Morgunblaðið - 30.01.1968, Side 28

Morgunblaðið - 30.01.1968, Side 28
ÆSKUR Suðurlandsbraut 14 — Sími 38550 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANUAR 1968 TVÖFALT . EINANGRUNARGLER ;Oára reynsla hérlenrfi» EGGERi KRISTJANSS dbw«t«iiia Banaslys í Hvalfirði XUTXUGU og sjö ára gamall maður beið bana, þegar bann missti vegþjöppu, sem hann var að vinna á, út af rétt hjá Hval- stöðinni í Hvalfirði, skömmu fyrir klukkan sex í gær. Maðurinn var fluttur í sjúkra húsið á Akranesi, en reyndist iátinn, þegar þangað var kom- ið. Nafn hins látna er ekki hægt að birta í blaðinu í dag, þar sem ekki hafði náðzt í alla ætt ingja hanis í gærkvöldi. Óttast var um 3 skip er svöruðu ekki kalli FARIÐ var að óttast um þrjú skip nú um helgina, vegna þess að ekkert hafði spurzt til þeirra í tvo sóiarhringa, frá þvi klukk an 21 á föstudag og þar til á sunnudagskvöld, en mjög vont veður var á hafinu umhverfis landið. Fnnnst látinn við Rauðavatn BJARNI liristinsson, lyfjafræð- ingur, sem saknað hefur verið síðan 12. janúar sl., fannst á sunnudag látinn innan skógar- girðingarinnar við Rauðavatn. Maður nok'kur, sem var þarna á göngu með börn sín, fann lík Bjarna, og gerði hann lögregl- unni þegar viðvart. Síðast er vitað uim ferðir Bjarna heitins, að hann fór með strætisvagni á leiðis að Geithálsi 12. ja.núar. Engir sjáanlegir áverkar voru á líkinu, eða neitt, sem gæti bent til þess, með hvaða hætti Bjarni hefði látizt. Samíkvæmt upplýsingum Ilenrys Hálfdánarsomar hjá Slysavarnafélaginu sneru eig- endur skipanna Hildur RE, Ing vars Guðjónssonar SK og Grjót eyjar sér til félagsins og báðu um aðstoð, þar eð ekkert hafði heyrzt til þeir-ra. Hafði Slysa- varnafélagið uppi fyrirspurnir um sfcipin og setti í gang l’oft- sfceytastöðvar á neyðarbylgjum í Englandi, Færeyjum og á ís- landi, en allt kom fyrir ekki, fyrr en fréttist af HiMi þar sem hún lá á Eskifirði, Ingvar Guð- jónsson, sigMi inn til Grimsby og Grjótey inn í Reykjavíkur- höfn. Henry Hálfdánarson sagði að þetta dæmi sýndi og sannaði nauðsyn þess að komið sé á tilfcynningaskyldu skipa, a.m.k. tvisvar á sólarhrinig. Slysavarna félagið hefði ekki auglýst eft- ir skipum þessum í útvarpi, vegna þess að þá hefði ef til vill gripið um sig hræðsla. Ger ir félagið slíkt ekki fyrr en í lengstu lög. Slökkvistarfið gekk vel, þrátt fyrir erfiðar aðstæður. (Ljósm. Mbl.: Sv. P.) Mikið tjón af eldi í verk- smiðju KJ. & Co á Akureyri — lim 100 manns missa atvinnuna um stundarsakir Akureyri, 29. janúar. MIKIÐ tjón varð af eldsvoða í niðursuðuverksmiðju K. J. & Co. á Oddeyri á Iaugardagskvöld. Slökkviliðinu tókst að sigra eld- inn á tveimur klukkustundum, Bandaríkjamaður leitar hælis á íslandi sem pólitískur flóttamaður — Kvœntur íslenzkri konu — Andvígur stetnu Bandaríkjastjórnar í Víetnam BANDARÍKJAMAÐUR, kvæntur íslenzkri konu, hefur leitað hælis á íslandi sem póli- tískur flóttamaður. Gefur hann sem ástæðu, að hann sé mótfallinn stefnu Bandaríkja stjórnar í Víetnam. Maðurinn tók ákvörðun um að fara til Islands, þegar hann var kvaddur í herinn á ný, en hann hafði áður gegnt her- hjónustu í 3 ár. Mál hans er nú til athugunar í dómsmála- ráðuneytinu- Morgunblaðið hafði í gærkvöldi samband við fjölskyldu Bandaríkja- mannsins, en að ósk hennar verður nafn hans ekki birt að sinni. Bandaríkjamaðurinn kom ásamt konu sinni til íslands sl. sunnudag. Hann hafði far- ið frá heimili sínu í Vestur- ríkjum Bandaríkjanna til Kanada og þaðan til New York, þar sem hann tók sér far með Loftleiðaflugvél til íslands. Bandaríkjamaðurinn tók ákvörðun um að fara úr landi, þegar honum barst til- kynning um að koma til her- Framh. á bls. 21 þrátt fyrir mjög erfiðar aðstæð- ur. Auk hins beina tjóns af völd- um brunans missa um 100 manns atvinmu sína um stundarsakir unz vinnsla getur hafizt aftur að lokinni bráðabirgðaviðgerð. Slökkvistöðinni barst vit- neskja um eldsvoðann kiukkan 20:26 á laugardagskvöM. Ungur maður, Bjarni Reykjailín, átti leið framhjá verksmiðjunni, sá mikinn reyk 'stíga upp af þaki hennar og hraðaði sér í síma tii að gera slökkviliðinu viðvart. Samstundis var fyrsta og annað „útkall" slökkviliðsins kvatt út, alls um tuttugu manns, en á leiðinni á brunastað varð ljóst af hinum mikla reyk, að um mikinn eld var að ræða og var þá allt slökkvilið þæjarins kallað út, 30 til 40 menn, og allir bílar liðsins, fjórir að tölu, teknir í notkun og auk þeirra þrjár dælur. ÞegaT slökkviliðsmenn komu að húsinu gaus eldurinn upp úr norðanverðu þakinu á vestasta og nýjasta hluta verksmiðju- hússins, en sá hluti er uim 6500 rúmmetrar að stærð og vax full- gerður í árslok 1966. Strax vaT farið upp á þakið og tekið að rífa af því bárujárnið til að komast að eldinum, sem var mjög magnaður. Jafnframt var farið upp á loftið innan frá. Slökkvistarfið var mjög miklum erfiðleikum bundið, inni vegna hita og reykjarkófs, en úti á þakinu vegna þess, að sums staðar mynduðust svelilbólstrax af vatninu úr brunaslöngunum, en annars staðar var þakið gló- Framh. á bls. 5 Kennsla felld niður í MA. JAFNSKJÓTT sem andláts- fregn Þórarins Björnssonar barst um Akureyrarbæ á sunnudagsmorgun drúptu fán ar í hálfa stöng hvarvetna. Klukkan átta í gærmorgun var hringt á Sal í Mennta- skólanum og þar tilkynnti Brynjólfur Sveinsson yfir- kennari nemendum lát skóla- meistara í fjarveru Steindórs Steindórssonar yfirkennara, sem gegnt hefur störfum skólameistara að undanförnu í veikindaforföllum Þórarins Björnssonar. Kennsla í M.A. verður felld niður til fimmtudags- morguns og fáni mun blakta í hálfa stöng á skólahúsinu daglega til miðvikudags- kvölds. Var nærri orðinn úti — fréttir frá Þingeyri Þingeyri, 29. janúar AÐKOMUMAÐUR, sem hér stundar sjómennsku, var nærri orðinn úti aðfaranótt sl. sunnu- dags. Á laugardagskvöld efndu sjómenn til dansleiks og þegar síðast sást til þessa manns, var hann orðinn all ölvaður. Klukkan 08:00 á sunnudags- morgun vaknaði kona við óp í manni og fann hún mann þenn- an liggjandi í snjónum fyrir ut- an hús sitt. Vindur var af norð- austri og 12 gráðu frost þessa nó'tt. Maðurinn var í skyndi fluttur í Sjúkraskýlið og samkvæmt Framh. á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.