Morgunblaðið - 28.01.1968, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1968
Sextugur í dag:
Andrés Karlsson
í DAG er sextugur Aiudrés
Karlsson byggingareftirlitsmað-
ur hjá Reykj avík-urborg. Harnn
er fæddur í Kassel í Þýzkalandi
28. jan. 1908 og skýrður hinu
þýzka nafni Kurt Karl Ansdrés
Bhimmenstein og er hann næst
yngstur 7 systkina. Foreldrar
hans voru bæði þýzk, faðir hans
Karl Blummenstein múrara-
meistari féll í fyrri heimsstyrj-
öldinni, en móðir hans Anna
María Kristín er látin fyrir
nokkrum áruim. Hann ólst upp á
heimili foreldra sinna 1 Þýzka-
landi.
Þó ökkur vinum hans þyki
t
Mó'ðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Þorbjörg Jónsdóttir
frá Raufarfelli,
andaðist á Sólvangi, Hafnar-
firði, aðfaranótt 27. jan.
Fyrir hönd aðstandenda.
Sigurbjörg Guðjónsdóttir.
t
Jarðarför mannsins míns,
Jóns Guðnasonar,
trésmíðameistara,
fer fram frá Lágafellskirkju,
þriðjudaginn 30. janúar kl.
2 síðdegis.
Jóna Þorbjarnardóttir.
hann maður vel heppnaður, er
það ekki því að þakka að hann
hafi baðað í rósum á uppvaxtar-
árum sínum í heimsstyrjöldinni
fyrri og hörmungartímum eftir-
strjðsáranna.
Árið 1920 var hann boðinn af
vinafólki foreldra sinna til Kaup
mannahafnar og dvaldi þar í tvö
ár og gekk þar á þýzkan gagn-
fræðaskóla. Að því loknu fór
hann heim til Þýzkalands og hóf
þar nám í húsgagnasmíði og
byggingariðnaði, sem síðan hef-
ur verið æfistarf hans, fram á
þennan dag.
Ég vil aðeins geta þess að um
leið og Andrés lauk iðnnámi var
haldin mikil sýning á prófverk-
um nemenda úr öllum iðnigrein-
um á vegum borgarstjómarinn
ar í Kassel og hlaut hann þar
fyrstu verðlaun með ágætum.
Hinn 26. apríl 1926 kom
Andrés fyrst til íslands og hefur
dvalið hér óslitið síðan, að fré-
dregnu 5% ári, sem hann var
fangi Breta í Englandi. Auk þess
dvald hann 2% í Þýzkalandi,
áður en hann kom heim aftur.
Eftir heimkomuna til íslands
gerðist hann íslenzkur ríkisborg
ar og hefur borið þann rétt sinn
með heiðri.
Síðan ég kynntist Andrési
fyrst munu nú vera full 40 ár
en stuttu eftir gerðist hann
starfsmaður á verkstæði föður
míns og vann þar í mörg ár,
Með Andrési var gott að
vinna, því auk þess að vera sér-
staklega viðmótsþýður og prúð-
mannlegur í allri framkomu, og
mjög áreiðanlegur, var dugnað-
ur hans mikill svo af bar. En
það sem heillað mig mest í sam-
starfi við Andrés var hvað hann
reyndist ákaflega úrræðagóður
þegar enhvern sérstaklegan
vanda bar að höndum í erfiðum
verkefnum.
t
Móðursystir mín
Anna Soffía
Guðmundsdóttir
frá Krossnesi, Grundarfirði,
andaðist á Elliheimilinu
Grund h. 26. þ.m.
Fyrir hönd vandamanna.
Heimir Þorleifsson.
t
Bróðir minn
Finnbogi Rútur
Kolbeinsson,
sem andaðist 21. þ. m. verð-
ur jarðsungin frá Aðventista-
kirkjunni kl. 10.30 á þriðju-
daginn 30. þ.m.
Elísabet Kristjánsdóttir.
t Eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og lang- afi Sigurgeir Jóhannsson pípulagningameistari, verður jarðsunginn frá Frí- kirkjunni þriðjudaginn 30. janúar kl. 13.30. Jarðsett verður í gamla kirkjugarð- inum. Blóm eru vinsamleg- ast afþökku'ð, en þeim, sem vildu minnast hans er bent á Barnaspítalasjóð Hrings- ins. Marsilia Kristjánsdóttir, börn, tengdabörn, bama- börn og barnabarnaböra. t Eiginmaður minn og faðir Björn Henry Olsen vélstjóri, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju 30. þ. m. kl. 10.30 e.h. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeir, sem vildu minnast hins látna, - láti Krabbameinsfélag Islands njóta þess. Gunnþóra Gísladóttir, Hafliði Olsen.
t Útför Ingibjargar Jakobsdóttur fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 29. jan. kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna. Jóhann Einarsson. t Innilegt þakklæti til allra þeirra er sýndu okkur samúð við andlát og útför Tómasar G. Magnússonar Skeiðarvogi 77. Sigríður Sigurðardóttir, böra og aðrir aðstandendur.
Fimmtugur í dag:
Sigþór Þórarins■
son hreppsfjóri
í stað þess að æðrast eins og
mörgum er títt undir slíkum
kringumstæðum, var engu likaTa
en yfir honuim birti og hann
fagnaði því að fá eitthvað óvænt
við að glima, enda fór srvo jafn-
an að viðfangsefnið var leyst
með snilli. Þó Andrés sé maður
mjög hlédrægUT hefur hann
ekki komist hjá því að allir viti
hvílíkur snillingur hann er í
höndunum, hinu hefur honum
tekist betur að Jeyna hve vel
gefinn hann er á andlega svið-
inu, en þar mun stærðfræði og
tungumálakunnátta skaga hæst.
Stundum finnst mér það vera
skaði að Andrés skyldi ekki
ganga langskólavegimn en þegar
ég hugsa til þess að manngerð
hans er fædd til að inna vanda-
söm störf iðnaðarmannsins og
hvert það ver er hann vinnur
er með ágætum af hendi leyst,
og því er ég fyrir iöngu hættur
slikum vangaveltum.
Áður en ég enda þessar línur
vil ég þakka Andrési framúr-
skarandi góða viðkynniingu og
óska honum allra heilla í fram-
tíðinni.
Andrés er krvæntur Jónínu
Jósefsdóttur hiinni ágætustu
konu sem reynzt hefur honum
framúrskarandi vel í bliiðu og
stríðu.
Börn þeirra eru 3, Doris gift
í Stokkihólmi, Leifur bygginga-
fræðingur kvæntur og býr í
Reykjavík og Nína, sem stundar
nóm í Verzlunarskólanum.
Heimili Andrésar og Jónínu er
til hinnar mestu fyrirmyndar og
er þangað gott að koma. ‘
Þorsteinn Hjálmarsson.
í hálfa öld þú hefur gengið
hiklaust fram á gæfu vegi.
í göfugu starfi styrk.þann fengið,
sem stælir þig, svo bugast eigi.
Staðreynd er að vandað verkið
verður ei af smáum unnið.
Hátt þú berð þitt hreina merkið,
hálfrar aldar skeið er runnið. —
Einn af betri borgurum Borgar-
'hrepps er fimmtugur í dag. Sig-
þór er fæddur við Rauðarárstíg-
inn í Reykjavík, sonur Þórarins
Jónssonar skipstjóra, sem var
Rangæingur að ætt og Sigríðar
Gísladóttur, sem ættuð er úr
Strandasýslu. Var hann elztur 5
systkina.
Sigþór var níu ára gamall er
hann kom fyrst til dvalar hingað
í hreppinn, og hefur því ungur
numið og vanist hinum algengu
störfum til sveita, sem síðar hef-
ur orðið hans lífsstarf.
Faðir hans keypti jörðina
Hvistaði í Álftaneshrepp og
flutti þangað með fjölskyldu
sinni, en stundaði jafnframt
sjósókn sem áður. Var ætlun
hans að snúa sér að búskapnum,
en drukknaði sama vorið; tók
út af togaranum Snorra Goða í
apríl 1937, þá liðlega fertugur.
Kom það í hlut bræðranna og
þá ekki sízt Sigþórs, sem elztur
var, að 'hjálpa móður sinni.
Á hvítasunnunni 1939 kvæntist
Sigþór heimasætunni á Valbjarn
arvöllum, Sigríði, einkadóttur
Guðmundar bónda og hrepp-
stjóra Jónssonar, og Þórunnar
Jónsdóttur, Jónssonar pósts frá
Galtarholti. Er Sigríður Borg-
hreppingur í fjóra ættliði. Sig-
þór hóf bústkap með tengdaföður
sínum á Valbjarnarvöllum, en
keypti jörðina 1941 og bjó þar til
vors 1946. Landnámsjörðina Ein-
arsnes kaupir hann 1947 og flyt-
ur þangað um vorið, eftir að
hafa búið á Ölvaldsstöðum um
eiitt ár. Einarsnes er, sem kunn-
ugt er, mjög vel í sveit sett, land
kosta og hlunnindajörð við Hvít-
á. Hefur Sigþór þurrkaði rækt-
að, byggt og 'bætt jörðina geysi
mikið og býr þar nú myndarbúi.
SigríðuT og Sigþór hafa eign-
ast sjö mannvænleg böm, sem
öll eru á lífi, og þannig orð-
ið auðugri með hverju barni.
Þau eru: Þórarinn, tanníæknir
í Reykjavík, Guðmundur, er
stundar nám við Landbúnaðar-
háskólann í Kaupmannafhöfn,
Helga, gifd frú í Reykjavík, Jó-
hanna og Þór í Menntaskólanum
á Akureyri, Óðinn og Sigríður,
sem eru þeirra yngst 15 ára, og
eru þau enn heima.
Sigþór er maður vinsæll og vel
metinn og ‘hefur gengt ýmsum
trúnaðarstörfum fyrir sveit sína,
sem 'hann 'hefur ætíð leyst vel
og trúmannlega af hendi. Hrepp-
stjóraemibættinu tók hann við
eftir tengdaföður sinn 1908. Hann
hefur lifað á viðburðaríkum og
merkum tíma í sögu þjóðarinn-
ar, lagt gjörva hönd á plóginn
við að byggja upp landið, og
stuðlað að þeirri stefnu, er hann
telur landi og þjóð fyrir beztu.
Vinir þeirra hjóna og frænda-
lið árnar þeim heilla á þessum
merkisdegi og biður þeim bless-
unar um langa framtíð.
Bjarni Óskarsson,
Laufási.
Hafnarstræti 19.
Sparið — Sparið — Sparið
Tækifæriskjólar frá kr. 195.—
100% nælonundirkjólar rá kr. 95.—
100% nælonmillipils frá kr. 75.—
Hvítir og mislitir nælonsloppar frá kr. 395.—
Nælonbarnaúlpur frá kr. 295.—
Barnasamfestingar frá kr. 95.—
og margt margt fleira.
Stórkostleg útsala
Komið og kaupið í verzlun, sem
þekkt er fyrir vörugæði og lágt verð