Morgunblaðið - 28.01.1968, Side 12

Morgunblaðið - 28.01.1968, Side 12
12 MORGUNÐLAÐH), SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1968 Hiartagræðsla GREIN sú, er hér birtist, er hin fyrsta af þremur, sem blaðamaður Morgunblaðsins hefur tekið saman um hjartagræðslurnar, sem læknar í S-Afríku og Bandaríkjunum hafa að imdanförnu framkvæmt. Fyrsta greinin fjallar um aðdraganda þessarar læknisaðgerðar, næsta grein fjallar um fyrstu að- gerðina, sem dr. Christian Barnard í Höfðaborg gerði og sú þriðja um ýmiss konar bollaleggingar manna um siðferðilegar og þjóðfélagslegar hliðar málsins og efasemdir um réttmæti þess, að framkvæma hjartagræðslu meðan tilraunir eru ekki lengra á veg komnar. Ennfremur verður minnzt á ýmsar aðrar aðgerðir, sem læknar hafa gert tilraunir með á síðustu árum. Öldum saman hafa skurð- læknar látið sig dreyma um þann dag, er þeir gætu skipt um limi og vefi í mönnum eins og skipt er um hluti í vélum og tækjum — og stöðugt hafa þeir og aðrir iðkendur læknavísinda verið að þoka sér nær því marki. Um gervallan heim hafa menn velt vöngum yfir vanda- málum mannslíkamans og gert sleitulausar tilraunir með það fyrir augum að leysa þau. Þeim hefur miðað áfram, skref fyrir skref, þessum nafnlausa skara vísindamanna — og stundum í stórum stökkum, þegar ein- hverjum hefur tekizt að leysa einhvern rembihnútinn, kann- ski af tilviljun, kannski vegna þess, að hann hefur getað séð fyrri þekkingu í öðru ljósi en aðrir. 1. grein Menn hafa lengi fengizt við tilraunir til að lappa upp á mannslíkamann með varahlut- um, bæði gervihlutum allskon- ar og varahlutum úr öðru fólki. Hvorutveggja hefur reynzt margskonar annmörkum háð, en hefur þó hið fyrra gefizt öllu betur til þessa. Mannslík- aminn hefur látið sér betur lynda aðskotahluti úr plasti og öðrum slíkum dauðum efnum en lifandi vefi úr öðrum lík- ömum. Hann hefur ekkert vilj- að hafa saman við þá að sælda. Lengi framan af fengu menn ekki skilið hvaða vopn það var, sem líkaminn beitti gegn að- skotavefjum. ítölskum skurð- læknum á endurreisnartíman- um tókst stundum að lappa urp á riddaraleg nef, sem höfðu komizt í of náin kynni við sverð eða beittan kuta, með því að græða á þau skinn af öðrum hlutum líkamans, en reyndu þeir að nota skinnpjötlu af ein hverjum öðrum, flagnaði hún jafnharðan af, hversu tiginna ætta sem eigandi hennar eða viðtakandi voru. Urðu menn þá oft að sætta sig við neflausa á- sjónu sína eða gera eins og sagt er að danski stjörnufræðingur- inn Tycho Brahe hafi gert — að láta setja á sig silfurnef. Læknisfræðin tók eitt af sín- um „stóru framfarastökkum“ laust upp úr síðustu aldamótum þegar austurrískur meinafræð- ingur, Karl Landsteiner upp- götvaði að blóð manna skiptist í fjóra aðal flokka, sem hann nefndi A, B, AB og O. Seinna varð ljóst, að þessir aðalflokkar skiptust í marga tugi undir- flokka og vita menn víst ekki enn hversu margir þeir eru. En þá um skeið höfðu verið gerð- ar tilraunir með að skipta um blóð vegna blóðmissis en með litlum árangri. Nú urðu hins- vegar miklar framfarir í þeim efnum. Menn fundu út, að væri sjúklingi gefið blóð úr blóð- flokki, samsvarandi hans eigin blóði, væri það í lagi — en fengi hann blóð út öðrum blóð flokkum var hann dauðans mat ur. Á næstu áratugum urðu þær framfarir helztar í „varahluta“ aðgerðum, að það tókst að græða framandi hornhimnu á auga en hún hefur þann kost að um hana rennur ekkert blóð. Það gerði Rússinn Vladimir Fila tov árið 1924 en nokkru áður hafði skozkum lækni, W. Mace wen tekizt að lagfæra bein með beinflísum úr öðrum líkama. Nú mun sá háttur hafður við beinflutning að taka úr aðkomu beinunum þau efni, sem valdið geta frávísandi viðbrögðum. Á fyrstu áratugum aldarinn- ar náðu bandaríski lífeðlisfræð- ingurinn Charles Claude Guth- rie og Alexis Carrel, franskur líffræðingur og skurðlæknir, miklum árangri í vefjaflutning um, það er að segja, að því er varðaði hina skurðtæknilegu hlið þeirra. Þeir lögðu grund- völl að þeirri tækni, sem þarf til að sauma saman sleipar æð- ar svo að þær ekki leki og ekki myndist blóðsegi í æðinni. Eft- ir sem áður stóðu menn ráð- einskis orðið — og þetta skýrði líka þá undantekningu, sem þar varð á, þegar læknum í Boston tókst að flytja nýra milli ein- eggja tvíbura. Læknar sáu, að við svo búið mátti ekki standa. Því var haf- izt handa um að finna leiðir til að brjóta niður í vissum tilfell- um þetta mikilsverða varnar- kerfi líkamans og fá hann til að veita viðtöku nýjum vef. Hefur náðzt töluverður árangur með notkun röntgengeisla og tveim ur flokkum lyfja,' annarsvegar lyfjum, sem notuð eru gegn krabbameini, hinsvegar sv*köll uðum steroidum. Og jafnframt var haldið áfram að fullkomna tæknihlið vefjaflutninganna, skurðaðgerðina sjálfa, með sleitulausum tilraunum á hund- um, öpum og öðrum tilrauna- dýrum. Einn bandarískur lækn ir reyndi að græða hjarta úr shimpansa í mann en það dugði ekki nema rúma klukkustund. Einn þeirra manna, sem náð hafa lengst í þessum skurðað- gerðum er dr. Norman E. Shum ári, að hollenzkur vísindamað- ur, dr. Jan van Rood, birti nið- urstöður rannsó,kna, sem ‘hann hafði lengi unnið að á þessu sviði. Þar með var tekið enn eitt langstökkið í læknisfræð- inni. Hann hafði fundið leið til þess að greina skyldleika vefja í mönnuim, Hann byggði tilraun ir sínar að sjálfsögðu á athug- unum fjölda annarra visinda- manna, m.a. Frakikans Jean Dausset. En inntak málsins er í stuttu máli þetta: Komið hef- ur í ljós, að hvítu blóðkornin skiptast í flokka á svipaðan hátt og blóðið (fer þó ekki eftir blóðflokkunuim). Það er að segja, að viðbrögð hvítu blóð- kornanna við framandi vefjum eru mdsjafnlega siterk og fara eftir því, hvaða flokkur hvítra blóðkorna var í líkaananum, sem vefurinn vsir tekinn úr. Þessi vitneskja vakti eðlilega strax vonir um, að hægt yrði að skipta um vefi með því að flokka hvítu blöðkornin. En spurningin var hvernig hægt væri að greina milli vefjaflokk anna. Munurinn milli þeirra var miklu minni en svo, að unnt væri að greina þá með þá þekktum aðferðum. Og það voru þeir Jean Dausset og van Rtood, sem fundu svarið. Það hafði lengi verið vitað, að í eineggja tvíburum mynd- uðu hvítu blóðkornin ekki við- . Adrian Kantrowitz Dr. Norman E.Shumway Dr. Christian Barnard tilraunir með hjartagræðslu margfalt auðveldari og þeir menn, sem vitað var að stóðu fremst á þessu sviði voru komn ir það langt, að þeir ihöfðu lýst því yfir, nokkru áður en Christian Barnard gerði aðgerð ina í S-Afríku, að hjarta- græðsla yrði reynd á mönnum mjög fljótlega. Þeir fremstu voru taldir: dr. Shumway í Stanford, sem fyrr var getið, en hann hefur gert samtals um 400 tilraunir á hundum og getað látið þrjá hundana lifa í meira en ár með ný hjörtu; Adrian Kantro- witz, sikurðlæknir við Maknioni- des-sjúkrahúsið í New York, sem einnig hefur gert um 400 tilraunir á hundum — og nú tvær tilraunir til að græða hjarta í menn, fyrst lítið barn, síðan fullorðinn karlmann — en báðir sjúklingarnir létust; Donald Longmore við National Heart Hospital í London, sem hefur gert um 300 tilraunir á hundum og náð mjög góðum árangri, en hann græðir í bæði hjarta og lungu í senn. Allir þessir menn og fleiri, víða um heim, voru reiðubúnir þegar fyrir nokkrum vikum. Gamall draumur lækna að rætast? þrota gagnvart þeirri staðreynd, að líkaminn vísaði stöðugt frá sér öllum aðkomuvefjum, hversu haganlega, sem þeir voru í saumaðir. Það var ekki fyrr en árið 1953, sem loksins fannst skýring á þessu fyrir- bæri. Það „stökk“ þakkar lækn- isfræðin hvað helzt Bretanum Sir Peter Brian Medawar, sem hlaut Nóbelsverðlaunin fyrir rannsóknir sínar á þessu sviði. Skýringuna var að finna í hvítu blóðkornunum, sem eru varnar- sveit líkamans. Með einhverj- um hætti geta hvítu blóðkom- in gert greinarmun á efnum lík amans og framandi efnum, sem koma inn í blóðrásina. Þegar þau verða þessara efna vör, mynda þau efni, sem tengjast aðskotaefnunum og gera þau svo girnileg, að aðrar hvítar blóðfrumur ráðast á þau og svelgja þau í sig. Og hvítu blóð kornin eru langrækin. Næst þegar samskonar aðskotaefni gera innrás í líkamann eru þau ennþá fljótari að bregðast við. Á þessu byggjast m. a. ónæmis aðgerðir alls konar. En þótt hvítu blóðkornin séu snjöll geta þau ekki með nokkru móti gert greinarmun á stórhættulegri sjúkdómsbakter- íu eða veiru og heilum aðskota vefjum á borð við nýru eða hjörtu. Þau kæra sig kollótt um það, þótt þeir séu þar komnir fyrir tilverknað læknis, sem ekki vill sjúklingnum annað en gott eitt. Þarna var komin skýr ing á því hversvegna allar til- raunir til að græða skinn eins manns á annan höfðu mistekizt og líka hversvegna allar tilraun ir til að flytja nýru höfðu til way, sem starfar við Stanford háskólasjúkrahúsið í Kaliforníu og grædidi hjartað í Mike Kasp erak á dögunum. Dr. Shurrv way er upphafsmaðUr tækni- legra framfara í 'hjartagræðslu, sem eru í því fólgnar, að efsti hluti hjartans, sem ber hinar stóru æðar, er liggja að og frá hjartanu, er skilinn eftir, þeg- ar bilaða hjartað er tekið úr sjúklingnum. Þetta gerir að- gerðina miklu einfaldari en vera miundi ef hjartað væri allt tekið og sauima þyrfti saman allar æðarnar. Ennfremur er gangráður hjartans (sá hluti, sem kemur hjartaslættinum af stað og ræður hraða hans) í þessum hluta og helztu taugar, sem til hjartans liggja, enda þar. Þessar taiugar rofna því ekki og nýja hjartað, sem grætt er í sjúklinginn, getur lotið stjórn taugakerfisins. Raunar hafði Shumiway áð- ur sýnt fram á, að það kaami ekki að sök þótt hjartað væri slitið úr tengslum við tauga- kerfið, því að starfsemi hjart- ans gæti aðlagast þörfum líkam ans fyrir áhrif efna, sem ber- ast til þess með blóðinu, m.a. adrenalíns. Ástæðan er m.a. sú, að hjartað hefur innbygigðan sjálfvirkan útbúnað, sem kem- ur því af stað og viðheldur hjartaslættinum. Áhrif tauga og efna, sem berast hjartanu með blóðinu, eru fyrst og fremist þau, að breyta hraða hjartsláttarins eftir (þörfum líkamans. En svo vikið sé aftur að varn arkerfi hvítu blóðkornanna, þá gerðist það fyrir um það bil nám gegn vefjium, sem flutt- ir voru á milli þeirra. Sama hafði gi'lt um tvíbura, sem í móðurkviði höfðu sameiginlega fylgju. En þeir Dausset og van Rood komust á slóðina með því að rannsaka vanfærar konur. Vanfærar konur og bömin, sem þær bera undir brjósti, hafa oft mismunandi vefja- flokka alveg eins og blóðflokk- ar þeirra geta verið mismun- andi. Ef blóð þeirra blandast saman þegar svo háttar, getur það valdið dauða beggja. En al- gengt er, að dálítill leki verði gegnum fylgjuna o.g virðisf blóð móðurinnar þá geta að- lagazt þessum kringum stæðium og myndar þá ekki mót- efni. í slíkum tilfellum getur svo farið, að blóðvökvi þessara kvenna veiti ekki viðnám að- komuvefjum, sem eru af sama flokki og vefir barnsins, sem þær gengu með. Van Rood áætlar að 'hjá 50% vanfærra kvenna komi fram þessi leki um fylgjuna en að- eins í einni af hverjum tíu þeirra sé hann svo mikill, að blóðvökvinn verði nægilega öfl ugur prófvökvi. Von Rood hefur gert um 6000 tilraunir með þetta og notað rafeindaheila til að vinna úr upplýsingum, sem þar hafa fengizt .Enn er ekki vitað með vissu hve margir flokkar vefja eru, þeir skipta sennilega tug- um eins og blóðflokkarnir. Van Rood hefur skipt þeim í fimm aðalflokka og jafnframt fundið fljótvirka leið til þess að flokka vefina. Með vefjaflokkuninni urðiu að taka til við fyrsta manninn, Dr. Shumiway hafði þegar valið sinn fyrsta sjúkling, mann hald inn hjartasjúkdómi, sem víst var að mundi draga hann til dauða. Hann beið aðeins eftir að fá í hendur dauðvona mann, er hefði heilhrigt hjarta og væri af sama vefjaflokki og hjartasijúklingurinn. Tilviljunin 'hagaði því svo, að það var lítt þekktur læknir í Suður-Afríku Chrisitian Barn ard, sem fyrstur fram'kvæmdi aðgerðina. Hinir 'hafa síðan fylgt á eftir. Allir hafa þessir læknar misst fyrstu sjúklinga sína og dr. Kantrowits raunar tvo eins og fyrr sagði og sá eini, setm nú lifir með aðkomu- hjarta í brjósti er tannlæknir- inn Blaiberg, annar hjarta- græðslusjúklinigur dr. Barnards. /■ Látið ekki dragast að athuga bremsurnar, séu þær ekki lagi. — Fullkomin bremsu- þjónusta. Stilling Skeifan 11 - Sími 31340

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.