Morgunblaðið - 28.01.1968, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 28.01.1968, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 1968 Myndin er tekin af Skansinum, hinum forna verzlunar- og varnarstað Vestmanneyinga. Eftir Tyrkjaránið 1927 var gerð gangskör að því að koma upp varanlegu virki við höfnina í Eyjum, og var hluti þess hlaðinn á árunum 1630—1638, og voru þá settar þar upp 6 fallbyssur. Aður hafði verið þarna lélegt timburvirki, sem var byggt samkvæmt konungsskipun 1586, en það var tii einskis nýtt, þegar á reyndi. Verzlanir N. Bryde voru á Skansinum, en hann keypti einokunaraðstöðuna 1844 og hélt Brydeættin aðstöðunni til 1910. Líkanið sem byggðasafnið lét gera er miðað við 1842 og er það gert af Egg ert Guðmundssyni listmálara í Reykjavík og Edvard Áge Nilsen. Ljósm. Sigurgeir Jónasson). - SAFNHUS Framhald af bls. 23. í Eyjum 1917 og voru þau fjöl- rituð. Um haustið 1917 keypti Gísli J. Johnsen prentvél í Fé- lagsprentsmiðjunni í Reykjavik og hóf útgáfu á blaði sínu. Skeggja. — Hvernig er aðsókn að safn inu? — Safnið hefur verið opið al- menningi siðan í júlí 1964, og hefur aðskón verið mjög góð að safninu af Eyjabúum og gest um þeirra. Það virðast fáir koma til Vestmannaeyja, sem ekki leita eftir að sjá safnið. Safnið er nú opið 7 mánuði ársins, en það er lokað frá 1. nóv.— 1. apríl. — Hvað um framtíðarhús- næði safnsins? — Gólfflöturinn sem er leigð ur undir safnið núna er tæp- lega 200 ferm. og allir þeir hlut- ir sem safnið á eru ekki í ör- uggri höfn fyrr en bæjarfélagið ihefur byggt safnhús, sem jafn- framt yrði bóka- og listaverka- safn og það má minna á, að hér í Eyjum geymist á tveim stöðum náttúrusöfn, sem eru ef til vill þau merkilegustu á öllu landinu og þau njóta sín fyrst fyllilega þegar þau hafa verið sameinuð undir sama þak. Það eru framtíðarvonir fjölda manna hér í bæ að myndarleg safnbygg ing rísi af grunni innan skamms. Á. Johnsen. Myndin sýnir líkan af fjárrétt, sem kölluð var „almenningur“, og stóð hún á Þrælaeiði í Eyj- um. Réttin var hlaðin á 10. öld og stóð fram undir 1930, en þá gekk sjór yfir hana og eyðilagði. Þrjár merkis byssur. Byssan lengst til vinstri er úr Gottuleið- angrrinum, sem farinn var til Grrænlands 1929 til þess að sækja sauðnautskálfa til ræktunar á tslandi. Þegar hætta steðjar að sauðnautum með ungviði sitt, þá hópast þau utan um ungviðið til þess að verja það og þess vegna varð að skjóta fullorðnu sauðnautin tii þess að ná kálfunum. Gotta kom með sauðnautskálfana 7 til Reykjavíkur og muna eldri borgarbú- ar eflaust eftir því, þegar kálfarnir voru reknir upp á Aust- urvöll. Örlög sauðnautsræktunar á tslandi urðu þau að sauð- nautin drápust öll. Byssan í miðjunni er hríðskotabyssa, sem aflakóngurinn Binni í Gröf fékk hjá ameríska setuliðinu á stríðsárunum til þess að verjast árásum þýzkra orustuflugvéla. Ekki kom þó til að nota þyrfti byssuna, en ætið var hún höfð til taks í brúnni. Byssan lengst til hægri er framhlaðningur sem „Herfylkingin" í Eyjum átti. Herfylkingin var stofnuð af kaptein Kohl, danskmenntuðum liðsforingja árið 1857, en Kohl var sýslumaður í Eyjum 1858—’60. Hann kom upp her- skóla og fékk sendar um 70 byssur úr vopnabúri konungsins til handa hermönnum Herfylkingar Vestmannaeyja. Herfylk- ingin starfaði í 15—20 ár og hafði mikil og góð áhrif á menn- ingarlíf í Eyjum. Var lögð mikil áherzla á mannsæmandi fram- komu og bindindi. Þorsteinn Þ. Víglundsson stendur þarna hjá stæ rsta fiski safnsins, tunfiskinum. Helga RE veiddi hann austur við Hrollaugseyjar sumarið 1965. Snjósleðarnir bil- uðu til skiptis Tveir menn r hrakningum á Hólsfjöilum TVEIR menn sem fóru að leita kinda á miðvikudaginn í síðustu viku og lentu í allmiklum erfið- leikum á fjöllum uppi og voru alls 3 sólarhringa í ferðinni. Komu þeir til byggða aftur á föstudag. Ilöfðu þeir sá engar kindur fundið utan einn skrokk, er virtist dýrbitinn. Menn þessir voru þeir Hauk- ur Aðalgeirsson á Grímsstöðum og Jón Ármann Pétursson í Reynihlíð. Héldu þeir á miðviku dag á tveimur snjósleðum yfir Heilagsdal, áleiðis tii Herðu- breiðarlinda. Voru þeir um það bil fjórar klukkustundir inn eft- ir, en á heimleið henti þá hvert óhappið á fætur öðru. Skemmdu þeir í fyrstu belti annars snjó- sleðans í úfnu hrauni Urðu sleð- arnir síðan benzínlausir og urðu þeir að ganga að Grímsstöðum á Fjöllum, þar sem þeir gistu aðfaranótt fimmtudagsins. Árla á fimmtudagsm'orgun fóru þeir áleiðis að sleðunum með benzín og gekk sú ferð vel. Ann- ar sleðinn varð þó von bráðar benzínlaus á ný, og er þeir rann- sökuðu tankinn nánar, kom í ljós að gat var á honum. Hélt annar mannanna því á öðrum sleðan- um að sæluhúsinu í Nýja hrauni og sótti þangað benzín, er þeir áttu. Til að sækja benzínið not- aði hann heila sleðann, en í baka — Olafur Björnsson Framhald af bls. 19. og eyrnd kynda, vítiselda. Vítt um jörðu. Sástu þar enn frá salar inni dísir þær, sem að dögum ráða, og bölvabætur, bera á ebálum, döprum mönnum, í dimmum heimi. Sástu sólgtít, á svartri nóttu, nóttu í maí nær miðju sumri þar sem móðan mi'kla og fagra hrnígur hóglega hafi móti. Var líf þitt, líkast fljóti, sem hægt og hljóit að hafi rennur. Eins og móðan mjúka fagra, sólu glituð á sumri miðju. Vildi ég vinur, ef að val ætti, rétta hönd til kveðju, yfir haf dauða. En sú bönd, er þig héðan nam, beri harmabót heim að ranni. Vilhjálmur Eyjólfsson. ÓTTARYNGVASON héraðsdómslögmaður MÁLFLUTNINGSSK RIFSTOFA BLÖNDUH4ÍÐ 1 • SÍMI 21296 GOLFTEPPI WILTON TEPPADREGLAR TEPPALAGNIR EFTIR MÁLI Laugavegi 31 - Simi 11822. leiðinni bilaði belti hans, sem þó neyndist unnt að gera við til bráðabirgða. En félaga mannsins, er beið við benzinlausa sleðann var þá farið að lengja eftir hon- um og hélt að eitthvað hefði komið fyrir. Fór hann því áleið- is til Grimsstaða og kom hann þangað á fimmtudagskvöld. Þegar fréttist, að hann væri kominn fram, en hinn ekki, var farið að óttast um félaga hans. Rætt var um að sækja snjóbíl til leitar, en þess þurfti ekki með, því að skömmu síðar kom hajin að Grimsstöðum á sleðan- um með benzínlekann. Hann hafði þá haldið að benzínlausa sleðanum og fundið mann mann- lausann. Um svipað leyti hafði 'beltið algjörlega brugðist á sleða hans, svo að hann tók það til bragðs, að skipta um sleða og láta leka í tankinn nægilegt benzín, svo að unnt væri að aka honum. Komu mennirnir síðan heim í Mývatnssveit á föstudags kvöld. Ekki var þá ákveðið, hve nær gerður yrði út leiðangur til að bjarga sleðanum með bilaða beltið. Verið viss um uð þoð sé VALE KÚLUSKRÁR Lykillæstar Takkalæstar Ólæstar Smekklásar Klinkuskrár fyrir útidyr o. fi. o. n. J. Þorláksson & Norðmann hf. Bankastræti 11 - Sími 11280.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.