Morgunblaðið - 13.02.1968, Síða 7
MOKGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1968
7
Víkingaskipið
*
i
Aimannagjá
EINS og þeir muna, sem komu
á Alþingishátíðina árið 1930,
var merki hátíðarinnar kring-
lótt úr silfri, og á því var mynd
af víkingaskipi því. sem mynd-
ast af klettum í Almannagjá.
Ekki er þó ’{'st, að allir viti,
að mynd þessa víkingaskips
birtist í Almanaki Þjóðvinafé-
lagsins árið 1915, en ritstjórinn,
Tryggvi Gunnarsson, var mjög
fundvís athyglisverða hluti,
sem öðrum yfirsást.
Við birtum hér að ofan þessa
vikingaskipsmynd úr almanak-
inu, og teiknarinn er enginn
annar en Guðmundur Magnús-
son skáld, sem sjálfsagt betur er
þekktur undir nafninu Jón
Trausti.
Um mynd þessa segir Tryggvi
Gunnarsson svo á Almanakinu:
. „ . . . myndin er af litlum
bletti á vestra barmi Almanna-
gjár. Þegar staðið er á vegin-
um í Almannagjá, fáa faðma
fyrir sunnan suðurhorn Drekk-
ingarhyls, þá sjást klettar á
vestri gjárbakkanum, sem mjög
líkist víkingaskipi almönnuðu
undir árum. Einkum sýnist
þetta vera svo á kvöldin, þeg-
ar klettarnir dökkir bera við
himininn. Myndin er penna-
dráttur eftir Guðmund Magnús
son skáld“.
Og svo getur fólk farið að
þessari leiðbeiningu Tryggva
sáluga, sem oft var kallaður
Tryggvi gamli, og skoðað vík-
ingaskipið á Þingvelli, en eins
og hér á þessum slóðum hefur
oft verið á minnzt, er Þing-
vallaferð ómissandi þáttur í
uppeldi hvers fslendings. Við
megum aldrei gleyma samheng
inu í sögu okkar, og Þingvellir
við Öxará, er einmitt sá stað-
ur helzt á landi hér., sem að því
getur stuðlað. — Fr. S.
FRÉTTIR
Árshátíð Eskfirðinga- og Reyð-
firðingafélagsins verður I Sigtúni
laugardaginn 17. febrúar. Þorra-
matur.
Kristni-
boðsvika
í Hafnar-
firði
í húsi
KFUM
og K
Á samkomu Kristniboðsvikunn-
ar í Hafnarfirði í kvöld, sem
hefst í húsi KFUM og K að
Hlverfisg.ötu 15, talar Ingunn
Gísladóttir hjúkrumarkiona og
Jónas Þ. Þórisson, skrifstofu-
maður. Stúlkur syngja. Allir vel
komnir.
Árshátíð Hestamannafélagsins
Sörla, Hafnarfirði, verður hald-
in laugardaginn 24. feferúar n.k.
í Iðnaðarmannasalnum í Hafnar-
firði, og hefst hún kl. 8 m<eð
sameiginlegu borðhaldi.
Árshátíð Strandamanna
verður haldin að Hlégarði í
Mosfellssveit 17. febrúar kl.
7.30, og hefst með borðh-aldi
(heitum mat). Síðan verða
sikemmtiatriði. Miðar verða af-
hentir í Radiíóhúsinu Hverfis-
götu 40 16. og 16. febrúar frá
4—7.
Kvennadeild Flugbjörgunarsveit
arinnar
Fundur útí svéit miðlvikudag-
inn 14. febrúar kl. 9. Hafið með
ykkur nál og tvinna.
Kvenfélagskonur Garða- og
Bessastaðahreppi
Föstudiagskvöldið 16. febrúar
kl. 9 flytur Baldur Johnsen
fyrirlestur um heilbrigðismál
að Hlégarði í Mosfellssveit á
vegum KSGS. Þær konur, sem
ætla sér að sækja fyrirlestur
þennan, vinsamlegast tilkynnið
þátttöku fyrir fimmtudags-
kvöld í símum 40700. 50837,
50578 og 50976.
Systrafélag Keflavíkurkirkju
Fundur verður í Tjarnariundi
fimmtudaginn 15. febrúar kl. 8,30
Fílafelfía, Reykjavik
Almennur biblíulestur í kvöld
kl. 8,30.
Kvenfélagið Aldan
Aðalfundur verður miðviku-
daginn 14. febrúar kl. 8,30 að
Bárugötu 11. Spilað verður
Bingó.
KFUK aðaldelld
Saimrafundur í ktvöld kl. 8,30.
Fjölbreytt dagskrá. Kaffi. Gunn
ar Sigurjónsson, cand. theol.
flytur hugleiðingu.
Bræðrafélag Langholtssafnaðar
Aðalfundur félagsins verður 1
Safnaðarheimilinu þriðjudaginn 13.
febrúar kl. 8.30
Slysavarnadeildin Hraunprýði,
Hafnarfirði heldur fund þriðjudag
inn 13. febrúar kl. 8.30 í Sjálf-
stæðishúsinu. Leikþáttur, gamanvís
ur, kaffi.
Kvenfélagið Hringurinn Hafnarf.
Fundur ferður haldinn í Alþýðu-
húsinu í Hafnarfirði þriðjudaginn
13. febrúar kl. 8.30. Spiluð félags-
vist. Kvikmynd, kaffi. Gestir vel-
komnir.
Minningarspjölcí
Minningarspjöld Hólaneskirkju
á Skagaströnd fást í skriif-
stofu KFTJM og K, Amtmanns-
stíg 2, niðri.
Vísukorn
6. þ.m. birtis't vísa eftir Hjálm
ar frá Hofi, þar sem hann
kvartar undan prentvillum. Af
tilefni þess var eftirfarandi visa
ort:
Moggans prentsmiðju púki
píreygður trúi ég húki
— lætur þó sem hann sofi.
Hoppar svo ofan af hillu
með helv .... slæma villu
í ferskeytlur Hjálmars frá
Hofi.
M. Guðbrandsson.
☆ GENGIÐ
GENGISSKRÁNfNÖ
Nr. 17 - 2. íebrúar 1968.
Shrág frá Elnlng Kaup Sal«
27/11 '87 1 Bandar. dollar 68,93 87,07
1/2 '68 1 Sterlingspund 137,31 137,65
2/2-1 Kanadadollar 83,36 52,60
31/1 - 100 Danskar krónur 762,84 764,50
27/11 '67100 Norskar krónur 796,92 798,88
23/1 '68100 8anskar krónur1.103,10 1.105,80
2/2 - 100 rinnak uörk 1.368,71 1.362,08
28/1 - 100 Fransklr fr. 1.157,00 1.159,84
4/1 - 100 Belg. frankar 114,55 114,83
22/1 v 10O Svlssn. fr. 1.309,70 1.312.24
16/1 - 100 Oyllinl 1.578,85 1.582,53
27/11 '67100 Tókkn. kr. 790,70 792.64
1/2 '88100 mörk 1.421,85 1.425,35
29/1 - 100 LÍrur 9,11 9,13
2/1 - 100 Auaturr. «ch. 220,10 220.64
13/12 '67100 Peaetar 81,00 . 62,00
27/11 - 100 Relkningakrónur*
lfö ruskiptalönd 99,8« 100,14
• • 1 Reikningapund-
Vöruskiptalönd 136,83 136,97
IUunið eftir
smáfuglunum
Munið eftir að gefa smáfugl-
unum, strax og bjart er orðið.
Fuglafóður Sólskríkjusjóðsius
fæst vonandi í næstu búð.
Akranesferðir Þ. 1». I*.
Frá Akranesi mánndaga, þriðjn-
daga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 8, miðvikudaga og föstudaga
kl. 12, sunnudaga kl. 4.15.
Frá Reykjavík kl. 6 alla daga
nema laugardaga kl. 2 og sunnu-
daga kl. 9.
Eimskipafélag fslands
Bakkafoss fór frá Kaupmannahöfn
9. þ.m. til Thorshavn og Reykjavik-
ur. Brúarfoss fór frá New York 8.
þ.m. til Reykjavíkur. 3>ettifoss kiom
til Reykjavíkur 11. þ.m, frá Kotka.
Fjallfoss fór til Akureyrar i gær ÍH.
þ.m. til Seyðisifjarðar, Stöðvarfjarð-
ar, Fáskrúðsfjarðar og Eskifjarðar.
Goðafoss fór frá Wismar í gær 12.
þ.m. til Hamborgar og Reykjavík-
ur. Gullfoss kom til Kaupmanna-
hafnar 11. þ.m. frá Thorshavn. Lag-
arfoss fór frá Reykjavík 11. þjm. til
Akureyrar og Murmansk. Mánafoss
fór frá Siglufirði í gærkvöldi 12. þ.
m. til Akureyrar, Raufarhafnar, Bel
fast og Avonmouth. Reykjafoss kx>m
til Reykjavrkur 10. þ.m. frá Rotter-
dam. Selfoss fór frá Reykjavík 3.
þ.m. til New York, Cambridge, Nor
folk og New York. Skógatfoss fór
frá Antwerpen í gær 12. þ.m. til
Rotterdam og Hamborgar. Tungu-
fór frá Akureyri 11. þ.m. til Odda,
Skien, Malmö, Moss, Gautaborgar
og Kaupmannahafnar. Askja fór frá
Reyðarfirði 9. þ,m. til London, Hull
og Leith.
Skipadeild SÍS
Arnarfell er á Húsavík. Jökulfell
fer í dag frá Grimsby til Hull og
Rotterdam. Dísarfell fór 9. þ. m. frá
Svalbarðseyri til Rotterdam. Litla-
fell fór 11. þ. m. frá Reykjavík til
Þorláksfhafnar og Vestmannaeyja.
Helgafell fór 1 gær frá Rotterdam
til í>orlákshafnar. Stapafell er f
Rotterdam. Mælifell fór í gær frá
Odda til Reykjavíkur.
Skipaútgerð ríkisins:
Esja fer frá Reykjavik í kvöld aust-
ur u;m land í hringferð. Herjólfur
fer frá Vestmannaeyjum kl. 21:00 í
kvöld til Reykjavíkur. Blikur fór frá
Akureyri í gær á austurleið. Herðu-
breið er í Reykjavfk. Baldur fer til
Vestfjarðahafna i kvölid.
Loftleiðir h.f.
Vilhjálmur Stefánsson er væntan-
legur frá New York kl. 08:30. Heldur
áfram til Luxemborgar kl. 09:30. Er
væntanlegur til baka frá Luxemborg
kl. 01:00. Heldur átfram til New York
kl. 02:00. Snorri í>orfinnsson fer til
Óslóar, Gautaborgar og Kaupmanna-
hafnar kl. 09:30. Eiríkur rauði er
væntanlegur frá Kaupmannahötfn,
Gautaborg og Ósló kl. 00:30.
VÍSUKOKN
Frá Akraborg sendi óskaskeyti:
Undrandi stari ég yfir borg,
í austri með sínu Ijósaskrauti.
Svipmikla með teiga ng torg,
Traðarkotssund og Háaleiti.
Óskin er sú að enga sorg
aksturinn til hægri veiti.
hjþ.
Aheit og gjafir
Áheit á Strandarkirkju afh. Mhl.:
Jakob 100. Ómerkt áheit 100. S. J.
1000. Ómerkt 100. G. R. 300. G. G.
120. Þ. H. 50. N.N. 1000. O. K. 100.
S.S. 300. S. Þ. 100. S. J. 5000. St. M.
300. E. Þ. Hafnarf. 2000. S. O. E. 50.
Þ. S. 25. Á. M. 200. E. V. 150. Þ. H.
100. A. B. 50. G. J. 500. Toppa 50.
Þ. 200. D. G. 200. J. E. 400. T. J.
500. Skólastúlkur úr SkjnUlmeyjar-
deild Skólafél. Akraness 100. Hall-
grimskirkja í Saurbæ afh. Mbl. Vest
firðingur 100.
Til sölu 3ja herb. jbúð að Berg- staðastræti 30 B (efri hæð) Útb. 350 þús. Uppl. á staðn um. Ódýrt — ódýrt Jerseykjólar kr. 600.00. — Peysur frá kr. 100.00. — Nylonsokkar kr. 25. G. S. búðin, Traðkotssund 3.
Framleiðum: áklæði, hurðarspjöld, mott ur á gólf í allar tegundir bíla. OTUR, Mjölnisholti 4. (Ekið inn frá Laugavegi). Sími 10659. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu
NauSun gar uppboð
sem auglýst var í 66., 68. og 71. tbl. Lögbirtingablaðs
1967 á hluta í Safamýri 54, hér í borg, þingl. eign Rós-
mundar Guðmundssonar, fer fram eftir kröfu Hákonar
H. Kristjónssonar hdl., Landsbanka íslands, Útvegs-
banka fslands og Jóhanns Þórðarsonar hdl., á eign-
inni sjálfri, föstudaginn 16. febrúar n.k. kL 2 síð-
degis.
Borgarfógetaenibættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 66., 68. og 71. tbl. Lögbirtingablaðs
1967 á hluta í Sólheimum 25, hér í borg, talinn eign
Kristins Ragnarssonar, fer fram eftir kröfu Áma Hall-
dórssonar hrl., á eigninni sjáifri, föstudaginn 16. febrú-
ar n.k. kl. 11 árdegis
Borgarfógetaembættið í Reýkjavík.
Laganemar — lögfræðingar
MUNIÐ HÓF
0RAT0RS
að Hótel Borg, föstudaginn 16. febrúar. Hefst kl. 19.30.
Aðgöngumiðar seldir í Háskóla fslands og Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar
íbúðir til sölu
Álftamýri: 3ja herb. íbúð á 4. hæð, fullfrágengin.
Fellsmúli: 3ja herb. ibúð á 3. hæð 96 ferm
Ljósheimar: 4ra herb, íbúð á 3. hæð 3 svefnherb.
Álftamýri: 5 herb. íbúð á 2. hæð 110 ferm. Bílskúr.
Shíp & Fasteígnír
AUSTURSTRÆTI 18 • SÍiMI 21735 • .EFTIR LOKUN 36329
KITCHENAjD & EVESTIHIGHOUSE
viðgerðarþjónusta.
Viðgerðir og endurbætur á raflögnum.
Hringið í okkur í síma 13881.
RAFIMAIJST SF. Barónsstíg 3.