Morgunblaðið - 30.01.1968, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.01.1968, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. JANTTAR 19<» im mm. Rannsóknarlögregla verði undir stjórn lögreglustjðra sagði Friðjón Þórðarson í rœðu á Alþingi Á FUNDI Sameinaðs Alþing is sl. föstudag var um um- ræðu þingsályktunartillaga Friðjóns Þórðarsonar um breytta skipan lögreglumála í Reykjavík. — Aðalefni hennar er að fela ríkisstjórn- inni að hlutast til um sam- einingu lögreglunnar — hinn ar almennu lögreglu og rann sóknarlögreglunnar — undir yfirstjórn lögreglustjóra. Friðjón Þórðarson (S) sagði í framsöguræðu fyrir tillögu sinni, að samkvæmt gildandi lögum færi lögreglustjóri með lögreglustjórn almennt, en saka dómarar með stjórn rannsókn- arlögreglu. í lögum um meðferð opinberra mála er svo til or'ða tekið, að sakadómari í Reykja- vík fari með stjórn rannsókn- arlögreglu. 1 lögum um með- ferð opinberra mála er svo til orða tekið, að sakadómari í Reykjavik fari með stjórn þeirra lögreglumanna, sem ætl- að er að rannsaka brot „að því er þau störf varðar". Hvort tveggja er að orðalag þetta er ónákvæmt enda tvískipting lög- reglunnar óeðlileg áð ýmsu leyti. Allsherjarmanntal Árna Magnússonar frá 1703 telur íbúa í sjálfri Reykjavík ekki nema 21. Þegar verksmiðjur Skúla Friðjón Þórðarson landfógeta taka til starfa árið 1752, fer fólkinu að fjölga. Tal- ið er, að fyrstu drög að lög- gæzlu í Reykjavík verði rakin til þess tíma, þó að glöggar heimildir skorti þar til nokkru síðar. Fyrsti bæjarfógeti í Reykjavík var skipaður árið 1803 og voru þá jafnframt sett- ir tveir lögregluþjónar. Ekki verður saga né þróun þess em- bættis rakin hér, en þess áðeins getið, að 1918 er skipaður sér- stakur lögreglustjóri í Reykja- vík. 1. jan. 1921 varð Erlingur Pálsson yfirlögregluþjónn og gegndi því starfi mjög lengi síð- an. Hafði hann ,sérstaklega á hendi undirbúningsrannsóknir sakamála í mörg ár en aðrir lögreglumenn unnu að því jafn framt meira og minna. Með lög- um frá 1928 um dómsmálastörf, lögreglustjórn, gjaldheimtu og fleira í Reykjavík voru embætti bæjarfógeta og lögreglustjóra að nafninu til lögð niður, en í stað þeirra stofnuð þrjú ný em- bætti, lögreglustjóra-, lögmanns- og tollstjóraembætti. Lögreglu- stjóri hafði að sjálfsögðu á hendi stjórn allrar lögreglu, en með lögum nrr. 67 frá 31. des. 1939 var gerð meginbreyting á skipan þessara mála. Þá var sakadómaraembætti stofnað og kveðið svo á, að sakadómari skyldi fara með stjórnr rann- sóknarlögreglu en lögreglustjóri með stjórn hinnar almennu lög- reglu. Þá hefst með öðrum orð- um tvískipting lögreglunnar. Samkv. lögum er hlutverk lögreglumanna að halda uppi lögum og reglu, greiða götu manna þar sem það á vi'ð, stemma stigu við ólögmætri hegðun og vinna að uppljóstr- an brota, sem framin eru og vera rannsóknardómara til að- stoðar í tvívetna. Þetta á við alla lögreglumenn, þó að marg- háttuð verkaskiping komi að sjálfsögðu fljótt til fram- kvæmda þegar liðinu fjölgar. Það er mála sannast, að einn allra mikilvægasti og vandasam asti þáttur lögreglustarfsins er undirbúningur og frumrannsókn afbrota. Sá sem slík verk hefur á hendi getur alltaf búízt vi’ð mikiili áreynslu og erfiði, sem ekki verður yfirstigið nema Kannaðir möguleikar á fiski- rækt í fjörðum — Þingsályktunartillaga Sigurðar Bjarnasonar I GÆR var lögð fram á Alþingi tillaga tiil þingBályktunar um fiskirækt í fjörðuim. Flutnings- maður tillögunnair er Siguirður Bjarnason, en hann flu'fcti sam- Mjóða tillögu á síðasta þingi, sem hlaut þá eklki fullnaðaraf- greiðslu. Tillaga Sigurðar er svohTjóð- andi: Allfþingi áiyktar að skora á ríkisstjómina að láta fram fara atíhugun á möguleikum vísinda- legrar tilraunastarfsemíi með ftekirækt og uppeldi nytjafiska í einstökium fjörðum, er hentug- ir kynnu að þykja til slíkrar stairfsemi. Skal hafa samráð við Hafrannsóknarstofnunina og Fiskilfélag íslands um þessa at- hugun Tilliögunni fylgir eftirfarandi greinargerð: , Á fiiskilþingi og ýmsum öðmm fundum útvegsmanffiai og sjó- manna hefur á undanförnum ár um oft verið rætt um nauðsyn þess, að hafizt yrði Ihianda um fiskirækt og uppeldi nytjafisika í einstökum fjörðum í strand- lengju íslands. En að því er vitað er mun lítið eða eklkert hafa verið aðlhafzt í þessum efnum. Það er hinsvegar almenn skoð- un. að brýna nauðsyn beri til þess að hefjast handa um vís- indalegar aðgerðir fcil ræktunn- ar nytjafíska í hafinu með svip uðum hætti og gert hefur verið í ám og vötnum hér á landi og víðs vegar um heim. Vftað er, að fisfeistofnarnir í Norður-Atlantshafi em í veru- legiri hættu. Hefur það komið fram í skýrslum og ummiælum fisfeifræðinga og er raunar öli- um l'jóst, sem um þessi mál hugsa. Það er því augljóst, að nýjar ráðstafanir fcil frekiari verndunar fiskistofna við sfcrend ur íslands eru óhjákvæmilegar. Kemur þá m.a. fcil greiffna tak- mörkun netaveiða á hrygndngar- svæðum, flriðun nýrra svæða fyr ir botnvörpu og netaveiðum utan 12 miálna fiskv eiði t akm arkan na og vísindalegar aðgerðdr til fisfeiræktar. Xsltenzíkir fiskilflræðdlnigar hafa unnið raikið og merfeltegt starf á sviði fiskirannisófena og fiiski- lteitar á undanförnum árum. Hleflur þefcta starf h'aft mikla þýð iin.gu fyrir atvinnuMf þjóðarinn- ar. En brýna nauðsyn ber til þess, að nýrra leiða verði freist að í þessum efnum. Þess vegna er þessi tillaga fllutt. Iðnaðarhúsnæði í Kópavogi til leigu. Sanngjörn leiga. Góð bílastæði. Upplýsingar í síma 40159. Vanur maður óskast til afgreiðslustarfa í vélavarahlutaverzlun. Enskukunnátta nauðsynleg. Upplýsingar sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 10. febrúar n.k. merktar: „Varahlutir 5216“. Illorðtmhlnhth AU6LYSIKGAR SÍMI SS*4*8Q hann eigi yfir að ráða marg- háttaðri þekkingu og reynslu, öruggri dómgreind og miklu þol gæði og skilyrði góðs árangurs er einatt náin og traust sam- vinna margra manna að settu marki. Það er ekki ævinlega sjálf- sagt né heldur nauðsynlegt að leita erlendra fyrirmynda. Þó er sjálfsagt að hafa hliðsjón af því í þessu efni. Um öll Norð- urlönd gildir sú meginregla, að lögreglan í heild er háð yfir- stjórn lögreglustjóra. Svo er og meðal annarra menningarþjóða þar sem til er vitað, þótt það verði ekki nánar rakið hér. Nú er verið að byggja nýja lögreglu stöð í Reykjavík. Það er því til- valið að vinna að undirbúningi þessa máls á meðan á því verki stendur. í viðtali vi'ð Lögreglu- blaðið sem út kom í desember sl. segir Hermann Jónasson fyrrv. forsætisráðherra m. a.: ,,Ég er heldur ekki viss um, að þorri manna geri sér það ljóst, að löggæzlan er hyrningar- steinn þjóðfélagsbyggingarinn- ar. Sú þjóð sem býr við órétt- láta löggæzlu hlýtur að vera óhamingjusöm.1 Að minni hyggju er mikils- virði, að allir lögreglumenn, hvort sem þeir vinna að al- mennri löggæzlu, rannsóknar- störfum, tækniverkefnum eða öðrum sérstökum störfum finni, að þeir séu allir í sama báti, samverkamenn er lúta einni stjórn. Dómendur fara með dómsvaldið segir í fyrstu grein stjórnarskrár íslands, þannig fer borgardómaraem- bættið í Reykjavík með dóms- störf í einkamálum en saka- málaembættið með dómsstörf í opinberum málum. Lögreglustjóri á að hafa á hendi yfirstjórn lögreglunnar. Ég legg svo til, að umræðunni verði frestað og málinu vísað til háttvirtrar allsherjarnefnd- ar. Tekur sæti ó Alþingi f GÆR tófe sæti á Aliþingi Ás- geiir Pétursson sýdkxmaður, sem vairamaður SjáMstæðiisfloifefesinis í VesturlaffidskjördæmL Ný mál LAGT var fram á Alþingi í gær frumvarp u'm smíðd fisfei- skipa innanlands. HTutningæ menn eru Lúðvík Jósefsson, Geir Guinnarsson og Jónas Árna son Þá vax laigt fram frumvarp frá Ágústi Þorvaldssyni og Guð lau'gi Gíslasyni sem gerir ráð fyrir heimild fyrir hreppsnefnd ina í Kirkjaibæjarihreppi í Vest- uir-iSkaíftaflellssýslu til að selja jörðina Þyfefevabæ I í 'LandbrotL Þá var ennfremur lagt fram nefndarálit sjávarútvegsnefndar efri-dei'ldar um frumvarp um heimild handa siglingamálaráð- herra til að veita Hans Samúels syni stýrimannaskírteini á ís- lenizkum skipum. Mælir nefnd- in með samþykkt frumvarpsins. Þingmál í gœr FUNDIR voru í báðurn deildum Alþingis í gær f neðri-deil'd mælti Hailldór E. Sigurðsson fyr ir frumvarpi er hann flytur á- samt öðrum þingmönnum Vestur landskjördæmis um söliu eyði- jarðarinnar Grísatungu í Staf- hol'tstungnahreppi. Var frum- varpin'u, að ræðu Halldórs lofe- inni, vísað til 2. umræðu og landibúna'ðarnefndar dleildarinn- ar. f neðri-deild mælti Þórarinn Þórarin'sson fyrir frumvarpi er hann flytur um Húsnæðismála- stofnun rtfkisins. Var því frum- varpi vísað till 2. urnræðu og heiflbrigðis- og félagsmálanefnd- ar. í efri deild mæl’ti féTagsmála- ráðherra fyrir frumvarpinu um hæfefeun á bótum almannatrygg inga .Var frumvarpinu vísað til 2. umræðu og heiibrigðis- og fé Tagsmál'anefndar. Steimþór Gests son mæl'ti fyrir áliti l'andbúnað- arnefndar efri-deildar um frum varpið um sölu eyðijarðarinniair Hóls í Ölfusi, en nefndin mælti einróma með samþyklkt frum- varpsins Var það afgreitt till 3. umræðu. Karl Sigu'rbergsson fflutti sína jóimflrúrræðu er frumvairp hans um stuðning við hlutarráðna fisfeimenn feom t’il umræðu, Var frumva'rpinu síðan vísað til 2. umræðu og sjávarútvegsnefnd- ar. Þá mælti Tómas Árnason fyrir frumvarpi er hann flytur um smíði fiskisfeipa og var því ennfremur vísað til 2. uimræðu og sjá'varútvegsnefndar. Frumvarp um síldarútvegsnefnd — Flutt af sjávarútvegsnefnd E-deildar t GÆR var lagt fram frumvarp á lögum um síldarútvegsnefnd og útflutning saltaðmr síldar. Er frumvarpið flutt af sjávar- útvegsmefnd efri-deildar að beiðni sjávarútvegsmálaráðherra og keimur fram í greinnrgerð frumvarpsins að ráðherra hafi borizt beiðni um að fumvarp þetta 'væri flutt frá sjö manna nefnd, sem skipuð var af sjáv- arútvegsmálaráðuneytinu 2. ág. sl. til að gera tillögur um fram- tíðarskipulag á sölu verkaðrar síldar til útlanda. Sjávairút vegsnefnd deildarinn- ar fjallaði nú um annað frum- varp um breytingu á sömu lög- um, en það var flufct af 5 þing- mönnuim alTra stjóirnmáTaiflofek- anna sfeömmu fyrir jöl, og voru áfevæði þess frumvarps þau, að slldarútvegsnefnid skylldi hafa sitt aðalaðsetur á Sigluifirði. í frumvarpi þvi er lagt var fram í gær er gert ráð fyrir þremur breytingum frá núv. Skipan mála. í fyrsta lagi er gert i’áð fyrir að fjölga nefndar- mönnum í síldarútvegsnefnd um eirun og sfeal hann sfeapaðuir eftir tilnefningu Félags ís- Itenzfera síldairsal'tenda á Norð- ur- og Austurlandi og Félagis síldarsaltenda á Suðvestunlandi sameiginlega. í öðru lagi er gerfc ráð fyrir því að atkvæði formanns nefndairinnar náði úr- slifcum, ef atkvæði eru jöifn í nefndinni og í þriðja lagi segir í frumvarpinu urn aðse'tur nefnd arinnar, að hún skuli hafa skritf stofur í Reykjavík, SigTufirði og á Austurla'ndL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.