Morgunblaðið - 13.02.1968, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 19««
IVIAGIMUSÁR
SKIPHOLTI21 símar 21190
eftirlokun slmi 40381
Hverfisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson.
BILALEIGAINI
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
SPARifl TlMA
FYRIRHDFN
lrtötLe'7/&tr
RAUÐARARSTlG 31 SlMI 22022
Nýr sími
23-222
SENDIBILAR H.F.
Einholti 6.
AUDVITAÐ
ALLTAF
★ Fylltu hug þinn af
góðum hugsunum
Hermóður Birgir Alfreðs-
son, leikfimisikennari, ritar í
dag hugleiðingu, þar sem hann
beinir orðum sínuim einkum
til íslenzkrar æsku. Farast hon-
um orð á þessa leið:
„íslenzk aeska er mislitur
hópur, — við hittum hana við
margar mismunandi aðstæður í
þjlðfélaginu.
Helzt viljum við sjá hana við
vinnu sína. Eitt af helztu verk-
efnum framtíðarinnar, er, að
byggja upp þjóðfélagið með
nægum verkefnum fyrijr allaj
yngri sem eldri.
Að vilja eittlhvað sérstakt, að
hafa fast markmið til að keppa
að, 'hefur ómetanlegt giidi. Tapi
maður hæfiileikanum til að
horfa fram á við, að vin.na að
settu marki, og framaþrá, þá
hrærumst við ekki lengur með,
heldur stöndum við á vegar-
brúninni og látum hina aka
framhjá.
En 'hv^r er þróunarmöguleik-
ana að finna?
Við getum fundið þá á heim-
ilum okkar, í kirkjunni, á
vinnustöðum, í kvöldskólum og
unglinaskólum, mennta- og há-
skólum, í iþrótta'hreyfin.gunni,
og síðast en ekki sízt í hinum
mörgu félagssamtökum ungs
fólks, en ekki við það að aka
um götur borgarinnar, eða með
því að byrja þátttöku í einu og
öðru til þess eins að hætta
jafriharðan aftur.
f framtíðinni verður einnig
að rei'kna með góðu rými fyrir
íþróttir og útilíf. fþróttir er
líkamsæfing í góðum féiags-
skap. Á ferðalögum og útileg-
um lærir íslenzk æska að
þekkja land sitt og meta það
að verðleikum.
Og það verður einnig að vera
rými fyrir heil'brigðan féiags-
skap og ánægju fyrir yngri
kynslóðma.
En þið, kæra æskufólk, ykk-
ur ber að muna að á ykkar
aldurskeiði er það mjög mikil-
vægt að geta gert greinamun
á því raunverulega og því
óraunverulega, — milli þess
auvirðilega og þess er gefur
lífinu gildi.
Við verðum fljótt sammála
um að það er mikill munur á
félaga og vini. Félagana velj-
um við ekki sjálf, þeirra þurf-
um við ekki að leita, — þeir
koma af sjálíu s'ér, — í leikj-
um, í skólanum og hvaðanæva
að, allt okkar líf. Og vissulega
bæði getum við og eigurn við
að njóta góðs af félögum okkar.
En vinur er sá, sem við velj-
um sjálf. Maður á sér vin,
vegna þess að það er vilji
manns og vill einmitt eiga eng-
an annan en hann að vini. Og
einmitt það ræður, hvort við
veljum rétt, því jafnvj^t er að
góður vinur er eitt af því bezta
hér í heimi og að slæmt vin-
fengi getur aldrei verið til góðs.
Hversu vel getur góður vinur
ekki hjálpað og hughreyst, þeg-
ar eitthvað gengur á og sam-
glaðzt manni þegar allt leikur
í lyndi og hversu langt getur
þá slæmur vinur ekki dregið
pilt eða stúlku burt frá öllu,
sem telst satt, gott og hollt.
Fylltu því hug þinn af góðum
hugsunum, og reyndu að forð-
ast slæman félagsskap, óhollar
kvikmyndir oig sorprit. Þeir,
sem ekkert gera fyrir aðra,
gera ekkert fyrir sjálfan sig.
Leitaðu eftir því góða í hverj-
GPSÍSVEGI22-24
fl:30280-32Z6Z
LITAVER
Barrystaínes
linoleum parket gólfflísar.
Stærðir 10 cm x 90 cm.
23 cm x 23 cm.
Gott verð
HEFILBEKKIR
eru til í mismunandi stærðum.
VERKFÆRAHALDARAR
Hinir vinsælu segulverkfærahaldarar eru fyrirliggj-
andi.
TRÉKLOSSAR
fyrir karlmenn, með og án haelkappa. Einnig kven-
klossar og mjög fallegar töfflur fyrir konur.
LÁRUS JÓNSSON,
umboðs- og heildverzlun,
Laugarnesvegi 59. Sími 37189.
um þeim sem þú umgengst,
fordómalaust, þú munt þú geta
varðveitt gleði þína og aukið
gleði annarra.
Hermóður Birgir Alfreðsson“.
Útnesvegur er oft
slarkfær
S. E. á Hellissandi skrifar
um vegamál og raforkumál:
„Það er gleðilegt að vega-
málastjóri, skuli gefa tilefni til
blaðaskrifa um vegamálin á
utanverðu Snæfellsnesi. Það er
leiðinlegt þegar sífellt er boð-
aður sparnaður, bæði af opin-
berum aðilum og öðrum að fyr-
ir augum okkar hér, skuli þá
ausið pé í ástæðul'aust snjó-
mokstursbrjálæði á Fróðar-
heiði tvisvar, þrisvar og jafnvel
oftar í viku hverri, en Útnes-
veg hefði sennilega þurfa að
moka tvisvar það sem af er
vetri. Vegamálastjóri telur
ógerlegt að moka Útnesveg
vegna þess, hve ihann er óskap-
lega langur og að mikill hluti
hans sé niðurgrafinn og ekki
unnt að koma þar frá snjó.
Vegurinn er jú langur, en get-
ur hann verið styttri? Ébúum
Hellissands þætti það gott að
hafa 'hann aðeins styttri, en það
ræður enginn sköpun heimsins
og þá ekki Snæfallsnesinu,
sem betur fer. Vegurinn um
Staðarsveit er að mestu niður-
grafinn moldartroðningur, þar
sem hann eirihvernt'ima hefur
verið uppruddur, er hann á
stórum kafla sokkinn í mýrar-
fláka, þar 'heíur ekki oft af
verið mokað snjó í vetur. Því
þar er einfaldlega ekið utan
troðninganna, það saaja er
hægt að gera á þeim þriggja
km. kafla af Útnesvegi, sem
ekki er upphleyptur, þvi snjóa-
lög hafa verið báðum megin
á Nesinu í vetur. 49 km. á Út-
nesveginum er uppruddur
þar sem auðveildara væri að
moka af 50 cm. þykku snjó-
lagi, sem mest hefur verið.
Ekki trúi ég að auðveldara sé
að moka eins til tveggja metra
djúpan jafnfallinn snjó, sem
v’íðast hver er á veginum yfir
Fróðárlheiði tvisvar í viku.
Hissa er ég á að Breiðvíkingar
skuli ekiki láta heyra í sér um
þessi mál. Það er lágmarks-
krafa okkar hér sem þetta út-
nes búa, að stjórnendur vega-
mála suður í Reykjavík auglýsi
ekki sífellt Útnesveginn ófær-
an þótt, hann sé oft slarkfær
og fær öllum stórum bifreið
um.
Raforkumál
Sala á ikertum til ljósa og
gasi til eldunar, trúi ég að hafl
verið |aikil ‘hér utan Ennis í
haust og vetur, því ef kulað
hefur eða snjóað úr lofti, þá
hefur rafmagnið farið af. Þetta
skeður oft í mánuði, hálfa og
heilu sólarhringana er raf-
magnslaust. Kemur sér þetta
illa þar sem búin þurfa raf-
magn jafnframt oliu til upphit-
unar. Þær eru ófáar stundirnar
sem fólk hér þarf að sitja um-
vafið teppum og við kertaljós.
Gaman væri að heyra frá raf-
veitustjóra hvað ihann hyggst
gera til að koma þessum mál-
um í það lag að möguleiki sé
að tala um þjónustu.
Það væri ekki til of mikils
mælzt að byggð yrði hér utan
Ennig varastöð sem firra
mundi algjörum vandræðum
þar sem orkul'ínan liggur yfir
erfiðan fjallveg og oft erfit að
komast þangað upp til viðgerð-
ar. Lina þessi er orðin yfir tíu
ára görnul og virðist illa haldið
við sem marka má af því sí-
fellda rafmagnsleysi sem
ágerist með hverjum vetrinum
sem líður. (Þessar línur eru
skrifaðar við kertaljós).
S. E.“.
Ræna þotusleðum
smábarna
Ung móðir í Hafnarfirði
skrifar á þessa leið:
Kæri Velvakandi.
Nú get ég ekki orða bundizt
lengur og skrifa þér þessvegna
nokkrar línur með ósk um að
þær birtist sem fyrst.
Það hefur verið mjög gott
sleðafæri núna í vetur og mín
börn eiga þotusleða eins og
flest önnur börn nú til dags.
Þau renna sér mjög mikið í
brekkunni hjá Flensborgar-
sfcóla en þegar frírmínútur eru
í skólanum þá kom ungling-
arnir úr skólanum og taka af
þeim þoturnar og renna sér á
þeim, en látum vera að þeir
renni sér, en þotusleðarnir,
þeir minnstu, eru ekki fyrir
hálffullorðið fólk og börnin
mín fengu sinn þotusleða möl-
brotinn þegar bonum var skil-
að. Mér finnst að svona lagað
eigi ekki að koma fyrir við
dyrnar hjá skólastjóra þessa
skóla og yfirvöldum bæjarins.
Ung móðir í Hafnarfirði“.
Atthagafélag Akraness
Aðalfundur verður haldinn í Aðalstræti 12, fimmtu-
daginn 15. þ.m. kl 9. Venjuleg aðalfundarstörf
STJÓRNIN.
Nauðimgaruppboð
sem auglýst var í 66., 68. og 71. tbl. Lögbirtingablaðs
1967 á hluta í Stigahlíð 28, hér í borg, talinn eign Ingva
M. Árnasonar, fer fram eftir kröfu Hafþórs Guð-
mundssonar dr. jur. Iðnaðarbanka íslands h.f., Inn-
heimtu Landssímans og Útvegsbanka íslands, á eign-
inni sjálfri, föstudaginn 16. febrúar 1968, kl. 10 ár-
degis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.