Morgunblaðið - 28.01.1968, Síða 17

Morgunblaðið - 28.01.1968, Síða 17
MORGUN'BLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JANÚAR lí>68 17 Frábær lífsþrótt- ur Enginn, sem sér Gísla Jóns- son fyrrv. alþingisforseta á götu, mundi ætla, að þar færi maður kominn á sjötugasta og níunda aldursár, svo hress og léttur sem hann er í spori. Lífsþróttur og athafnaþrek Gísla hafa ætíð ver ið með einsdæmum. Hann ruddi sér sjálfur braut til náms og varð skjótlega einn fremsti mað- ur sinnar stéttar, vélstjórastétt- arinnar, sem hann átti ríkan þátt í að móta á hennar upp- vaxtarárum. Síðan gerðist hann umsvifamikill athafnamaður í landi, ekki einungis í sínu fagi heldur og í útgerð og verzlun. Rúmlega fimmtugur varð hann þingmaður og sat þar lengst af í rösklega 20 ár. Framan af var hann þingmaður Barðstrend- inga og að síðustu allra Vest- Frá Reykjavíkurhöfn REYKJAVÍKURBRÉF 'Laugardagur 27. jan. firðinga. Þegar Gísli varð þing- maður í Barðastrandarsýslu mun ekkert kjördæmi hafa verið erf- iðara yfirferðar. Innan skamms varð Gísli, með látlausum ferða- lögum, öllum öðrum þingmönn- um kunnugri í kjördæmi sínu. Enn eru vegalengdir hinar sömu og áður í Barðastrandarsýslu, en óviðjafnanlegt er hversu þar er orðið greiðfærara, og er það engum einum manni meira að þakka en Gísla. Á Alþingi lét Gísli ekki kjördæmishagsmuni eina til sín taka, heldur var ætíð í hópi hinna atkvæðamestu þingmanna. Hann var lengi for- maður fjárveitinganefndar og síðar utanríkismálanefndar. Nokkur ár var hann forseti efri deildar og gegndi því starfi af slíkum skörungsskap, að jafn- vel þaulreyndir þingmenn óttuð- ust hann eins og börn strang- an kennara. Graindist inanii- leysan Mörgum er það enn í minni, þegar einn helzti þingskörung- urinn á þeim árum, Haraldur Gu’ðmundsson, bar fram við Gísla bljúga afsökun fyrir að hafa komið örfáum mínútum of seint svo að hann náði ekki fundarsetningu í efri deild. Um skeið var Gísli forseti Norður- landaráðs, Fyrsti fundur þess hérlendis var haldinn undir hans forsæti og var mjög vitn- að til hinna höfðinglegu mót- takna sem hann stóð þá fyrir Gísli hætti þingmennsku 1963, kominn hátt á sjötugasta og fjórða aldursár, ekki vegna þess að hánn skorti fylgi til áfram- haldandi þingsetu heldur af því, að hann gaf ekki lengur kost á sér, þrátt fyrir að komið var í ljós, að hann hafði manna mest fylgi á meðal kjörmanna. Ekki settist Gísli þá í helgan stein, heldur hóf nú ritstörf. Á árinu 1966 kom út eftir hann fróðleg bók um foreldra hans og hans eigin æsku og nú í haust skáldsaga, sem hann nefnir Mis- gjörðir feðranna. Sú bók lýsir mikilli hugkvæmni og frásagnar gleði, slíkri, sem almenningur hér á landi hefur haft unun af öldum saman. Ekki verður sagt, að allir atburðir bókarinnar séu með öllu sennilegir, en frá- sögnin nær þeim tökum á les- : endum, að fyrir skömmu sagði kona ein í samkvæmi: „Mikið varð ég í gærkvöldi reið vi’ð hann Jóhann fyrir það, hvílík mannleysa hann gat verið“. Þeg- ar hún var um það spurð við hvaða Jóhann hún ætti, svaraði ! hún: „Hann Jóhann í sögunni hans Gísla Jónssonar sem ég var að lesa“. Eftir meiru getur sagnamaður naumast óskað en menn hrífist á þennan veg með örlögum þeirra, sem hann segir frá. 149 lærðu íslenzku Prófessor við Chicagoháskóla Gösta Franzén að nafni, Svíi eða a.m.k. sænskur áð uppruna, skrifaði nýlega grein um nám í norrænum tungumálum í Banda- ríkjunum. í grein sinni skýrÍT hann frá rannsóknum, sem gerð- ar hafa verið á því hversu marg- ir hafa um alllangt árabil lagt stund á norræn mál við skóla í Bandaríkjunum, þ.e.a.s. mismun andi tegundir framhaldsskóla og háskóla. Samkv. þessum skýrsl- um hefur dregið úr námi í þess- um greinum í framhaldsskólun- um á síðari árum, en það aukizt að sama skapi í háskólum. Áður fyrri telur hann, að það hafi einkum eða nær eingöngu ver- ið afkomendur innflytjenda úr tilteknu landi, sem í framhalds- skólum lærðu mál þess. Á þessu ; að vísu orðin nokkur breyting, eftir að námið hafi flutzt yfir í háskólana og fari þáð þó enn að mestu, eða a.m.k. að verulegu leyti, eftir uppruna námsmanna. Samkv. skýrslum er talið, að nú læri h.ub. 4 þús- und nemendur árlega öll fjögur norrænu málin samanlagt. Þar af er sagt, að h.u.b. 2600 hafi lagt stund á þessi fræði í háskólum á árinu 1966. Flestir lærðu sænsku, 1208, norsku 1172, ís- lenzku 149 og dönsku 147. Sænsk an er þó tiltölulega nýlega kom- in í fremstu röð, því að allt fram til 1963 voru það fleiri sem lærðu norsku en sænsku. Hina sterku stö’ðu norskunnar gegn dönsku skýrir greinarhöfundur með því, að Norðmenn haldi enn fastast saman úti í sveitabyggð- um, þar sem Danir hafi öðrum fremur setzt að í borgum. Hlut- fall íslenzkunnar þykir greinar- höfundi ótrúlega hátt, að fleiri læri mál „hins litla íslands“, eins og hann cegir en Danmerkur og skýrir hann það með hinni sterku stöðu forníslenzkunnar. Okkur íslendingum finnst oft er lendir menn og ekki sízt Skand inavar og Engilsaxar vanræki þá þekkingu um sína eigin menn- ingu og upphaf, sem þeir öðlast við lestur íslenzkra fornbók- mennta. Auðvitað má margt af þessu nema í þýðingum og von- andi er einhver hluti af almenn um norrænum námskeiðum helg aður þeim fræðum, sem hvergi er að finna nema í íslenzkum forn bókmenntum. Enda segir höfund ur að metingur þjóða á milli vegna mismunandi námsmanna- fjölda sé ekki réttmætur, því að flestir, sem í þessu námi taki þátt, læri almennt eitthvað um norrænar bókmenntir, sögu og menningu. Ekki orðum aukið Ekki verður orðum aukið hví- líkan óhugnað hefur sett að mönnum við morði’ð, sera fram- :ð var í síðustu viku. Vonandi tekst að hafa upp á hinum seka, og tjáir ekki að fara um hann og ógæfu hans fleiri orðum að svo komnu. En flestir Islend- ingar munu eiga bágt með að trúa því, að hér finnist nokkur sá, sem með köldu blóði fari til að myrða meðbró'ður sinn fyrir þá fjárvon, sem kann að hafa búið í brjósti hans. Þess vegna verður mörgum á að ætla, að morðinginn hafi verið undir eituráhrifum. Á þessu stigi eru slíkt þó getgátur einar. Óhugn- anlegt er að sjá, hversu bæði bandarískum og sænskum blöð- um verður tíðrætt um eitur- notkun og ófarnað, sem af henni lei'ðir. Af öllum þjóðum heims eru Bandaríkjamenn og Svíar nú taldar auðugastar. Eins og mál- tækið segir, þarf sterk bein til að þola góða daga og eiturófarnað urinn sýnist hvergi vera út- breiddari en einmitt á meðal hinna beztmegandi. Fyrir nokkr um misserum var mikið úr því gert, að alls konar töfluát, mis- munandi hættulegt, væri hér orðið ískyggilega útbreitt. Síð- an hefur dregið úr tali um þetta og fróðir menn telja, að eit urnotkun sé hér alger undan- tekning og þekkist ekki á meðal ungmenna neitt í líkingu við það, sem er í skólum í Banda- ríkjunum og Svíþjó’ð. Vonandi helzt svo áfram, en hér þarf vissulega að gjalda varhug við. Lagabann og lögregla fá þar minnstu um ráðið. Heilbrigður hugsunarháttur almennings sker úr, þar á meðal tafarlaus- ar ráðstafanir aðstandenda um að leita til lækna, ef þeir verða þessarar ógæfu varir á meðal sinna áhangenda. Hversu bönnin ein eru þýðingárlítil sézt m.a. á því, að morðið nú er framið me’ð skammbyssu. En einmitt bannið gegn skammbyssueign leiðir til þess að erfiðara er að hafa upp á þeim, sem skamm- byssur eiga, en ef slík eign væri heimiluð ásamt skrásetn- ingarskyldu. Vitni vaxandi óróa Menn eiga erfitt með að átta sig á orsökum síaukinnar eitur- notkunar og glæpafaraldurs í kjölfar hennar í þeim þjóðfé- lögum, sem bezt eru stæð. Tal- að er um flótta frá raunveru- leikanum og kjarkleysi til að gera sér grein fyrir vandamál- um lífsins. Einn af fremstu and- ans mönnum Breta, Malcolm Muggeridge sagði af sér sem rektor Edinborgarháskóla vegna ósamkomulags við stúdenta þar um kröfu þeirra til hömlulausr- ar notkunar á pillum til getn- aðarvarna. Muggeridge lýsti von brigðum sínum yfir kröfum stúdentanna eitthva'ð á þann veg, að þótt menn vissu ekki um tilgang lífsins þá væri hans áreiðanlega ekki að leita í eit- urnotkun eða ólifnaði. Johnson Bandaríkjaforseti komst í árs- yfirliti sínu til þjóðþingsins að orði á þessa leið: „Bandaríkja- menn eru nú betur stæðir en menn hafa nokkru sinni áður verið svo lengi sem sögur herma. Engu að síður liggja í landi órói og efasemdir“. Sjálf- ur hefur Johnson fengið að kenna á þessum óróa, sem hefur m.a. lýst sér í mjög breytilegri afstöðu í hinum sífelldu skoð- anakönnunum. Fyrir nokkrum vikum var Johnson á hraðri nið- urleið, í hinum allra síðustu eykst fylgi hans jafnört og það hrapaði áður. Fyrir hvorugu er hægt að færa rökrænar ástæð- ur. Það sýnist vera ókyrrðin og óróinn sem úrslitum ráða. Fylgissveiflur í Fiimlandi Svipaðar fylgissveiflur sýnast eiga sér stað í jafn fjarlægu landi Bandaríkjunum og Finn- landi. Vegna hins sterka kosn- ingabandalags, sem komið hafði sér saman um stuðning við Kekkonen forseta, var fyrir- fram vitað að Kekkonen hlyti að sigra. En sigur hans varð mun minni, en menn höfðu búizt við. Allir stuðningsflokkar hans töp uðu, og þó mjög mismunandi miklu. Hinn gamli flokkur Kekk onens sjálfs. Miðflokkurinn, áð- ur Bændaflokkurinn, tapaði sára litlu. Mest töpuðu Sósíaldemó- kratar, sem féllu úr 27,2% við kosningarnar 1966 niður í 15,8% og næst þeim kommúnistar, sem féllu úr 21,2% í 17,3%. Vinstri flokkarnir höfðu unnið óvænt- an sigur 1966, og þá einkanlega Sósíaldemókratar. Þess vegna mátti búast við því að fylgi þeirra væri lausara fyrir en ella. Og eins er á það að líta, að áður fyrri voru Sósíaldemó- kratar höfuðandstæðingar Kekk onens. Það var einmitt fram- bjóðandi sósíaldemókrata, Fag- erholm, sem var skæðasti keppi nautur Kekkonens þegar hann var fyrst kosinn forseti. Þrátt fyr ir viðurkenningu allra á miklum hæfileikum Kekkonens, sérstak- lega á góðu sambandi hans við Sovétstjórnina, þá hefur hann æ- tíð átt við að búa mikla tor- tryggni ekki sízt hjá Sosíaldemó krötum. Ofan á þetta bætist að Paasio forsætisráðherra, sem er úr flokki Sósíaldemókrata, hefur ekki þótt takast sem skyldi áð halda aftur af öllum ráðherrum sínum. Af öllum þessum ástæð- um er hæpið að segja, að úr- slitin séu öruggt vitni um raun- verulegt fylgistap Sósíaldemó- krata, þótt ómögulegt sé að neita því, að úrslitin eru áfall fyrir þá. Tap kommúnista er raunar minna, en því eftirtektar- verðara sem þeir hafa verið ein- dregnir stuðningsmenn Kekkon- ens í vinfengi hans við Sovét- ríkin. í þeirra hópi gætir því engan veginn sömu andúðar í garð Kekkonens eins og hjá hin um. Þess vegna ber fylgistap þeirra fremur vitni um ríkari andstöðu gegn stefnu flokksins en nokkurn tíma á við um Sós- íaldemókrata. Allt lýsir þetta því, að mikill órói liggur í lofti, ekki sízt þegar haft er í huga, áð sá frambjóðandinn, sem mest vann á og fékk 11,5% studdist við flokk, sem hafði áður feng- ið einungis 1% og var þess vegna alls ekki tekinn alvarlega sem stjórnmálaafl í landinu. Úrslitin í Dan- mörku enn athygl- isverðari Enn athyglisverðari eru samt úrslitin í Danmörku. Þar sýndu úrslitin 1966 ótvíræðan straum til vinstri, svo mikinn að sósía- listiskir flokkar fengu þá í fyrsta skipti í sögu Danmerkur hreinan meirihluta. Nú er straumurinn til hægri jafn ótví- ræður. Sjaldgæft hlýtur að vera, að gamalreyndur stjórnmála- flokkur, jafnstór og Róttækir í Danmörku skuli tvöfalda at- kvæðamagn sitt eins og þeir gera nú. Er ekki um að villast að þeir fá alla fylgisaukning- una frá kjósendum, sem áður höfðu verið lengra til vinstri, því að íhaldsflokkurinn fær sam tímis álitlega fylgisaukningu, þó að hvergi nærri jafnist á við það, sem Róttækir hlutu. Þegar á þetta er litið sýnist svo sem danskir kjósendur hafi nú sagt til um, að þeir vilji ekki leng- ur hafa sósíalistiska stjórn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.