
ég myndskreytti, hafi verið
„Segðu mér söguna aftur", en
þó má vel vera að mig mis-
minni. Það er ósköp misjafnt
með bókateikningar, hvort
manni eru gefnar frjálsar hend-
ur með teikningarnar eða gefn-
ir einhverjir punktar, en það er
skemmtilegt verkefni að mynd-
skreyta bækur“.
Á þessari gluggasýningu Þór-
dísar kennir margra grasa. Þar
eru olíumálverk, vatnslitamynd-
ir og teikningar, m.a. 6 skop-
myndir af starfsmönnum Raf-
veitxmnar. Einnig eru styttur,
og má m.a. nefna litlar leir-
styttur, gamlar þjóðlifsmyndir,
sérlega skemmtliegar. Þá sýnir
hún einnig bókmerki, Ex Libris,
og eru nokkur þeirra til sölu, og
verði þeirra i hóf stillt. Upplýs-
ingar gefur auglýsindadeild
Mbl. — Sýning Þórdísar verður
næstu tvær vikur 1 glugganum.
— Fr. S.