Morgunblaðið - 21.02.1968, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 1968
3
I Borgarbúar í Hue, börn og fullorðnir, leita skjóls undir múrvegg meðan fallbyssukúlum rignir yfir borgina.
HERMENN NORDUR-VIETNAM
HLEKKJADIR VIB BYSSURNAR
BORGIN Hue nyrzt í Suður-
Vietnam hefur verið mikið í
fréttum að undanförnu vegna
©fsalegra bardaga þar milli
hersveita Suður-Vietnam og
Bandaríkjanna annars vegar
og sveita Viet Cong skæru-
liða og Norður-Vietnam hins
vegar. Barizt hefur verið lát
laust í borginni um þriggja *
vikna skeið, og mannfall orð
ið mikið. Brezka blaðið The
Times í London, hefur ný-
lega sent þrjá af fréttamönn-
um sínum til Vietnam. Einn
þeirra, Fred Emery, fór til
Hue, og fer hér á eftir úr-
dráttur úr grein hans þaðan.
Er greinin lauslega þýdd og
stytt:
Tveir l'átnir hermenn frá
Norður-Vietnam, sem fund-
ust hiekkjaðir við vélbyssu-
stæði sín, sýna af hve mikl-
um ofsa kommúnistar verj-
ast tilraunum Bandaríkja-
manna og Suður-Vietnam til
að hrekja þá frá kastalaborg-
inni Hue.
Það var foringi úr banda-
ríska landgönguliðinu sem
skýrði Emery frá því hvem-
iglhermennirnir frá Norður-
Vietnam höfðu látizt hlekkj-
aðir við byssur sínar. Voru
þeir foringinn og Emery þá
á gangi áleiðis til framvarð-
stöðvar innan virkismúranna
í Hue, aðeins um 50 metrum
frá víglínunni þar sem harð-
ir bardagar geisuðu á giöt-
un-um. Voru það menn úr her
Suður-Vietnam, sem fundu
hlekkjuðu líkin.
„Við reiknum með því að
rekast á það sama þarna fyr-
ir handan“, sagði foringinn,
meðan bandarísku landgöngu
liðarnir þokuðust hægt fram,
þrátt fyrir mikið mannfall, á
þessum fjórða degi sóknarinn
ar in-n í sjálfa kastalaborg-
ina. Allt um-hverfis þá rigndi
niður ótrúlegu magni af sov
ézkum B-40 eldflaugum og
vélbyssukúlum frá kommún-
istu-m.
Barizt um hvern metra.
Hermenn Bandaríkjanna
og Suður-Vietnam sækja
hægt og sígandi fram með
brugðna byssustingi. Banda-
ríkjamennirnir komust um
100 metra þennan morgun
meðan stórskotalið þeirra,
herskiip og flugvélar létu
sprengjum, eldiflauguim og í-
kveikjusprengjum rigna yfir
ví'glínuna aðeins 100 metrum
frá þe:m.
Kort af borginni sýnir að
Bandaríkjamennimir eiga
ekki etftir nema 400 metra að
suður-múrum kastalaborgar-
innar, en barizt er atf hörku
um hvern metra. Hermenn
kommúnista hafa halft 18
daga til að koma sér fyrir í
múrum kastalaborgarinnar,
og eins og ég sá með eigin
augum, segir Emery, hatfa
þeir grafið sér frábærar skot
grafir, milli húsa og inn-an
um þykkan gróður garðanna.
Þótt við hefðum allt stór-
skotalið heims, kæmi það
ekki að notum", sagði majór
einn, sem var yfirmaður land
gönguliðanna. Hann er þriðji
stjórnandinn á 20 dögum,
hinir féllu.
Kastala-borgin virðist allt í
einu orðin atfar stór. Hún er
ekki eins og enskir kastalar,
sem falla ef óvinunum tekst
að komast inn fyrir múrana.
Þetta er víggirt borg þar sem
hver múrinn tekur við atf ööt
Framhald á bls. 21
Yderst
velklædt
-inderst.J
Jocke
Nærfötin eru þekkt
um allan heim
fyrir snið og gæði
HERRADEILD
Pósthússtræti — Laiigavegi-
STAKSTEI1\IAR
Ekki þjóðnýting
atvinnuvega
Tíminn er enn að reyna að
telja lesendum sínum trú um
það að Magnús Jónsson, fjár-
málaráðherra, hafi haldið því
fram á Alþingi að Norðurlands-
áætlunin væri ekki stuðningur
við atvinnulífið norðanlands-
Morgunblaðið nennir nú satt að
segja naumast að þrátta við þá
Tímamenn út af slíkri fjar-
stæðu, ,en vill þó benda á, að
Tíminn slysast til að birta úr
ræðu Magnúsar Jónssonar um-
mæli hans um það, með hverj-
um hætti Norðurlandsáætlunin
á að efla og styrkja atvlnnuveg-
ina. Tíminn birtir eftir honum
þessi orð, þar sem hann ræðir
um Norðurlandsáætlun:
„Hún er kortlagning atvinnu-
vandamálanna, ástandsins í at-
vinnumálum á hverjum stað;
athugun á því, bæði eftir því
sem sérfræðingar okkar segja
til um, eftir því sem skoðanir
manna, sveitarfélaga og verka-
lýðssamtök á hverjum stað,
einnig segja til nm, hvað væri
skynsamlegt að byggja upp á
þeissum stað miðað við atvinnu
aðstæður þar, miðað við fólks-
fjölda, miðað við horfur um
fólksflutninga, og síðan verður
þetta vinnuplan, ef svo má
segja, fyrir Atvinnujöfnunar-
sjóð, og eftir atvikum aðra fram
kvæmdasjóði í landinu, cf koma
til aðilar á þessum stöðum, seim
vilja beita sér fyrir því, á raun
hæfan hátt og með skynsam-
legri uppbyggingu, að þessar
framkvæmdir geta orðið að
verðuleika. Þannig er þessi á-
ætlunargerð hugsuð“.
Tímamenn halda því hins veg
ar fram, að því hafi verið „lof-
að“, að Norðurlandsáætlun
yrði áætlun um allsherjar þjóð
nýtingu atvinnuveganna áætl-
un um það. að ríkisvaldið ætli
að taka að sér atvinnurekstur
í hinum ýmsu byggðum. Þetta
er auðvitað mesta fásinna og
það veit hvert mannsbam.
Hin leiðin fundin
Tímamenn tryllast í gær út
af því, að Morgunblaðið skyldi
finna fyrir þá „hina leiðina"-
Morgunblaðið benti á það sl.
sunnudag, að enda þótt menn
skyldu ekki hvað Framsóknar-
foringjarnir ættu við, þegar
þeir töluðu um „hina leiðina"
og segðust kunna ráð við öllum
vanda í atvinnumálum, þá væri
hægt að styðjast við reynsluna
í þessu efni, þvi að svo vildi til,
að forusta Framsóknarflokksins
hefði um langt skeið tekið fram
fyrir hendur framkvæmdastjóra
samvinnufélaganna, er þeir
vildu gera breytingar á rekstii
sínum og sagt þeim nákvæm-
leffa fyrir um hvernig haga
bæri rekstri Sambandsins-
Menn þyrftu þess vegna ekki
að reyna að leysa þá vonlausu
krossgátu. sem yfirlýsingar
Framsóknarforingjanna í efna-
hagsmálum eru. Þeir þyrftu
ekki annað en líta á, hvemig
Sambandinu hefði verið stjóra-
að, þar talaði reynslan, þar
væru fundin „hin leiðin”,
„nýja leiðin“ eða „þriðja leið-
in“.
\